Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 14

Morgunblaðið - 26.04.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. APRÍL 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Snemmamorgunssumardag- inn fyrsta gerði þingið fleira en að samþykkja lög um sóttvarnir og út- lendinga. Að þeirri laga- setningu lokinni samþykkti það skýrslubeiðni Karls Gauta Hjaltasonar og annarra þing- manna Miðflokksins til dóms- málaráðherra um viðbrögð við uppgangi skipulagðrar glæpa- starfsemi. Í skýrslubeiðninni er óskað svara við ýmsum spurningum um það hvað hafi verið gert og hvað standi til að gera og verð- ur fróðlegt að sjá skýrsluna þegar hún kemur. En skýrslu- beiðnin sjálf og greinargerðin með henni eru líka ágæt áminning um það ástand sem hér er uppi og hefur ítrekað verið minnt á. Í greinargerðinni er minnt á skýrslur greiningardeildar ríkislögreglustjóra í rúman áratug, meðal annars frá árinu 2015 þar sem fram kemur að „lögreglan telur að henni sé ekki fært að halda uppi ásætt- anlegri frumkvæðislöggæslu vegna fjárskorts og mann- eklu“. Þá er rifjuð upp skýrsla frá árinu 2017 þar sem segir „að skipulögðum brotahópum hafi vaxið ásmegin og að lögreglan glími við mann- eklu, fjárskort og aukið álag. Einnig er fjallað um að vegna skorts á mannafla og ófull- nægjandi tækja- búnaðar sé farþegalistagrein- ingum lítið sinnt en slík greining er þó eitt öflugasta tæki lögreglu við landamæra- eftirlit“. Í þessari skýrslu sé sagt brýnt „að styrkja lögregl- una þannig að hún sé þess megnug að tryggja réttar- öryggi borgaranna og vernda grundvallarhagsmuni rík- isins“. Í greinargerðinni kemur fram að þessi sjónarmið séu ítrekuð í skýrslu frá árinu 2019 og þar sé niðurstaðan sú að skipulögð glæpastarfsemi sé alvarlegasta ógn við sam- félag og einstaklinga á Íslandi að náttúruhamförum frátöld- um. Mikilvægt er að fá fram upplýsingar um hvað hafi verið gert til að bregðast við þessum ábendingum ríkislögreglu- stjóra í gegnum tíðina. Miðað við hvernig ábendingarnar þróast eru líkur á að of lítið hafi verið gert, en sé svo er enn tækifæri til þess að efla lögregluna og þau úrræði sem hún hefur til að takast á við vaxandi ógn skipulagðrar glæpastarfsemi. Lögreglan verður að hafa burði til að tak- ast á við skipulagða glæpastarfsemi} Alvarlegasta ógnin Sigríður And-ersen alþing- ismaður ritar á vef sinn um borgarlín- una og loftslags- mál og bendir á að um þessar mundir sé „margt réttlætt með mis- sannfærandi hætti með því að það sé gert í þágu loftslagsins. Ekki síst skattar, gjöld, boð og bönn og ýmis önnur ærin verk- efni ríkis og sveitarfélaga“. Og borgarlínan sé þar ekki undan- tekning enda segi í nýlegri skýrslu um hana að borgarlín- unni sé ætlað mikilvægt hlut- verk við að ná fram markmiði um samdrátt í losun gróður- húsalofttegunda. Sigríður bendir á að rafbílar séu að ryðja sér til rúms en þar fyrir utan losi bílar, ekki aðeins einkabílar heldur einnig stórir bílar, aðeins um 7% af heildar- losun Íslands, fyrir utan milli- landaflug. Einkabílar á höf- uðborgarsvæðinu séu aðeins hluti af þessum 7% og jafnvel þótt björtustu spár um notkun á borgarlínu rættust yrði árangurinn við að minnka los- un aðeins „brot úr prósenti og borgarlínan þar með ein dýr- asta loftslagsaðgerð sög- unnar“. Þá nefnir Sigríð- ur að verði nýt- ingin lítil muni borgarlínan leiða til aukinnar los- unar gróðurhúsa- lofttegunda enda komi fram í skýrslunni „að borgarlínan verði ekki kolefn- ishlutlaus, sama hver orkugjaf- inn verður, enda fylgja henni miklar framkvæmdir og inn- kaup á risavögnum“. Það blasir við að allar líkur eru á að borgarlínan muni auka losun gróðurhúsalofttegunda þegar horft er til þess hve hratt almenningur hefur fært sig yfir í rafbíla og þeirrar miklu losunar sem borgar- línunni fylgja. Þá er hætt við að hún