Morgunblaðið - 14.04.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2021
„MÉR HEFUR VERIÐ GEFIÐ TÆKIFÆRI
TIL AÐ STARFA SJÁLFSTÆTT.“
„HVAÐ ER AÐ ÞVÍ AÐ KLIPPA ÚT
HEILSÍÐUAUGLÝSINGU?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að geta ekki verið
lengi reið út í hann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
LÍSA, VARSTU
VINSÆL Í
GAGGÓ?
JÁ. EN
ÞÚ?
UH… JÁ
ÉG ER KANNSKI EKKI
MYNDARLEGUR, GREINDUR EÐA
STERKUR … ÞAÐ ER
ALLT Í LAGI!
ÉG ER KANNSKI
EKKI FJÁÐUR…
ÉG VEIT KANNSKI EKKI
HVENÆR ÉG Á AÐ ÞEGJA!
ÞAÐ VORU ALLIR
LEIÐIR ÞEGAR ÉG
ÚTSKRIFAÐIST!
HREKKJUSVÍNIN
FLÖGGUÐU NÆR-
BUXUNUM HANS Í
HÁLFA STÖNG
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars Helga er Gunn-
hildur J. Lýðsdóttir, f. 12.6. 1952, við-
skiptafræðingur. Þau búa í Skrúðási í
Garðabæ. „Þar steinsnar frá búa syn-
irnir þrír og fjölskyldur þeirra í um 5
mínútna göngufæri hvert frá öðru. Við
köllum þetta „litla þorpið okkar“ í
Ásahverfinu.“ Foreldrar Gunnhildar
eru hjónin Mundheiður Gunnars-
dóttir, f. 23.2. 1932, húsfreyja, og
Lýður Jónsson, f. 17.9. 1925, fv.
bifreiðarstjóri. Þau búa í Reykjavík.
Synir Gunnars Helga og Gunn-
hildar eru: 1) Hálfdan Guðni, f. 28.2.
1973, C.sc, vélaverkfræðingur og
framkvæmdastjóri. Kona hans er Þór-
hildur Ólafsdóttir, f. 7.8. 1973, doktor í
hagfræði, starfar við vísindarann-
sóknir. Börn þeirra eru: Gunnar
Helgi, f. 30.8. 1999, Anna Katrín, f.
21.7. 2001, Ásgerður Sara, f. 24.11.
2006, og Gunnhildur Lilja, f. 25.3.
2013; 2) Lýður Heiðar, f. 29.8. 1980,
viðskiptafræðingur og Msc.IM, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs. Kona
hans er Vigdís Ósk Helgadóttir, f.
14.3. 1980, rekstrarhagfræðingur,
Cand.merc. og M.acc., framkvæmda-
stjóri. Börn þeirra eru: Arnar Freyr,
f. 4.8. 2012, og Heiðar Ingi, f. 13.4.
2014; 3) Helgi Már, f. 11.6. 1991, Msc.
vélaverkfræðingur, starfar við véla-
hönnun.
Bróðir Gunnars Helga er Sigurður
Hálfdanarson, f. 9.7. 1948, fv. versl-
unarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Gunnars Helga voru
hjónin Hálfdan Helgason, f. 24.3.
1908, d. 16.1. 1972, stórkaupmaður,
og Arína Margrét Sigurðardóttir, f.
10.9. 1919, d. 16.4. 1999, verslunar-
maður. Þau bjuggu í Reykjavík.
Gunnar Helgi
Hálfdanarson
Júlíana Hólmfríður Davíðsdóttir
vinnukona á Enni við Blönduós
Ingimundur Sveinsson
smáskammtalæknir og
bóndi á Tungubakka í
Laxárdal fremri, A-Hún.
Halldóra Sigríður Ingimundardóttir
húsfreyja
Sigurður Sveinsson
bóndi á Enni við Blönduós
Arína Margrét Sigurðardóttir
húsfreyja og verslunarmaður
í Reykjavík
Helga Þorleifsdóttir
húsfreyja
Sveinn Kristófersson
bóndi á Enni við Blönduós
Jóhanna Sigríður Margrét Jóhannsdóttir
húsfreyja
TorfiMagnússon
bókhaldari í Reykjavík og
bæjarfógetafulltrúi á Ísafirði
Guðrún Torfadóttir
húsfreyja
Helgi Jónsson
verslunarmaður á Stokkseyri og í Reykjavík
Halla Árnadóttir
húsfreyja
Jón Magnússon
bóndi í Narfakoti í Njarðvíkum og Bráðræði í Reykjavík
Úr frændgarði Gunnars Helga Hálfdanarsonar
Hálfdan Helgason
stórkaupmaður í Reykjavík
Bjarni Thor Kristinsson segir fráþví á Boðnarmiði að langa-
langalangamma hans, Guðríður
Jónsdóttir, Múlakoti, Lund-
arreykjadal, hafi samið þessa vísu
sem vissulega hafi elst vel:
Gott er ekki að lifa lengur
landinn vill nú eygja flest.
Eldgos, kvilli, kvefsótt gengur,
kúadauði og bráðapest.
Friðrik Steingrímsson hefur orð
á því að hraunið flæði í dalina:
Fyllast dalir fyrr en varir
flæðir storkan ógnar hratt,
lostið furðu liðið starir,
landið verður bráðum flatt.
Helgi Zimsen segir „frétt úr
Meradal“:
Hrauns ber elfur glóðaglassúr,
(geldingur enn þó spýjum tvinnar).
Ruslast kvika rifu gass úr
rassgarnarenda merarinnar.
Jón Arnljótsson yrkir:
Úr iðrum jarðar eldur kemur
og hann rennur niðrí dalinn,
fer þar yfir grónar grundir,
gossins krafta enginn hemur.
Fólkið gengur langar leiðir,
að líta yfir fjallasalinn,
sjá hann hopa hraunið undir,
hratt sem þarna úr sér breiðir.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og nefnir „Víti til að varast“:
Allt er nú á ferð og flugi,
fjöllin springa og eldi gjósa,
magnast glóð í Meradölum,
Myrkraöflin sigri hrósa,
trylltan að sér lýðinn laða
leiksýningar til að njóta,
valtur sem í vímu loks á
Vítisbarmi missir fóta.
Halldór Guðlaugsson yrkir:
Breytingum er gefinn gaumur
gýs í nokkuð stærri skala
rauðglóandi rennnur flaumur
rösklega til Meradala.
Jón Atli Játvarðsson gefur þá
skýringu á vísu sinni, að oft sé gam-
an að klára tvö málefni í fjórum lín-
um. Vísnagerð geti stundum verið
yfirþyrmandi fyrir menningarvita,
t.d. í Kiljunni. Jafnvel best að gefa
skít bæði í formið og afurðina!
Út á túni trunta skeit,
tagli vingsar, sólin baðar.
Vísundur á vetrarbeit
var með hugann annars staðar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dalir fyllast og
landið verður flatt
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380