Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Síða 19
einhverjar bestu gráu joggingbuxur sem ég veit um og hún gaf mér þær fyrir svolitlu. Fyr- ir utan þægindin lítur maður líka vel út í þess- um joggingflíkum.“ Hvað finnst þér setja punktinn yfir-ið þegar þú gerir þig til? „Mér finnst eyrnalokkar yfirleitt setja punktinn yfir i-ið. Ég reyni að nota flíkur bæði við tiltölulega látlaus tilefni en einnig þegar ég er að fara eitthvað fínt og þá getur skart gert gæfumuninn. Ég hef alltaf haft gaman af ýktu skarti og finnst skemmtilegt að dressa föt upp þannig.“ Bestu kaup sem þú hefur gert? „Fyrir utan úlpuna mína sem heldur mér hlýrri frá toppi til táar í öllu veðri þá er svört ullarrúllukragapeysa sem ég keypti af vin- konu minni eflaust einhver bestu kaup sem ég hef gert. Ég nota hana stanslaust, er í henni við fínni tilefni en líka hversdags. Svo eign- aðist ég svartar, víðar, uppháar jakkafatabux- ur fyrir svona sex árum og hef ekki hætt að nota þær. Þær hafa enst rosalega vel. Ég elska líka að hitta á góða skó, sérstaklega se- cond hand, og þessir Nike-skór voru virkilega góð kaup.“ Áttu þér tískufyrirmynd? „Ég fæ held ég mestan innblástur frá vin- konum mínum og stelst til dæmis reglulega í fataskápinn hjá Maríu Rós. Annars væri ég al- veg til í að eiga flestallt sem Harry Styles klæðist.“ Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum þessa stundina? „Það sem mér finnst nauðsynlegt er hlýleg en klæðileg flík sem gengur bæði heima í notalegheit og til að fara í út úr húsi. Ég hef reglu- lega fengið hrós fyrir þessa gráu síðu rúllu- kragapeysu þótt hún hafi miklu frekar verið hugsuð sem heimapeysa þegar ég keypti hana í Trendport. Ég get því tekið kósístemninguna alla leið heima en hoppað út í hversdagsleikann í henni líka og liðið vel.“ Hvað er á óskalistanum? „Óskalistinn minn er til- tölulega stuttur eins og er. Ég hef augun opin þessa dagana fyrir klassískum hversdags- legum skóm með flötum hæl og svo opnum háhæluðum spariskóm. Annars er ég að fara að útskrifast í sumar og er því á höttunum eftir út- skriftardressi. Hvort það verð- ur dragt eða kjóll á eftir að koma í ljós en ég er með augun opin á fatamörkuðum.“ staklega vel á Íslandi. Hvít peysa frá Matthildi er líka í uppáhaldi og er Jóna þess fullviss að peysan muni fylgja sér lengi. „Þar eru þæg- indin alla leið í gegn en hún er líka sparileg. Þannig föt verða auðveldlega í uppáhaldi hjá mér,“ segir Jóna. „Blár samfestingur sem ég keypti af systur vinkonu minnar er held ég flík sem ég mun seint losa mig við. Hann er í mínum uppá- haldslit og er frekar einstakur og ég hef notað hann við útgáfu á Verzlunarskólablaðinu þeg- ar ég var í ritstjórn blaðsins og á árshátíð í lögfræðinni, og svo hafa vinkonur mínar feng- ið hann lánaðan við góð tilefni. Fjólublár sam- festingur úr Spúútnik mun held ég líka fylgja mér lengi en ég fæ alltaf mikið hrós þegar ég dreg hann fram. Sniðið er fullkomið og ég held í hann fyrir vel valin tilefni. Ég nota líka mikið bláa dúnúlpu af mömmu sem hún keypti í Hagkaup í Skeif- unni 1988 og hún er í uppá- haldi fyrir þær sakir að hafa enst svona lengi. Hún er líka æðisleg á litinn og er svolítið í þessum stíl sem úlpur sem eru komnar í búðir núna eru og eru í tísku þessa dagana.“ Síðasta haust og það sem liðið er af vetri hafa þægileg íþróttaföt komið sterk inn að sögn Jónu. „Ég fékk ótrúlega þægilega Nike- peysu frá bróður mínum í jólagjöf og svo átti amma með margs konar hætti og alltaf þegar ég veit að ég þarf að standa mig og vera örugg. Dragtina í heild sinni þegar ég tók þátt í panel á COP25, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna 2019, og þegar ég stýrði panel á jafnrétt- isþingi forsætisráðuneytisins 2020, í heimsókn á Bessastaði og fleira. Svo notaði ég eingöngu jakkann og hafði hann lokaðan í 100 ára af- mælispartíi Stúdentaráðs þegar ég var forseti ráðsins. Ég notaði svo buxurnar við rúllu- kragapeysu þegar ég varði meistararitgerðina mína í haust. Þessi dragt hefur verið með mér í stórum verkefnum svo hún er í miklu uppá- haldi,“ segir Jóna. Frakki sem Jóna fékk frá ömmu sinni er einnig í miklu uppáhaldi hjá henni. Hún segir frakkann þykkan svo hann sé hlýr auk þess sem hann er með hettu sem hentar ein- Peysan og buxurnar eru frá íslenska merkinu Matthildi. Frakkann átti amma Jónu en hún gaf henni jakkann þegar hún var að taka til hjá sér. Ullardraktin er frá Marks & Spencer. Skórnir eru frá Bianco. Bláa ólin setur punktinn yfir i-ið. Buxurnar eru úr Topshop og jakk- ann fékk Jóna í Trendport en hanne r frá Monki. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Bláu eyrnalokkana gerði Agnes Freyja vinkona Jónu. 4.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN 5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óvið- jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm, heima hjá þér – allar nætur – alltaf. CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsu- dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma- svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu. MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu gormakerfi og aukinni kantstyrkingu. Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur og einnig eru fáanleg náttborð í stíl. Verð: 349.900 kr (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl) Verðdæmi: Classico 160 x 200 cm (Bókin Þess vegna sofum við fylgir í kaupunum) Bókin Þess vegna sofum við, eftir dr. Matthew Walker fylgir kaupum á rúmum úr 5 stjörnu hótelrúmalínunni frá Serta. Bókin hefur slegið í gegn um heim allan. Bókin opnar augu almennings fyrir mikilvægi svefns í tengslum við heilsu, vellíðan og árangur. Verðmæti: 3.490 kr. MATTHEW WALKER M Þessvegna sofumvið Um mikilvægi svefns og drauma Alþjóðleg metsölubók Mikilvæg og heillandi bók BILLGATES

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.