Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Side 2
Hvernig viðtökur hafa Dagmál fengið á þessum fyrstu vikum? Þær hafa verið góðar. Það er erfitt fyrir mig að tala fyrir allt en varðandi íþróttirnar, sem ég sé um, hafa viðbrögðin verið mjög góð. Það eru greinilega margir að horfa og reyna að horfa en efnið er bara aðgengilegt áskrif- endum Morgunblaðsins. Alla vega eins og er. Fyrst spurði fólk: Hvað er þetta? En núna spyr það frekar: Hvenær kem- ur næsti þáttur? Þetta virðist vera komið inn í netrúntinn hjá mörgum. Hverjar eru áherslurnar hjá þér? Ég hef verið að fá til mín afreksfólk í íþróttum og lagt áherslu á að fjalla um feril þess í bland við mannlega þáttinn. Þetta fólk hefur lagt mikið á sig og margt gerist á bak við tjöldin. Hvernig á þetta form við þig? Það er öðruvísi að taka sjónvarpsviðtal en blaðaviðtal en mér finnt þetta mjög gaman. Krefjandi en gaman. Þetta sameinar eig- inlega tvö stór áhugamál hjá mér; íþróttir og að tala við fólk. Þetta er vinsælt form í dag? Já, íþróttahlaðvörp njóta mikilla vinsælda enda mikil eftirspurnin eftir ítarlegri umfjöllun. Við miðum við 30 til 90 mínútur í Dag- málum en ég hef oftar verið nær þakinu en gólfinu hvað það varðar. Þannig að þú ert spenntur fyrir framhaldinu? Mjög spenntur. Eftirspurnin eftir mannlegu efni er mikil enda tengir fólk við slíkt efni. Ef fólk er með góðar ábendingar um íþróttafólk fyrir þáttinn þá er það vel þegið! Morgunblaðið/Eggert BJARNI HELGASON SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel Sími 555 3100 www.donna.is dreifingHeildsölu C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Ef marka má fréttirnar þá fjölgar Mosfellingum hraðar en öðrum Ís-lendingum. Er það vel. Mér þykir vænt um Mosfellsbæ. Ég hef að vísualdrei búið þar og mun mögulega aldrei gera en ek á hinn bóginn í gegnum bæinn flesta daga á leið minni úr einu hverfi í annað í Reykjavík. Og hef þar gjarnan viðkomu í leiðinni og skil góðan hluta af laununum mínum eftir hjá fyrirtækjum sem selja vörur eða veita þjónustu. Undantekning- arlaust er mér vel tekið, hvort sem ég er að taka kost, fá mér hraðbita, horfa á kappleik eða láta snyrta á mér skeggið. Vegna nálægðarinnar er afar kært með okkur Kjalnesingum og Mosfellingum og þeim fyrrnefndu þykir þeir um margt tengdari og eiga meira sameiginlegt með Mos- fellingum en Reykvíkingum enda þótt þeir tilheyri formlega höfuð- borginni. Þetta er svolítið eins og með Færeyinga; mörgum þeirra þykir þeir eiga meira sameiginlegt með Íslendingum en Dönum enda þótt þeir heyri undir Margréti en ekki Guðna. Að vísu er sá munur á að Færeyingar þurfa ekki að fara í gegnum Ís- land á leið sinni heim frá Danmörku. Eða er það nokkuð? Raunar er margt líkt með sambandi Kjalnesinga og Mosfellinga annars vegar og Færeyinga og Íslendinga hins vegar. Kjalnesingar líta upp til stóra frænda síns sem á móti þykir vænt um þennan mátulega skrítna litla frænda sinn og vill allt fyrir hann gera. Allir græða á slíku sambandi, háir og lágir. Af þessu leiðir að ég hef sterkar taugar til íþróttafélagsins Aftureldingar enda þótt ég haldi ekki formlega með liðinu. Þrjú barna minna æfðu og kepptu þar um tíma og tengdasonur minn lék lengi handbolta með félaginu. Fyrir vikið þekki ég vel til á Varmá og Tungubökkum og fer stundum þangað í nostalgíska vettvangsleiðangra. Með nesti. Mosfellingar eru ekki bara spartverskir á alla kanta, heldur líka tónvísari en flest önnur sveitarfélög. Ég get svo svarið það. Nægir þar að nefna Sigur Rós og Kaleo sem njóta hylli á heimsvísu. Þaðan koma líka ein vinsælasta söngkona landsins í dag, GDRN, og júróprinsessurnar Greta Salóme og María Ólafs. Svo er sjálf Diddú í Mosfellsdalnum. Að ekki sé talað um Gildr- una. Maður lifandi. Sem illu heilli starfar ekki lengur. Hversu oft feykti mað- ur flösu undir tónum hennar á Fimmunni eða Gauki á Stöng í gamla daga? Í raun er ég bara ósáttur við eitt þegar kemur að Mosfellsbæ. Af ein- hverjum ástæðum er ég steinhættur að fá málgagn bæjarins, Mosfelling, inn um lúguna. Blóta fyrir þær sakir upphátt og í hljóði. Á færeysku. Ég er (hér um bil) Mosfellingur! Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Þetta er svolítið eins og með Færeyinga; mörg- um þeirra þykir þeir eiga meira sameiginlegt með Íslendingum en Dönum. Júlíana og Svanhildur Anna Við ætlum til Akureyrar. Fjölskyldan er þar. SPURNING DAGSINS Hvað ætl- arðu að gera um páskana? Guðrún Þóra Magnúsdóttir Ég ætla að ferðast heima hjá mér. Geir Gunnar Geirsson Lesa Moggann. Ég hef verið áskrif- andi lengur en elstu menn muna. Anna Sigríður Hannesdóttir Njóta tímans með fjölskyldunni. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Bjarni Helgason er einn stjórnenda Dagmála sem eru viðtals- og um- ræðuþættir um hið helsta í íslensku samfélagi. Þeir eru opnir öllum áskrifendum Morgunblaðsins og má nálgast þá á mbl.is/dagmál. Á mannlegum nótum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.