Morgunblaðið - 12.05.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.05.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021 FERSKT OG GOTT PASTA TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Við gerum ekkert með þennan lokadag, það er löngu liðin tíð. Þegar við stoppum þá höldum við okkar lokadag og ég reikna með að það verði í næstu viku,“ segir Brynjar Kristmundsson, skipstjóri á Stein- unni SH 167, 150 tonna dragnótabát frá Ólafsvík. Í eina tíð var lokadagur vetrarvertíðar 11. maí, en nú eru það kvótastaða og vinnsla í landi sem ráða miklu um hvenær og hvort menn róa. Brynjar segir að vertíðin hafi gengið vel, ekki síst eftir hrygning- arstopp. „Frá 21. apríl erum við komnir með 520 tonn í 14 róðrum þannig að meðalaflinn er yfir 37 tonn. Það er búin að vera góð tíð og góð veiði og það eina sem hefur truflað okkur er mikil ýsugengd. Um tíma var ekki hægt að forðast hana svo menn þurftu að halda að sér höndum. Það breyttist aðeins um mánaðamótin, þegar þorskurinn fór að skríða hérna fram og vestur brúnina, en ýsan var meira uppi á grunninu,“ segir Brynjar. Þeir á „bræðrabátnum“ voru út af Öndverðarnesi þegar spjallað var við skipstjórann í gær, en með hon- um í áhöfn Steinunnar SH eru fjórir bræður hans, sonur, tveir bræðra- synir og tengdasonur. Á fiskveiði- árinu eru þeir komnir með yfir 1.400 tonn og framundan er að þrífa bát- inn hátt og lágt og síðan sumarfrí fram í ágúst. Fengu 2.441 tonn í netin Frá áramótum til 3. maí fékk Bárður SH 81 alls 2.441 tonn í netin, nánast eingöngu þorsk, og er vafalít- ið um Íslandsmet á netum á vetrar- vertíð að ræða. Á vetrarvertíðinni í fyrra var afli Bárðar 2.311 tonn af óslægðu og var það talið met, sem nú hefur verið rækilega slegið. Á árum áður var mikið gert með aflakónga á vetrarvertíð, en minna fer fyrir slíku núorðið. Báturinn kom nýr til lands- ins frá Danmörku í lok árs 2019 og er tæplega 27 metra plastbátur. Pétur Pétursson, útgerðarmaður og skipstjóri, segir að í vetur hafi verið ágætis fiskirí, en einmuna tíð standi þó upp úr. „Tíðarfarið hefur verið með ólíkindum og í vor hefur lognið verið endalaust,“ segir Pétur. Sonur hans og nafni hefur róið á móti honum og verið með nýja Bárð á snurvoð frá 3. maí, en Pétur eldri verið með eldri Bárð SH-811 á net- um frá Arnarstapa frá lokum apríl. Síðustu ár hefur þeim fækkað mjög sem róa með net. Fram kemur á aflafrettir.is að frá Hornafirði var aðeins Sigurður Ólafsson SF á net- um. Í Vestmannaeyjum voru tveir bátar á netum, Brynjólfur VE og Kap II VE, tveir frá Þorlákshöfn, Reginn ÁR og Friðrik Sigurðsson ÁR, en enginn reri með net frá Grindavík. Allt í botni Í höfnum Snæfellsbæjar hefur verið nóg að gera undanfarið, allt verið í botni eins og Björn Arnalds- son hafnarstjóri orðar það. Alls róa þessa dagana yfir 80 bátar á strandveiðum frá Ólafsvík, Rifi og Arnarstapa og fylgir þeim mikið líf. Björn segir að flestir hafi fiskað vel og í gær voru allir á sjó, nema helst þeir sem eiga lítið eftir af heimildum. Ljósmynd/Pétur Á Arnarstapa Sigurður Viktor landar úr Bárði SH-811 í gærdag. Lokadagur liðin tíð - Gjöfulli vertíð lokið samkvæmt eldri viðmiðun - Met á netum hjá Pétri á Bárði - „Bræðrabátnum“ lagt í næstu viku Brynjar Kristmundsson Pétur Pétursson Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Samkvæmt skrám slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins voru í fyrradag gróð- ureldar það sem af er maí orðnir 22 talsins. Í gær bættust við að minnsta kosti fjórir og því eru gróðureldarnir orðnir um 26 talsins. Gróðureldar komu upp í gær á Vatnsleysuströnd, við Hvaleyrarvatn, í Grímsnesi og við Klettagarða í Reykjavík. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs- stjóri hjá slökkviliði höfuðborgar- svæðisins, segir stöðuna grafalvar- lega og segist ekki vita til þess að nokkurn tímann hafi orðið jafn marg- ir gróðureldar á eins skömmum tíma og raun ber vitni. Samkvæmt skrám slökkviliðsins hafi í einum mánuði mest verið 22 gróðureldar, það hafi verið í apríl árið 2016. Jón Viðar bend- ir á að nú sé mánuðurinn ekki einu sinni hálfnaður en samt sé búið að slá metið. „Fólk verður að fara varlega og við erum búin að gefa út núna að meðferð elds er bönnuð í nágrenni við gróður og sérstaklega er verið að horfa á Heiðmörkina og önnur svæði hér á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jón Við- ar og bætir við: „Þetta er í rauninni komið á það stig að fólk verður að fresta öllu sem hægt er að fresta. Það er að kvikna í út frá slípirokkum, út frá hlutum sem mann í raun og veru grunaði ekki að gæti kviknað eldur út frá. Menn þurfa að fara afskaplega varlega.“ Jón Viðar segir að nú verði að horfa lengra inn í framtíðina og skoða hvernig við ætlum að byggja upp okk- ar útivistarsvæði. „Einn vandi sem við höfum verið að glíma við er aðgengi að vatni, annar vandi er hreinlega að við komum illa að tækjum og tólum,“ segir Jón Viðar og bætir við að ef leggja þurfi langt í burtu þá tefji það allt starf. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfir- lögreguþjónn hjá almannavörnum, bendir á í samtali við Morgunblaðið að aðstæður séu óvanalegar, það hafi eiginlega ekkert rignt í langan tíma og engin alvöru rigning sé í kortun- um. Við séum því í rauninni á þurrka- tímabili og hættustig almannavarna mun því líklega gilda næstu þrjár vik- urnar. Það hjálpi þá ekki til að þessa dagana sé frekar svalt og á næturnar jafnvel frost. Því eigi gróðurinn erfitt með að ná sér á strik. „Við fáum ekki þennan græna gróður sem logar ekki eins vel,“ segir Rögnvaldur. Metfjöldi gróð- urelda í maí - Meðferð elds bönnuð nálægt gróðri Ljósmynd/Þröstur Njálsson Bruni Slökkviliðsmenn að störfum á Vatnsleysuströnd. Skipuleggjendur tónlistarhátíðar- innar Secret Solstice hafa óskað eft- ir því að sá möguleiki verði kannað- ur að tónlistarhátíðin Secret Solstice verði haldin á Vífilsstaðatúni og í nærumhverfi þess. Fresta hefur þurft hátíðinni bæði í ár og í fyrra vegna Covid-19. „Hátíðin hefur frá upphafi farið fram í Laugardal og Laugardalur er frábær staður fyrir tónlistarhátíð. Vandamálið hefur hins vegar alltaf verið hversu langar allar boðleiðir eru innan Reykjavíkur ásamt því sem nokkur íþróttafélög eru með að- stöðu þar. Það hefur gert alla vinnu í kringum skipulagningu og fram- kvæmd mjög flókna og erfiða. Þá hefur það lengi legið fyrir að fara ætti í framkvæmdir á svæðinu,“ seg- ir Jón Bjarni Steinsson, skipuleggj- andi hátíðarinnar, í beiðni sinni til Garðabæjar og bætir við að Vífils- staðatún sé á mjög fallegum stað og því frábær staður fyrir hátíð sem geri mikið út á fallegt umhverfi. Jón Bjarni segir að í Garðabæ sé greiður aðgangur að félögum eins og Stjörnunni og að einfaldara sé að vinna með einum aðila í stað þess að vinna með Þrótti, Ármanni og Skautafélagi Reykjavíkur eins og verið hefur í Laugardal. Bæjarráð hefur vísað erindinu til umfjöllunar í menningar- og safna- nefnd Garðabæjar og íþrótta- og tómstundaráði bæjarins. gunnhildursif@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Secret Solstice Tónlistarhátíðin hefur verið haldin í Laugardalnum. Vilja Secret Sol- stice í Garðabæ - Vífilsstaðatún henti vel fyrir hátíðina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.