Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 Skoðun Náttfari, bátur Norðursiglingar, kemur hér úr hvalaskoðunarferð á Húsavík. Ferðamönnum er farið að fjölga jafnt og þétt á landinu. Hafþór Hreiðarsson Fram undan er prófkjör okkar Sjálf- stæðismanna í Reykja- vík. Enginn flokkur hefur jafn oft og með jafnglæsilegum ár- angri leitað til flokks- manna sinna við röðun á framboðslista. Ég óska nú eftir stuðningi flokksmanna í 2. sætið í prófkjörinu. Ég hef á þessu kjörtímabili verið 1. þingmað- ur Reykjavíkurkjördæmis suður. Það er ekki bara sem þingmaður og ráðherra í tveimur síðustu rík- isstjórnum sem ég hef haft að leið- arljósi hina sígildu stefnu Sjálfstæð- isflokksins um frelsi manna til orðs og æðis. Mér hefur, frá því ég man eftir mér, fundist brýnt að standa vörð um frelsið. Ekki bara þegar vel gengur og allir eru kátir og hressir heldur einmitt þegar sótt er að frelsinu úr öllum áttum með mis- veigamiklum rökum. Frelsið tapast sjaldan í einni svipan en hægt og bítandi saxast á það ef stjórnlyndi, ótti eða andvaraleysi grefur um sig meðal frjálslyndra manna. Ég hef lagt áherslu á að hrinda málum í framkvæmd fremur en að stofna starfshópa og fresta ekki brýnum málum jafnvel þótt skiptar skoðanir kunni að vera um þau. Með lýðræðislegt umboð kjósenda í farteskinu vil ég ganga hreint til verks en er ávallt boðin og búin fyr- ir málefnaleg skoðanaskipti. Ég hef haldið uppi málefnalegri gagnrýni frá hægri á ýmis mál ríkisstjórn- arinnar, bæði innan og utan stjórn- ar. Um leið hef ég liðkað fyrir sam- starfi þeirra ólíku flokka sem ríkisstjórnina mynda. Á þessu kjör- tímabili og því stutta sem á undan fór hafa störf mín tekið mið af þessum áherslum. - Sem dóms- málaráðherra réðst ég strax á fyrstu mán- uðum í nauðsynlegar breytingar á lögum og reglugerðum um út- lendinga. Þessar breytingar stöðvuðu stjórnlausa fjölgun til- hæfulausra umsókna um alþjóðlega vernd frá borgurum öruggra ríkja og flýttu fyrir afgreiðslu þess- ara mála. Umsóknum frá Albaníu og Makedóníu fækkaði til að mynda um 90% milli áranna 2016 og 2019. - Ég tók ákvörðun um að gera þinglýsingar rafrænar og hratt því verkefni úr vör með nauðsynlegri lagabreytingu. - Ég stöðvaði áratuga sjálfkrafa veitingu uppreistar æru og er eini ráðherrann sem hefur neitað að veita uppreist æru. - Frumvarp mitt um afnám laga- ákvæða um uppreist æru var sam- þykkt á Alþingi auk viðeigandi breytinga á fjölmörgum lagabálk- um. - Ég setti endurnýjun þyrluflota Landhelgisgæslunnar í forgang og inn á fjármálaáætlun. - Ég lagði áherslu á að standa vörð um þá styrkingu löggæslunnar sem hófst árið 2013 er Sjálfstæð- isflokkurinn tók við dómsmálaráðu- neytinu. - Ég kynnti til sögunnar mark- mið um gæði löggæslu í löggæslu- áætlun. - Ég lét hefja vinnu við frum- varp um skipta búsetu barna og kynnti það fullbúið. Það hefur nú verið samþykkt aðeins breytt. - Frumvarp mitt um afnám laga- ákvæða sem bönnuðu þjónustu á helgidögum var samþykkt á Al- þingi. - Persónuverndarlög með áherslu á stóraukin réttindi ein- staklinga var samþykkt á Alþingi. - Ég lagði fram lagafrumvarp um aukna vernd tjáningarfrelsisins. - Ég skipaði 15 dómara við nýj- an dómstól í ríkri samvinnu við Al- þingi og að undangenginni staðfest- ingu Alþingis. Hvorki fyrr né síðar hefur jafnmikilvæg stofnun verið skipuð konum og körlum til jafns frá upphafi. - Ég kynnti aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota í rétt- arvörslunni sem hefur verið og verður áfram grundvöllur breytts verklags hjá lögreglu og dóm- stólum. Sem þingmaður hef ég og mun áfram tala fyrir raunhæfum leiðum í samgöngumálum og umhverf- ismálum, fjölbreyttara rekstr- arformi í heilbrigðisþjónustu og lægri álögum á fólk og fyrirtæki. Nú þegar við losnum úr viðjum veirunnar hafa tækifærin til að tala máli heimilanna og atvinnulífsins sjaldan verið betri. Sjálfstæð- isflokkurinn á brýnt erindi