Morgunblaðið - 12.05.2021, Page 12

Morgunblaðið - 12.05.2021, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Boris Johnson,forsætisráð-herra Bret- lands, kynnti á mánudag skref til afléttingar sóttvarnaaðgerðum sem felur meðal ann- ars í sér að fólk megi hittast í smáum hópi án þess að viðhafa tveggja metra fjarlægðarmörk. Um leið benti hann á að allir yrðu eftir sem áður að beita heilbrigðri skynsemi við mat á aðstæðum og gæta sjálfir að sóttvörnum. Sama dag og Johnson kynnti þessar jákvæðu breytingar í Bret- landi, og raunar sama dag og já- kvæðar breytingar í þessum efn- um tóku gildi hér á landi, var upplýst að í fyrsta sinn í meira en ár hefði liðið dagur þar sem eng- inn hefði látist á Englandi af völd- um kórónuveirunnar. Á Bretlandi öllu létust fjórir, sem telst lítið miðað við þann fjölda veiru- tengdra dauðsfalla sem dunið hafa á bresku þjóðinni síðastliðið rúmt ár. Athygli vekur að þær spár sem reiknimeistarar Bretlands kynntu fyrr á árinu hafa ekki gengið eftir, sem betur fer. Þróunin hefur verið mun jákvæðari en spár gerðu ráð fyrir og nú er til dæmis talið nán- ast útilokað að ný bylgja skelli á landinu við frekari afléttingar. Þetta hefur afar jákvæð áhrif á Bretlandi en einnig hér á landi, því að frá næsta mánudegi mega Bretar ferðast að vild til tiltekinna landa og má búast við að Ísland njóti mjög góðs af því. Það á jafnt við um almenning og þá sem ákvarðanir taka að þeir geta lítið annað gert en tekið mið af bestu mögulegu þekkingu þeg- ar ákvarðanir eru teknar. Í því sambandi er eðli máls samkvæmt mjög horft til vísindamanna, rann- sókna þeirra og álits. Þetta er nauðsynlegt en um leið er óhjá- kvæmilegt að hafa í huga að vísindamenn búa oft við mjög ófull- komnar upplýsingar og spálíkön eru þess eðlis að útkoman sem þau skila verður ekki betri en upplýsing- arnar sem inn í þau fara. Þess vegna getur líka stund- um þurft að beita hyggjuvitinu, líkt og Johnson hvetur landa sína nú til að gera. Það er til að mynda umhugs- unarvert sem fjallað var um í The Telegraph í gær, að líkön hafi van- metið áhrif bólusetninga. Nýjar rannsóknir, það er að segja meiri þekking, benda til að jákvæð áhrif bólusetninga séu meiri en áður var talið, bæði fyrir einstaklinginn og til að framkalla hjarðónæmið eftirsótta. Eftir að hafa gengið í gengum miklar hörmungar vegna kór- ónuveirunnar hafa Bretar náð vopnum sínum og sjá fram á að fella niður flestar hömlur eftir rúman mánuð. Ástæða þessa ár- angurs er að Bretar tóku bólusetningarmál í eigin hendur og bólusettu hraðar en til dæmis löndin handan Ermarsundsins sem lutu leiðsögn frá Brussel. Ís- land tók því miður ákvörðun um að fylgja þeirri mislukkuðu leið- sögn og gekk þess vegna hægar að bólusetja, en gangurinn í bólu- setningum hefur þó verið góður að undanförnu og hátt hlutfall full- orðinna er komið með að minnsta kosti fyrri sprautu. Staðan hjá við- kvæmustu hópunum er orðin mjög góð. Aflétting aðgerða er hafin hér á landi og full ástæða til að henni verði haldið áfram samkvæmt þeirri áætlun sem lögð hefur verið og helst hraðar. Um leið verða landsmenn vitaskuld að viðhafa varúð og forðast aðstæður þar sem hætta er augljós. Þar, eins og oftar, skiptir heilbrigð skynsemi mestu máli. Aflétting sóttvarna- aðgerða er brýn, en áfram þarf að við- hafa varúð} Heilbrigð skynsemi Stærsta olíuleiðslaBandaríkjanna, Colonial, varð á dög- unum fyrir netárás sem kom í veg fyrir að hægt væri að flytja olíuna á áfangastaði með til- heyrandi vanda. Bandarísk yfir- völd greindu frá því að um væri að ræða hóp hakkara frá Rússlandi sem kallaði sig DarkSide. Sá hóp- ur sendi í framhaldinu frá sér yfir- lýsingu um að ætlunin hefði ekki verið að lama kerfið í Bandaríkj- unum, „aðeins“ að taka kerfið í gíslingu og krefjast lausnargjalds. Rússnesk stjórnvöld tóku því illa að rússneskir aðilar væru bendlaðir við ódæðið og sögðu ásakanirnar tilhæfulausar. Óljóst er hvernig rússnesk yfirvöld geta fullyrt slíkt, en bandarísk yfirvöld höfðu