Morgunblaðið - 12.05.2021, Qupperneq 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2021
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VANDAÐUR
HLÍFÐARBÚNAÐUR
Grímur, hanskar og andlitshlífar.
Skoðaðu úrvalið á fastus.is/hlifdarbunadur
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Snemma fór að bóla á þessari sér-
visku hjá mér, ætli ég hafi ekki verið
stráklingur í kringum tíu ára aldur
þegar ég setti saman mína fyrstu
vísu. Þeim hefur fjölgað með árunum
enda krefst það þó nokkurrar æfing-
ar að setja saman háttbundnar vísur,
það þarf að slípa til bragfræðina og
láta þetta fljóta frekar létt og passa
að ekki sé of stirt og tyrfið orðalag.
Fólk þarf að skilja hverju verið er að
koma á framfæri,“ segir Þórarinn
Már Baldursson, víóluleikari í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, mynd-
skreytir og hagyrðingur, en Mál og
menning gaf nýlega út lítið kver eftir
hann, Vísur og kvæði. Þegar Þórar-
inn er spurður hvers vegna ákveðið
hafi verið að hafa bókina í svo litlu
broti sem raun ber vitni segir hann
að hugmyndin hafi verið að þetta
gæti verið handhægt.
„Ég vil gjarnan að fólk geti haft
bókina með sér í brjóstvasanum. Þar
fyrir utan fyrirverð ég mig fyrir
þetta, eins og maður á að gera, svo
ég vildi ekki hafa bókina í stærra
broti,“ segir hann og tónar í leiðinni
við þó nokkurt sjálfsháð sem sumar
vísurnar geyma. Í einni vísunni seg-
ist hann ekki vera í hópi bráðgerra, í
annarri að hann mari illa syndur úti í
lífsins nykurtjörn, að hann fari á
ókostum og að aldrei hafi úr honum
ræst, svo fátt eitt sé nefnt.
„Það er nærtækast að gera grín að
sjálfum sér, þá þekkir maður vel
þann sem á eftir að svíða mest undan
því, og getur átt það við sjálfan sig.“
Heyrði Indriða kveða
Við lestur bókarkornsins má ljóst
vera að Þórarinn leggur áherslu á
léttleika í sínum kveðskap, vísurnar
eru margar fyndnar og þar ber á þó
nokkurri gráglettni.
„Þetta verður oft til við þannig
tækifæri, einhver aulafyndni í bland
við annað,“ segir Þórarinn sem einn-
ig tekur fyrir í vísum sínum margt
nútímabölið, hann yrkir til dæmis
um það hversu lítt honum hugnast
nágrannabæirnir, Kópavogur, Hafn-
arfjörður, Garðabær, Mosfellsbær
og Álftanes.
„Þegar maður flytur suður utan af
landi hefur maður vanist því að tún-
bleðillinn í kringum húsið manns sé
miðdepill alheimsins. Svo setur mað-
ur sig niður í Vesturbæ Reykjavíkur
og þá er sá blettur orðinn miðpunkt-
urinn,“ segir Þórarinn sem er norð-
anmaður, alinn upp í Aðaldalnum,
enda kemur Þingeyingaloftið við
sögu í bókinni. Þegar Þórarinn er
spurður hvort hann hafi alist upp við
mikla hagmælsku fyrir norðan segir
hann að reyndar hafi ekki verið ort
mikið í kringum hann í barnæsku.
„Að vísu var kveðskapur mikið
notaður sem skemmtiefni og oft var
verið að kveðast á og fara með vísur.
Þetta var alltaf í umhverfinu og hin
hagmælta Fía á Sandi kenndi mér í
grunnskólanum. Á næsta bæ við
mig, á Ytra Fjalli, var mikið kvæða-
og vísnafólk en þar ólst kvæðakonan
snjalla, Ása Ketilsdóttir, upp og
Indriði bróðir hennar býr þar. Ég
heyrði Indriða kveða á skemmtunum
á mínum bernskuárum og sjálfur er
ég núna meðlimur í Kvæðamanna-
félaginu Iðunni,“ segir Þórarinn sem
ólst upp á bænum Hraunbæ, en hann
er nýbýli frá Hólmavaði. „Foreldrar
mínir voru ekki með búskap en það
var búskapar á Hólmavaði og hún er
forrituð í mig, ástin á sauðfé og dreif-
býli.“
Vísur löðrandi í innrími
Þegar Þórarinn er spurður hvern-
ig honum hafi gengið að velja úrval
úr öllu því sem hann hefur sett sam-
an á nokkrum áratugum segist hann
hafa geymt það sem hann vill halda
upp á.
„Úr því grisjaði ég smám saman
það sem mér fannst ekki eiga erindi
á bók eða þyrfti einhverra útskýr-
inga við. Ég vildi hafa hluti sem gætu
staðið einir og sér, af því tækifæris-
kveðskapur úreldist oft hratt. Eftir
stóð þetta sem er í bókinni, mikið af
kvæðum undir rímnaháttum en líka
aðeins nútímalegri bragarhættir.
Þarna má finna nokkuð fjölbreytta
bragarhætti og innan um eru vísur
löðrandi í innrími og slíkum hlutum,
en mest eru þetta venjulegar fer-
skeytlur eða þá hringhendur.“
Yrkisefni Þórarins eru margvís-
leg, lífsins lystisemdir, náttúran,
mansöngvar, sjálfskoðun og fleira.
