Morgunblaðið - 12.05.2021, Blaðsíða 14
14 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Elsku hjartans Kristófer.
Það er algerlega óraunveru-
legt að vera að skrifa minninga-
grein um þig, 16 ára son minn.
Þegar ég fékk símtalið um að þú
værir látinn var ég staddur á Te-
nerife í 5.500 km fjarlægð.
Þú kvaddir mig með faðmlagi
aðeins fjórum dögum áður kl
7.30. Ekki óraði mig fyrir því að
það yrði okkar síðasta faðmlag.
Við vorum mjög nánir feðgar
og síðasti dagurinn okkar saman
var æðislegur eins og svo margir
aðrir í gegnum tíðina. Við fórum
saman í bíltúr enda báðir með
bíladellu, þú komst með mér að
kaupa föt fyrir fríið, kíktum í bát-
inn að plana sumarið, út að borða
og enduðum svo kvöldið í heita
pottinum og áttum gott spjall um
lífið. Þú varst hamingjusamur og
ánægður með lífið og framtíðin
brosti við þér.
Þú varst mjög þroskaður þrátt
fyrir ungan aldur. Þú hafðir
mikla samkennd og mikla tilfinn-
ingagreind. Í síðasta mánuði
sagðir þú að þú elskaðir að vera á
íþróttabraut í FG. Þér gekk vel í
náminu og endaðir skólann með
stæl því þú stjórnaðir síðasta tím-
anum sem þú fórst í með 30 mín-
útna þrekæfingu í líkamsrækt-
aráfanganum. Samnemendur
þínir og kennari komu með fal-
lega mynd af bekknum ásamt
minningabók til mín í vikunni.
Þau ætla að heiðra minningu þína
með því að enda áfangann á 30-
20-10 „burpees“ eins og þú lést
þau gera eftirminnilega föstu-
daginn 23. apríl.
„Health is Wealth“ sagðir þú
við pabba þinn og klappaðir mér
á öxlina, þegar þú varst að ræða
við mig um skólann, mjög ánægð-
ur með að hafa valið íþróttafræði.
Lífið þitt var ekki alltaf dans á
rósum, en þú fékkst mikinn
stuðning frá okkur foreldrum
þínum og við stóðum alltaf með
þér. Þú varst duglegur að leggja
þig fram og yfirstíga verkefnin.
Í lok ágúst 2013 aðeins 9 ára
greindist þú með sykursýki 1.
Það var þungur kross að bera.
En daginn eftir greiningu var
læknirinn að kenna okkur for-
eldrum þínum hvernig ætti að
mæla blóðsykur og reikna út
magn insúlíns sem ætti að
sprauta í þig. Þegar ég ætlaði að
fara sprauta undir handleiðslu
læknis, tókstu pennann og sagðir
„það sprautar mig enginn, ég sé
um þetta sjálfur“ og þar við sat,
þú sást alfarið um að gefa þér in-
súlín. Algerlega ótrúlegur nagli,
aðeins 9 ára.
Kristófer, ég er mjög þakklát-
ur að þú hafir komið inn í líf mitt.
Þú varst tekinn frá okkur allt of
snemma. Þú munt lifa að eilífu í
minningunni.
Ég mun alltaf elska þig og þú
verður alltaf með stað í hjarta
mínu.
Pabbi.
Elsku sonur minn, ég á svo
erfitt með að trúa því að þú sért
farinn frá okkur í blóma lífsins.
Kristófer Ingi
Kjærnested
✝
Kristófer Ingi
Kjærnested
fæddist 8. júní
2004. Hann lést 25.
apríl 2021.
Foreldrar hans
eru Ásgerður Ósk
Jakobsdóttir og
Stefán Kjærnested.
Systur hans eru
Viktoría Ósk, Arn-
dís Ósk og Hrafn-
hildur Ósk.
Útförin fer fram frá Hall-
grímskirkju í dag, 12. maí 2021,
klukkan 15.
