Morgunblaðið - 12.05.2021, Side 17

Morgunblaðið - 12.05.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021 ✝ Einar Jónsson fæddist á Siglu- firði 8. janúar 1932. Hann lést 6. maí 2021. Hann var sonur hjónanna Jóns Oddssonar, útvegs- bónda á Siglunesi, og Báru Tryggva- dóttur. Bróðir Ein- ars er Oddur, f. 1930, d. 2016. Einar kvæntist Helgu Jóns- dóttur, f. 29.11. 1933 á Sauða- nesi við Siglufjörð, d. 17.8. 1972. Foreldrar hennar voru Jón Ingvar Helgason, vélstjóri og bóndi á Sauðanesi, f. 1896, d. 1970, og Jóna Jónsdóttir, f. 1905, d. 1996. Einar og Helga bjuggu lengst af í Grindavík í sinni búskapartíð en þar byggðu þau sér hús við Ásabraut. Börn þeirra, fimm talsins, eru: 1) Jóna Sigurborg f. 1954, maki Gunnar Stefán Ásgríms- son, d. 2008, þau eignuðust einn son. 2) Jón Ingvar, f. 1956, maki Bjarklind Kristinsdóttir, þau eiga tvo syni. 3) Ólöf Ingibjörg, f. 1957, hún á einn son. 4) Meyvant, f. 1958, maki Þórunn Ólafsdóttir, þau eiga þrjá syni. 5) Gunnar, f. 1959, maki Marta María Sveinsdóttir, þau eiga fjögur börn. Einar ólst upp á Siglunesi og sótti barnaskóla á Siglufirði. Hann fór í Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þar prófi 1955. Hann hóf sjómennsku 12- 13 ára gamall og var háseti og síðar stýrimaður og skipstjóri allt til ársins 1972. Þá hóf hann störf í landi, aðallega við smíðar, og vann lengi hjá Þórði Waldorf og síðar í Grindinni hf. Í febrúar 1999 lenti Einar í al- varlegu vinnuslysi og í kjölfarið flutti hann í Víðihlíð í Grindavík. Útför Einars verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag, 12. maí 2021, og hefst athöfnin klukkan 14 Elsku pabbi, afi og tengda- pabbi. Þá er kallið komið til sumarlands en eftir standa góð- ar minningar í hjörtum okkar um þann dugnaðarmann í hví- vetna sem þú varst, sama hvað þú tókst þér fyrir hendur og voru mörg lífsins verk sem voru lögð í þínar hendur erfið sem ekki allir hefðu höndlað að leysa en með þínu æðruleysi og góðu skapgerð vannst þú þau verkefni með sóma. Sjórinn átti hug þinn allan á meðan þér gafst tækifæri til að róa á mið- in en þegar svo þú komst í land lá fyrir þér að fara í smíða- vinnu og eigum við börnin þín þér margt að þakka þegar kom að því að laga og dytta að, sama hvort það var að klæða hús eða laga eitthvað minna og aldrei spurðir þú hvort þú ættir að hjálpa, þú, Einar minn, mættir bara með smíðabeltið og hófst handa og hér í Grinda- vík liggja mörg handverk eftir þig og varst þú eftirsóttur í smíðar vegna vandvirkni, allir vissu að þú lagðir þig fram í verkum þínum. Elsku Einar minn, minningin um dugmikinn og hraustan mann sem sigraði dauðann í raun þrisvar sinnum mun lifa í hjörtum okkar og barnabörnin fá að heyra sjó- sögurnar af afa og þitt lífshlaup verður í huga okkar til minn- ingar um þig, elsku Einar okk- ar. Hinsta kveðja frá okkur. Gunnar Einarsson, Marta Sveinsdóttir og barnabörn. Einar Jónsson ✝ Erna Berg- mann Gúst- afsdóttir fæddist á Akranesi 18. nóv- ember 1940. Hún lést 2. maí 2021 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Foreldrar henn- ar voru Gestur Gústav Ásbjörns- son, f. 2.3. 1908, d. 6.8. 1944, og Olga Guðrún Benediktsdóttir, f. 25.3. 1912, d. 16.11. 1957. Systkini Ernu: Guðrún Ása Gústafdóttir, f. 28.9., d. 29.11. 2015, Ómar Júlí Gústafsson, f. 7.8., d. 3.9. 2020, Anna Sigríð- ur Gústafsdóttir, f. 7.8. 1943, Kolbrún Bergmann Magnús- dóttir, f. í júní 1947. hún var mikið hjá ömmu sinni og afa í Skuldinni á Akranesi. Eftir skyldunámið lauk hún námi sem hjúkrunarfræðingur í Hjúkrunarskóla Íslands, hluti námsins var að fara út á land í undirbúningsnám eins og það var kallað og fyrir valinu varð Sjúkrahúsið á Ísafirði. Þar komst hún í kynni við eftirlif- andi eiginmann. Eftir að námi lauk fluttist hún ásamt fjöl- skyldunni til Keflavíkur og hóf þar búskap ásamt því að starfa nær óslitið við fjölbreytileg verkefni á Sjúkrahúsinu í Keflavík tæp 40 ár. Útför Ernu fer fram í Kefla- víkurkirkju í dag, 12. maí 2021, og hefst athöfnin kl. 13. Vegna samkomutakmarkana er einungis nánustu ættingjum og vinum boðið að vera við- staddir athöfnina en hægt er að fylgjast með athöfninni á streymi, stytt slóð: tinyurl.com/ yewv8vrt Streymishlekk má nálgast á: www.mbl.is/andlat Erna giftist Oddi Gunnarssyni frá Ísafirði, f. 1.12. 1942, á jóladag 1964 og eignuðust þau tvo syni. Börn þeirra eru: 1) Gunnar, f. 27.3. 1965, eiginkona hans Kristín Bauer. Börn þeirra: Oddur, f. 16.10. 1990, maki Katrín Ágústsdóttir, f. 6.4. 1990, barn þeirra Henrý Þór Bauer, f. 24.10. 2018, og Eva Sif, f. 21.2. 1995, maki Stefán Birgir Jóhannesson, f. 18.1. 1993, barn þeirra Ísold Krist- ín, f. 20.12. 2020. Erna fæddist á Akranesi en sleit barnsskónum í Reykjavík, Það er sárt að þurfa að kveðja þig, elsku mamma mín, en jafn- framt er ég afar þakklátur fyrir allar góðu minningarnar sem ég á og geymi. Ég var mjög heppinn í mömmu-lottóinu og á milli okk- ar var sterkur strengur alla tíð. Þú passaðir upp á peyjana þína og alltaf nóg að bíta og brenna. Spítalinn sem þú vannst á í rúm 40 ár var mitt annað heimili á tímabili, þar fékk maður að skjóta sér inn eftir skóla og ávallt velkominn. Mamma var hjúkrun- arkona af Guðs náð, hún bar virð- ingu fyrir öllum og allir voru jafnir í hennar augum. Mamma var þægileg í umgengni og það var gott að vera í kringum hana. Lífið var langt í frá dans á rós- um hjá Skagastúlkunni, hún missir pabba sinn þegar hún er á fjórða ári og sautján ára er hún búin að missa báða foreldrana. Ávallt átti hún þó athvarf hjá ömmu sinni og afa í Skuldinni á Skaganum og móðurfólkinu sem reyndist henni vel. Eftir hjúkrunarnámið lá leiðin vestur á Ísafjörð þar sem leiðir mömmu og pabba lágu saman. Stórfjölskyldan flutti svo öll suð- ur á nokkrum árum á sjöunda áratugnum og margir enduðu í Keflavík enda næga vinnu þar að fá og uppgangur. Sjúkrahúsið í Keflavík varð vinnustaðurinn og tókst hún á við mörg krefjandi verkefni þar á sinni starfsævi. Eftir að við Kristín eignuð- umst Odd og Evu Sif var tekist á við ömmu- og afahlutverkin. Gist- ing hjá ömmu og afa var spenn- andi og alltaf var passað upp á að vel færi um ungana. Litla fólkið fékk að fara með í ferðalög út á land og í sumarhús með tilheyr- andi dekri. Hörmulegt bílslys á Reykja- nesbrautinni tók Bensa bróður frá okkur, þetta slys tók mjög mikið á alla og mamma var aldrei söm eftir það, rétt nýorðin sex- tug. Langömmubörnin litlu þau Henrý Þór og Ísold Kristín fengu að kynnast þér lítillega, sérstak- lega Henrý Þór sem kunni vel við sig hjá gamla settinu eins og hann kallaði þau, litli pjakkurinn. Bestu stundirnar í seinni tíð átti hún með pabba suður í höfum á sólgylltri strönd, þau byrjuðu rólega með tveggja til fjögurra vikna ferðum sem síðan voru farnar að teygja sig upp í fjóra mánuði. Alltaf voru þau jafn ánægð með dvölina á Kanarí, þar var greinilega gott að vera, nota- legt loftslag og skemmtilegur fé- lagsskapur. Síðustu vikurnar voru erfiðar, elsku mamma, það var strembið að geta takmarkað hjálpað þér í baráttunni sem varð sem betur fer ekki löng. Ég trúi því að þú sért komin til þeirra sem á undan fóru og þar hefur