við kjós- endur í haust. Hann þarf að leiða næstu ríkisstjórn á forsendum hinn- ar sígildu stefnu sinnar um frelsi gegn helsi. Ég vil leggja mitt af mörkum til að svo verði. Eftir Sigríði Ásthildi Andersen »Ég hef haldið uppi málefnalegri gagn- rýni frá hægri á ýmis mál ríkisstjórnarinnar, bæði innan og utan stjórnar. Sigríður Á. Andersen Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Sumarprófkjör í Reykjavík Fyrir rúmri viku kynnti Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbún- aðarráðherra, hvernig hann ætlaði að haga vinnu á grundvelli umræðuskjals um landbúnað á 21. öld sem ber heitið Rækt- um Ísland! og við Hlédís H. Sveins- dóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri, unnum á liðnum vetri í umboði ráð- herrans ásamt fulltrúum ráðu- neytis hans, Sigurgeiri Þorgeirs- syni, fyrrv. ráðuneytisstjóra, og Bryndísi Eiríksdóttur, sérfræðingi í ráðuneytinu. Kristján Þór sagði að nú tæki við víðtækt samráð um skjalið. Það liggur á samráðsgátt Stjórnarráðs- ins. Efnt verður til 10 opinna funda um allt land í byrjun júní þar sem hlustað verður eftir viðhorfum fólks, hugmyndum og ábendingum. Víðtækt samráðið verður síðan nýtt við endanlega útfærslu land- búnaðarstefnu fyrir Ísland. Telur ráðherrann að „stærsta hagsmuna- mál íslensks landbúnaðar nú um stundir“ sé að móta greininni stefnu. Vissulega er mikið í húfi að markmiðið um samþykkt landbún- aðarstefnu náist. Kristján Þór hef- ur beitt sér stig af stigi fyrir því í ráðherratíð sinni. Fyrir liggja skilagreinar frá þeim sem end- urnýjað hafa búvörusamninga og sviðsmyndir unnar af KPMG. Var tekið mið af þeirri vinnu þegar við Hlédís fengum erindisbréf okkar 15. september 2020 með ósk um að við skiluðum tillögum 31. mars 2021. Það tókst eftir meðal annars 64 fundi með bændum, hagaðilum og sérfræðingum, að mestu um netið á Co- vid-tímum. Eftir fyrstu fundina og lestur fjölda gagna varð niðurstaða okkar að vinna verkið með þrjár meginbreytur í huga og heyra álit við- mælenda okkar á því hvort þær væru skyn- samlegar, litið til framtíðar. Breyturnar eru: landnýting, lofts- lag og leikni (ný tækni og þekking). Fundirnir og samráðið efldi okk- ur í þeirri trú að við værum á réttri leið. Þessir þrír þættir setja því sterkan svip á 19 meginatriði sem eru dregin fram og rökstudd í skjalinu. Hver sem les textann sér hins vegar að hann mótast mjög af fjórðu meginbreytunni sem skýrð- ist æ betur eftir því sem leið að verklokum: alþjóðlegum straumum. Mikilvægar skuldbindingar Bændur gegna lykilhlutverki þegar litið er til margra þátt sem snerta alþjóðlegar skuldbindingar íslenskra stjórnvalda. Þar ber hæst markmið sem annars vegar hafa verið sett í loftslags- og umhverf- ismálum og hins vegar felast í al- þjóðlegum og evrópskum viðskipta- og markaðssamningum. Hér ber fyrst að nefna heims- markmið Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2015 um sjálfbæra þróun. Markmiðin eru 17, þau taka til alls heimsins og ber ríkjum að ná þeim innan fimmtán ára eða fyrir 2030. Í markmiðunum er meðal annars kveðið á um verndun, endurheimt og sjálfbæra nýtingu vistkerfa, sjálfbæra stjórn skóga, stöðvun jarðvegseyðingar, endurheimt landgæða, viðhald líffræðilegrar fjölbreytni, örugga og sjálfbæra orku á viðráðanlegu verði og að fæðuöryggi sé tryggt. Að öllu þessu er vikið á einn eða annan hátt í umræðuskjali okkar enda er augljóst að þessi markmið nást ekki hér nema virkjaðir séu kraftar þeirra sem vinna að land- búnaði og þeim beint til þessarar áttar. Sama blasir við í loftslagsmálum. Íslensk stjórnvöld hafa að þjóða- rétti skuldbundið sig til að starfa innan regluverks sem miðar að því að ná markmiðum Parísarsam- komulagsins frá 12. desember 2015, stöðva aukningu á útblæstri gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og halda hnattrænni hlýnun innan við 2°C. