Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021
PÁSKAHEFÐIR
Í frumkristni notuðu menn hebr-eska orðið „Pesach“ um upprisuJesú Krists. Í mörgum tungu-
málum er tilbrigði við það stef not-
að, svo sem Pesach á frönsku, Pas-
cua á spænsku, Pasqua á ítölsku,
Pashkë á albönsku og Pask á
sænsku. Enska orðið Easter er af
allt öðrum stofni en það mun vera
dregið af engilsaxnesku gyðjunni
Eostre, sem einnig var nefnd Ast-
arte eða Oster. Eostre-hátíðin fór
iðulega fram í kringum jafndægur
að vori í Englandi, þannig að fyrstu
kristniboðarnir í Evrópu spyrtu
þetta tvennt saman.
Eins og svo margar páskahefðir á
páskakanínan rætur í aldagömlum
frjósemissiðum. Kanínur fjölga sér,
tja eins og kanínur, og eignast af-
kvæmi sín á vorin. Þannig að á stöð-
um þar sem úði og grúði af kan-
ínuungum blasti við að nota
kanínuna sem tákngerving fyrir
vorið og með tímanum páskana líka.
Faldi máluð egg
Ef marka má gamla þýska þjóðsögu
sem Pamela Kennedy hermir af í
bók sinni, An Easter Celebration:
Traditions and Customs from
Around the World, tók snauð kona,
sem hafði yndi af börnum, upp þann
sið að fela máluð egg í húsgarði sín-
um sem glaðning á páskum. Eitt ár-
ið, meðan börnin voru að leita að
eggjunum, sáu þau héra skjótast í
burtu. Eftir það þýddi ekki að segja
þeim annað en að skepnan hefði
skilið eggin eftir.
Já, fátt minnir meira á páskana
en blessuð eggin, hvort sem þau eru
handmáluð í öllum regnbogans lit-
um eða úr súkkulaði, eins og tíðkast
hér um slóðir. Sú hefð að safna, lita
og skreyta egg á sér á hinn bóginn
mörg þúsund ára sögu sem hófst
löngu áður en Kristur var uppi.
Í mörgum fornum menningar-
heimum, svo sem í Grikklandi og
Egyptalandi, var litið á egg sem
tákn frjósemi og fæðingar. Fyrir
vikið voru egg miðlæg í trúar-
athöfnum og voru hengd upp í
heiðnum hofum í dularfullum til-
gangi, að því er Martha Zimmer-
man greinir frá í bók sinni, Cele-
brating the Christian Year.
Löngu síðar veittu kristniboðar
eggjaleit fólks á vorin athygli og
tengdu hana við endurholdgun
Krists. Þannig lituðu þeir eggin út
frá merkingu litanna í kristinni trú;
gulur táknaði upprisuna, blár ástina
og rauður blóð Krists. Þá var al-
gengt að skreytingin á eggjunum
væri tilvísun í hinar ýmsu sögur úr
Biblíunni og barnið sem síðan fann
eggið fékk það hlutverk að segja
viðkomandi sögu út frá teikning-
unni.
Páskakarfan er annar gamall sið-
ur en hún á mögulega líka uppruna
sinn í Þýskalandi. Fljótlega eftir að
börnin áttuðu sig á því að „páska-
hérinn“ gæti skilið eftir góðgæti
byrjuðu þau að útbúa eins konar
hreiður í görðum sínum svo hinn
góði gestur gæti lagt það í.
Aðrir halda því fram að páska-
karfan sé mun eldri og sprottin úr
miðausturlenskri menningu. Bænd-
ur hafi þá tekið upp þann sið að
setja fræ í körfu og fengið þau
blessuð í þeim tilgangi að örva upp-
skeruna.
Eggjavelta í Hvíta húsinu
Páskaleikir eru af ýmsu tagi.
Eggjavelta á lóð Hvíta hússins í
Washington er hefð sem nær aftur
til ársins 1878 en Rutherford B.
Hayes opnaði þá hlið sitt fyrir börn-
um sem höfðu fært þessa hugmynd
í tal við forsetann á einni af hans
daglegu heilsubótargöngum. Áður
höfðu börn haldið upp á páskana
með því að fara í leiki í Capitol-hæð
en Ulysses S. Grant, forveri Hayes,
lét banna það athæfi en hann lét af
embætti árið 1877. Eggjaveltan er
enn við lýði á lóð Hvíta hússins en í
gleðinni felst einnig að börn og for-
eldrar þeirra mega skreyta egg og
leita að þeim.
Allt er til í Bandaríkjunum, eins
og við þekkjum, og menn leggja
mismikið á sig til að gleðja blessuð
börnin um páskana. Bandaríkja-
maður að nafni Sam Born setti á
laggirnar sælgætisgerðina Just
Born upp úr miðri seinustu öld. Í
verslun hans í Betlehem í Pennsylv-
aníu er meðal annars að finna litlar
sykurhúðaðar fígúrur sem vísa í
páskana. Í upphafi var hann hvorki
meira né minna en 27 klukkustund-
ir að gera hverja og eina fígúru en
til allrar hamingju fann sonur hans
upp aðferð til að stytta þann tíma
verulega. Í dag tekur það ekki
nema sex mínútur. Fígúrurnar eru
til í ýmsum gerðum og með
mismunandi bragði eftir árstíðum
en að sögn eru páskafígúrurnar allt-
af vinsælastar.
Nema hvað? Gleðilega páska!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listelskir komu
saman til að
skreyta páskaegg
í dýragarðinum í
Zagreb í Króatíu
á dögunum.
AFP Morgunblaðið/Ásdís
Enginn verð-
ur spældur
af eggjunum
Egg, kanínur, körfur, leitir, alls kyns sælgæti. Páska-
hefðirnar eru ótalmargar og hver annarri skemmti-
legri. Sumt af þessu hefur tíðkast öldum og jafnvel
árþúsundum saman og mun sjálfsagt halda áfram
að gleðja okkur á meðan ból eru byggð.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Páskaeggjavelta er árviss viðburður á lóð hvíta hússins í Washington.
Reuters
Frá æsilegri páskaeggjaleit
á Ægisíðunni árið 2008.
Páskakanínan á góðgæti
fyrir alla en sumir þurfa að
teygja sig svolítið eftir því.
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.