Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjun- um og víðar um heim hrukku í kút á miðvikudag þegar nýjar verðbólgu- tölur fyrir Bandaríkjamarkað voru birtar. Mældist verðlag í apríl 4,2% hærra en í sama mánuði í fyrra og er verðbólgan töluvert umfram spár sérfræðinga sem höfðu reiknað með 3,6% hækkun. Óttast fjárfestar og markaðsgreinendur að þróunin í apríl kunni að benda til að rausn- arlegar örvunaraðgerðir stjórn- valda, flöskuhálsar í framleiðslu á ýmsum varningi og kippur í eft- irspurn nú þegar sér fyrir endann á kórónuveirufaraldrinum kunni að leiða til þess að verðlag hækki mikið á komandi mánuðum. Ef matvæla- og eldsneytiskostn- aður eru undanskilin fór verðbólga á ársgrundvelli úr 1,6% í mars upp í 3% í apríl. Nam hækkun vísitöl- unnar 0,8% á milli mánaða og að sögn FT hefur verðbólga ekki mælst hærri í Bandaríkjunum í þrettán ár. Á bandarískum hlutabréfamark- aði urðu verðbólgutíðindin til þess að S&P 500 vísitalan lækkaði um 2,2% á miðvikudag og Nasdaq-vísi- talan um 2,7%. Einnig varð lækkun á evrópskum mörkuðum og veiktist FTSE 100-vísitalan um 0,8% á með- an Stoxx 600-vísitalan rýrnaði um 0,3%. Á miðvikudag mátti greina merki þess að markaðurinn væri að rétta aftur úr kútnum og mesti skjálftinn væri farinn úr fjárfestum. S&P 500 hækkaði um 1% í upphafi dags og Nasdaq um 1,1%. Að sögn Reuters má m.a. rekja þessa styrkingu til frétta af að hægt hefði á umsóknum um atvinnuleysisbætur. Skiptar skoðanir eru um hvort um tímabundið verðbólguskot sé að ræða eða hvort Bandaríkin eru á leið inn í langvarandi verðbólgu- tímabil. Að mati efnahagsráðs Hvíta hússins er verðbólguþróunin til marks um að bandaríska hagkerfið sé að laga sig aftur að eðlilegu ástandi eftir skakkaföll kórónu- veirufaraldursins. „Það munu koma mánuðir [þar sem verðbólga verður] undir eða yfir væntingum, þar sem sterk eftirspurn mætir framboðs- hlið sem er að ná sér aftur á strik. Efnahagsbatinn í kjölfar faraldurs- ins mun ekki fylgja beinni línu,“ sagði í yfirlýsingu efnahagsráðsins. Fyrstu viðbrögð Richards Clar- ida, aðstoðarseðlabankastjóra, voru að það kæmi á óvart að verðbólga skyldi mælast langt umfram spár en að hann vænti þess að til lengri tíma litið muni verðbólga vera í ná- munda við 2% verðbólgumarkmið seðlabankans. Flugi, hótelum og bílaleigum um að kenna Í greiningu Barrons er bent á að sú verðbólga sem mælst hefur í Bandaríkjunum að undanförnu sé aðallega bundin við lítinn kima hag- kerfisins og þannig varði megnið af þeirri hækkun sem varð frá mars til apríl vöru- og þjónustuflokka sem aðeins mynda 13% af útgjöldum heimilanna í venjulegu árferði. Þannig hafi átt sér stað kippur í verði notaðra bíla, bílatryggingum og hjá bílaleigum auk þess sem verðið hækkaði töluvert hjá hótelum og gististöðum sem og hjá flugfélög- um. Bendir Barrons á að það eigi við um flesta þessa flokka að hafa verið í mikilli lægð meðan á faraldr- inum stóð en þeir fikrist núna upp á við. Má túlka tölurnar þannig að batamerki í ferðaþjónustu skýri verðbólguna að verulegu leyti. Helsta undantekningin frá þessu er hækkað verð hjá skyndibita- og heimsendingarveitingastöðum sem Barrons telur helst stafa af hækk- andi launum í láglaunastörfum og hækkandi hráefnisverði. Verðbólguskot veldur skjálfta AFP Vaxtarverkir Víða í Bandaríkjunum virðist ganga örðuglega að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað og ójafnvægi ríkir á milli framboðs og