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, fylgist nú með framkvæmd Íslendinga á þessum skuldbind- ingum. Framkvæmdin krefst mið- lægrar þátttöku bænda. Eitt er að setja slík markmið og annað að vinna að þeim og ná mæl- anlegum árangri. Í loftslagsmálum er óhjákvæmilegt að styðjast við alþjóðlega viðurkennda staðla og vottun, annars verða ekki til verð- mæti sem eru gjaldgeng á al- þjóðamarkaði til kolefnisjöfnunar. Heimasmíðuð vottun dugar hvorki sem viðurkenning á árangri né til að verðleggja ávinning af bindingu kolefnis. Aðild að öflugu alþjóðlegu vott- unarkerfi stuðlar að verðmætum árangri og nýtist bændum við mat á framlagi þeirra. Sameiginlegi markaðurinn Í umræðuskjalinu er farið í saumana á áhrifum EES- aðildarinnar á íslenskan landbúnað, snýr það að framkvæmd á samn- ingum um lækkun tolla og reglum um varnir gegn því að dýra- sjúkdómar berist til landsins. End- anleg niðurstaða hefur ekki fengist í tollamálin. Ekki hefur enn tekist að tryggja hæfilegt jafnvægi milli innflutnings á landbúnaðarafurðum og tollkvóta. Íslenskir dýrastofnar njóta hins vegar sérstöðu og verndar. Í árdaga Evrópusambandsins var búið þannig um hnúta að stað- inn yrði vörður um hag franskra bænda en bíla mætti framleiða í V- Þýskalandi svo að dregin sé upp einföld mynd. Varðstaða um bænd- ur og landbúnað hefur ávallt sett sterkan svip á stefnu ESB og framkvæmd hennar eins og sést til dæmis af því hve stór hluti út- gjalda á sameiginlegum fjárlögum ESB rennur til stuðnings landbún- aði. Í umræðuskjalinu er bent á að í sáttmála ESB um eigin starfshætti sé gert ráð fyrir að víkja megi frá samkeppnisreglum hvað varðar framleiðslu og viðskipti með land- búnaðarafurðir. Landbún- aðarstefnan hafi forgangsáhrif gagnvart samkeppnisreglum. Á sviði ESB-landbúnaðar er sam- keppni ekki markmið í sjálfu sér heldur er hún tæki til að ná mark- miðum landbúnaðarstefnunnar. Þá er lögð áhersla á mikilvægi sam- taka framleiðenda til að ná þessum markmiðum enda er sterk hefð fyr- ir sameiginlegum framleiðslu- og sölusamtökum bænda í öllum Evr- ópulöndum. Við bendum á að framkvæmd ís- lenskrar landbúnaðarstefnu ræðst í senn af starfsskilyrðum samkvæmt innlendri löggjöf og alþjóðlegum skuldbindingum. Ekki megi túlka alþjóðlegu skuldbindingarnar ís- lenskum bændum og framleið- endum í óhag eða hnykkja á þeim með séríslenskum skilyrðum. Á það bæði við um stórframleiðendur og smáframleiðendur. Við vitnum til framleiðenda sem segja að regluverk um starfsemi þeirra hér sé strangara en í öðrum aðildarríkjum EES. Í skjalinu er ekki felldur neinn dómur um þetta atriði. Það fellur vel að því sem segir í skjalinu Ræktum Ísland! að land- búnaðarráðherra hafi nú veitt leyfi til heimaslátrunar. Rétt eins og annars staðar í Evrópu þar sem er lögmætt og lögð áhersla á að efla heimaframleiðslu standa engar evr- ópskar markaðsreglur gegn því að sama sé gert hér á landi. Hér á landi er svigrúm til að setja sérstök lög og reglur í sam- ræmi við það sem talið er nauðsyn- legt til að innlendur landbúnaður standi af sér ytri samkeppni enda sé með því stuðlað að bættri fram- leiðslu eða vörudreifingu, efldar tæknilegar og efnahagslegar fram- farir og neytendum tryggð sann- gjörn hlutdeild í þeim ávinningi sem hlýst. Til að íslenskur landbúnaður dafni í nýju alþjóðlegu umhverfi er brýnt að alþingi samþykki reglur um samband íslenskra samkeppn- islaga og landbúnaðarstefnu sem sé í samræmi við þarfir og að- stæður á hverjum tíma. Íslend- ingar lúta ekki sameiginlegri land- búnaðarstefnu Evrópusambandsins og þeir eiga ekki að búa eigin land- búnaði verri starfsskilyrði en ráða innan ESB. Eftir Björn Bjarnason »Hver sem les text- ann sér að hann mótast mjög af fjórðu meginbreytunni sem skýrðist æ betur eftir því sem leið að verklok- um: alþjóðlegum straumum. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra Alþjóðlegir straumar um landbúnaðinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.