Morgunblaðið - 26.04.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021
starfa þar þrír verkstjórar.
Alls hafa um 200 ungmenni nýtt
úrræði Fjölsmiðjunnar á þessum 10
árum og hefur flestum vegnað vel í
lífinu. Það segir Þorvarður vera hinn
eiginlega ávinning af starfinu; að
koma ungu fólki úr óvirkni í virkni,
glæða áhuga þeirra á frekara námi
og að þau megi verða að virkjum
samfélagsþegnum. Til Fjölsmiðj-
unnar koma þau i gegnum félags-
þjónustu sveitarfélaganna eða
Vinnumálastofnun.
„Á þeim sjö árum sem ég hef veitt
Fjölsmiðjunni forstöðu hefur starf-
semin vaxið jafnt og þétt, veltan, um-
fangið og fjöldi þeirra ungmenna
sem hafa nýtt sér úrræðið. Ég tók
við góðum grunni þegar ég byrjaði
sem við höfum byggt ofan á. En það
sem mér finnst ekki síður hafa skipt
miklu máli er viðhorf þeirra ung-
menna sem hingað koma. Við höfum
öðlast þann sess í samfélaginu að það
er ekki refsing að þurfa að vera
hérna. Nú biðja ungmennin um að fá
að koma hingað. Ekki minni ávinn-
ingur er að þau geta stundað nám
með vinnunni hér. Ef þau eru búin að
standa sig vel og eru með góða mæt-
ingu og virkni og þau sýna áhuga á
að stunda nám þá aðstoðum við með
„Nú biðja ungmennin um að
- Fjölsmiðjan á Suðurnesjum fagnar 10 ára afmæli - Helsti ávinningur af starfinu er að koma ungu
fólki úr óvirkni í virkni - Glæðum áhuga á frekara námi, segir forstöðumaður Fjölsmiðjunnar
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölsmiðjan Þorvarður Guðmundsson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, í Kompunni nytjamarkaði sem er stærsta verkefni Fjölsmiðjunnar.
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbæ
Alls 23 ungmenni starfa í virkni-
úrræði Fjölsmiðjunnar á Suð-
urnesjum, sem er meira en hefur
verið að jafnaði á undanförnum ár-
um. Þá eru nokkur ungmenni á bið-
lista. Þorvarður Guðmundsson for-
stöðumaður segir ástandið á
vinnumarkaðnum á Suðurnesjum út-
skýra stöðuna.
„Í venjulegu árferði komum við
ungmennunum nokkuð fljótt út á
vinnumarkaðinn eftir að þau hafa
verið hér í virkni. Nú hefur enginn
farið héðan út á vinnumarkaðinn í
rúmt ár, en í staðinn höfum við hvatt
þau til að fara í nám og á námskeið.
Við sköpum þeim svo aðstöðu hér til
að læra og ég aðstoða þau við verk-
efni ef þarf, eins og yfirlestur,“ segir
Þorvarður sem er menntaður grunn-
skólakennari og markþjálfi.
Fjölsmiðjan er í góðu samstarfi við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Mið-
stöð símenntunar á Suðurnesjum en
þar stunda nemendurnir nám á
margvíslegum námsleiðum og
-brautum. Að auki er gott samstarf
við Samvinnu og Björgina, geðrækt-
armiðstöð Suðurnesja. Helstu
styrktaraðilar Fjölsmiðjunnar eru
stéttarfélög og sveitarfélög á Suð-
urnesjum, Vinnumálastofnun, Suð-
urnesjadeild Rauða krossins og
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið.
Um 200 ungmenni farið í gegn
Starfsemi Fjölsmiðjunnar á Suð-
urnesjum hófst 17. mars 2011 þegar
sjö ungmenni mættu til starfa í nýtt
virkniúrræði fyrir ungt fólk á Suð-
urnesjum. Markmið Fjölsmiðjunnar
er að hjálpa ungu fólki á aldrinum 16
til 24 ára að finna sitt áhugasvið, öðl-
ast starfsreynslu svo auka megi
möguleika þess í atvinnulífinu eða í
námi, eins og segir í skipulagsskrá.
