Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.04.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.4. 2021 LESBÓK HVAÐ ER HUNDURINN ÞINN AÐ GERAÁ DAGINN? Með einföldum hætti getur þú nú kannað stöðuna í gegnum myndavél og talað í gegnum hátalara. Nú á kynningarverði í vefverslun Securitas Sími 580 7000 | www.securitas.is ASKA Sjónvarpsmaðurinn Riki Rachtman, sem fræg- astur er fyrir að hafa stýrt þættinum Headbangers Ball á MTV á sinni tíð, segir að besta gjöf sem hann hafi fengið um dagana sé byssukúla sem innihaldi ösku Lemmys heitins Kilmisters, forsprakka málmbandsins Motörhead, en hann lést árið 2015. Þetta kom fram í við- tali við Rachtman í hlaðvarpi Elliotts Fullams. Racht- man er mikill Motörhead-maður og þeim Lemmy var vel til vina. Það mun hafa verið hinsta ósk þess síðastnefnda að ösku hans yrði komið fyrir í nokkrum byssukúlum sem hans nánustu fengju síðan að eiga. „Þetta er án nokkurs vafa verðmætasta eign mín. Ég ætla að láta breyta þessu í hálsmen þannig að ég get haft byssukúl- una með mér hvert sem ég fer,“ sagði Rachtman. Með Lemmy um hálsinn Lemmy var vin- ur vina sinna. AFP TÓMLÆTI Bandaríski leikarinn William Shat- ner viðurkennir í samtali við People Magazine að hann hefði aldrei horft á Star Trek, sjón- varpsþættina og síðar kvikmyndirnar sem gerðu hann frægan. Undantekningin er mynd númer fimm en Shatner leikstýrði henni og neyddist fyrir vikið til að horfa á hana. Shatner varð níræður á dögunum en er hvergi nærri sestur í helgan stein. Þannig hafði hann ekki fyrr blásið á kertin en að nýjasta kvikmynd hans var frumsýnd, gamanmyndin Senior Mo- ment. „Hver vill vera níræður? Ekki ég en ég er samt níræður. Það er hálfvandræðalegt,“ segir hann. Hefur aldrei horft á Star Trek William Shatner varð níræður á dögunum. AFP Simons og Jansen í ham á sviðinu. Ástin dó en bandið lifði VINÁTTA Mark Jansen, söngvari og gítarleikari sinfóníska- málmbandsins Epica frá Hollandi, segir alltaf jafn gott á milli þeirra Simone Simons, söngkonu bands- ins, enda þótt ástarsambandi þeirra hafi lokið fyrir sextán árum. „Við erum bestu vinir. Það er einstakt að eiga í svo góðu sambandi við fyrr- verandi kærustu sína,“ sagði hann við hlaðvarpið Loaded Radio. „Fáir makar myndu líða það en makar okkar hafa ekkert við þetta að at- huga. Það gleður mig mjög að þetta hafi gengið upp enda er Epica ástríða okkar beggja og við gátum ekki hugsað okkur að leggja bandið niður bara vegna þess að upp úr okkar ástarsambandi slitnaði.“ Fyrirgefðu en ég verð að hætta,ég held að ég hafi rétt í þessuverið tilnefnd til Óskars- verðlauna,“ sagði vandræðaleg Emerald Fennell við viðmælanda sinn á hinum enda símalínunnar. Hún hafði ætlað að fylgjast með blaðamannafundi akademíunnar í beinni sjónvarpsútsendingu en mis- reiknaði tímann eitthvað á sveita- setri sínu í Bretlandi og skyndilega rigndi sms-skilaboðum yfir hana. „Til hamingju, til hamingju!“ Fyrst var kunngjört að Promising Young Woman, frumraun Fennell á leikstjórastóli, væri tilnefnd í flokkn- um besta myndin. Af því missti hún sumsé en var komin að skjánum þegar fjórar aðrar tilnefningar bætt- ust við, þar af tvær til hennar sjálfr- ar, fyrir besta leikstjórn og besta frumsamda handritið. Þess utan er Carey Mulligan tilnefnd fyrir bestan leik í aðalhlutverki og Frédéric Thoraval fyrir klippingu. Hver myndi ekki treysta manni með slíkt Úps, verð að hætta, Óskar frændi kallar! Ekki verður annað sagt en að hin breska Emerald Fennell fái fljúgandi start sem leikstjóri en fyrsta kvikmynd hennar er tilnefnd til Óskarsverðlauna, auk þess sem Fennell er sjálf tilnefnd fyrir besta leikstjórn og besta frumsamda handritið. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Carey Mulligan, Bo Burnham og Alison Brie leika í Promising Young Woman. AFP Hin enska Carey Mulligan hefur að langmestu leyti fengið lofsam- lega dóma um frammistöðu sína í Promising Young Woman. Þó hefur komið fram að ein umsögn fór fyrir brjóstið á henni, í tímarit- inu Variety seint á síðasta ári. Leikur hennar þótti að vísu ljómandi góður en gagnrýnandinn, Dennis Harvey, sem starfar sjálfstætt, lét að því liggja að hún væri ekki nógu „heit“ fyrir hlutverkið og gaf í skyn að ástralska leikkonan Margot Robbie, sem einmitt er einn fram- leiðandi myndarinnar, hefði frekar átt að fara með það. Mulligan svaraði þessu fullum hálsi í viðtali við The New York Times, kvaðst hafa tekið þessi ummæli nærri sér og að gagnrýni ætti að vera á faglegum nótum og snúast um listina en ekki hvort gagnrýnandinn vildi sjá hina eða þessa leikkonuna í tilteknu hlutverki. Variety tók undir þetta sjónarmið og bað Mulligan formlega afsökunar á þessum hluta umsagnarinnar. Þótti ekki nógu „heit“ Margot Robbie.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.