Morgunblaðið - 27.04.2021, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2021
✝
Magnea Ingi-
björg Sigur-
hansdóttir fæddist
á Laugavegi 93 í
Reykjavík 24.
september 1932.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Grund 14. apríl
2021. Foreldrar
hennar voru Sig-
urhans Hannesson,
f. 1885, d. 1966,
silfur- og rennismiður, log-
suðumaður og verkstjóri, og
Valgerður Gísladóttir, f. 1902,
d. 1979. Alsystkini Magneu
voru: Bolli, Auður M., Gísli Ell-
ert og Hrafnhildur. Hálfsystk-
ini hennar í föðurætt voru: Jó-
hanna Þorsteins og Sigurhans
S. Fósturbræður Magneu voru:
Hannes Berg og Sigurður
Berg.
Magnea giftist hinn 31.12.
1950 Hlyni Dagnýssyni, f. í
Dagsbrún á Seyðisfirði 16.8.
1931. Hann lést á Landspít-
alanum Fossvogi 13.2. 2017.
Foreldrar hans voru Dagnýr
Kristinn Bjarnleifsson, f. 1901,
d. 1981, og Steinunn Gróa Sig-
urðardóttir, f. 1903, d. 1989.
Börn Magneu og Hlyns eru: 1)
A. Sigurhans Valgeir, f. 1951.
Barnsmóðir Gróa Elma Sig-
urðardóttir, dóttir Sigríður
býlismaður Hjálmar Helgi
Jónsson, börn þeirra Ísabella
Anna og Rúrik Maron. Birgitta
Rós, sambýlismaður Hilmar
Karvelsson, börn þeirra: Aría
Lív og Elía Sól. Guðný Ingi-
björg, eiginmaður Ólafur
Börkur Guðmundsson, börn
þeirra: Daníel Unnar, Jóhann
Hlynur og Steinunn Fanney.
Seinni eiginmaður Steinunnar
er Jón Sigurjónsson, þau eru
skilin. 3) Drengur andvana
fæddur 1957. 4) Óskar, f. 1962,
fyrrverandi eiginkona Þ.
Árnadóttir, barn þeirra: Árni
Þór, eiginkona Birgit Jóhanns-
dóttir, barn Sonja Kristín,
barnsmóðir Gunnhildur Jóns-
dóttir, barn Guðrún Yrsa. Eig-
inkona Guðrún Magnúsdóttir,
börn þeirra: Magnús, barns-
móðir Sigríður S. Brynhild-
ardóttir, barn Hildur María,
sambýliskona Auður Bergþórs-
dóttir, barn þeirra Bergþór
Hólm. Arnar, f. 1993, Sesselja
Anna og Vilhelmína Þór. 5) Jó-
hann Bergur, f. 1965, eig-
inkona Helga Þuríður Þór-
hallsdóttir, börn þeirra:
Ingibjörg og Magnea Rut.
Magnea var alla tíð heima-
vinnandi húsmóðir, með smá
undantekningum samt. Magn-
ea átti 40 afkomendur á lífi
þegar hún lést og fimm langa-
langömmubörn.
Jarðarförin fer fram í dag,
27. apríl 2021, klukkan 15.
Streymi frá útför:
https://youtu.be/e19h4HZ9RDk
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Sif, eiginmaður
Christer Karlsson,
börn Clara og Fi-
lip. Fyrrverandi
eiginkona Bíbí Í.
Ólafsdóttir, f.
1952, börn þeirra:
Magnea Ósk, eig-
inmaður Ásgeir Ó.
Úlfarsson, börn
Lovísa Dröfn, barn
hennar Arnór Óm-
ar Lovísuson,
sambýlismaður Lovísu er Jón
E. Ríkharðsson, og Birta Sól-
ey. Hlynur Freyr, eiginkona
Tinna Borg Arnfinnsdóttir,
börn Ómar Örn, Lísa María og
Kara Mjöll. Fósturdætur Sig-
urhans eru Sigríður B. og
Þóra B., dætur Bíbíar. Fyrr-
verandi sambýliskona Erla
Bára Jónsdóttir, börn þeirra
Jón Vídalín, f. og d. 1990, Sig-
urhans Óskar og Thelma Lind,
börn hennar Katrín Ísabella
og Hafsteinn Hraunfjörð. 2)
Steinunn Þrúður, f. 1954, fyrr-
verandi eiginmaður Jón Sig-
urður Pálsson, börn þeirra:
Hlynur, f. og d. 1970, Svandís
Ásta, drengur andvana fæddur
1996. Sambýlismaður Daði
Arnaldsson, þau eru barnlaus.