Þeim er gefinn kostur á hagnýtri
vinnu, faglegri þjálfun, félagshæfni
og vinnuhæfni en auk forstöðumanns
Elísa Maren er ein þeirra ungmenna sem
starfa í Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum. Hún
kom þangað fyrir fjórum árum eftir að hafa
flosnað upp úr grunnskólanámi. „Bróðir
minn hafði þá verið hérna í eitt ár og hann
hjálpaði mér að komast hingað.“
Elísa hefur glímt við mikla feimni, sagðist
eiginlega ekki hafa talað við neinn áður en
hún kom í Fjölsmiðjuna, en það hafi nú breyst
til batnaðar. „Ég kom því hingað til að kom-
ast í virkni en ekki síður til að vinna. Mér
finnst frábært að vinna hérna, þetta er góð
vinna, starfsmennirnir eru góðir og yfir-
mennirnir eru góðir við okkur.“
Aðspurð hvað henni finnist skemmtilegast
að gera í vinnunni er svar Elísu stutt og ein-
falt: „Allt.“
Hún segir að sér gangi miklu betur að tala
við fólk núna og sé ekki eins feimin og hún
var þegar hún kom til Fjölsmiðjunnar. Maður
heyrir að henni finnst vináttan sem hefur
myndast milli ungmennanna í Fjölsmiðjunni
dýrmæt.
Elísa lýkur námi í skrifstofuskóla I hjá
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) í
næsta mánuði en hafði fyrir það klárað
grunnmenntaskólann og menntastoðir hjá
MSS, en námsleiðirnar eru hugsaðar fyrir þá
sem hafa flosnað upp úr námi og þurfa að
auka færni sína í ýmsum grunnnáms-
greinum.
– Hvert er svo stefnan tekin, Elísa?
„Ég stefni fyrst og fremst að því að klára
skrifstofuskóla I en er ekki alveg viss hvað ég
vil læra eftir það. Kannski fer ég í skrifstofu-
skóla II í haust og sé svo til með framhaldið.“
Ekki eins feimin í dag
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Vináttan Elísa Maren er mjög ánægð í Fjöl-
smiðjunni og hefur tekist á við feimnina.
„Áður en ég kom hingað var ég bara heima,
ekki að gera neitt nema horfa á sjónvarpið í
þunglyndiskasti. Ég átti enga vini. Ég var því
sendur hingað í Fjölsmiðjuna,“ segir Jóhann
Andri Malmquist Sigurz sem kom til virkni
fyrir fjórum árum, þá 17 ára.
Hann segir mikla breytingu hafa orðið á
lífi sínu. „Ég er ekki lengur bara heima að
gera ekki neitt. Ég fór að fara meira út, eign-
aðist vini og öðlaðist meira hugrekki. Ég
þorði að tala við fólk,“ segir Jóhann Andri og
lýsir úrræði Fjölsmiðjunnar sem sinni lífs-
björg. „Ég þurfti algjörlega á þessu að
halda.“
Jóhann Andri lýkur stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja í vor af fjölgreina-
braut og hann hefur skýra framtíðarsýn á
nám.
„Ég er búinn að sækja um nám í ensku í
Háskóla Íslands og ætla að ná í BA-gráðu í
ensku, svo kannski mastersgráðu. Mér finnst
ég vera betri í ensku en flestöllu öðru.“
Jóhann Andri er umsjónarmaður bókanna
sem berast til Kompunnar og fara í sölu í
bókahorninu, einnig dvd- og cd-diska. Ensku
bækurnar eru hans uppáhald en umsjón með
bókunum á sérstaklega vel við hann því hann
vill hafa allt í röð og reglu. „Ég er svona röð-
unarfrík. Ég var einmitt að raða öllum bók-
unum í stafrófsröð eftir rithöfundum og hafði
þá lokið því með erlendu höfundana. Rauða
serían er líka öll komin í númeraröð.“
Við erum sammála um að gott skipulag
skipti máli nú þegar Jóhann Andri er að setja
sér markmið til framtíðar.
– Áttu góð orð handa ungu fólki sem er í
svipuðum sporum og þú varst í fyrir fjórum
árum?
„Já, farið að gera eitthvað. Nýtið ykkur úr-
ræði eins og Fjölsmiðjuna. Það er allt betra
en að gera ekki neitt.“
Það er allt betra
en að gera ekki neitt
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Breyting Jóhann Andri hefur séð um bækur
og diska sem berast Kompunni.