Kunnugleg er Bændaríma Þórarins
sem hefur víða heyrst, um bóndann
sem át allt sem að kjafti kom, líka
hund, kött, griðkonu, vinnumann og
sinn eigin fótlegg.
„Jú, ég hef frétt af því að hún hafi
verið notuð nokkuð víða og fólk hefur
beðið mig að senda sér textann, svo
það fari rétt með. Bændaríman er
sennilega elsta kvæðið í bókinni, ég
setti þetta saman fyrir tvítugt. Ein
ástæðan fyrir því að gefa þetta út á
bók var að þá gætu kvæðamenn
nálgast þetta auðveldlega og notað á
árshátíðum eða öðrum mannamót-
um. Ég get þá vísað fólki beint í bók-
ina.“
Vissulega er þar vonarglæta
Þegar Þórarinn er spurður hvort
hann hafi lagt sig eftir því að tala
máli hinnar háttbundnu vísu eða
kennt yngra fólki að yrkja segir
hann svo ekki vera.
„Ég hef reynt að ota þessu mjög
varlega að mínum eigin börnum, en
þau eru svo ung enn að það á eftir að
koma í ljós hvort það skilar sér
áfram til framtíðar. Vissulega er þar
vonarglæta. Mitt framlag til að halda
þessu við er að setja saman vísur og
kveða þær þegar ég kemst í það, ef
það er undir þeim háttum sem krefj-
ast þess.“
Hefurðu trú á því að hún muni lifa
áfram hagmælskan og kunnáttan til
að setja saman vísur undir bundum
bragarháttum?
„Já ég held það, það verða alltaf til
einhverjir furðufuglar og sérvitr-
ingar sem leggja sig eftir þessu.
Þetta er útbreiddara en margur
heldur, það er alltaf slatti af fólki
sem hefur ánægju af að lesa hátt-
bundnar vísur og yrkir svo líka
sjálft.“
Morgunblaðið/Eggert
Þórarinn „Mitt framlag til að halda þessu við er að setja saman vísur og kveða þær þegar ég kemst í það.“
Útbreiddara en margur heldur
- „Það verða alltaf til einhverjir furðufuglar og sérvitringar sem leggja sig eftir þessu.“
- Hagyrðingurinn Þórarinn Már Baldursson sendir frá sér nýja bók með vísum og kvæðum
Bandaríska tónlistarkonan Taylor
Swift varð fyrst kvenna til þess að
hljóta þau verðlaun bresku Brit-
verðlaunanna sem kölluð eru
„global icon“ sem þýða mætti sem
heimsstjarna eða íkon. Verðlaunin
voru afhent í gærkvöldi í London.
Með verðlaununum er Swift
heiðruð fyrir mikil áhrif sín á tón-
list á heimsvísu og afrek á
tónlistarsviðinu, eins og því er lýst
í frétt The Guardian. Fyrri hand-
hafar „global icon“-verðlaunanna
eru m.a. Elton John, Robbie Willi-
ams og David Bowie.
Í tilkynningu frá Brit vegna
verðlaunanna segir að ferill Tay-
lor sé engum öðrum líkur og tón-
list hennar og áhrif hafi náð til
milljóna um all-
an heim. Hún
hafi nýtt sér
stöðu sína til að
vekja athygli á
ýmsum mik-
ilvægum mál-
efnum og þá
m.a. stöðu og
réttindum
LGBTQ-fólks.
Swift náði þeim
áfanga í síðasta mánuði að koma
breiðskífu í fyrsta sæti breska plö-
tulistans í sjöunda sinn en sú heitir
Fearless (Taylor’s Version). Var
platan auk þess sú þriðja með
Swift sem kemst í toppsætið á 259
daga tímabili.
Swift hlaut heimsstjörnuverðlaun Brit
Taylor Swift
Bandaríski leikarinn Tom Cruise
hefur skilað Golden Globe-
verðlaunastyttunum sínum sem eru
þrjár talsins. Hefur hann þar með
bæst í hóp þeirra sem gagnrýnt
hafa verðlaunin sem samtök er-
lendra blaðamanna í Hollywood,
HFPA, veita árlega en samtökin
hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir
spillingu, fordóma og einsleitni en
fjallað var um fyrr á árinu að eng-
inn þeldökkur fjölmiðlamaður væri
í samtökunum.
Verðlaunin hlaut Cruise fyrir
leik sinn í kvikmyndunum Born on
the Fourth of July, Jerry Maguire
og Magnolia. Gagnrýnin á HFPA
hefur verið það
mikil í ár að sjón-
varpsstöðin NBC
ákvað fyrir
skömmu að
hætta við að sýna
frá hátíðinni á
næsta ári. Cruise
bætist nú í hóp
þekktra leikara
sem gagnrýnt
hafa Golden Globe og eru þeirra á
meðal Scarlett Johansson og Mark
Ruffalo. Streymisveiturnar Netflix,
Amazon og WarnerMedia hafa
einnig tilkynnt að þær muni snið-
ganga verðlaunin.
Cruise skilar gullhnöttunum sínum
Tom Cruise
Loks er snjóa leysa fer,
linnir góu taki,
ekki flóafriður er
fyrir lóukvaki.
Það væri gott að vit’eitthvað
og ver’eitthvað,
og gaman væri að get’eitthvað
og ger’eitthvað.
Vorkoma og
Draumórar