Morgunblaðið - 16.04.2021, Side 15

Morgunblaðið - 16.04.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2021 Hafi það verið til- gangur Vladimirs Pút- ins Rússlandsforseta að minna Joe Biden Bandaríkjaforseta á hernaðarmátt sinn með vopnaglamri um 80.000 hermanna við austur- landamæri Úkraínu og á Krímskaga undan- farna daga kann til- gangi hans að hafa verið náð þriðjudaginn 13. apríl. Þá hringdi Biden í Pútin og lagði til að þeir hittust einhvern tíma á kom- andi mánuðum. Frá Kreml barst tilkynning um að Rússlandsforseti ætlaði að íhuga málið. Dæmin sanna hve mörgum er kappsmál að skipa sér við hlið Bandaríkjaforseta. Ekki síst þeim sem skortir burði til þess. Sann- aðist það á eftirminnilegan hátt í Singapúr um árið, þar hittust Do- nald Trump forseti og Kim Jong- un, einræðisherra í Norður-Kóreu. Fundurinn reyndist með öllu árangurslaus en Kim taldi þjóð sinni trú um að hann sæti á stalli með Bandaríkjaforseta. Pútin hefur tryggt sér forseta- embættið til 2036 við síminnkandi vinsældir heima fyrir. Hann jók mjög vinsældir sínar á heimavelli fyrir sjö árum þegar hann lagði á ólögmætan hátt undir Rússa Krím- skaga og hóf opinberan stuðning við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Hernaður þar hefur síðan kostað um 14.000 manns lífið. Þarf Pútin slíkan uppslátt aftur? Nú segja rússneskir áróðurs- miðlar að sótt sé að rússnesku- mælandi minnihlutanum í Austur- Úkraínu, landið lúti stjórn spilltra ráðamanna í Kænugarði og sé á barmi borgarastyrjaldar. Rússar líði ekki slíkt ástand við landamæri sín. Samhliða símtali Bidens við Pútin fór Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Brussel og hitti Dmíjtro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, í höfuð- stöðvum NATO. Blin- ken lýsti „óbifan- legum stuðningi við fullveldi og lands- yfirráðarétt Úkraínu“. Þá fór Lloyd Austin, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, til Berl- ínar og sagði að bandarískum her- mönnum í Þýskalandi yrði fjölgað um 500. Loks hefur Bandaríkjastjórn sent tvo tundurspilla til eftirlits- starfa á Svartahafi. Sé það markmið Rússa að hindra aðild Úkraínu að NATO með her- útkalli sínu brást Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, við með þeim orðum að það væri NATO- ríkjanna 30 að ákveða hvenær kæmi að NATO-aðild Úkraínu og „enginn annar hefði neinn rétt til að blanda sér í eða skipta sér af því ferli“. Tilgangur þessa mikla hersafn- aðar Rússa við landamæri Úkraínu er óljós. Sergei Shoigu varnar- málaráðherra sagði þriðjudaginn 13. apríl að þetta væri „viðbragðs- könnun“ og henni lyki innan tveggja vikna. Sergei Rjabkov varautanríkisráðherra sagði hins vegar að Bandaríkjamenn væru andstæðingar Rússa og best væri fyrir bandarísku tundurspillana að halda sig frá Krímskaga og Svarta- hafsströndinni, annað kynni að verða þeim hættulegt. Bandaríkja- menn ætluðu að breyta Úkraínu í „púðurtunnu“. Áreiti gagnvart Bandaríkjamönnum Stig af stigi leiddu atburðirnir í Úkraínu árið 2014 til þess að NATO-ríkin beindu meiri athygli en nokkru sinni á rúmum 30 árum að sameiginlegum vörnum sínum í Evrópu og síðan á Norður- Atlantshafi og norðurslóðum. Hvert svo sem markmið Rússa er núna hefur þeim tekist að valda uppnámi með hernaðarbrölti sínu á þessum viðkvæma stað. Sumir telja að einmitt uppnámið sé markmiðið, það er að reyna á þanþol nýrrar stjórnar í Bandaríkjunum. Bröltið beri að skoða í ljósi at- burða á Suður-Kínahafi þar sem 220 varaliðsskip kínverska hersins sigldu sem fiskiskip í var við eyja- klasa sem Filippseyingar segja falla undir lögsögu sína. Banda- ríkjastjórn lýsti stuðningi við Filippseyinga, sem töldu þetta ögr- un, og áréttaði andstöðu við yf- irgang Kínverja með því að senda flugmóðurskip og fylgdarskip á vettvang. Þá er kínverskum her- vélum flogið tugum saman í loft- varnasvæði Taívana sem njóta ör- yggistryggingar af hálfu Bandaríkjamanna. Áreiti í garð Bandaríkjastjórnar og bandamanna hennar innan NATO birtist ekki aðeins í hern- aðarbrölti Rússa í og við Úkraínu eða ögrunum kínverska flotans og flughersins í garð Filippseyinga og Taívana. Vegið að utanríkisráðherra Sérkennilegt atvik varð í sam- skiptum rússneskra og íslenskra stjórnvalda í mars 2021. Ber að halda því til haga meðal annars við mat á fjölþátta ögrunum af rúss- neskri hálfu í garð norrænna ríkis- stjórna. