Morgunblaðið - 26.04.2021, Síða 13
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021
Við leitum að
YFIRMATREIÐSLU-
MANNI
með mikinn metnað
Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður og
góður í mannlegum samkiptum með góða skipu-
lagshæfileika.
Í starfinu felst að hafa umsjón með daglegum
rekstri eldhúss, innkaupum, matseðlagerð,
starfsmannaráðningum og vaktarplönum.
Íslenskukunnátta nauðsynleg.
Opnunartími Finnsson Bistro verður frá 11:30
til 21:00.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir sendist á: info@finnssonbistro.is
Nánari upplýsingar gefur Óskar, s. 660 6060.
Í maí opnar
Finnsson Bistro
í Kringlunni
FINNSSON
BISTRO
opnar
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, hefur sætt gagnrýni þar í
landi eftir ásakanir Dominics
Cummings, fyrrverandi ráðgjafa
hans, um að hann skorti hvort
tveggja hæfni og heilindi.
Cummings, sem lét af störfum
sem aðalráðgjafi Johnsons í desem-
ber, notaði bloggsíðu sína á föstudag
til að segja að Johnson hefði reynt að
óska eftir mögulegum ólöglegum
framlögum til að endurnýja íbúð
sína, sem var styrkt opinberlega af
embætti ráðherrans.
Hann hélt því einnig fram að John-
son hefði lagt til að lokað yrði fyrir
innri rannsókn á leka ríkisstjórnar-
innar, sökum þess að sakborningur-
inn væri náinn vinur Carrie Sy-
monds, unnustu Johnsons.
Skrifstofa Johnsons hefur vísað
frá öllum ásökunum og fullyrðir að
öll „framlög sem hægt er að til-
kynna“ séu opinberlega birt og for-
sætisráðherrann „hafi aldrei blandað
sér í rannsóknir á leka stjórnvalda“.
„Hvort sem ég styð skoðanir Dom-
inics Cummings eða skoðanir Boris
Johnsons, þá þurfum við almenni-
lega sjálfstæða rannsókn sem snýst
ekki um tvo stráka sem berjast held-
ur um skattgreiðendur í landi okk-
ar,“ sagði Jess Phillips, þingmaður
Verkamannaflokksins, við Sky-
fréttastofuna um helgina.
Hún staðfesti að Verkamanna-
flokkurinn myndi leggja fram brýna
fyrirspurn á þinginu í næstu viku um
ásakanirnar varðandi endurnýjun
íbúðar Johnsons.
Cummings, sem stóð á bak við her-
ferð fyrir brottgöngu Bretlands úr
Evrópusambandinu árið 2016, var
skipaður aðalráðgjafi af Johnson
þegar hann tók við völdum í júlí 2019.
Hann hjálpaði til við að tryggja
kosningasigur þann desember en tíð
átök hans við samstarfsmenn eru
sögð hafa leitt til viðvarandi spennu
og hann hætti í ríkisstjórn ári síðar.
Mannorð Cummings beið svo
hnekki eftir að hann fór í langt ferða-
lag með fjölskyldu sinni og hélt því
fram að hann og eiginkona hans
þyrftu aðstoð frá ættingjum eftir að
hafa bæði fengið Covid-19-einkenni
þrátt fyrir að strangar reglur væru í
gildi um að fólk ætti að halda sig
heima.
AFP
Ásakanir Boris Johnson og fyrrver-
andi ráðgjafinn Dominic Cummings.
Johnson sætir alvar-
legum ásökunum
- Skrifstofa Johnsons hefur vísað frá öllum ásökunum sem
koma frá fyrrverandi aðalráðgjafa forsætisráðherrans
Að sögn Hvíta hússins ætla Banda-
ríkin „undir eins“ að veita Indlandi
stuðning í formi efna sem vantar í
framleiðslu á Covishield-bóluefninu
ásamt sýnatökustrimlum, öndunar-
vélum og hlífðarbúnaði. Vestrænar
þjóðir, þar á meðal Bretland, Frakk-
land og Þýskaland, hafa einnig heitið
aðstoð.
Faraldur kórónuveirunnar er í
miklum vexti á Indlandi en á meðan
yfir milljarður manna hefur fengið
bóluefnið á heimsvísu fjölgar til-
fellum þar í landi hratt.
Frá höfuðborginni Nýju-Delí hafa
borist fregnir af yfirfullum sjúkra-
húsum og miklum súrefnis- og lyfja-
skorti. Þá hafa fjölskyldur leitað á
samfélagsmiðla til að biðja um að-
stoð.
Í yfirlýsingu Hvíta hússins kom
ekkert fram um hvort Bandaríkin
myndu senda afgang af AstraZeneca-
bóluefninu til Indlands en Anthony
Fauci, helsti ráðgjafi Bandaríkjanna
hvað varðar faraldurinn, hafði sagt
að það væri til skoðunar. Bandaríkin
eiga yfir 30 milljón skammta af bólu-
efninu sem ekki hefur verið sam-
þykkt að nota í landinu. Efnið hefur
hins vegar verið samþykkt á Indlandi.
Í umfjöllun AFP-fréttastofunnar er
bent á að sérfræðingar hafi lengi var-
að við því að enginn verði öruggur fyr-
ir sjúkdómnum fyrr en allir, líka þeir
sem eru búsettir í þróunarlöndunum,
séu það. Það geri það að verkum að al-
þjóðlegir hagsmunir séu fólgnir í því
að efnaðri lönd sem vilja ólm hafa
heimsfaraldurinn í baksýnisspegl-
inum hjálpi stórum tekjulægri þjóðum
eins og Indlandi að bólusetja íbúa
sína.
Sorglegur raunveruleikinn á Ind-
landi hefur orðið til þess að frægt fólk,
aðgerðasinnar og sérfræðingar hafa
hvatt Hvíta húsið til að gera meira en
nú hefur verið boðað. Þar á meðal að
aflétta útflutningsbanni á hráefn-
unum sem myndu gera Indlandi kleift
að búa til sitt eigið bóluefni.
Veita Indlandi stuðning
- Kórónuveirufaraldurinn er í miklum vexti á Indlandi og
tilfellum þar fjölgar mjög hratt - Sjúkrahús yfirfull
Neyð á Indlandi
» Bandaríkin hafa sagt það
möguleika að gefa Indlandi af-
gangsskammta af Astra-
Zeneca-bóluefninu en þó kom
það ekki fram í yfirlýsingu.
» Bóluefnið er ekki samþykkt í
Bandaríkjunum en er sam-
þykkt á Indlandi.
Fólk að veiðum í Numazu í Shizuoka-umdæmi í Japan. Í
bakgrunni gnæfir Fujifjallið, hæst allra fjalla í Japan.
Japan lýsti á föstudag yfir neyðarástandi m.a. í Tók-
ýó, Kýótó og Osaka. Ástæða neyðarástandsins er að
sögn forsætisráðherra Japans, Yoshihide Suga, fjölgun
kórónuveirusmita í landinu.
AFP
Neyðarástand í Japan vegna veirunnar