Streymt verður frá útförinni:
https://fb.me/e/1lKK23dnL
Streymishlekk má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Það líður ekki sá
dagur að þú ert ekki
í huga mér.
Þú varst einstak-
ur drengur í alla
staði. Svo góðhjart-
aður, einlægur,
kurteis, með hlýja
nærveru og einfald-
lega gullfallegur að
innan sem utan.
Uppátækjasamur,
mikill húmoristi og
alltaf stutt í brosið. Sjálfstæður,
duglegur, eldklár og vinsæll. Þú
áttir svo dýrmæta og góða vini og
fyrir það er ég þakklát.
Allar minningarnar veita mér
styrk þessa dagana og eru svo
sannarlega ljós í myrkrinu. Samt
brosi ég og græt til skiptis þegar
ég minnist þín, brosi því þú gafst
mér svo mikið á þinni stuttu ævi
og ég er svo þakklát fyrir tímann
okkar saman. Græt vegna þess að
þú varst tekinn svo skyndilega frá
mér og ég sakna þín óbærilega.
Þetta er allt saman svo sárt, svo
mikil sorg, svo mikill missir og
svo mikill söknuður.
Ég syrgi þig svo sárt, elsku
Kristó minn, en ég veit að hin
dýpsta sorg getur aðeins sprottið
af tærustu ástinni.
Núna er allt breytt og ekkert
verður eins og áður. Hvorki ég né
lífið. Nú stend ég frammi fyrir
erfiðasta verkefni lífs míns, en ég
mun standa mig. Ég mun sýna
sjálfri mér mildi og umvefja syst-
ur þínar ást og hlýju.
Minning þín lifir í hjarta mér
að eilífu.
Ég elska þig svo heitt, elsku
Kristó minn.
Mamma.
Það er óbærilegt að missa
barnið sitt. Í dag kveðjum við
barnabarn okkar Kristófer Inga.
Við erum harmi slegin, en lífið
heldur áfram og við erum þakklát
fyrir árin sem við höfðum með
honum. Minningarnar eru marg-
ar og góðar. Hann var hress og
skemmtilegur, gaman að spjalla
við hann, faðmurinn stór og hlýr.
Kristó elskaði að fara í veiðitúra
með afa sínum. Síðasta veiðiferð-
in var í Norðurá sl. sumar, þá fóru
þeir afi Símon, Kristó og Thor
frændi hans sem býr í Bandaríkj-
unum. Veiðin var ekki mikil, en
fengu þó einn lax. Thor var hérna
hjá okkur í fimm vikur, þeir
frændur brölluðu mikið og áttu
frábærar samverustundir. Kristó
hafði gaman af öllu sjósporti, sér-
staklega sæþotum.
Kristófer flutti úr Vesturbæn-
um í Reykjavík og hóf nám í
Garðaskóla, fór síðan í Fjölbraut í
Garðabæ, þar leið honum mjög
vel og eignaðist marga góða vini.
Meðfram skólanum vann hann í
Krónunni í Garðabæ. Hann naut
þess að aðstoða viðskiptavini og
raða í hillur og hafa allt í röð og
reglu, tók allar aukavaktir sem í
boði voru, því að hann var að
safna sér fyrir bíl og var mjög
spenntur að fá bílprófið eftir
mánuð.
Kristófer var níu ára þegar
hann greindist með sykursýki 1,
það var mikið áfall fyrir hann og
fjölskylduna. Það voru nokkuð
margar ferðir á Barnaspítala
Hringsins, en hann var duglegur
og tókst á við þetta erfiða verk-
efni, sem að lokum bugaði hann.
Elsku Kristófer hvíldu í friði,
þú verður alltaf í hjörtum okkar.
Amma Elínborg (Ella) og
afi Símon.
