Morgunblaðið - 16.04.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021
Uppáhalds L’Occitane
vörurnar okkar
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
L’Occitane stelpurnar mæla með sínum uppáhalds vörum.
Kynntu þér vörurnar í versluninni okkar í Kringlunni eða á loccitane.is
Skrifað hefur verið undir samning
á milli Nýja Landspítalans, Verkís,
Batterísins og T.ark um fullnaðar-
hönnun á bílakjallara við nýjan
Landspítala. Bílakjallarinn mun
rísa undir Sóleyjartorgi, austan
við meðferðarkjarna og sunnan við
Gamla Spítala, segir í tilkynningu
frá Nýja Landspítalanum.
Bílakjallarinn er hugsaður ein-
göngu sem þjónustustæði fyrir
ökutæki sjúklinga, aðstandenda og
gesta spítalans. Um er að ræða
200 bílastæði og má líkja honum
við bílakjallarann í Hörpu sem er
á tveimur hæðum. Gengið verður
beint inn í sjúkrahúsið úr bílakjall-
aranum í sjálfvirka stiga, lyftur
eða göngustiga. Þess má geta að
einnig verður byggt á svæðinu 550
stæða bílastæðahús.
Forhönnun bílakjallarans liggur
fyrir og verklok eru áætluð í byrj-
un árs 2022. Gert er ráð fyrir að
uppsteypa kjallarans sé samhliða
uppsteypu meðferðarkjarnans og
uppsteypunni sé að fullu lokið
2023.
Tölvuteikning/Nýi Landspítalinn
Hönnun Undir Sóleyjartorgi við Nýja Landspítalann kemur bílakjallari.
Samningur um
hönnun bílakjallara
- Kjallari verður undir Sóleyjartorgi
Á næstunni verður ráðist í endur-
gerð sjóvarnargarðsins meðfram
Ánanaustum í vesturbæ Reykjavík-
ur. Skipulagsfulltrúi hefur veitt
Reykjavíkurborg framkvæmdaleyfi
en framkvæmdir eiga að hefjast í
júní.
Um er að ræða framhald fyrri
áfanga en sjóvarnargarður við Eiðs-
granda var endurbættur í fyrra-
haust. Þær framkvæmdir sem nú
verður ráðist í ná til sjóvarnar-
garðsins þar sem hann liggur með-
fram skólpdælustöð og móttökustöð
Sorpu allt að athafnasvæði Lýsis hf.
Vegna sjógangs hefur göngustígur-
inn við Sorpu verið lokaður undan-
farin misseri.
Engar lagnir
Útfærslan á endurgerð garðsins
felst í upprifi á núverandi sjóvarnar-
garði, endurröðun á því grjóti sem er
þegar í garðinum og eins aðfluttu
grjóti svo byggja megi upp garðinn
til samræmis við verkteikningar.
Upprifið efni verður flokkað og end-
urnýtt í bland við aðflutt efni frá ná-
lægum lagerum. Ekki er gert ráð
fyrir að unnið verði í neinum lögnum.
„Stuðst verður við nýtt þversnið
sjóvarnargarðsins sem er að nokkru
leyti frábrugðið sniði því sem sýnt er
í gildandi deiliskipulagi svo brjóta
megi frekar ölduna þegar hún berst
að landi,“ segir verkefnastjóri.
Rífa þarf upp núverandi göngustíg
samhliða viðgerð á sjóvörnum og
gert er ráð fyrir að grófjafna stíga-
stæði að loknum framkvæmdum.
Vinnusvæðið er í nálægð við gang-
andi og hjólandi umferð svo gæta
skal ýtrustu varúðar við verkið.
sisi@mbl.is
Sjóvarnargarðurinn
bættur við Ánanaust
- Göngustígur við Sorpu verið lokaður vegna sjógangs
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ánanaust Þrátt fyrir öflugan grjótgarð gengur sjórinn yfir göngustíga.
Fiskideginum mikla á Dalvík hefur
verið frestað öðru sinni. Þetta var
ákveðið á stjórnarfundi hátíðar-
innar nýverið en kórónuveiru-
faraldurinn er ástæðan. Deginum
var einnig frestað í fyrra af sömu
ástæðu en þá átti að halda upp á 20
ára afmæli hátíðarinnar, sem jafn-
an hefur farið fram fyrstu helgina
eftir verslunarmannahelgi ár hvert
frá 2000.
„Ákvörðunin er tekin að vel
ígrunduðu máli. Við stefnum
ótrauð á afmælishátíð í ágúst
2022,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu. Dalvíkingar segjast ekki
treysta sér til að stjórna þeim fjölda
gesta sem sækja þá heim, ekki sé
hægt að skipta gestum upp í hólf
eða virða fjarlægðarmörk.
„Fiskidagurinn mikli, sem er
matarhátíð, er ekki haldinn fyrr en
grímunum hefur verið sleppt.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Dalvík Enginn Fiskidagurinn mikli í ár.
Fiskideginum frest-
að til næsta árs
Allt starf Ættfræðifélagsins frest-
ast til haust vegna kórónuveiru-
faraldursins og gildandi samkomu-
banns. Til stóð að halda félagsfund
í gærkvöldi en honum var frestað
þar sem aðeins 20 manns mega
koma saman.
Félagið ætlar þó ekki að aflýsa
fyrirhugaðri gönguferð 15. maí
næstkomandi, sem auglýst er í nýj-
asta fréttabréfi félagsins.
„Við biðjumst velvirðingar vegna
þessara frestana sem eru óumflýj-
anlegar vegna sóttvarna. Vonandi
getur starfið í haust farið hnökra-
laust fram,“ segir í tilkynningu frá
Ættfræðifélaginu, sem hefur verið
starfandi frá árinu 1945.
Ættfræðifélagið
frestar fundum