Anna Guðrún, eiginmaður Ein-
ar Björn Guðmundsson, börn
þeirra Ásthildur Elín, sam-
Mamma er dáin sagði Steina
systir hátt og skýrt og ég glað-
vaknaði klukkan þrjú að nóttu
og tókst ekki að sofna aftur,
mætti í vinnu á venjulegum
tíma og var alltaf með einhver
ónot út af þessu, og svo kom
það, símtalið frá Steinu,
mamma var að vísu ekki dáin
en hún var á leiðinni upp á
sjúkrahús og starfsfólkinu á
Grund leist ekkert á ástandið.
Það tók ekki marga daga og
hún vissi það alveg, tók þessu
fagnandi en henni fannst þetta
vera alveg komið nóg hjá henni
Ingibjörgu. Hún hresstist nóg
til að komast aftur heim á
Grund, hitti marga ættingja
sína, komst í handavinnutíma
sem hún elskaði meira en allt
áður en yfir lauk. Það er margs
að minnast en það er ekki hægt
að fara út í það allt hér en eitt
er víst að maður átti alltaf skjól
hjá mömmu. Bugðulækurinn
var alltaf kletturinn í hvaða
ólgusjó sem var og þar stóð
alltaf allt opið ef einhver þurfti
húsaskjól eða bara spjall.
Mamma vísaði engum á dyr.
Ég var þriggja ára þegar við
fluttum á Bugðulækinn og þar
bjuggu þau saman í 52 ár
mamma og pabbi, þá lést pabbi
en mamma flutti á Grund. Hún
saknaði pabba en sagði alltaf að
það væri um að gera að hafa
bara nóg að gera til að leiðast
ekki svo einmanaleikinn tæki
ekki völdin, og það er einmitt
það sem hún gerði á Grund, var
með í öllu sem var í boði þar
hvort sem það var handavinna
eða einhverjar samverustundir
sem voru í boði. Lét sér lynda
við allt og alla og kvartaði aldr-
ei undan nokkrum sköpuðum
hlut. Mínar minningar eru af
konu sem ég vissi að hafði
gengið í gegnum mörg áföll í
lífinu en stóð stolt og sem
dæmi þá var talið þegar hún
var ung að hún ætti aldrei eftir
að eignast börn en hún kom
sjálf fjórum út í lífið og átti 40
afkomendur þegar hún lauk
þessari jarðvist. Elsku mamma,
takk fyrir allt sem þú gafst mér
í gegnum tíðina og góða ferð,
og ég vona innilega að þér hafi
orðið að þeirri ósk þinni að fá
að hitta pabba þegar þú kvadd-
ir okkur hér.
Ég vil koma sérstökum
þökkum til starfsfólksins á
Grund fyrir frábæra umönnun.
Óskar Hlynsson.
Mamma mín, Magnea Ingi-
björg Sigurhansdóttir, er látin,
hún lést 14. apríl sl. 88 ára.
Ég var eina stelpan af fjór-
um systkinum og mamma sagði
alltaf ef ég var nefnd: „Já, eina
dóttir mín.“ Fyrsta æskuminn-
ing mín var að ég stóð við eld-
húsborðið heima á Laugavegi
93 og mamma var að klára
peysu á mig, ég hef verið svona
2-3 ára. Mamma var líka dug-
leg að sauma á mig fallega
kjóla og eitt sinn prjónaði hún
peysusett, buxur, peysu og
húfu, settið var rautt með hvítu
mynstri.
Mamma var alltaf heima-
vinnandi, enda í nógu að snúast
með fjögur börn.
Við áttum fyrst heima í hús-
inu hans afa Sigurhans, í kjall-
aranum með eina stofu og eld-
hús. Þegar ég var sex ára
fluttum við upp á Bergþóru-
götu 14, pínulitla risíbúð, og við
Hansi bróðir sváfum í skoti út
úr stofunni sem var svo lítið að
fæturnir á Hansa voru frammi í
stofu á nóttunni. Þarna fæddist
Óskar bróðir minn og ég réð
mér ekki fyrir kæti að hafa
eignast systkini, loksins sjö ára
gömul. Þegar ég var 10 ára
fluttum við inn á Bugðulæk 7,
Jói bróðir fæddist og ólst alveg
upp á Bugðulæknum. Mamma
og pabbi bjuggu þar þangað til
pabbi fór á sjúkrahús og
mamma á Grund, haustið 2016.