Elsku Kristó. Það er alveg
magnað hvað lífið getur tekið
óvænta stefnu. Það sem við syst-
ur tókum sem sjálfsögðum hlut
fyrir ekki svo löngu hefur nú ver-
ið hrifsað af okkur. Það er fyrst
núna sem við systurnar áttum
okkur á því hversu sterk systk-
inaböndin voru og núna þegar þú
ert farinn frá okkur hefur hjartað
fyllst af tómleika, það er svo erf-
itt að missa svona stóran part af
fjölskyldunni.
En það eru minningarnar sem
lifa og góðar minningar gleymast
seint. Við gerðum svo margt
skemmtilegt saman sem fjöl-
skylda, alls konar uppátæki og
svo öll ferðalögin bæði innan-
lands og utan.
Þú varst bráðfyndinn og lífs-
glaður drengur og þér tókst alltaf
að kalla fram bros hjá okkur
systrunum. Þú varst í raun svo
miklu meira en bara bróðir okk-
ar, þú varst vinur okkar líka. Þú
varst svo fagur drengur, bros-
mildur, með fallegustu augu ver-
aldar og með hjarta úr gulli.
Við verðum ævinlega þakklát-
ar fyrir þig kæri bróðir.
Við elskum þig og hvíl í friði.
Óskirnar þrjár,
Viktoría Ósk, Arndís Ósk og
Hrafnhildur Ósk.
Elsku Kristófer minn. Við
kynnumst eiginlega fyrst al-
mennilega í jarðarförinni hjá afa.
Á undan því hafði ég verið búsett-
ur erlendis. Þú komst til mín í
jarðarförinni, eins og þú varst
alltaf, sjúklega hnyttinn og yfir-
vegaður á því, og fórst að spyrja
mig spjörunum úr varðandi hitt
og þetta en aðallega þó um bakst-
ur og eldamennsku. Þetta var
upphafið að okkar einstaka sam-
bandi. Þú varst fastagestur hjá
mér á Prikinu þegar ég var þar,
labbaðir beint eftir skóla og beint
inn í eldhús til frænda. Síðan
varstu eiginlega bara byrjaður að
vinna þar, fyrir pönnukökur og
beikon! Sá tími er mér verulega
dýrmætur og ég gæti talað enda-
laust um uppátækin þín þar; voru
alltaf bestu dagarnir þegar
Kristó mætti. Stundum komstu
bara og settist upp á frystikistu
hjá mér meðan þú varst að læra
eitthvað og ég að elda eitthvað,
en við náðum alltaf að eiga góðar
stundir saman.
Líka þegar við Elva pössuðum
ykkur systkinin í viku eða svo.
Það var svo gaman hjá okkur öll-
um þá. Gleymum þeim tíma aldr-
ei.
Fyrir ekki svo löngu sagðir þú
við mig heima hjá Regínu systur
að þú vildir vera góður stóri
frændi við hann Óliver minn eins
og ég hefði reynst þér og það
þótti mér svo fallegt að heyra. Og
þú varst það. Óliver fannst þú
mjög skemmtilegur og sterkur.
Vildi alltaf fara í gamnislag við
þig og leika. Og þú gafst þér alltaf
tíma fyrir hann þegar við hitt-
umst.
Elsku Kristófer eða Kristó
Fel. eins og við grínuðumst oft
með. Þú varst ekki bara litli
frændi minn heldur líka stórvin-
ur minn sem mér þótti brjálæðis-
lega vænt um. Það var alltaf gam-
an að hitta þig og það var alltaf
gaman að spjalla um allt milli
himins og jarðar við þig.
Veit að amma Hulda og afi
Jakob eru að passa þig núna og
þið amma eflaust í kolsvartri
brandarakeppni.
Ég mun alltaf sakna þín vinur
og þú verður alltaf í hjarta okkar
í fjölskyldunni. Mun segja sögur
af þér um ókomna tíð.
Þinn vinur og stóri frændi,
Ásgeir.
Elsku hjartans Kristófer.
Hjörtu okkar eru í molum. Síð-
ustu dagar hafa verið óraunveru-
legir, fullir af sorg og skilnings-
leysi á hvað lífið getur verið
óréttlátt. Ég lofa þér því að ég
skal gera allt sem ég get til að
passa upp á mömmu þína.
