Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir all-mörgum ár-um varð hugtakið „litli símamaðurinn“ þekkt. Þar er átt við uppljóstrara sem kemur á fram- færi „við almenning“ einhverju sem leynt á að fara, að mati „ráðamanna“, en ekki sé endi- lega víst að slík leynd væri í þágu almennings eða í anda upplýsingalaga og annarra gildandi fyrirmæla sem tryggja skulu gagnsæi stjórnsýslunnar. Í Bandaríkjunum hafa mál þróast þannig að „litlu síma- mennirnir“ eru í miklum meiri- hluta flokksbundnir demókrat- ar eða ákafir stuðningsmenn þess flokks. Á meðan forsetar sitja úr röðum Demókrata- flokksins fækkar uppljóstr- urum verulega. Einhver gæti skotið því inn í hér að leiðtogar úr ranni demókrata væru al- mennt séð miklu ólíklegri til að aðhafast eitthvað vafasamt í valdastarfi sem væri persónu- lega þýðingarmikið fyrir þá að færi leynt heldur en hinir vondu repúblikanar. Síðari tíma saga staðfestir ekki þá pólitísku óskhyggju. En hún undirstrikar hins vegar með þéttum línum hversu móttæki- legur stærsti hluti veglegustu fjölmiðlamanna er fyrir „rétt- um“ uppljóstrunum. Það hvern- ig fjölmiðlagerið „fréttir ekk- ert“ um algjörlega óboðlega framkomu og verndun Hunters Bidens er lítið dæmi en segir mikla sögu. Í gær kom mál með óvæntum hætti í kastljós fréttanna. Þá var lekið bútum úr samtali sem Zarif utanríkisráðherra Írans átti fyrir skömmu. Talsmenn utanríkisráðuneytisins í Teheran segja lekann ekki að- eins vera lögbrot heldur sé þar um að ræða glæpsamlegt verk af alvarlegasta tagi. Og það gefur í raun augaleið að svo sé, að mati stjórnvalda í Íran. Mál sem varða kjarnorkuvopn lúta hæsta trúnaðarstigi allra kjarnorkuvelda og ekki síður þeirra ríkja sem eru að rembast við að komast í þann hóp og eru Norður-Kórea og Íran þar ofar- lega á blaði. Það kom í byrjun á óvart að talsmaður Zarifs utanríkis- ráðherra ber ekki við að afneita þeim samtalsbútum sem þegar hafa lekið. Þeir draga þó upp þá mynd að þarna hafi verið rætt við velþekktan hagfræðing sem notið hafi mikils trausts og samtalið hafi alls ekki verið ætlað til birtingar. Það var beinlínis hugsað til fróðleiks fyrir síðari tíma. Og þá væri verið að hugsa til framtíðar sem langt væri undan. Samtalið hefði tekið einar sjö klukku- stundir í upptöku! En hver var í hlutverki „litla símamansins“? Enn er spjótum ekki beint á neinn. En ágiskanir bein- ast að andstæð- ingum ráðherrans í íranska stjórnkerf- inu og samherja hans í æðstu lögum valdakerfisins. Þar er m.a. átt við Rouhani, forseta Írans, sem sækist eftir endur- kjöri í sumar. Líklegt er talið að æðstaklerki Írans og loka- punkti hins endanlega valds sé ekki skemmt. Í samtalinu talar Zarif vissulega opinskátt um hversu veigalítið vald hans sjálfs sé borið saman við stöðu Ayatollahs Alis Kahmeinis. En í þeirri andrá ræðir hann einnig um hvílíkt ofurhögg Bandaríkin hafi veitt Íran þegar þau komu öllum heiminum á óvart með morðinu á Qassem Soleimani hershöfðingja í janúar 2020. En það sem vekur mesta at- hygli í hinum nýlegu lekum er það sem birst hefur í NYT og fleiri miðlum og tengist John Kerry fyrrverandi utanríkis- ráðherra. Hann á nú sæti í þjóðaröryggisráði Bandaríkj- anna í stjórn Joes Bidens í krafti stöðu sinnar sem sér- stakur útsendari forsetans í hamfarahlýnunarmálum. Javad Zarif fullyrðir í nýbirt- um bút að John Kerry hafi, sem utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sagt sér frá fleiri en 200 aðgerðum Ísraelsmanna sem beindust að Sýrlandi! Ekki er langt síðan John Kerry var sakaður um að hafa átt samstarf við stjórnvöld í Teheran í sameiginlegri við- leitni við að grafa undan efna- hagsþvingunum Trumps for- seta sem viðurkennt var að voru farnar að hafa alvarleg áhrif á stöðu landsins. Sérfræð- ingar segja að þessar alvarlegu upplýsingar um framferði Johns Kerrys séu rétt nýbyrj- aðar að síast inn vestra svo ekki sé talað um hjá bandamönnum um allan heim! Í Íran og utan þess eru hafn- ar vangaveltur um það hvort Zarif utanríkisráðherra geti lif- að þessa atburði af. Sumir ræða þá um stjórnmálalega líftóru hans en aðrir um hina persónu- legu. Falli menn í alvarlega ónáð þar eystra getur fallið orðið mikið og endar stundum ekki fyrr en teygst hefur úr reipinu sem bundið er við gálg- ann. Utanríkisráðherrann hef- ur lengi verið talinn gefa stjórnvöldum í Teheran manneskjulegri brag en ella væri. En hann á sína andstæð- inga í hópi herskárri ráða- manna og eins á meðal bylting- arvarðanna og getgáturnar eru að á meðal þeirra séu öflugir menn sem harma ekki að Zarif hafi talað rækilega af sér. Áhrifin af leka hins langa samtals við utanríkisráðherra Írans eru rétt að byrja að síast inn} Litli símamaðurinn er í stærra lagi núna Í trekað hefur verið bent á að of sterk yfirráð fárra aðila yfir fiskveiðiauðlind- inni þýði meiri völd til þeirra í þjóð- félaginu en heilbrigt getur talist og staða þeirra sé of sterk gagnvart stjórnvöldum og fjölmiðlum. Völd þeirra og áhrif geti orðið skaðleg og áhrif þeirra á ákvarðanir í stjórnkerfinu og á vettvangi stjórnmála geti unnið gegn almannahag. Samþjöppun kemur í veg fyrir samkeppni og hamlar nauðsynlegri endurnýjun. Tilfærsla milli byggða getur skaðað sveitarfélög og til- færsla milli útgerðarflokka getur leitt til þess að minni útgerðir fara halloka. Mikil samþjöppun hefur átt sér stað í sjávar- útvegi hér á landi á undanförnum áratugum. Tíu stærstu útgerðirnar fara með meira en helming kvótans og 20 stærstu útgerðirnar ráða yfir meira en 70% kvótans. Ofan á þetta bætist svo eignarhald þess- ara útgerðarisa í öðrum útgerðum. Stór útgerðarfyrirtæki hér á landi eru í raun rekin sameiginlega og hafa samráð um veiðar, vinnslu og sölu afurða. Samherjaskjölin Það var þann 12. nóvember 2019 að rannsóknarblaða- mennska Kveiks, Stundarinnar, Al Jazeera og Wikileaks var opinberuð um starfsemi Samherja í Namibíu. Umfjöll- unin var ítarleg og studd með gögnum um mútugreiðslur, skattsvik og peningaþvætti. Með umfjölluninni var dregin upp dökk mynd af starf- semi Samherja, sem er eitt stærsta fyrirtækið á Íslandi og hefur hagnast um meira en 100 milljarða á innan við ára- tug og teygir arma sína inn í fjölmarga aðra geira en fiskvinnslu á Íslandi. Tæpu hálfu ári seinna ákveða Samherjahjón að greiða börnum sínum arf, fyrirfram. Sagt er að verðmætið sé um 70 milljarðar króna. Það er há upphæð sem foreldrar ákveða að færa börn- um sínum. Auður sem hefur orðið til vegna þess að eigendur Samherja hafa haft aðgang að sam- eiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Auðlindarentan af fiskveiðiauðlindinni hefur runnið nær óskipt í vasa útgerðarmanna á Ís- landi. Renta sem ætti að renna í ríkissjóð og sveitarsjóði og þaðan til allra barna og velferð- arkerfisins rennur í vasa útgerðarmanna og þaðan beint til barna þeirra. Spilling „Bölvun auðlindanna“ er þekkt hugtak í hagfræði. Spill- ing er böl sem getur oft verið fylgifiskur skjótfengins gróða sem miklar náttúruauðlindir geta skapað. Ísland býr yfir ríkulegum sjávarauðlindum og þessi bölvun vofir yfir okkur líkt og Namibíu. Einn okkar besti rannsóknarblaðamaður, Helgi Seljan, vann að fréttaskýringaþætti Kveiks um Samherjaskjölin. Samherji ræðst að starfsheiðri fréttamannsins með áróðri sem fyrirtækið dreifir um netið. Fyrirtækið nýtir mikla fjármuni og sterka stöðu til að sýna okkur hinum að það borgi sig ekki að gagnrýna eigendur þess. Vegna þess að þeir hafa aðstöðu til og efni á að þagga niður í okkur. Oddný G. Harðardóttir Pistill Auður, völd og auðlindin Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar. oddnyh@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is S pennan í stjórnmálalífinu fyrir alþingiskosningarnar í haust er nánast áþreifanleg, en það á ekki síst við hjá rík- isstjórnarflokkunum til hægri og vinstri. Hjá Sjálfstæðisflokknum blasa við allnokkrar breytingar, þar er oddvitaslagur í uppsiglingu í öllum kjördæmum nema Suðvestur- kjördæmi. Í Norðvesturkjördæmi munu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður og ráð- herra og Haraldur Benediktsson þingmaður eigast við, í Norðaustur- kjördæmi bítast þingmaðurinn Njáll Trausti Friðbertsson og Gauti Jó- hannesson, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi, um efsta sætið, og í Suð- urkjördæmi munu þau Guðrún Haf- steinsdóttir iðnrekandi og Vilhjálmur Árnason þingmaður keppa um efsta sætið. Þar