verið tekið vel á móti hógværu og hjartahlýju hjúkkunni sem gaf okkur svo mikið. Ég bið góðan Guð að styrkja okkur í sorginni, ég mun passa upp á Vestfirðinginn. Kær- ar þakkir fyrir allt, þú varst ein- stök mamma. Gunnar Oddsson. Elskulega systir. Það er sárt til þess að hugsa að þú sért farin af þessari jarðvist. En nú ertu laus við þrautirnar og komin til sonar ykkar sem var tekinn allt of fljótt frá ykkur og var mikið áfall. Ég hefði svo sannarlega óskað þess að hafa þig lengur hjá okkur. Oft gleym- ist að njóta augnabliksins sem er í raun og veru það dýrmætasta af öllu sem við eigum. Ég er afar þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og ekki síð- ur þær stundir sem ég átti með þér síðustu vikurnar þínar á spít- alanum. Þótt þú hafir verið mikið veik vissir þú alltaf af mér og hélst í hönd mína og sagðir: „Æ, hvað það er gott að vita af þér, Kolla mín.“ Þú varst alltaf stóra systir mín sem ég leit upp til og var montin af og þakklát fyrir að eiga svona fallega og góða systur. Við ól- umst upp saman þar til ég var tíu ára gömul og þú sautján ára þeg- ar mamma okkar féll frá en þá skildi leiðir. Þú fórst til ömmu og afa á Akranes en ég austur á Reyðarfjörð til bróður okkar. Þegar ég fermdist þá komuð þið Rúna stóru fallegu systur mínar og mér er svo ferskt í minni hversu mikil gleðistund það var hjá okkur öllum að sameinast aft- ur. Tenging okkar systra hefur alltaf verið sterk og eftir að við urðum fullorðnar og stofnuðum fjölskyldur vorum við alltaf í miklu og góðu sambandi og átt- um hlutdeild í lífi hver annarrar alla tíð. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vísum stað engu gleymt, ekkert er fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir.) Mínar samúðarkveðjur sendi ég ykkur, elsku Oddur, Gunnar og fjölskylda. Hvíl í friði, elsku systir. Þín einlæg, Kolbrún systir. Vinarkveðja frá Hollsystrum Í dag, 12. maí, á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga, kveðjum við góða vinkonu og skólasystur. Það var tilhlökkun að hittast í Hjúkrunarskólanum í ágúst 1960. Ungar stúlkur að hefja hjúkrunarnám. Við vorum allar fullar af eftirvæntingu hvað biði okkar næstu árin. Ein af okkur vakti athygli okkar, ljóshærð stúlka með svo fallega fram- komu, það var Erna. Strax í upphafi varð mikil sam- heldni í hópnum sem hefur hald- ist alla tíð. Erna var góður hjúkr- unarfræðingur og sinnti sínu starfi vel og var vel liðin af bæði sjúklingum og samstarfsfólki. Hún sinnti einnig ábyrgðarmikl- um störfum innan hjúkrunar og var um tíma hjúkrunarforstjóri á Sjúkrahúsi Keflavíkur. Á nema- tímanum í Hjúkrunarskólanum fór Erna til Ísafjarðar og kynnt- ist þar manni sínum, honum Oddi, sem alltaf var kallaður Ossi. Þau bjuggu fyrstu árin á Ísafirði en fluttust síðar til Kefla- víkur. Við vorum mjög ánægðar með það því þá gat hún hitt okkur oftar. Það hefur verið einstakt samband á milli okkar í „hollinu“. Við höfum hist í hverjum mánuði síðan 1963 eftir útskrift, fyrst heima hjá okkur en í seinni tíð oft farið á veitingahús. Einnig höfum við farið í ferðir saman með mök- um, bæði innanlands og erlendis. Erna var alltaf hrókur alls fagn- aðar, hláturmild og skemmtileg. Það var mikið áfall fyrir Ernu og Ossa að missa son sinn af slys- förum, ungan mann sem átti framtíðina fyrir sér. Við minnumst með þakklæti allra þeirra samverustunda sem við áttum með Ernu í blíðu og stríðu. Við munum sakna hennar mikið. Elsku Ossi, Gunnar, Oddur, Eva Sif, Sesselía Erna og fjöl- skyldur, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Ernu. Björk, Díana, Elísabet, Fjóla, Gunnhildur, Ída, Inga, Ingibjörg, Jóna