Við yljum okkur við að rifja
upp góðar stundir.
Nokkrar stundir standa upp
úr hjá mér eins og síðasta gaml-
árskvöld. Við sprengdum flug-
elda og þið krakkarnir fóruð eins
og stormur um húsið með inni-
sprengjur. Við spiluðum pöbbk-
viss þar sem þú varst spyrillinn
og lékst á als oddi. Í fyrrasumar
fórum svo við mamma þín með
ykkur krakkahrúguna í Bláa lón-
ið og okkur mömmu þinni þótti
svo gaman þetta skiptið því að
þarna voruð þið Ísar með okkur
líka en þið hafið nú ekki alltaf
nennt að hanga með okkur í öllu.
Við vorum þarna í margar
klukkustundir, Ísar frændi þinn
var meira með hausinn á sér ofan
í lóninu en upp úr og þú hlóst
endalaust að honum og manaðir
hann í að gera þetta oftar og
standa á höndum líka, sem hann
gerði að sjálfsögðu.
Vetrarfríið til Akureyrar þeg-
ar við mamma þín fórum bara
með ykkur fjögur í vetrarfrí; þig,
Hrafnhildi, Ísar og Heklu. Gist-
um á Hótel KEA, fórum út að
borða, lékum okkur í fjallinu og
spiluðum á kvöldin.
Þú varst svo skemmtilegur og
uppátækjasamur. Eitt sinn
hringdi mamma þín í þig eftir
skóla og spurði hvað þú værir að
gera þá sagðist þú vera að borða.
Þú varst samt ekki heima að fá
þér ristað brauð og kakómalt, nei
þú sast eins og fínn maður á
Snaps að fá þér klúbbsamloku og
hafa það huggulegt. Svo var það á
jóladag eitt sinn er þú kíktir út í
göngutúr og endaðir á Hótel
Sögu til að fá þér sveppasúpu og
gera vel við þig í tilefni jólanna.
Þú varst alltaf svo mikill sælkeri.
Þegar Ásgeir frændi þinn var
með eldhúsið á Prikinu varst þú á
tímabili nánast daglegur gestur
hjá honum. Hjálpaðir honum í
eldhúsinu að gera mat fyrir gest-
ina. Starfsfólk og fastagestir voru
farnir að þekkja þig með nafni og
höfðu svo gaman af þér. Ásgeiri
þótti vænt um áhuga þinn og þú
sagðir alltaf að þú hefðir litið svo
upp til hans en hann leit ekki síð-
ur upp til þín elsku Kristó.
Bangsarnir, Ó allir bangsarn-
ir. Eitt sinn hafðir þú gaman af
því að fara í skemmtigarðinn í
Smáralind og vinna þar bangsa í
tækjum. Þú varst einstaklega
heppinn og varst á nokkrum vik-
um búinn að tæma allan bang-
salagerinn. Þetta fannst okkur
fyndið.
Eins mikill töffari og þú varst
og lá mikið á að vera fullorðinn þá
varstu svo hjartahlýr og í hvert
sinn sem ég kom í heimsókn fékk
maður knús. Þú gafst þér tíma til
að spjalla og hanga með okkur.
Þegar ég hélt litlu jól á pallinum í
desember þá komstu með
mömmu þinni og systrum og
komst mér svo skemmtilega á
óvart því ég hélt að 16 ára strákar
myndu ekki endilega nenna að
kíkja á fertuga frænku en þú
komst og við áttum skemmtilega
stund öll saman.
Elsku Kristó minn, við munum
ávallt minnast þín sem yndislegs
stráks sem var hjartahlýr, falleg-
ur, skellihlæjandi, duglegur, klár,
húmoristi og sælkeri mikill.
Þín stóra frænka,
Regína Björk.
