Morgunblaðið - 14.05.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoð
ið nýj
u
heima
síðun
a
island
shus.i
s
Einar S. Hálfdánarson, hæsta-réttarlögmaður og endurskoð-
andi, fjallaði í Morgunblaðinu í gær
um Útlendingastofnun og kæru-
nefnd útlendingamála, sem úrskurð-
ar í málum þeirra
sem sætta sig ekki
við niðurstöður Út-
lendingastofnunar.
„Svo er að sjá sem
kærunefnd útlend-
ingamála líti á lögin
sem viðmið sem ekki
þarf endilega að fara
eftir,“ skrifar Einar,
og nefnir dæmi sem
benda til brotalama í
kerfinu. Þá bendir
hann á að kæru-
nefndinni sé í mun að
viðhalda leynd um
starfsemi sína, hún skuli að jafnaði
birta úrskurði sína eða útdrætti úr
þeim, en stór hluti þeirra sé samt
ekki birtur. Samkvæmt grein Einars
telur nefndin sig hafa „nokkurt svig-
rúm“ til að birta ekki úrskurði og
virðist nýta sér það óhóflega.
- - -
Þessar lýsingar eru með miklumólíkindum og víkur Björn
Bjarnason, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, að þeim í pistli á vef
sínum í gær og segir: „Á sínum tíma
varaði þáverandi umboðsmaður Al-
þingis við þeirri þróun að sjálf-
stæðum kærunefndum yrði falið úr-
skurðarvald. Í skjóli þeirra yrði
þrengt að leiðum almennings til að
kalla stjórnmálamenn til ábyrgðar.
Þrátt fyrir kærunefnd útlendinga-
mála situr valdalaus dóms-
málaráðherra undir hörðum árásum
ef starfsmenn Rauða krossins eða
aðrir sem njóta forgangs við miðlun
upplýsinga frá kærunefndinni sjá
ástæðu til opinberra aðgerða.“
- - -
Þetta ástand er óviðunandi. Al-menningur á rétt á að vita
hvernig þessi mál eru afgreidd.
Stjórnvöld mega ekki líða það að
andlits- og eftirlitslausar úrskurð-
arnefndir taki sér völd og sveipi
störf sín leynd.
Einar S.
Hálfdánarson
Opinber
leyndarhyggja
STAKSTEINAR
Björn Bjarnason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Maraþonhlauparinn Arnar Pétursson
segir það hafa verið svekkjandi að ná
ekki settu marki fyrir Víðavangs-
hlaup ÍR sem fram fór í gær, en
Arnari var vísuð lengri leið að marki
sem tafði fyrir honum. Arnar hljóp
vegalengdina þrátt fyrir mistökin á
15,23 mínútum og vann hlaupið.
Hann ætlaði þó að hlaupa vegalengd-
ina á undir kortéri. Frjálsíþróttadeild
ÍR sendi í gær frá sér tilkynningu og
harmaði mistökin.
Látinn beygja vitlaust
Arnar lýsti uppákomunni í samtali
við blaðamann:
„Það er alltaf í hlaupum hjól sem
leiðir fyrsta mann áfram til að passa
að það sé farin rétt leið. Þegar við
komum þarna að síðustu beygjunni
heldur hann áfram – ég hef hlaupið
þessa leið áður og vissi að ég átti að
beygja, en maður á náttúrulega alltaf
að fara eftir fyrirmælum frá und-
anfaranum þannig að ég fer fyrst
réttu beygjuna, svo er mér bent að
fara á eftir honum og þá fer ég hina
leiðina. Svo þegar hann er kominn á
ákveðinn stað og fattar hvað hann hef-
ur gert snýr hann við og bendir mér
að fara aftur yfir á réttu leiðina. Þá er
maður algjörlega búinn að missa takt-
inn og fara miklu lengri leið en maður
átti að fara.“ liljahrund@mbl.is
Hljóp lengra en hinir en vann samt
- Mistök réðu því að Arnar var látinn
hlaupa lengra en þurfti í hlaupi ÍR
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Svekktur Arnar Pétursson kemur
fyrstur í mark eftir lengra hlaup.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Auglýsing sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær, þar sem fólk er hvatt
til þess að tilkynna aukaverkanir
vegna bólusetninga gegn kórónu-
veirunni, er ekki á vegum Lyfja-
stofnunar. Þetta sagði Rúna Hauks-
dóttir Hvannberg, forstjóri
Lyfjastofnunar, við mbl.is í gær.
Rúna sagði grafalvarlegt að í aug-
lýsingunni birtust upplýsingar um
óstaðfestar aukaverkanir og jafnvel
kolrangar. Leiðbeiningar um hvern-
ig skal tilkynna aukaverkanir voru
einnig rangar.
Ekki auglýsing frá yfirvöldum
Auglýsingin var keypt af Bjuti
ehf., sem Vilborg Björk Hjaltested
er eigandi að, og láðist að birta þær
upplýsingar vegna mistaka.
Rúna segir alvarlegt að auglýs-
ingin líti út fyrir að vera frá opinber-
um aðilum.
„Þær athugasemdir sem við ger-
um er auðvitað í fyrsta lagi að það er
verið að láta líta út fyrir að þetta séu
einhver yfirvöld sem eru að auglýsa
þarna, sem er ekki náttúrulega,“
sagði Rúna. Hún sagði einnig alvar-
legt að mistökin gætu tafið fyrir
mikilvægum störfum Lyfjastofnun-
ar.
„Þarna er verið að hvetja fólk til
að hringja eða senda tölvupóst, það
er lítið gagn í því og þá er hætta á
því að komi fram rekjanlegar per-
sónuupplýsingar og upplýsingar
sem ekki er hægt að skrá. Það á allt-
af að nota eyðublaðið sem er á vef-
síðu okkar og er tiltölulega einfalt í
notkun.“
Auglýsingin nafn-
laus vegna mistaka
- Lyfjastofnun segir málið alvarlegt
Vegna mistaka birtist í Morg-
unblaðinu í gær auglýsing sem
ekki var merkt auglýsanda og
sem jafnvel hefði mátt ætla af
texta auglýsingarinnar að væri
frá Lyfjastofnun. Auglýsinguna
keypti Bjuti ehf.
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Athugasemd
frá Árvakri
BEÐIST VELVIRÐINGAR