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra ritaði grein sem birt- ist í Morgunblaðinu 11. mars 2021. Þar gat hann þess að kjarnorku- afvopnun væri mikilvægur þáttur í sögu NATO. Kjarnorkuvopn hefðu verið mest rúmlega 7.000 frá Bandaríkjunum í Evrópu þegar kalda stríðið stóð hæst en væru nú 150-200. Markmið Atlantshafsbandalags- ins væri að heimurinn yrði kjarna- vopnalaus. Rússar hefðu nú þróað nýjar tegundir kjarnavopna og endurnýjað þau sem fyrir væru. Frekari fækkun kjarnavopna þyrfti að taka mið af alþjóðlegu öryggis- umhverfi. Á meðan Rússland, Kína, Norður-Kórea og fleiri ríki byggju yfir kjarnavopnum yrðu NATO- ríkin að gera það líka. „Einhliða kjarnorkuafvopnun er firring og glapræði. Einungis með gagn- kvæmri afvopnun er öryggi tryggt,“ sagði utanríkisráðherra. Þessi orð urðu til þess að María Zakharova, upplýsingafulltrúi Ser- geis Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, sendi Guðlaugi Þór tón- inn á blaðamannafundi í Moskvu 18. mars. Það væri rangt að ríki Atlantshafsbandalagsins hefðu komið sér upp kjarnorkuvopnum sem svari við kjarnorkuvígvæðingu Sovétríkjanna sálugu. Vegna fréttar í Morgunblaðinu um þetta 19. mars hafnaði Guð- laugur Þór réttilega að hann hefði sagt eitthvað sem félli að orðum Zakharovu. Hvergi er minnst á Sovétríkin og kjarnorkuvopn þeirra í grein ráðherrans heldur bent á að Rússar hafi undir stjórn Pútíns þróað nýjar tegundir kjarnavopna og endurnýjað eldri gerðir slíkra vopna frá Sovéttímanum. Vladimir Pútin hefur hvað eftir annað gortað sig af nýju ógnarvopnunum. Morgunblaðið sneri sér til rúss- neska sendiráðsins í Reykjavík og óskaði skýringa á orðum Zakha- rovu. Svar sendiráðsins birtist 20 mars. Þar segir að ekki þurfi að vera sérfræðingur í alþjóðastjórn- málum til að lesa á milli línanna í grein ráðherra, og að „augljósar“ ályktanir hafi verið dregnar af orð- um hans, þær séu tilefni ummæla Zakharovu. Samkvæmt rökum Guðlaugs Þórs sé Atlantshafs- bandalagið eini hornsteinn öryggis og friðar í heiminum, bandalagið hafi sem sagt vígbúist til að svara vígbúnaði Sovétríkjanna. Þessi túlkun sé einhliða, ráðherrann hafi hvorki getið þáttar Rússa í nær öll- um afvopnunarsamningum né þess að Rússar hafi aldrei sagt sig ein- hliða frá neinum þeirra, ólíkt Bandaríkjamönnum. Þetta er skrýtin athugasemd. Allir sem þekkja sögu evrópskra öryggismála í kalda stríðinu vita að á áttunda áratugnum var hart tek- ist á um hvort svara ætti með- aldrægum sovéskum kjarnaeld- flaugum gegn vesturhluta Evrópu með bandarískum flugskeytum. Svonefndar friðarhreyfingar sem margar nutu sovésks stuðnings urðu undir í þeirri baráttu. Að rússneska utanríkisráðu- neytið sjái ástæðu til að lesa á milli lína í blaðagrein utanríkisráðherra Íslands til þess síðan að gagnrýna hann með rangfærslum á blaða- mannafundi ráðuneytisins er ný- mæli. Hvaða augum ber að líta slík afskipti? Er þetta liður í ögrandi málflutningi rússneskra stjórnvalda í garð ráðherra og ríkisstjórna á Norðurlöndunum almennt? Eða er Ísland undir smásjá í Moskvu? Hver sem svörin eru við spurn- ingunum hafa Rússar sýnt andlit gagnvart Íslandi sem minnir á kaldastríðsdraug. Eftir Björn Bjarnason » Sérkennilegt atvik varð í samskiptum rússneskra og íslenskra stjórnvalda í mars 2021. Ber að halda því til haga. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Vopnaglamur og áreiti Rússa Feðgar Þessir þrír labradorhundar eru feðgar og heita Nói, Nínó og Amon og eru hér í stöðugleikaæfingu fyrir veiði og veiðipróf. Nínó, í miðjunni, er pabbinn. Íslenskur veiðimeistari og er sá hundur sem hefur tekið þátt í flestum veiðiprófum hér á landi, eða alls 59 prófum. Nínó er 10 ára, elsti hundur á Íslandi sem hefur tekið þátt í Retriever-veiðiprófum. Fallegir feðgar á ferð. Ingólfur Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.