Elsku Kristó frændi. Ég hef og
mun alltaf elska þig. Ég veit að
þú ert farinn en ég segi alltaf við
sjálfa mig: ég mun sjá hann aftur,
finnst eins og þegar ég kem heim
til þín þá muni ég sjá þig aftur.
Mér finnst eins og þetta sé vond-
ur draumur og ég muni vakna.
Það var svo gaman þegar við
fórum öll saman í Bláa lónið í
fyrrasumar, mamma, Ásgerður
og við öll krakkarnir. Það var frá-
bær dagur, Ísar var að kafa um
allt eins og selur og þú hlóst og
hlóst að frænda þínum. Við eigum
fullt af fleiri minningum eins og á
síðasta gamlárskvöld þegar við
vorum krakkarnir öll að gera
innisprengjur og það fór skraut
út um allt. Aðrar minningar mun
ég geyma í hjarta mínu og aldrei
gleyma.
Þín litla frænka,
Hekla Björk.
- Fleiri minningargreinar
um Kristófer Inga Kjærne-
sted bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HARALDUR SIGFÚS MAGNÚSSON,
Hverfisgötu 23c, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 10. maí.
Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði 20. maí og verður streymt.
Anna Soffía Haraldsdóttir Bragi Guðmundsson
Anna Haraldsdóttir Hallgrímur Tómas Ragnarsson
Sigurður Haraldsson Valgerður G. Halldórsdóttir
Magnús Haraldsson Marisa Quinonez Corpuz
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma okkar,
HILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Árholti 2, Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Húsavíkur 28.
apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Hjartans kveðjur og þakklæti til allra þeirra sem sýnt hafa okkur
hlýhug og stuðning vegna andláts og útfarar Hildar.
Hjálmar Vigfússon
Kristján Önundur Hjálmarss. Hólmfríður Egilson
Hilmar Þór Egilson Anna Sigríður Björnsdóttir
Sigurgeir Kristjánsson Dögg Rúnarsdóttir
Sóldís Diljá Kristjánsdóttir Gunnar Sigurðsson
og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma, dóttir,
systir og okkar allra besta,
BRYNJA JÓNSDÓTTIR
verslunarstjóri,
Skipastíg 17, Grindavík,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar
þriðjudaginn 4. maí. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
föstudaginn 14. maí klukkan 14. Þökkum auðsýndan samhug
og hlýju í okkar garð.
Trausti Sverrisson
Helga Jóna Traustadóttir Hafliði Hjaltalín
Halldór Guðni Traustason Aníta Rut Guðjónsdóttir
Halldóra María Harðardóttir Jón Helgi Gestsson
Heiðrún Jónsdóttir Jóhannes Sigurðsson
Díana Jónsdóttir Jón Ingólfsson
Hilmar Daði, Hafþór Atli,
Katrín Eva og Elfa Björk
Elsku hjartans dóttir okkar, systir,
barnabarn, barnabarnabarn og frænka,
KAMILLA EIR STYRMISDÓTTIR,
lést fimmtudaginn 6. maí á gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut. Í ljósi
aðstæðna mun jarðarförin fara fram
í kyrrþey. Streymt verður frá athöfninni og hægt verður að
nálgast aðgang hjá nánustu aðstandendum.
Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast
Kamillu Eirar er bent á styrktarreikning til handa fjölskyldunni:
0370-13-006303, 080296-2749.
Guðrún Kristín Jóhannesdóttir, Styrmir Magnússon
Ásdís Arna Styrmisdóttir
María Rós Styrmisdóttir
Jóhannes Geir Rúnarsson Guðrún Bergmann Franzdóttir
Louisa Biering
langömmur, langafi,
langalangamma og frændsystkin
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi
og langafi,
GÍSLI MAGNÚSSON
vörubifreiðarstjóri,
Dalbraut 14,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 8. maí. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 18. maí klukkan 13.
Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat
Ásdís Gísladóttir Finnbogi Steinarsson
Magnús Gíslason Randi Gíslason
Þórhildur Magnúsdóttir Hulda Dagmar Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn