Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 88. tölublað . 109. árgangur .
BRENNANDI
ÁHUGI Á KVIK-
MYNDATÓNLIST
ÖNNUR PLATA HVARFA 28
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ísland sker sig verulega úr borið
saman við hinar Norðurlandaþjóð-
irnar þegar kemur að innleiðingu
nýrra lyfja. Þetta kemur fram í um-
sögn Frumtaka – samtaka framleið-
enda frumlyfja um lyfjaverðstefnu,
tillögur að bættri lyfjaumsýslu hins
opinbera sem var birt til kynningar
í samráðsgátt stjórnvalda.
Frumtök benda m.a. á það í um-
sögn sinni að ný lyf komi almennt
síðast á markað hér á landi af
Norðurlöndunum eftir að Lyfja-
stofnun Evrópu (EMA) hefur veitt
þeim markaðsleyfi. Sama gildir
hvort sem horft er til innleiðingar
nýrra lyfja almennt eða sérstaklega
á innleiðingu nýrra krabbameins-
lyfja. Ísland er „langt fyrir neðan
meðaltal Evrópuríkja á meðan allar
hinar Norðurlandaþjóðirnar eru of-
an við meðaltalið“, segir í umsögn-
inni.
Samtökin segja að núverandi
staða Íslands í innleiðingu nýrra
lyfja sé „dapurleg“, samanborið við
Vestur-Evrópu almennt. »14
Dapurleg staða í
innleiðingu lyfja
- Ísland eftirbátur Norðurlandaþjóða
94
196
349
376
451
Tími frá samþykki
lyfja til aðgengis
Danmörk Svíþjóð Finnland Noregur Ísland
Meðalfjöldi daga frá
EMA-markaðsleyfi
Heimild: EFPIA/
Frumtök
Þessar konur urðu hlýjunni fegnar síðdegis í gær eftir að hafa
synt í köldum sjónum á opnunardegi ylstrandarinnar í Naut-
hólsvík, að loknu þriggja vikna hléi til að stemma stigu við út-
breiðslu faraldursins. Ylströndin var opnuð á nýjan leik í gær-
morgun, rétt eins og sundlaugar og líkamsræktarstöðvar.
Þó mega þar aðeins koma saman 50% af þeim fjölda sem
venjulega er heimilaður. Samhliða sífellt vaxandi fjölda bólu-
settra hér á landi má gera sér vonir um að vorinu fylgi minni
takmarkanir á lífi, leik og starfi en verið hafa umliðinn vetur.
Tveir eru á sjúkrahúsi með sjúkdóminn og er annar þeirra í
öndunarvél. Sá kom til landsins með flugvél sem lenda þurfti
hér vegna veikinda mannsins. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kaldur sjór og heitur pottur til að fagna afléttingu takmarkana
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Karítas Ríkharðsdóttir
Lögmaðurinn Jónas Haraldsson var
boðaður í utanríkisráðuneytið í gær-
morgun þar sem honum var tilkynnt
að hann væri kominn á svartan lista
stjórnvalda í Kína. Þetta hefur í för
með sér að hann sætir farbanni til
Kína og mögulegir fjármunir hans í
Kína frystir. Jónas hefur gagnrýnt
kínversk stjórnvöld í aðsendum
greinum í Morgunblaðinu þar sem
hann hefur fjallað um umgengni við
fasteign í eigu kínverska sendiráðs-
ins, umgengnishætti kínverskra
ferðamanna og gagnrýnt hvernig
kínversk stjórnvöld hafa tekið á
kórónuveirunni og hvatt ríki heims til
að krefja Kína um skaðabætur vegna
afleiðinga faraldursins.
„Þetta er í anda stjórnarfarsins
sem þarna [í Kína] ríkir, þar sem
hörðum aðgerðum er beitt gegn al-
mennum borgurum í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir gagnrýna hugsun,“
segir Sigríður Á. Andersen, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og for-
maður utanríkismálanefndar Alþing-
is, um að Jónas hafi verið settur á
kínverska listann. „Þetta kemur Ís-
lendingum kannski spánskt fyrir
sjónir að Íslendingur, almennur
borgari, sé settur undir þetta og
kemur ekki á óvart að þetta sæti
furðu.“
Gunnari Snorra Gunnarssyni,
sendiherra Íslands í Peking, var til-
kynnt ákvörðun kínverskra stjórn-
valda á miðvikudag. Þá lítur utan-
ríkisráðuneytið á athæfið sem
þvingunaraðgerð gegn íslenskum
borgara og mótmælti Gunnar Snorri
aðgerðinni samstundis. Auk þess var
sendiherra Kína á Íslandi boðaður til
fundar í utanríkisráðuneytinu þar
sem ákvörðuninni var mótmælt.
„Þeim var jafnframt bent á að það
ríkir fullt málfrelsi hér á Íslandi. Þessi
einstaklingur ber ekki neina ábyrgð á
íslenskum stjórnarathöfnum sem
stjórnvöld í Kína kunna að vera ósátt
við,“ sagði Sveinn H. Guðmarsson,
upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneyt-
isins, í samtali við mbl.is í gær.
Mótmæla aðgerð Kína
gegn almennum borgara
- Íslenskur ríkisborgari á svörtum lista yfirvalda í Peking
Morgunblaðið/Eggert
Sendiráð Aðgerðin er gagnrýnd.
MÞvingunaraðferðir Kína »2