Þá höfðu þau búið á Bugðu-
læknum í 52 ár.
Mamma var mjög fús til að
passa dætur mínar svo ég gæti
unnið úti fyrir salti í grautinn.
Svandís dóttir mín var hjá
henni allt haustið 1975 því þá
var ég á sjúkrahúsi á meðgöng-
unni og svo að eiga systur
hennar Önnu og Guðnýju, þær
komu ekki heim fyrr en í des-
ember. Svo fékk ég leikskóla-
pláss fyrir tvíburana mína eftir
hádegi, en mamma passaði all-
ar stelpurnar á morgnana og
kom þeim í skólann og leikskól-
ann áður en hún fór heim til
sín í strætó.
Mamma tók aldrei bílpróf,
hún varð fyrir bíl sem barn og
gat ekki hugsað sér að keyra
bíl og verða fyrir því að keyra
niður barn. Mamma gat verið
svona; hún beit eitthvað í sig
og þar við sat alla tíð. Hún
fékk ógeð á áfengi þegar hún
var barn og hataði áfengi til
dauðadags.
Þegar pabbi fór á sjúkrahús
haustið 2016 þá flutti mamma á
Grund, pabbi kom svo af Land-
spítalanum á Grund í nokkrar
vikur, en var svo aftur lagður
inn. Pabbi dó á Landspítalan-
um 13. febrúar 2017, 85 ára.
Mamma saknaði pabba mjög
mikið og sagði oft: „Pabbi þinn
fór alltof snemma.“ En hún var
eins og alltaf, reyndi að gera
gott úr öllu og á Grund naut
hún sín í félagslífi, morgun-
stundum og handavinnu.
Mamma lifði Covid í rúmt
ár, mest voru heimsóknir bann-
aðar, stundum opnaðist fyrir
og þá hlupu allir til og heim-
sóttu Maggý ömmu og svo var
lokað aftur. Um tíma máttum
við Óskar bróðir bara koma, en
lengst af þessu rúma ári mátti
ég ein koma til mömmu. Þessar
stundir sem ég átti með
mömmu minni voru bestu
stundirnar sem við áttum sam-
an þótt við hefðum verið nánar
alla tíð.
Minnið var farið að gefa sig
og þegar hún mundi ekki eitt-
hvað þá sagði hún: „Ég man
ekki lengur það sem ég er búin
að gleyma!“ Svo hlógum við
báðar að brandaranum. Við
rifjuðum upp gamla tíma,
æskuárin hennar og mín og
okkar systkinanna.
Elsku mamma mín, ég á eft-
ir að sakna þín og spjallsins
okkar. Ég ætla að segja hér
það sama og ég sagði við hana
á kvöldin þegar hún hringdi áð-
ur en hún fór að sofa: „Guð
geymi þig,“ elsku mamma mín.
Steinunn Þrúður
Hlynsdóttir.
Elsku besta amma mín lést á
Hjúkrunarheimilinu Grund í
síðustu viku og hennar verður
sárt saknað af mér og mínum.
Amma var einstök kona sem
tók við öllu í lífinu með æðru-
leysi og stóískri ró. Hún var
alltaf svo þolinmóð við mig og
hlustaði alltaf á mig og gaf mér
góð ráð.
Ég á margar góðar minn-
ingar af mér og ömmu og er ein
sagan af okkur sem var í miklu
uppáhaldi hjá okkur báðum.
Það er sagan af því þegar ég
var að suða í ömmu í búðinni og
ég sagði „amma, viltu kaupa
þetta handa mér“ og yfirleitt ef
maður suðaði eitthvað í henni
þá sagði hún yfirleitt nei. Mig
minnir að hún hafi sagt nei í
þetta skiptið líka og ég man
ekki einu sinni hvað ég var að
biðja um. Þá sagði ég við hana
sposk á svipinn: „Amma, ég
skal kaupa handa þér svo fal-
legan rauðan kjól þegar ég er
orðin stór og rík ef þú kaupir
þetta handa mér.“ Fyrir 13 ár-
um um jólin minnir mig að ég
hafi gefið henni þennan fallega
rauða kjól sem ég hafði lofað
henni þegar ég var lítil. Mér
finnst það svo yndislegt að hafa
staðið við loforðið sem ég gaf
henni þegar ég var lítil stúlka.
