Morgunblaðið - 14.04.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.04.2021, Blaðsíða 28
577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is ER PLANIÐ SKÍTUGT? Fáðu tilboð í s. 577 5757 gamafelagid.is GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUNStjórnvöld í Sádi-Arabíu greiddu árið 2017 450 milljónir dala, um 47 milljarða íslenskra króna, fyrir málverkið Salvator Mundi (Frels- ari heimsins) sem eignað er Leonardo da Vinci og varð það dýrasta listaverk sögunnar. Til stóð að sýna verkið í Louvre- safninu árið 2019, á 500 ára ártíð da Vincis, en af því varð ekki. Nú hefur verið greint frá því í The New York Times að málverkið hafi leynilega borist Lo- uvre-safninu þar sem það var rannsakað og staðfestu sérfræðingar í óútgefinni skýrslu að það væri verk da Vincis. Stjórnendur Sádi-Arabíu höfðu samþykkt að verkið yrði á sýningunni en þegar til kom var það ekki sett upp og hefur ekki sést síðan – ástæðan mun vera sú að farið var fram á að málverkið, sem sýnir Jesú Krist, yrði sett upp við hlið Mónu Lísu, þekktasta verks málarans. Stjórnendur Louvre samþykktu það ekki og var Salvator Mundi því flutt ósýnt til Sádi-Arabíu. Vildu að Salvator Mundi væri sýndur við hlið Mónu Lísu í Louvre-safninu MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 104. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Æfingar og keppni í íþróttum hérlendis verður heimilað á nýjan leik frá og með morgundeginum. Þá verður 100 áhorfendum heimilt að sækja íþróttaviðburði. „Við [í ríkisstjórninni] vorum sammála um að það þyrfti að gera ákveðnar breytingar þarna og ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að það sé samræmi í þeim aðgerðum sem boðaðar eru. Hvort þessar breytingar á áhorf- endabanni hafi verið gegn tillögu sóttvarnalæknis er hins vegar eitthvað sem ég get ekki svarað,“ segir Lilja Alfreðsdóttir m.a. við Morgunblaðið í dag. »22 Íþróttalífið tekur við sér á ný eftir tilslakanir á sóttvarnareglum ÍÞRÓTTIR MENNING bundnu vinnuafli. Því hafi hún talið að fólk af íslenskum ættum vestra gæti fengið vinnu á Íslandi. „Það var borin von, því svo virtist sem enginn frá löndum utan Schengen- svæðisins gæti fengið atvinnuleyfi.“ Fyrir um þremur árum heyrði Margrét að starfsfólk vantaði á Keflavíkurflugvelli. Barnabarn hennar hafði nýlokið háskólanámi og sendi fyrirspurn um starf í tölvu- pósti en fékk ekki svar. Margrét segist ekki hafa sætt sig við það og þar sem hún væri 100% Íslendingur hafi hún líka sent tölvupóst en ekki verið svarað. „Um 40.000 erlendir starfsmenn höfðu verið ráðnir frá Evrópu en enginn með íslenskt blóð í æðum í Norður-Ameríku gat feng- ið að vinna tímabundið á Íslandi.“ Í kjölfarið segist Margrét hafa snúið sér að opinbera geiranum til að athuga hvort ekki leyndist smuga í kerfinu. Hún hafi meðal annars sent fyrirspurn til íslenska sendiráðsins í Ottawa og nýlega fengið svar frá Pétri Ásgeirssyni sendiherra. Verið væri að vinna í málinu í samvinnu við stjórnvöld í Kanada og vonandi yrði það afgreitt síðsumars. „Ég á mér þá ósk að barnabörn mín og aðrir af íslensk- um ættum fái tækifæri til að kynn- ast íslenskri menningu með því að vinna tímabundið á Íslandi,“ segir hún vongóð. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fréttablað Íslendingafélagsins í Bresku Kólumbíu í Kanada (ICCBC) er gefið út mánaðarlega 10 mánuði á ári. Margrét Bjarnason Amirault hefur verið ritstjóri blaðs- ins í aldarfjórðung og ekkert ís- lenskt er henni óviðkomandi. Eitt helsta baráttumál hennar er að kanadísk ungmenni af íslenskum ættum geti fengið tímabundið at- vinnuleyfi á Íslandi, hafi þannig tækifæri til þess að vinna á landinu og kynnast upprunanum sem best, en hún hefur ekki enn haft erindi sem erfiði. Íslendingafélagið var stofnað í Vancouver 1908 og hét þá Bók- menntafélagið Ingólfur. Ingólfur og Ísafold sameinuðust 1946 undir nafninu Ströndin, en núverandi nafn var tekið upp 1967. ICCBC er öfl- ugasta félagið í íslenska þjóðræknisfélaginu vestra (INL of NA). Um 350 manns greiða árgjald og um 600 manns frá landamærum Bandaríkjanna norður í átt að Alaska fá félagsblaðið. Margrét gekk í félagið fyrir 43 árum og hefur verið í stjórn frá því á níunda áratugnum. Hún segir að eftir því sem Íslendingar hafi bland- ast meira öðrum kynstofnum hafi áhugi þeirra á félaginu minnkað en starfsemin sé engu að síður blóm- leg. „Eftir að Ísland varð vinsæll ferðamannastaður fyrir nokkrum árum jókst áhuginn á félaginu okk- ar til muna,“ segir hún. Er 100% Íslendingur Afar Margrétar og ömmur fluttu frá Íslandi til Kanada 1888 og 1889 og hún fæddist og ólst upp á Gimli í Manitoba. „Ég ólst upp við íslensku talaða á götum úti, í verslunum, kirkjum og inni á heimilum, við vor- um algerlega hluti af íslenskri menningu,“ rifjar hún upp og legg- ur áherslu á að fjölskyldan hafi allt- af haldið sambandi við ættingja á Íslandi. Hún segist hafa reynt að halda arfleifðinni að börnum sínum og barnabörnum og þegar Ísland hafi verið á hvers manns vörum og vakið athygli ferðamanna hafi hún tekið eftir að skortur var á tíma- Ritstjóri í 25 ár - Margrét Bjarnason Amirault vill að kanadísk ungmenni af íslenskum ættum geti fengið atvinnuleyfi á Íslandi Í Vancouver Margrét við heimili sitt. Kirsuberjatrén eru nú í blóma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.