Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 10

Morgunblaðið - 16.04.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL VIKTOR Hvíldarstóll KRAGELUND Aya K 129 KRAGELUND K371 Casö 701 langborð Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. KRAGELUND Handrup Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Allt frá árslokum 2017 var stjórn Isavia ohf. sem m.a. rekur Keflavík- urflugvöll, með vökul augu yfir starf- semi WOW air en félagið átti við rekstrarerfiðleika að stríða. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um að- komu og aðgerðir Isavia ohf. og Samgöngustofu í tengslum við fall WOW air, sem varð gjaldþrota í marsmánuði 2019, kemur fram að á nær öllum stjórnarfundum Isavia frá árslokum 2017 og þar til yfir lauk hafi málefni flugfélagsins verið til umfjöllunar. Í skýrslunni er einnig birt yfirlit yfir skuldir WOW air við Isavia ohf. sem sýnir hvernig sífellt syrti í álinn fyrir félaginu eftir því sem leið á árið 2018. Í árslok 2017 námu skuldir WOW air við Isavia rúmum hálfum milljarði króna en þær uxu hratt og námu 1,5 milljörð- um króna í lok ágústmánaðar, þrátt fyrir nokkrar ríflegar innborganir á skuldina í hverjum einasta mánuði. Samgöngustofa brást seint við Þrátt fyrir hina versnandi stöðu félagsins var það ekki fyrr en 21. september sem Samgöngustofa hóf ítarlegt fjárhagseftirlit með WOW air. Bendir Ríkisendurskoðun á að eftirlitið hafi ekki hafist fyrr en tveimur vikum eftir að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gaf stofn- uninni fyrirmæli um að ráðast í ítar- legt mat á fjárhagsstöðu flugfélags- ins. Hinn 13. september, viku eftir að ráðuneytið gaf fyrirmæli sín, var boðað til sérstaks stjórnarfundar hjá Isavia til að ræða tilraunir flug- félagsins til fjármögnunar en á þeim tíma stóð félagið í skuldabréfaútboði sem átti að afla því allt að 12 millj- örðum króna. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að beiðni hafi borist Isavia frá WOW air um greiðslufrest á notendagjöldum á Keflavíkurflug- velli. „Jafnframt kom fram á fundinum að Isavia ohf. hefði ríka heimild til að stöðva loftfar og tryggja með því greiðslu gjalda.“ Var ákveðið að svara erindinu með viðskiptahags- muni Isavia að leiðarljósi en að „eng- ir frestir yrðu veittir án staðfesting- ar stjórnar“. Hörð viðbrögð við forsíðufrétt Hinn 15. september birtist á for- síðu Morgunblaðsins frétt undir fyr- irsögninni „Milljarðaskuld við Isavia“ og haft eftir áreiðanlegum heimildum að félagið skuldaði tvo milljarða króna í lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli. Brást Skúli Mogensen, forstjóri félagsins og eigandi, skjótt við frétt- inni með yfirlýsingu á samfélags- miðlum og sagði hana ranga: „Ég get ekki orða bundist lengur að sjá hvernig sumir fjölmiðlar kepp- ast við að tortryggja WOW air og það sem við höfum byggt upp und- anfarin ár. Ég hreinlega trúi því ekki að nokkur blaðamaður eða fjölmiðill sé svo skammsýnn að vilja vísvitandi skemma fyrir áframhaldandi upp- byggingu félagsins. Nýjasta „frétt- in“ er að við eigum að skulda Isavia yfir tvo milljarða. Þessu er slegið upp með stórri fyrirsögn í æsifrétta- stíl á forsíðu Morgunblaðsins í dag og er vitnað í nafnlausan heimildar- mann. Við leggjum ekki í vana okkar að tjá okkur um einstaka birgja eða þjónustusamninga en þetta er ein- faldlega rangt. Við eigum mjög gott samstarf við Isavia og höfum aldrei skuldað þeim yfir tvo milljarða króna og það er til skammar að Morgun- blaðið sé að slá upp slíkum fyrirsögn- um án áreiðanlegra heimilda.“ Eins og áður sagði hófst ítarlegt fjárhags- eftirlit Samgöngustofu með WOW air sex dögum eftir frétt blaðsins. Viku síðar var haldinn annar stjórn- arfundur á vettvangi Isavia þar sem sérstaklega var farið yfir þær heim- ildir sem fyrirtækið hefði til þess að kyrrsetja þotur á vegum WOW air til að tryggja greiðslu skulda. Greiddu mikið inn á skuldina Virðist fréttaflutningurinn og við- brögð Isavia hafa orðið til þess að WOW air kaus að greiða um 550 milljónir inn á skuld sína við flugvöll- inn í lok septembermánaðar og stóð skuldin eftir það í tæpum 1.500 millj- ónum króna. Staðfestir það að skuld félagins um miðjan septembermán- uð var u.þ.b. tveir milljarðar króna, líkt og haldið var fram í fréttinni. Frá septembermánuði þokuðust skuldirnar nær linnulaust upp og innborganir á þær fóru minnkandi. Urðu innborganirnar mestar í lok nóvember eða rétt rúmar 200 millj- ónir en drógust svo verulega saman. Þegar upp var staðið afskrifaði Isavia 2,1 milljarð af skuldum WOW air. Í samantekt um málið sagði opin- bera hlutafélagið hins vegar að tekjur flugvallarins af þeim farþeg- um sem WOW flutti til og frá landinu á rekstrarárinu 2019 hefðu numið rúmum tveimur milljörðum króna. Byggðist sá útreikningur á áætluð- um meðaltekjum á hvern farþega sem fer um flugstöðina í Keflavík. Skuld WOW fór yfir tvo milljarða - Í lok ágúst 2018 skuldaði WOW air Isavia ohf. 1,5 milljarða króna - Í september jókst skuldin um ríflega 500 milljónir - Félagið greiddi ríflega 500 milljónir inn á skuldina í lok sama mánaðar Forsíðan 15. september Eigandi félagsins brást illa við frétt blaðsins. Skuldastaða og innborganirWowair til Isavia Milljónir kr. í lok mánaðar 2.000 1.500 1.000 500 0 480 360 240 120 0 Innborganir Skuldastaða 20182017 2019 Heimild: Ríkisendurskoðun des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí Skuldastaða Inn- borganir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.