Morgunblaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 21
farin að hugsa til endalokanna og
hvort hún gæti ekki ánafnað líffæri
sín en taldi þau kannski ekki vel nýt-
anleg. Hún hefur boðið til veislu á
hverju ári síðan, nema í fyrra af
ástæðum sem öllum eru kunnar. Hún
var fyrst Siglfirðinga til að fá bólu-
setningu gegn Covid-19 og lét þá vita
af því að nú yrði veisla í vor. Það er
sem sé komið að því, 105 ára afmæli –
og Nanna býður vini og ættingja
hjartanlega velkomna meðan sam-
komutakmarkanir leyfa! Hún segist
hafa það fínt og ekki undan neinu að
kvarta og biður að heilsa öllum.
Fjölskylda
Eiginmaður Nönnu var Baldvin
Guðjónsson, f. 1.12. 1897, d. 12.11.
1975, sjómaður. Foreldrar hans voru
hjónin Guðjón Jóhannsson, f. 18.5.
1897, d. 7.1. 1938, bóndi á Sauðanesi á
Upsaströnd, og Sigurlína Sæunn Sig-
urðardóttir, f. 18.1. 1859, d. 30.1.
1928, húsfreyja. Nanna og Baldvin
voru barnlaus, en Baldvin átti fyrir
eina dóttur.
Systkini Nönnu: Þórður, f. 1903, d.
1991, Sigurður, f. 1903, d. 1983,
Hermína, f. 1906, d. 2000, Eggþór, f.
1908, d. 1994, Anna Margrét, f. 1910,
d. 2015, Guðbjörg Magnea, f. 1912, d.
2005, Guðmundur Helgi, f. 1915, d.
2005, Benedikt Kristinn, f. 1918, d.
2010, Jón Líndal, f. 1919, d. 1999,
Margrét, f. 1922 og Guðborg, f. 1924,
d. 2018.
Foreldrar Nönnu voru hjónin
Franklín Þórðarson, f. 11.11. 1879, d.
17.7. 1940, bóndi í Litla-Fjarðar-
horni, og Andrea Jónsdóttir, f. 20.6.
1881, d. 12.1. 1979, húsfreyja.
Nanna
Franklínsdóttir
Guðbjörg Magnúsdóttir
húsfreyja á Felli
Sigurður Sigurðsson
bóndi á Felli í Kollafirði
Þórður Sigurðsson
bóndi og hreppstjóri í Stóra-Fjarðarhorni
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Stóra-Fjarðarhorni, átti 19 börn
Franklín Þórðarson
bóndi í Litla-Fjarðarhorni
Guðný Gísladóttir
húsfreyja í Stóra-Fjarðarhorni
Jón Tómasson
bóndi í Stóra-Fjarðarhorni
í Kollafirði
Andrés Jónsson
bóndi í Hvítarhlíð í Bitrufirði
Sólveig Guðmundsdóttir
húskona í Gröf í Bitrufirði
Jón Andrésson
bóndi á Hamri í Kollafirði og Miðhúsum
Guðrún Jónsdóttir
vinnukona og síðar húsfreyja í
Miðhúsum í Kollafirði
Jón Guðbrandsson
lausamaður á Þambárvöllum
í Bitrufirði
Guðrún Guðmundsdóttir
vinnukona á Broddanesi í Kollafirði og
víðar, síðast ómagi í Gröf í Bitrufirði
Úr frændgarði Nönnu Franklínsdóttur
Andrea Jónsdóttir
húsfreyja í Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380
„GARÐAR SÁ SKYNDILEGA EFTIR ÞVÍ
AÐ HAFA KEYPT SÉR SILKISKYRTU OG
-JAKKAFÖT.“
„FISK OG FRANSKAR … og fjörutíu og
tvær skálar af salati hússins.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fíflast saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ER Í LAGI MEÐ
PÍTSUNA?
HANN VAR AÐ GANGA
FRÁ BÍLNUM MEÐ
PÍTSUNA OG DATT
JÓN LENTI Í
SMÁSLYSI
Ó,
NEI!
KVEIKT VAR Í HESTHÚSUM
KONUNGSINS Á MILLI SEXOG
TÍU Í GÆRKVELDI! ÞÚ ERT Á
LISTA YFIR GRUNAÐA!
ÉG ER
SAKLAUS!
ÉG VAR ÚTI
AÐ BORÐA
KLUKKAN SEX!
ÞAÐ GEFUR ÞÉR SAMT
NÆGAN TÍMA!
ÉG
FÓR Á
HLAÐBORÐ!
ÓKEI… HVER ER
NÆSTUR Á LISTANUM?!
Páll Jónasson í Hlíð yrkir „ViðReykjavíkurtjörn“:
Í Tjörninni er toppönd að róta
og tína þá brauðmola er fljóta.
En vötnunum heima
nú verður að gleyma.
Hún er fiskiönd sem fékk engan kvóta.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
„Vorvísu“ á Boðnarmiði, – hún er
langhent, oddhent:
Gyllir tinda geisla sindur,
glóir lindin, blikar sær.
Ama hrindir vorsins vindur,
veitir yndi, jörðin grær
Það er kuldahrollur í Sigtryggi
Jónssyni:
Næturfrostið napurt er,
næsta kalt á Fróni.
Þó sólin blessuð sýni mér
sólargeisla’ á prjóni.
Friðrik Steingrímsson segir frá
því, að það hafi verið fugladrit á
lokinu á heita pottinum:
Það er hjá mér þrastapar
í þeim er stundum garri,
og þetta eru þakkirnar
þegar ég er fjarri.
Anton Helgi Jónsson yrkir og
kallar „sannleikskorn í heimi öf-
ugmæla, – glænýja fréttalimran“:
Það myrkvar af sólinni senn.
Í Sahara rignir víst enn.
Það fæddist einn sláni
um fimmtugt á Spáni
og friðinn þrá Ísraelsmenn.
Bjarni Sigtryggsson yrkir:
Í sauðfé er mikið um mæði;
í mannfólki kórónuæði.
Sem ber að virða
og senn þarf að girða
hið skagfirzka sóttvarnasvæði.
Broddi B. Bjarnason yrkir á
sauðburði:
Bændur gleður býsna fátt,
byl úr lofti slítur
Áfram nöpur norðanátt,
nú er bræluskítur
Kristján H. Theodórsson yrkir:
Dugnaður er dáða mest
hjá drengjum metinn.
Ef yfir tæki árans letin,
yrði varla kakan étin.
Hér er gömul þula, stutt:
Selurinn í sjónum
syndir upp á sker.
Vettlingana á prjónum
vinnukonan ber.
Sköturoð í skónum
skartsamlegt er.
Lömbin í tónum
leika þau sér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorvísa og rignir
enn í Sahara