eftirspurnar. Óvissuástand » Verðbólga á ársgrundvelli hefur ekki mælst hærri í Bandaríkjunum síðan 2008. » Hlutabréfavísitölur í Evrópu og BNA lækkuðu við tíðindin en styrktust næsta dag. » Efnahagsráð Bidens segir von á sveiflum, bæði upp og niður, á meðan hagkerfið kemst aftur í eðlilegt horf að loknum faraldri. » Stór hluti verðbólgunnar er tengdur liðum sem mynda að- eins 13% af útgjöldum heim- ilanna. » Verð hækkaði hvað mest hjá hótelum, bílaleigum, flug- félögum og skyndibitastöðum. - Þegar rýnt er í tölurnar virðist sem hækkandi verðbólga í Bandaríkjunum stafi einkum af því að ferðaþjónustufyrirtækin eru tekin að vakna aftur til lífsins Morgunblaðið/Baldur Ellubúð Göngufólk fær sér hressingu við upphaf gönguleiðarinnar. „Salan hefur gengið glimrandi vel. Við opnuðum á miðvikudaginn í síð- ustu viku og höfum selt yfir þúsund pylsur. Þær alveg mokast út,“ segir Guðrún Kristín Einarsdóttir, for- maður slysavarnadeildar Þórkötlu, um viðtökurnar í Ellubúð. Verslunin er við upphaf göngu- leiðarinnar að eldgosinu í Geldinga- dölum. Nánar tiltekið við Suður- strandarveg en sunnan hans var útbúið bílastæði. Ellubúð er í sérútbúnum 40 feta gámi og kennd við Elínu Pálfríði Al- exandersdóttur, einn stofnfélaga Þórkötlu 12. janúar 1977, sem gaf sveitinni gáminn. Elín lést í árslok 2019 en hún lét sig félagið mikið varða. Á boðstólum eru m.a. pylsur, samlokur, kaffi, kakó, gos og súkku- laði. Guðrún segir Ellubúð hafa verið starfrækta á Sjóaranum síkáta í Grindavík á 17. júní. Vegna kórónu- veirufaraldursins hafi þurft að aflýsa hátíðinni í fyrrasumar. Kærkomin viðbót í tekjuöflun Með því hafi helsta tekjulind Þór- kötlu brostið. Því sé kærkomið að geta aflað tekna með sölu veitinga við gosstöðvarnar. baldura@mbl.is Ellubúð við eld- gosið vel tekið - Seldi þúsund pylsur fyrstu vikuna 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 Gæði í verði & verki Fáðu tilboð sérsniðið að þínum þörfum Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is 13. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.0 Sterlingspund 175.45 Kanadadalur 102.47 Dönsk króna 20.293 Norsk króna 15.046 Sænsk króna 14.922 Svissn. franki 137.49 Japanskt jen 1.1423 SDR 178.9 Evra 150.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.2543 Hrávöruverð Gull 1837.15 ($/únsa) Ál 2565.0 ($/tonn) LME Hráolía 68.74 ($/fatið) Brent « Seðlabanki Ís- lands hefur birt niðurstöður nýrrar könnunar á vænt- ingum markaðs- aðila. Könnunin fór fram dagana 3. til 5. maí og fengust svör frá 26 bönk- um, lífeyrissjóðum, verðbréfamiðlunum, verðbréfa- og fjár- festingarsjóðum og fyrirtækjum með starfsleyfi til eignastýringar. Vænta svarendur að meðaltali 4,3% verðbólgu á þessum ársfjórðungi en að verðbólga muni fara lækkandi og mæl- ast 3,6% og 3,3% á þriðja og fjórða ársfjórðungi, en verða 3% að ári liðnu. Er þetta nokkuð hærri verðbólga en svarendur reiknuðu með í síðustu könn- un sem gerð var í janúar. Gera svarendur ráð fyrir að krónan styrkist á næstu misserum og að evran muni kosta 145 krónur að ári liðnu. Þá búast svarendur við að meginvextir seðlabankans verði áfram 0,75% á yf- irstandandi ársfjórðungi en hækki á seinni hluta ársins: verði 1% á þriðja ársfjórðungi og 1,25% í árslok. Í könnunninni sögðu 44% að þeim þætti taumhald peningastefnunnar of laust en í janúar var hlutfallið 15%. ai@mbl.is Markaðsaðilar vænta lækkandi verðbólgu STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.