sérstaklega gætt þess að beina ásökununum ekki að rúss- neskum yfirvöldum, sem sögðu af þessu tilefni að þau hefðu ítrekað óskað eftir samtali við bandarísk stjórn- völd um samvinnu til að vinna bug á slík- um vanda, en að það- an hefðu engin við- brögð borist. Þessi árás er áminning um hve mikil hætta er á ferðum vegna nettengingar hvers kyns innviða og annarrar mikil- vægrar starfsemi, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur víðast hvar, meðal annars hér á landi. Þjóðir heims verða að taka hönd- um saman og berjast gegn þessari óværu með öllum tiltækum ráðum. Um leið verður hvert ríki, þar með talið Ísland, að huga mjög að stöðu sinni í þessum efnum og tryggja eins og kostur er að varnir séu með besta móti. Um leið verður að huga að því hvernig bregðast skuli við verði slík árás gerð með árang- ursríkum hætti. Eins og heimur- inn er orðinn er enginn óhultur fyrir slíkum glæpum. Árásin á Colonial- olíuleiðsluna ætti að vera áminning um að efla netvarnir} Netárásir Á sýnd stjórnmála og stjórnsýslu er lykilatriði þegar kemur að trausti almennings. Þetta segir skýrsla sem ríkisstjórnin lét gera í upp- hafi kjörtímabilsins. Vandamálið er hins vegar hvort ásýndin endurspegli reynd eða sé bara sýndarmennska. Á undanförnum misserum hafa ýmis mál far- ið í gegnum þingið sem ætlað er að efla traust almennings á stjórnmálum. Þar á meðal eru lög um hagsmunaverði, þar sem ráðherrar og að- stoðarmenn ráðherra voru reyndar undan- skildir og eftirlit með skráningu ráðherra var sett í hendur forsætisráðherra. Einnig voru lög um vernd uppljóstrara samþykkt, þó með þeim galla að uppljóstrarar þurfa að vera í „góðri trú“ og hafi ekki aðra leið til þess að koma í veg fyrir þau brot sem uppljóstrunin á að afhjúpa. Ég spurði forsætisráðherra á Alþingi síðastliðinn mánu- dag um fjármögnun héraðssaksóknara. Álagið þar hefur lengi verið mikið og ekki bætti Samherjamálið úr sök. Ég spurði ráðherrann því hvort hægt væri að tala um baráttu gegn spillingu þegar verkefnaálag saksóknara eykst bara og eykst. Ráðherra sagðist hafa fulla sannfæringu fyrir því að rannsókn á máli Samherja sé í fullum gangi, sem ég er alveg sammála. Ég held líka að þetta mál sé í eins fullum gangi og embætti héraðssaksóknara hefur svigrúm til, en hvað með öll hin málin? Héraðssaksóknari er ekki einn í þessari stöðu. Persónu- vernd er líka að drukkna. Stofnunin sem svarar nú erind- um með orðunum „að vegna mikilla anna“. Umboðsmaður Alþingis er í sömu stöðu og hef- ur því ekki getað sinnt frumkvæðisrannsókn- um í langan tíma. Sömu sögu er að segja af fleiri mikilvægum eftirlitsstofnunum. Það sem er á bak við ásýndina um setningu laga um hagsmunaverði og uppljóstrara og á bak við tilfærslu fjármálaeftirlitsins til Seðla- banka og skattrannsóknir frá skattrannsókn- arstjóra eru spurningar um hvort það sé inni- hald sem réttlætir ásýndina. Ef við setjum lög sem virka ekki út af augljósum göllum eða að það vantar fjármagn til þess að sinna eftirliti og rannsóknum – er efling trausts á stjórn- málum og stjórnsýslu ekki einmitt innihalds- laus ásýndarpólitík? Traust á stjórnmálum hef- ur vissulega aukist undanfarið og það skiptir máli. En það skiptir líka máli að það sé inni- stæða fyrir því trausti. Það er nefnilega ekki allt innihaldslaust sem þingið af- greiðir. Langt í frá. Almennt séð skilar þingið góðu starfi en það er í einstaka málum þar sem eitthvað gerist og sama hvað, þá komast eðlileg rök ekki í gegn. Til dæmis í málum sem tengjast kvóta, eða málum sem skipta sér af hags- munum (eða skráningu þeirra) og uppljóstrun um valdhafa. Ásýnd skiptir máli en ein og sér er hún gagnslaus. Við verðum að eiga inni fyrir trausti og geta sýnt fram á árang- ur og niðurstöðu í Samherjamálinu. Björn Leví Gunnarsson Pistill Í góðri trú? Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Ú tlit er fyrir að hjá Klín- íkinni verði gerðar um 1.000 offituaðgerðir á þessu ári, en slíkum að- gerðum hefur þar fjölgað mjög ört undanfarin ár, en aftur á móti staðið í stað hjá Landspítalanum, þar sem þær eru aðeins um 50 á ári að jafnaði. Auk þess mun talsverður fjöldi manna leita slíkra aðgerða út fyrir landsteinana, en engin gögn virðast liggja fyrir um fjölda þeirra. Þetta kom fram í svari Svandís- ar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á Alþingi við fyrirspurn Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns Pírata. Það vekur athygli að ekki virðist nein áhersla lögð á þetta úrræði í hinu opinbera heilbrigðiskerfi, þrátt fyrir augljósan ávinning slíkra að- gerða, líkt og ráða má af svari ráð- herrans, þar sem m.a. var vitnað til rannsóknar hér á landi, sem birt var í Læknablaðinu árið 2016. Sjúkra- tryggingar Íslands fengu þannig að- eins 111 umsóknir um offituaðgerð árið 2019 og greiddu fyrir 93. Heims- faraldurinn virðist hafa dregið mjög úr afgreiðslu þeirra í fyrra, þrátt fyr- ir að aðgerðum hjá Klíníkinni hafi haldið áfram að fjölga og verið um 500 árið 2020. Lífslíkur aukast til muna Þetta tómlæti um offituaðgerðir er þeim mun einkennilegra þegar haft er í huga hve offituvandinn hefur aukist hér á landi, líkt og víðast á Vesturlöndum, undanfarin ár. Enn frekar auðvitað í ljósi góðrar reynslu af offituaðgerðum. Glæný grein í hinu virta lækna- riti Lancet eftir læknana Geltrude Mingrone og Stefan R. Bornstein undirstrikar ávinning slíkra aðgerða enn frekar, en þar kemur fram að þeir sem gangast undir efnaskiptaað- gerðir geti vænst þess að jafnaði að lifa 6,1 ári lengur en ella. Lífslíkurnar aukast enn meira hjá þeim sem eru hrjáðir af sykursýki 2, sem er algeng- ur fylgikvilli alvarlegrar offitu, en þeir geta vænst þess að lifa 9,3 árum lengur og munar um minna. Jafn- framt má gera ráð fyrir að lífsgæði aukist verulega og kostnaður vegna ýmissa fylgikvilla sömuleiðis. Íslendingar hafa orðið talsvert feitari á liðnum árum, sem rekja má til bættra lífskjara og breyttra lífs- hátta. Að mati Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar (WHO) er um þriðj- ungur Íslendinga of feitur, en hún spáir að árið 2030 verði 45% íslenskra karla og 43% kvenna yfir ofþyngdar- mörkum. Um 20% offeitra glíma við alvarlega offitu. Nú þegar eru því um 12.000 manns í þessum hópi hér á landi og um þúsund manns bætast árlega í hópinn. Af því má ætla að núverandi offituaðgerðir á Íslandi geri lítið meir en að halda í horfinu. Við blasir að eftir miklu er að slægjast. Offita rýrir lífsgæði veru- lega og eykur tíðni og alvarleika ým- issa sjúkdóma. Kostnaður samfélagsins af offit- unni er líka verulegur, en í nýlegri skýrslu OECD er talið að 8,4% heil- brigðisútgjalda OECD-ríkja stafi af ofþyngd, en til hennar megi rekja 70% kostnaðar af sykursýki, 23% af hjartasjúkdómum og 9% af krabba- meini. Offita dragi því úr landsfram- leiðslu OECD-ríkjanna um 3,3%! Nú er ofþyngd ekki nýr vandi þó hann færist í aukana, en meðferðar- úrræðin hafa helst verið þrenns kon- ar: Lífsstílsbreytingar, lyfjameðferð og efnaskiptaaðgerðir. Skemmst er frá því að segja að aðeins efnaskipta- aðgerðir hafa sýnt marktækan ár- angur til lengri tíma, sér í lagi hjá þyngsta hópnum, sem er í mestri heilsufarshættu. Væri þá ekki ráð að gera meira af þeim? Offituaðgerðir fátíðar í heilbrigðiskerfinu Gunnar Svanberg/Klíníkin Aðgerð Offituaðgerð í Klíníkinni í Ármúla. Þar eiga sér stað langflestar offituaðgerðir hérlendis, um 95% þeirra, samkvæmt svari ráðherra. Offita er vaxandi heilbrigðis- vandi á Íslandi líkt og annars staðar áVesturlöndum. Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin (WHO) dregur mörk offitu við líkamsþyngdarstuðul (BMI) hærri en 30 kg/m² og alvarlega offitu við líkamsþyngdarstuðul 35 kg/m². Samkvæmt því þjást um 33% íslenskra karla og 32% íslenskra kvenna af offitu og spáir stofnunin því jafnframt að árið 2030 verði 45% íslenskra karla og 43% íslenskra kvenna yfir ofþyngdarmörkum OFFITA ER FARALDUR Vigt Aukakílóin bjóða góðan dag. Þriðjungur of feitur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.