má alls staðar segja að um eins konar kynslóðakjör sé að ræða, bæði hvað varðar aldur frambjóð- enda og þingreynslu, að þar takist á fortíð og framtíð á einhvern hátt, þar sem nýtt eða nýrra fólk er að skora reyndara fólk á hólm. Ekki á það sjálfsagt síður við í Reykjavík, þar sem senn verður boðað til prófkjörs, að líkindum í fyrstu viku júní. Sú tímasetning hefur raunar sætt nokk- urri gagnrýni; hún sé afar skömm og gefi núverandi þingmönnum aukið forskot á nýtt fólk, sem kunni að vilja gefa kost á sér og þurfi rýmri tíma en þingmennirnir til þess að kynna sig. Eftir sem áður ganga allir út frá því sem vísu að þar verði aðal- baráttan, þar sem bæði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð- herra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra muni sækjast eftir fyrsta sæti. Á þeim tveimur má sjálf- sagt finna einhvern skoðanamun ef grannt er skoðað, en fyrst og fremst ræðir þar um kynslóðaval. Fáum blandast hugur um að Áslaug Arna sé framtíðarleiðtogaefni flokks síns og valið kann að snúast um það frem- ur en eitthvert uppgjör milli þeirra tveggja. Þessa dagana vekur þó mesta athygli hvernig liðskipanin er á list- um Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Samkvæmt skoðanakönn- unum hefur fylgi stjórnmálaflokka furðulítið breyst undanfarin misseri, en ekki síst horfa menn þó til þess að ríkisstjórnin hefur átt mun meira fylgi að fagna en flokkarnir sem mynda hana. Þar að baki geta búið ýmsar ástæður. Rótið í stjórnmála- lífinu eftir bankahrunið 2008 er ekki enn afstaðið gagnvart bæði stjórn- málaflokkum og einstökum stjórn- málamönnum, þótt kannanir bendi ótvírætt til þess að fólk felli sig al- mennt vel við ríkisstjórnina. Falla í forvali Þar er einkum horft til forystu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráð- herra, sem nýtur verulegra persónu- vinsælda umfram vinsældir flokks hennar. Það á svo eftir að koma í ljós hvað fólk gerir í kjörklefanum. Í því samhengi er mjög athyglis- vert að horfa til örlaga þeirra þing- manna sem flokkurinn fékk kjörna í síðustu kosningum. Ari Trausti Guð- mundsson leitar ekki endurkjörs og útlit er fyrir að nýr þingmaður komi í hans stað, en vafamál að flokkurinn finni meira fylgi í Suðurkjördæmi. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, for- maður þingflokksins, féll í prófkjöri í Norðausturkjördæmi. Katrín Jak- obsdóttir er skotheld í sínu kjördæmi og ekki ósennilegt að hún auki fylgi við flokk sinn í Reykjavík. Kolbeinn Óttarsson Proppé, varaformaður þingflokksins, reyndi fyrir sér í Suð- urkjördæmi og féll í forvali þar en ætlar að reyna aftur fyrir sér í forvali í Reykjavík sem haldið verður dag- ana 16. til 19. maí. Lilja Rafney Magnúsdóttir féll í forvali í Norð- vesturkjördæmi og vafamál að hún nái inn á þing. Ólafur Þór Gunn- arsson, einkar starfsamur þingmað- ur, féll í forvali í Suðvesturkjördæmi fyrir umhverfisráðherranum Guð- mundi Inga Guðbrandssyni og leitar ekki fyrir sér í Reykjavík eins og sumir töldu að hann gæti gert, svo hann er úr leik. Steingrímur J. Sig- fússon, forseti Alþingis og stofnandi flokksins, ætlar að láta af þing- mennsku eftir áratugalangan þing- feril. Steinunn Þóra Árnadóttir leitar aftur sætis í Reykjavík, sem hún á góðan möguleika á að halda, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sömuleiðis. Rósa Björk Brynjólfs- dóttir hætti í flokknum og verður í framboði fyrir Samfylkinguna og eins hætti Andrés Ingi Jónsson, sem fer fram fyrir Pírata. Þetta má heita ótrúleg blóðtaka fyrir hvaða stjórnmálaflokk sem er, en enn frekar fyrir forystuflokk í rík- isstjórn. Þar verður því mikið um nýtt fólk í forystu í komandi kosn- ingum og misvel kynnt. Framboðs- listar Vinstri-grænna munu vafalaust njóta vinsælda forsætisráðherrans að einhverju marki, jafnvel miklu, en það mun reyna mikið á þetta nýja fólk og samanburð þess við fram- bjóðendur hinna flokkanna. Spennan eykst! Umhleypingasamt á framboðslistum Morgunblaðið/Eggert Stjórnarflokkar Samstarfið í ríkisstjórninni hefur gengið betur en marg- ir bjuggust við, en samt er töluverðra breytinga að vænta á framboðslistum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.