Morgunblaðið - 26.04.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021
„ ÞÚ ERT AÐ BOMBA, MAÐUR. ER
SPRENGJUSVEITIN Í HÚSINU?“
„HALTU ÞIG FRÁ ÞESSUM ÚR TRÉ. HAUSINN
VAR NÆSTUM SKOTINN AF MÉR!!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vakna um
niðdimma nótt til þess
að hugga hann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG BÝ Í HÚSI FULLU AF
OFURHETJUM
KAPTEINN
LITLAUS …
OG AÐSTOÐ-
ARMAÐURINN
HANS, GLÓRU-
LAUS!
GLÓRULAUS, ÉG
HEF GRUN UM AÐ
ÉG HAFI VERIÐ
SVÍVIRTUR
BÚ! ÉG ER KOMINN TIL AÐ RÆNA AF ÞÉR
VÖLDUM!
ÞÚ ERTOF
SEINN!
REYNDU AÐ SULLA
EKKI ÚT FYRIR!
KEPPNI
ÁHUGAFRAMMÍ-
KALLARA
Katrín Sjöfn Sigurbjörnsdóttir versl-
unarmaður, f. 10.11. 1940, og Sig-
urgeir Scheving, f. 8.1. 1935, d. 24.10.
2011. Sjöfn og Sigurgeir skildu á 7.
áratugnum. Eiginmaður Sjafnar og
stjúpfaðir Sigurpáls er Magnús
Sveinsson verslunarmaður, f. 2.3.
1948. Fv. eiginmaður Evu er Óskar
Jónasson, f. 30.6. 1963.
Börn Evu eru: 1) Matthildur Ósk-
arsdóttir, nemi í sjúkraþjálfun við
HÍ, f. 13.10. 1999; 2) Júlía Óskars-
dóttir, nemi við MR, f. 3.7. 2003; 3)
Sigrún Óskarsdóttir, nemi í Valhúsa-
skóla, f. 4.10. 2005: 4) Sigríður Sig-
urpálsdóttir Scheving, nemi í Mýr-
arhúsaskóla, f. 26.7. 2010. Stjúpbörn
Evu, sem Sigurpáll átti fyrir með
Hildi Jakobínu Gísladóttur, eru: 1)
Egill Breki Scheving, nemi við Borg-
arholtsskóla, f. 2.6. 2000; 2) Hrafn-
katla Scheving, nemi við FB, f. 20.10.
2004; 3) Kolfinna Kristín Scheving,
nemi í Garðaskóla, f. 13.4. 2007.
Systkini Evu eru Ragna Sara
Jónsdóttir framkvæmdastjóri Fólks-
Reykjavík, f. 3.3. 1973, og Hjörleifur
Jónsson, margmiðlunarhönnuður í
Mosfellsbæ, f. 15.10. 1976.
Foreldrar Evu: Jón Hjörleifsson, f.
25.6. 1949, d. 18.6. 2020, og Sigrún
Ágústsdóttir, f. 19.9. 1950. Þau
skildu. Jón var athafnamaður en Sig-
rún hefur lengst af starfað sem fóstra
og leikskólakennari. Hún er búsett í
Mosfellsbæ.
Eva María
Jónsdóttir
Jón Árnason
skipstjóri í Reykjavík,
frá Móum á Kjalarnesi
Ragnhildur Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík, frá
Breiðholti
Ragna J. Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ágúst Sæmundsson
framkvæmdastjóri í Reykjavík
Sigrún Ágústsdóttir
leikskólakennari í Reykjavík
Matthildur Helgadóttir
húsfreyja í Reykjavík, frá Flateyri
Sæmundur Guðmundsson
ljósmyndari í Hafnarfirði,
frá Stokkseyri
Snæbjörn Guðmundsson
járnsmiður á Hvammstanga,
f. í Saurbæ á Vatnsnesi
Elín Pétursdóttir Blöndal
húsfreyja á Hvammstanga, síðar
sjálfsþurftarbóndi í Reykjavík, f. í
Tungu á Vatnsnesi
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Hjörleifur Jónsson
forstjóri í Reykjavík
Guðrún Sveinsdóttir
húsfreyja í Skarðshlíð, frá Selkoti
Jón Hjörleifsson
bóndi og oddviti í Skarðshlíð
undir Austur-Eyjafjöllum, f. þar
Úr frændgarði Evu Maríu Jónsdóttur
Jón Hjörleifsson
athafnamaður í Reykjavík
Nú er hlýtt og bjart í Mývatns-sveit og Friðrik Stein-
grímsson yrkir á Boðnarmiði:
Fuglar kvaka kátt við raust
sem kætir mannsins eyra,
graðir þrestir linnulaust
láta í sér heyra.
Sumarkveðju Guðmundar Arn-
finnssonar fylgir þessi vísa:
Syngur lóa ljóð í móa,
leysir snjó úr hlíð,
víðitó og vellir gróa,
vorsins frjó er tíð.
Gunnar Rögnvaldsson sendi
mér þessa stöku:
Bjartsýni í brjósti fann,
burtu kvaddur vetur.
Fyrsta lóan lætur mann
líða ávallt betur.
Upp í hugann kemur staka Þor-
steins Erlingssonar:
Sofnar lóa er löng og mjó
ljós á flóa deyja;
verður ró um víðan sjó,
vötn og skógar þegja.
Reyr frá Drangsnesi rifjar upp
gamla vorvísu, sem á vel við í
dag:
Ég braggast sem brum að vori
brosandi móti sól
og spring út að vörmu spori
í sparisumarkjól
Gylfi Þorkelsson lætur hugann
fljúga:
Halló, Dalvík, Akureyri!
Þar alltaf má finna golu hlýja.
Dýrðarstaðir finnast fleiri;
Færeyjar, Kýpur, Namibía.
Í síðustu viku rifjaði ég upp vís-
ur Vestur-Íslendinga. „Spá“ kall-
ar Guttormur J. Guttormsson
þessar afhendingar:
Eftir þúsund ár er mælt að
almenningur
verði orðinn vitfirringur.
Verða kannske – vísindin ei vita um
alla –
einstöku með öllum mjalla.
Einangraðir öðlast þeir þá eitthvert
bæli –
verður stofnað vitrahæli.
Sæmundur Eyjólfsson kvað:
Yfir lærdóms urð og grjót
allvel skeiðar snarpur
taglskelltur með fiman fót
Flankastaða-Jarpur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorið er komið
og lóa í móa