muni auka slit á götum og þar með svifryk, enda vex slit á götum með auknum krafti við vaxandi þyngd bíla. En ekkert þessu líkt eða annað virðist skipta máli þegar stórkarlalega hugmyndin um borgarlínuna er annars vegar. Þá víkja öll rök og hlutum er hiklaust snúið á haus. Hvers vegna fleiri stjórnmálamenn taka ekki upp hanskann fyrir almenning í þessu máli og reyna að koma í veg fyrir yfir- vofandi slys er óskiljanlegt. Til stuðnings borg- arlínu virðist talið betra að veifa röngu tré en öngu} Falsrök með borgarlínu E ftir því sem áætlanir um bólusetn- ingar ganga eftir mun þjóðlífið hér innanlands smám saman færast í eðlilegt horf í sumar. Á allra næstu dögum verða slegin met hér á landi í fjölda þeirra sem fá bólusetn- ingu. Jafnframt er útlit fyrir að aukinn þungi færist í bólusetningar innan ríkja Evrópusam- bandsins á næstu vikum. Því má gera ráð fyrir að síðla sumars muni ferðalög milli Íslands og ríkja Evrópu – sem og til Bandaríkjanna, Bret- lands og Kanada – komast í eðlilegt horf. Þetta eru gleðileg tíðindi. Það hefur óneitanlega kostað fórnir að halda veirunni í skefjum og eðlilega hafa vaknað spurningar um hve langt stjórnvöld mega ganga við skerðingu borgaralegra réttinda í þeim tilgangi. Við höfum nú þurft að grípa til harðra aðgerða til að efla sóttvarnir á landa- mærunum. Fáein smit hafa nýlega valdið hópsýkingum hér innanlands og við því varð að bregðast með tíma- bundnum aðgerðum. Um leið munu bólusetningar draga úr þörfinni fyrir slík sértæk viðbrögð. Aðgerðunum verður því hætt þegar stærstur hluti landsmanna hefur fengið bóluefni gegn veirunni. Að öllu óbreyttu verður það um mitt sumar. Ríkisstjórnir víða um heim hafa neyðst til að grípa til sambærilegra ráðstafana. Í lýðræðisríkjum, þar sem stjórnskipunin hvílir á hugmyndum réttarríkis og sjón- armiðum mannréttinda, verður að taka slíkar ákvarðanir að vel ígrunduðu máli og á grundvelli laga. Í mannrétt- indakafla stjórnarskrárinnar og mannrétt- indasáttmála Evrópu er gert ráð fyrir heimild ríkisvaldsins til að setja skorður við frelsi ein- staklinga þegar almannahagsmunir krefjast þess. Þegar heimsfaraldur geisar er stjórn- völdum heimilt að skerða mannréttindi ef það er beinlínis gert til að vernda líf og heilsu al- mennings. Hættan þarf alltaf að vera mjög skýr til að gripið sé til slíkra aðgerða og það má aldrei misnota þessa heimild. Í lýðræðis- og rétt- arríkjum eru stjórnvöldum, sem betur fer, settar ákveðnar skorður við framkvæmdina. Það þarf því alltaf að gæta meðalhófs. Aðgerð- ir verða að eiga sér stoð í lögum, þær mega ekki ganga lengra en tilefni er til og ekki vara lengur en nauðsyn krefur. Síðan er það grund- vallaratriði að dómstólar hafa vald til að skera úr um valdmörk stjórnvalda í þessum efnum eins og öðrum. Við sem höfum komið að ákvörðunum stjórnvalda á þessum viðsjárverðu tímum erum meðvituð um þá skyldu okkar að gæta meðalhófs í öllum aðgerðum er lúta að skerðingu borgaralegra réttinda. Hversu langt er gengið skapar líka fordæmi fyrir takmarkanir réttinda við aðrar kringumstæður. Það er því afar mikilvægt að tryggja að stjórnvöld gæti meðalhófs og að þröskuldurinn sé hár þeg- ar kemur að því að skerða réttindi einstaklinga. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Meðalhófið skiptir máli Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Skúli Halldórsson sh@mbl.is J oe Biden Bandaríkjaforseti viðurkenndi formlega á laugardag að herlið Ottóm- ana hefði framið þjóðarmorð á Armenum árið 1915. Viðurkenn- ingin markar vatnaskil fyrir afkom- endur þeirra hundraða þúsunda sem létust, en stjórnvöld í Tyrklandi hafa áratugum saman reynt að hindra að atburðirnir verði skilgreindir sem þjóðarmorð. Biden varð enda fyrstur til að hafa þetta orð um atburðina af þeim sem gegnt hafa forsetaembættinu vestanhafs undanfarna öld. Degi áður hafði hann þó hringt í Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, til að upplýsa hann um ákvörðun sína og um leið reyna að takmarka möguleg hörð viðbrögð þar í landi. Erdogan svaraði samdægurs Yfirlýsing Bidens þykir mikill sigur fyrir Armeníu og þá ótalmörgu sem eiga ættir þangað að rekja. Árið 1965 varð Úrúgvæ fyrst til að viður- kenna þjóðarmorðið en síðan hafa fylgt fleiri ríki á borð við Frakkland, Þýskaland, Kanada og Rússland. Yfirlýsingar frá Bandaríkjunum hef- ur lengi verið beðið af hálfu Armena, en ekki fengist undir fyrrverandi forsetum. Erdogan svaraði yfirlýsingunni samdægurs með sinni eigin, og sagði að rökræður ættu að vera á vegum sagnfræðinga og ekki nýttar í póli- tískum tilgangi af utanaðkomandi aðilum. „Orð geta ekki breytt eða end- urskrifað söguna,“ tísti tyrkneski utanríkisráðherrann Mevlut Cavus- oglu strax í kjölfar yfirlýsingar Bid- ens. „Við munum ekki þiggja kennslustundir frá neinum um sögu okkar,“ skrifaði hann. Utanríkisráðuneytið í Ankara kallaði svo bandaríska sendiherrann David Satterfield á fund þar sem honum var tjáð óánægja stjórnvalda. Ákvörðun Bidens hefði valdið „sári í samskiptum ríkjanna sem erfitt verður að græða“, eins og ríkis- fréttastofan Anadolu greindi frá. Safnað saman og fluttir burt Talið hefur verið að allt að 1,5 milljónir Armena hafi verið drepnar frá 1915 til 1917, þegar veldi Ottó- mana var að líða undir lok, en hinn kristni minnihluti Armena var grun- aður um að hjálpa óvininum í Rúss- landi þegar fyrri heimsstyrjöldin var í algleymingi. Armenum var safnað saman og þeir fluttir í eyðimörkina í Sýrlandi. Þar voru margir þeirra skotnir til bana eða þeim byrlað eitur, auk þess sem margir létust af völdum sjúk- dóma, samkvæmt vitnisburðum er- lendra stjórnarerindreka á þeim tíma. Stjórnvöld í Tyrklandi, sem reis úr rústum Ottómanaveldisins sem veraldlegt lýðveldi, hafa viðurkennt að 300 þúsund Armenar kunni að hafa látist en harðneitað að um þjóð- armorð hafi verið að ræða. Þeir hafi látist í átökum og hungursneyð, sem einnig hafi leitt marga Tyrki til dauða. Það hefur því lengi vakað fyrir Armenum að þjóðarmorðið verði viðurkennt. Meds Yeghern, glæp- urinn mikli, verði þeim bættur með einhverjum hætti. Heyrist frá Aserbaídsjan Í tilkynningu frá utanríkisráðu- neyti Aserbaídsjans var yfirlýsing Bidens sögð „brengla sagnfræði- legar staðreyndir um atburði ársins 1915“. Aserbaídsjan sigraði á síðasta ári Armeníu í stríði um svæðið Nagorno-Karabakh. Þar komu Tyrkir til aðstoðar Aserbaídsjan og skildu Armena eftir í sárum. Forsætisráðherra Armeníu, Nikol Pashinyan, þakkaði Biden fyr- ir „kraftmikið skref í átt að réttlæti og ómetanlegan stuðning við afkom- endur fórnarlamba þjóðarmorðsins á Armenum“. Stjórnvöld í Tyrklandi hafa enn ekki kynnt nein áform um að svara yfirlýsingunni í verki, ólíkt því sem áður hefur verið raunin þegar Vest- urlönd viðurkenna þjóðarmorðið. Þá hefur oft verið gripið til aðgerða. Vaxandi spenna um Tyrkland Spenna hefur farið vaxandi í kringum Tyrkland á undanförnum árum eftir að yfirvöld ákváðu að kaupa stórt loftvarnakerfi frá Rúss- um, og í kjölfar árása Tyrkja gegn Kúrdum í Sýrlandi. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti árið 2019 að viðurkenna þjóðarmorðið, en ríkisstjórn Trumps gaf skýrt til kynna að opinber af- staða stjórnvalda hefði ekki breyst. Stjórnmálaskýrendur telja að sá gjörningur, og sú staðreynd að hann hafði engin sjáanleg áhrif á samband ríkjanna tveggja, hafi rutt veginn fyrir þessa yfirlýsingu forset- ans. AFP Friður Armeni búsettur í Þessalóníku í Grikklandi hélt á þessu spjaldi á laugardag, í göngu til minningar um að 106 ár væru liðin frá þjóðarmorði. Þrjóskast við og þræta fyrir þjóðarmorð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.