Margrét, Linda, Ragnhildur og Þórunn. Erna Bergmann Gústafsdóttir ✝ Sigursteinn Freyr var fæddur í Reykjavík 10. júlí 1974. Hann lést á Bringham and Womens-- spítalanum í Bost- on 11. september 2020. Foreldrar Sig- ursteins eru Guð- rún Sigursteins- dóttir hjúkrunar- fræðingur og Vigfús Björnsson bakarameistari en hann lést 2019. Systir Sigursteins er Inga Brá Vigfúsdóttir og starfar hún á geðdeild Landspítalans. Sig- ursteinn var ókvænt- ur og barnlaus. Á Íslandi vann Sigursteinn fjöl- breytt störf, t.d. við löggæslu og slökkvi- lið. Sigursteinn var búsettur síðustu 15 ár í Boston þar sem hann var upphaflega við nám í eldvarna- fræðum, sótti fjölda námskeiða og eins fór hann í nám í fasteigna- viðskiptum og starfaði hann við það síðustu árin. Útför hans fer fram í Foss- vogskirkju í dag, 12. maí 2021, klukkan 13. Sigursteinn Freyr Vigfússon, Siggi, bjó í næsta húsi við okkur í Akraseli, ásamt foreldrum sínum, Fúsa og Gunnu, og systur sinni Ingu Brá. Mikill og góður vin- skapur tókst með nágrönnunum, bæði meðal fullorðinna sem og barna. Siggi og Guðmundur voru jafnaldrar og Inga Brá í aldri á milli Fjólu og Magga. Fyrsti skóladagur Sigga og Guðmundar var festur á filmu, sem í stafræn- um heimi dagsins í dag þykir ekki merkilegt, en var ekki algengt fyrir um 40 árum. Kvikmyndin sýnir brosmilda og káta stráka ganga léttfætta í skólann. Þeir voru síðan samferða í gegnum all- an grunnskólann og lengst af saman í bekk. Vinátta þeirra var því mikil og góð og byggðist á því að þekkja hvor annan út og inn. Akraselið var fjörug gata þeg- ar við ólumst þar upp, með mörg- um krökkum sem léku sér saman í útleikjum á sumrin. Á veturna kom sér vel að Akraselið liggur í hlíðum Breiðholtsins og hægt um vik að draga fram skíði og sleða og renna sér í brekkunum. Garð- arnir okkar runnu saman og voru á lóðmörkum byggð snjóhús og snjógöng á vetrum og kofi á sumrin. Þá var alltaf gaman að koma inn til Sigga og Ingu Brár, tekið var vel á móti okkur og oftar en ekki snúðar eða aðrar kræs- ingar úr Breiðholtsbakaríi á boð- stólum, en pabbi Sigga var Vigfús Björnsson bakarameistari. For- eldrar Sigga voru jafnan fyrst með nýjungarnar, hverjar sem þær voru. Þannig voru þau með þeim fyrstu í götunni til að fá sér myndbandstæki. Það var því ákaflega vinsælt að fara yfir til Sigga og Ingu Brár og horfa á spennandi myndbandsspólu. Sjónvarpsstofan var á neðri hæð í stóru herbergi og þar söfnuðust stundum saman allmargir krakk- ar úr götunni. Siggi var myndarlegur maður, svipfagur með einstaklega falleg brún augu. Hann var sterkur per- sónuleiki og fylginn sér í því sem hann tók sér fyrir hendur. Siggi átti auðvelt með að sjá spaugileg- ar hliðar á málum, hafði góðan húmor og það var gaman að um- gangast hann. Siggi var mikill áhugamaður um bíla og átti jafn- an glæsilega og vandaða bíla sem eiginlega má segja að sé lýsandi fyrir hvernig hann var sjálfur. Siggi flutti til Bandaríkjanna, sem voru fyrir honum drauma- landið, og settist að í Boston. Hann kom sér ágætlega fyrir og hin síðari ár hafði hann komið sér upp fyrirtæki sem var í vexti þeg- ar hann veiktist. Stríðinu við veik- indin tapaði hann og er hann nú horfinn frá okkur langt fyrir ald- ur fram. Siggi var vinur vina sinna og alltaf gott að koma til hans. Maggi flugmaður heimsótti hann iðulega í ferðum sínum til Boston og átti með honum góðar stundir. Guðmundur minnist einnig hversu gott og gaman var að koma til Sigga í Boston, og jafnvel þó langt hafi