Þegar ég hugsa til baka þá
er ég svo þakklát fyrir árin
sem ég fékk að sjá um þrifin
hjá ömmu og afa þegar þau
voru ennþá heima á Bugð-
ulæknum, á þessum tíma
tengdist ég þeim á alveg ein-
stakan hátt og það gefur mér
mjög mikið í dag. Elsku Maggý
amma mín er núna komin heim
til Guðs og afa á himnum og
það er yndisleg tilhugsun og
huggar mann í sorginni. Ég
hugsa til þín, elsku besta
Maggý amma mín, með hlýju
og söknuði. Blessuð sé minning
þín elsku amma mín og megir
þú hvíla í friði og megi Guð
vera ávallt með þér að eilífu
amen.
Svandís Ásta Jónsdóttir.
Magnea Ingibjörg
Sigurhansdóttir
✝
(Guðjón) Sig-
urgeir Ingi-
marsson fæddist í
Arnardal á Akra-
nesi 5. maí 1929.
Hann lést á Dval-
arheimilinu Höfða á
Akranesi 16. apríl
2021. Foreldrar
hans voru Ingimar
Kristján Magnússon
trésmíðameistari, f.
20. september 1891,
d. 8. ágúst 1978, og Bóthildur
Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst
1892, d. 30. nóvember 1979.
Systkini Sigurgeirs voru:
Steinunn, f. 19. maí 1917, d. 26.
september 1962, Lilja, f. 10. maí
1919, d. 20. október 2007, Magn-
ús, f. 19. júlí 1920, d. 8. janúar
1985, Bergdís, f. 18. janúar 1922,
d. 6. ágúst 1997,
Guðjón Sigurgeir, f.
1923, d. 1926, og
Steinþór Bjarni, f.
27. október 1925, d.
18. apríl 2015.
Hinn 20. febrúar
1952 giftist Sig-
urgeir Dóru Ernu
Ásbjörnsdóttur, f.
30. apríl 1933, d. 6.
október 2014,
læknaritara úr
Borganesi. Synir þeirra eru: 1)
Ásbjörn f. 1952, eiginkona hans
er Kristín Siemsen, f. 1953. Börn
þeirra eru a) Gústav Magnús, f.
1978, eiginkona hans er Guðný
H. Indriðadóttir, f. 1979, og eiga
þau synina Ásbjörn Óla, f. 2005,
og Indriða Dag f. 2009, b) Dóra
Erna, f. 1982, sonur hennar er
Aron Ernir, f. 2011, og c) Birna
Kristín, f. 1993. 2) Óðinn, f. 1958,
d. 2014, sambýliskona hans var
Bente Ingela Asengen, f. 1965,
sonur þeirra er Geir Ísak, f. 2001.
Börn Óðins og fyrrverandi eig-
inkonu hans, Guðrúnar Halldórs-
dóttur, f. 1958, eru dæturnar a)
Erna, f. 1976, eiginmaður hennar
er Helgi Kjartansson, f. 1970, og
eiga þau börnin Kjartan, f. 1996,
Halldór Fjalar, f. 2000, og Þór-
eyju Þulu, f. 2004. b) Ása, f. 1981.
Börn Ásu eru Emma, f. 2002, Ari
Ævar, f. 2008, Erna Óðný og
Guðrún Árný, f. 2014.
Sigurgeir vann við trésmíðar
og húsasmíði í eigin fyrirtæki
mestalla sína starfsævi en síðar í
dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, seinna Biskupsstofu, sem
umsjónarmaður prestsbústaða.
Útför Sigurgeirs fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 27. apríl
2021, og hefst athöfnin kl. 13.
Streymt verður frá útför:
https://www.akraneskirkja.is
Streymishlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Sigurgeir Ingimarsson, eða
Geiri „tengdaafi“ minn, lést hinn
16. apríl sl. og vil ég fá að minn-
ast hans með nokkrum línum.
