Morgunblaðið - 27.04.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
fénu á afmælisdaginn, en það sé aldrei
að vita nema Rósa baki köku með
kaffinu.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Rósa
Guðrún Daníelsdóttir garðyrkjunemi,
f. 1.5. 1974. Fósturforeldrar hennar
eru Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja,
f. 3.7. 1923, d. 27.10. 2012 og Jón Krist-
jánsson bóndi, f. 9.8. 1924, d. 1.9. 2015.
Þau bjuggu í Fellshlíð í Eyjafjarð-
arsveit. Kjörforeldrar Rósu eru Daní-
el Guðmundsson, f. 29.10. 1939, fv.
bóndi á Helgastöðum, og Ólöf Ólafs-
dóttir, f. 13.9. 1948, búsett á Akureyri.
Börn Guðmundar og fyrri konu
hans, Sigríðar Steinmóðsdóttur, eru
Björn Ragnar, f. 20.4. 1991, vinnur í
netagerð og er búsettur á Höfn og
Salín Steinþóra, f. 23.7. 2003, nemi,
búsett í Þorlákshöfn. Guðmundur og
Rósa eiga saman Þórð Breka, f. 8.4.
2013 og Júlíu Mist, f. 21.10. 2016.
Stjúpdætur Guðmundar og dætur
Rósu eru Katrín Ósk Sveinsdóttir, f.
7.1. 1995, búsett á Flúðum, maki:
Birta Erludóttir, f. 30.8. 1996; Birg-
itta Karen Sveinsdóttir, f. 4.2. 1997,
listanemi, búsett í Hollandi; Írena
Þöll Sveinsdóttir, f. 24.9. 2003, búsett
á Hnappavöllum, og Embla Haf-
steinsdóttir nemi, búsett á Hnappa-
völlum, f. 20.11. 2004. Barnabarn
Guðmundar og Rósu er Steiney
Hanna Birtudóttir, f. 31.7. 2020.
Systkini Guðmundar eru Sigurþór,
f. 12.10. 1962, d. 10.11. 1965; Stefanía
Ljótunn, f. 24.2. 1969, leikskólastarfs-
maður á Höfn, og tveir bræður and-
vana fæddir.
Foreldrar Guðmundar eru hjónin
Þórður Stefánsson bóndi, f. 17.12.
1923, d. 18.3. 2011 og Sigrún Bergs-
dóttir húsfreyja, f. 27.7. 1930, d. 13.4.
2015, frá Skaftafelli í Öræfum. Þau
bjuggu á Hnappavöllum og giftu sig
17. maí 1958.
Guðmundur
Bergur
Þórðarson
Guðrún Halldórsdóttir
húsfreyja á Prestbakkakoti í
V-Skaftafellssýslu
Páll Þorláksson
bóndi á Prestbakkakoti í
V-Skaftafellssýslu
Pála Jónína Pálsdóttir
húsmóðir á Hofi í Öræfum
Guðmundur Bergur Þorsteinsson
bóndi á Hofi í Öræfum
Sigrún Bergsdóttir
húsfreyja á Hnappavöllum 4
Sigrún Jónsdóttir
húsfreyja á Hofi í Öræfum
Þorsteinn Gissurarson
bóndi á Hofi í Öræfum
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Svínafelli í Öræfum
Páll Jónsson
bóndi á Svínafelli í Öræfum
Ljótunn Pálsdóttir
húsfreyja á Hnappavöllum 4
Stefán Þorláksson
bóndi á Hnappavöllum 4
Kristín Stefánsdóttir
húsfreyja Hnappavöllum 4
Þorlákur Pálsson
bóndi á Hnappavöllum 4
Úr frændgarði Guðmundar Bergs Þórðarsonar
Þórður Stefánsson
bóndi á Hnappavöllum 4
„HANN VILDI KIPPA HENNI ÚT SJÁLFUR
EN ÉG VIL FAGMANN Í VERKIÐ.“
„ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ERU BARA ÞRJÁR VIKUR Í AÐ ÞÚ
FARIR Á EFTIRLAUN, EN VALIÐ STENDUR MILLI
ÞESS AÐ REKA ÞIG EÐA PUNGA ÚT FYRIR GULLÚRI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila með honum
samlokunni þinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER SVO MIKIL
FEGURÐ Í VERÖLDINNI
EKKERT AÐ
ÞAKKA
VIÐ BÍÐUM EFTIR SKILABOÐUM
FRÁ FLUGUMANNINUMOKKAR!
HANN ER SVOLÍTIÐ
LANGORÐUR!
TANNLÆKNIR
Sigurlín Hermannsdóttir birtirþessa skemmtilegu hæku á
feisbók:
Lóan er komin
sagði útvarpsþulurinn
og röddin brosti.
Gunnar Rögnvaldsson á Löngu-
mýri yrkir þessa fallegu vorvísu:
Bjartsýni í brjósti fann,
burtu kvaddur vetur.
Fyrsta lóan lætur mann
líða ávallt betur.
„Fuglarnir komnir á kreik,“ seg-
ir Guðmundur Arnfinnsson á Boðn-
armiði:
Stelkur gall við stundarhátt,
stokkönd eltir kjói,
hrossagaukur hneggjar dátt,
heyrðist vella spói.
Skoðanaskipti urðu og Kristjana
Sigríður Vagnsdóttir spurði: „Var
það nágaukur eða vágaukur, sem
hneggjaði hátt, eða bara sælugauk-
ur? Máske auðsgaukur, Guð-
mundur minn?“
Og Guðmundur svaraði:
Lóan syngur bíbí bí
brátt er von á kríu
sælugaukur suðri í
sumri fagnar nýju.
Og óskaði Kristjönu gleðilegs
sumars!
Helgi R. Einarsson segist hafa
verið að lesa „blaðið okkar“ og yrk-
ir „Í Vogabyggð“:
Gott er ef Jón og Gunna
gagnlega hluti kunna,
um göturnar spranga
og glaðbeitt svo hanga
á grastó við berjarunna.
Hafsteinn Reykjalin Jóhannesson
orti um helgina:
Sumarið hér gekk í garð,
gróður ekki hafinn.
Golan köld með gamlan arð,
gerist önnum kafin.
Harpa margoft hefur sýnt,
hún á kosti’ og galla.
Gróður hefur tilurð týnt,
túnin fá þá skalla.
Halldór Halldórsson segir:
„Hríslan mín á Holtinu öfundar
systur sínar í Heiðmörk og víðar,
þar sem ángsvítans kettir eru ekki
út um allt!“:
Ó, hve mætti’ í mínum greinum,
mjúkt að gefa hreiðri ból;
mér er eins og ást í meinum,
að ungum veita frið og skjól!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af lóu, hrossagauk
og öðrum fuglum