verið síðan þeir hittust síðast voru æskuvin- irnir strax mættir til leiks og nutu þess að vera saman. Minningin um Sigga er okkur kær. Siggi er órjúfanlegur hluti æskunnar í Akraseli og hann lifir í huga okkar. Mikill missir er að Sigga sem kvaddi okkur alltof snemma. Við vottum Guðrúnu móður hans, og Ingu Brá systur hans okkar innilegustu samúð. Sigursteinn Freyr Vigfússon er kært kvaddur og með söknuði. Guðmundur R. Sigtryggsson Magnús R. Sigtryggsson Fjóla G. Sigtryggsdóttir Æskuvinur okkar Sigursteinn Freyr er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Hann lést eftir veik- indi í Bandaríkjunum tengd arf- gengum sjúkdómi sem hann hafði átt við að etja um árabil. Sigga kynntumst við í Breið- holtinu þar sem við ólumst upp. Hann var kátur og frekar hlé- drægur strákur sem safnaði með tímanum í kringum sig hópi af traustum vinum. Á heimili hans voru allir velkomnir og þar dvöld- um við löngum stundum við alls kyns bras sem fylgir strákahóp- um. Guðrún og Vigfús þekktu okkur alla og þau gáfu sér tíma til að ræða um þau málefni sem áttu hug okkar þá stundina. Gestrisni þeirra hjóna varð ríkur þáttur í að vinahópur okkar varð eins náinn og síðar gerðist. Þegar grunnskólagöngu lauk skildi leiðir en við héldum áfram góðu sambandi. Þegar Siggi flutt- ist síðan á Njálsgötuna hófst nýtt tímabil í vinahópnum. Þar voru haldnir skipulags- og uppgjörs- fundir og allt þar á milli, og Rúnar bjó þar um tíma á meðan foreldr- ar hans voru erlendis í námi. Margar af eftirminnilegustu sam- verustundum okkar áttum við þarna á heimili Sigga. Vegna aldursmunar var Inga Brá okkur fjarlæg í upphafi en fljótlega varð hún líka mikill vin- ur okkar. Framan af var það hennar hlutskipti að reyna að passa upp á að enginn færi sér að voða en síðar gat hún hlegið með okkur að ýmsum þeim afrekum sem menn töldu sig hafa unnið. Í einu stórafmælinu hennar vorum við fengnir til að þjóna gestum; sú samkoma leystist upp í gleðipartý enda vinahópur hennar allur úr sama hverfi og við. Enginn gerði athugasemdir við þjónustuna. Siggi starfaði sem blaðaljós- myndari, lærði rafvirkjun og gekk síðar til liðs við slökkviliðið og starfaði bæði í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík. Þegar systir hans fluttist til Boston fylgdi hann í kjölfarið til þess að læra nánar um slökkviliðsstörf. Hann kunni vel við sig í Banda- ríkjunum og átti heima þar síð- ustu 20 árin. Hann starfaði sem verktaki og hin síðari ár við fast- eignasölu. Framan af kom hann reglulega til Íslands og var haldið upp á það í vinahópnum með því að halda í víking til Víkur í Mýr- dal. Við heimsóttum hann hver í sínu lagi til Boston og hittum þá alltaf aftur gamla gestrisna vin okkar. Eftir að Siggi veiktist illa fyrir nokkrum árum kom hann ekki aftur til landsins. Hjarta- sjúkdómurinn tók sig upp aftur síðasta sumar og systir hans var hjá honum þegar hann lést á sjúkrahúsi nokkrum vikum síðar. Siggi var traustur vinur og góður drengur sem vildi öllum vel. Hann var einlægur og mikill húmoristi sem hló eftirminnilega smitandi hlátri. Hann var dag- farsprúður og seinþreyttur til vandræða, æsti sig ekki en stóð fast á sínu ef honum þótti ástæða til. Þau Inga Brá voru sérstak- lega náin og samrýnd systkin sem gátu leitað hvort til annars í stórum málum og smáum. Þeim Guðrúnu sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Minn- ingin um góðan dreng lifir. Arnar, Björgvin, Björn, Guðjón, Indriði, Jóhann, Kjartan, Rúnar og Skorri. Sigursteinn Freyr Vigfússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.