Morgunblaðið - 14.04.2021, Blaðsíða 25
Fundur leifa mikillar borgar við
Nílarfljótið við Lúxor í miðju
Egyptalandi hefur vakið mikla at-
hygli. Egypskir fornleifafræðingar
segja þar vera fundna miðstöð
stjórnar landsins fyrir rúmum 3.000
árum, á tíma Amenhoteps III. far-
aós, en rústirnar þykja hafa varð-
veist afar vel undir sandi og hefur
fundist þar fjöldi merkra mannvist-
arleifa, svo sem ýmiskonar leirker
og verkfæri auk þess sem beina-
grindur hafa verið grafnar upp.
Í The Art Newspaper er haft eftir
fornleifafræðingum að þeir hafi
fundið hina umtöluðu týndu „gullnu
borg Luxor“ en þar nærri eru nokk-
ur þekktustu hof og grafir egypska
konungaveldisins. Heimamenn tala
þegar um rústirnar sem hina
„epypsku Pompeii“, sökum þess
hversu vel borgin þykir hafa varð-
veist, og þá er vitnað í bandarískan
prófessor í Egyptalandsfræðum sem
segir þetta vera mikilvægasta fund í
Egyptalandi síðan gröf drengfaraós-
ins Tútankamons fannst ósnert árið
1922.
Fornleifafræðingar hófu að grafa
á staðnum haustið 2020 og voru í leit
að hofi sem þeir töldu vera þar. Eftir
nokkrar vikur höfðu þeir hins vegar
grafið upp leifar fjölda fornra bygg-
inga úr leirsteini og þegar sífellt
fleiri minjar, svo sem skartgripir,
leirker og útfarartól fundust með
innsigli Amenhoteps III. þótti ljóst
að hin týnda borg hans væri fundin.
Faraóinn var uppi á árunum milli
1386 og 1353 fyrir Krist og vitað hef-
ur verið að hann stýrði veldi sínu úr
glæstri borg þar á svæðinu, borg
sem var yfirgefin þegar Akhenaten
sonur hans tók við völdum og kaus
ásamt hinni kunnu drottningu sinni
Nefertiti að flytja til Amarna sem er
um 400 km norðar.
„Það hafa fundist leifar stórrar
borgar og þær hafa varðveist mjög
vel, með vel sterklegum veggjum og
rýmum sem í hafa fundist hvers
kyns tæki og tól hins daglega lífs,“
sagði stjórnandi uppgraftarins.
„Hún er ótrúlega falleg,“ sagði
stjórnandi fornleifadeildar Banda-
ríska háskólans í Kaíró um borgina
eftir að hafa fengið að skoða rúst-
irnar. Fræðimenn segja að rústirnar
muni gefa mikilvæga innsýn í líf
fólks í landinu þegar veldi faraóanna
reis hvað hæst og þá kunni að finn-
ast skýringar á þeirri miklu ráðgátu
hvers vegna Akhenaten og Nefertiti
fluttu á brott úr þessari merku borg.
Forngripir Verkamenn sem starfa við uppgröftinn við Lúxor fjarlægja stórt leirker úr rúst
einnar byggingarinnar. Fornleifafræðingar finna sífellt fleiri byggingar á svæðinu.
Mannvistarleifar Í rústum borgarinnar hafa þegar fundist nokkrar beinagrindur, manna og
dýra. Fornleifafræðingar vonast til að finna út hvers vegna borgin var yfirgefin.
Merkur fornleifafundur í Egyptalandi
- Borg Amenhoteps III. faraós fundin - Sagður vera merkasti fundurinn á eftir gröf Tútankamons
AFP
Gullna borgin Fornleifafræðingar hafa grafið upp vel varðveitta veggi borgar við Lúxor sem var fyrir um 3.400
árum höfuðborg Amenhoteps III. faraós. Fjöldi gripa hefur fundist í rústunum, margir með innsigli faraósins.
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
SJÁUMST Í BÍÓ SEM ALLRA FYRST
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
VIÐ MÆTUM AFTUR
15. APRÍL
EÐA UM LEIÐ OG COVID LEYFIR.
Starfsfólk Sambíóanna sendir ykkur öllum bestu kveðjur.
Hlökkum til að hitta ykkur í bíó aftur og upplifa
skemmtilegar stundir saman.
VÆ
NT
AN
LEG
Í B
ÍÓ
ÓSKARS-
TILNEFNINGA
MYNDIRNAR
MÆTA AFTUR
VÆNTANLEG Í BÍÓ