Geiri var smiður og reynslubolti í
öllu sem að því laut, enda var öll
hans starfsævi helguð bygging-
um á einn eða annan hátt. Ýmis
fleyg orðatiltæki viðhafði hann
við úrlausn verkefna, og hafa þau
fest í orðaforða fjölskyldunnar,
eins og „er þetta hægt Matthías“
og „þetta er alveg raritet“ og svo
mætti áfram telja. Vorum við svo
heppin að fá að njóta aðstoðar
hans við ýmis viðfangsefni á því
sviði í gegnum tíðina, sem hefur
verið okkur ómetanlegt á allan
hátt. Honum þótti því verst að
geta ekki hjálpað við nýjasta við-
fangsefnið okkar, sem hann kom
að taka út nokkrum dögum áður
en kallið kom, því hugurinn var
óbilaður þótt líkamlegir kraftar
væru á þrotum. Geiri hafði sterk-
ar skoðanir á mönnum og mál-
efnum og spunnust oft eftir-
minnilegar umræður af því
tilefni. Hann var með allt í röð og
reglu og bílarnir ávallt vel þrifnir
svo sumum þótti nóg um. Hann
var nýtinn á efni og afganga sem
sjá mátti hér og hvar í hans fór-
um, verkfærin á sínum stað.
Hann var áhugasamur um allar
tæknilegar framfarir og þróaði
sjálfur ýmsar lausnir til að létta
sér og sínum handtökin. Geiri
mátti sjá á eftir Óðni syni sínum
og Dóru konu sinni með stuttu
millibili fyrir nokkrum árum,
sem trúlega hefur haft meiri
áhrif á hann en hann lét uppi.
Flutti hann þá í kjölfarið úr
Borgartanganum í Mosfellsbæ,
sem hafði verið heimili þeirra
hjóna í nokkra áratugi. Fyrst
flutti hann til okkar á Flúðir og
síðar á Akranes í sinn gamla
heimabæ. Síðastliðið haust fór
heilsu hans að hraka og fékk
hann inni á dvalarheimilinu
Höfða um áramótin. Í dag kveðj-
um við Geira í hinsta sinn og það
er með þakklæti fyrir allt og allt
sem ég minnist hans, megi hann
hvíla í friði.
Helgi Kjartansson.
Mild var þín hönd
mig leiddi við hlið þér
og lyftir í fang þér
örlítið óþekktarstýri.
Hlý var þín hönd
ávallt velkomna bauð
skjól mót vindinum bauð
þótt blési úr öllum áttum.
Styrk var þín hönd
leiðbeindi og kenndi mér
ráðlagði, beindi mér
þið amma klettar í lífi.
Hög var þín hönd
verkfæri fimlega
í viðinn svo faglega
fannst að þú kynnir allt.
Þreytt var þín hönd
fyrsta áfangann leiddi þig
þegar ferðbúinn gerðir þig
gengum áleiðis til eilífðarinnar.
Köld var sú hönd
sem tók ég í mína
ég yljaði þína
er þig kvaddi í síðasta sinn.
Hugur mun ávallt geyma
Hlýtt afa fang:
„Elskan mín stutta með átján putta“
sagðir með glettni í augum.
Þín
Ása.
Sigurgeir
Ingimarsson
Ástkær og elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG HERVÖR
GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hebba frá Hesti,
lést föstudaginn 2. apríl. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. apríl
klukkan 15. Vegna samkomutakmarkana verður streymt frá
athöfninni. Slóðin á streymið er https://promynd.is/hervor.
Athöfnin verður öll túlkuð yfir á táknmál.
Guðmundur Knútur Egilsson
Bryndís Guðmundsdóttir Árni Sigfússon
Magnús Guðmundsson Kajsa Arena
Ragnheiður E. Guðmundsd. Gunnar Salvarsson
Guðjón Gísli Guðmundsson
María G. Guðmundsdóttir Steingrímur Sigurgeirsson
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Stakkholti 2b,
lést miðvikudaginn 31. mars. Útförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
30. apríl klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður
streymt frá athöfninni.
Slóðin á streymið er https://youtu.be/ZPQRTlvSfIc.
Ólafur Árnason
Erna Rós Magnúsdóttir Þórarinn Gunnar Sverrisson
Hjalti Magnússon Sigurlaug Soffía Reynaldsd.
Anna Lilja Magnúsdóttir Guðmann Bragi Birgisson
Kristján Magnússon Sigríður Inga Rúnarsdóttir
Árni Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn