Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.05.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Upplýsingar í síma 480 8080 Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 VERÐ aðeins 99.000 m.vsk FRÁBÆRT TILBOÐ Á E-LOAD DEKKJUM OG FELGUM VERÐ 350.000 m.vsk VERÐ 250.000 m.vsk 34” Einstaklega mjúk og endingargóð dekk. Gooodyear Wrangler Trailrunner AT 275/65R20”. 35” dekk + svartar original- felgur undir Ford (8-170), Goodyear Wrangler Duratrac 285/75R18”. 34” dekk + felgur undir Ford (8-170), Michelin LTX 275/65R20”. Sem dæmi: Rottur eru stórvandamál sem vaxið hefur hratt í Chicago en nú hafa yfir- völd snúið vörn í sókn. Þúsund villi- kettir hafa verið sendir út á götur borgarinnar og fyrir að ráða nið- urlögum rottanna er þeim umbunað með fæðu og skjóli. Þessar nýju „herdeildir“ gatnanna í Chicago voru fengnar að láni hjá samtökum sem skotið hafa yfir flæk- ingsketti skjólshúsi, Tree House Humane Society. Kettirnir hafa mik- inn fælingarmátt og geta hreinsað nagdýrin af stórum svæðum. Þeir ráða rotturnar af dögum á nýjum um- ráðasvæðum sínum, en eftir það dug- ar lyktarhormón kattanna, ferómón, til að halda þeim víðs fjarri, segir Sa- rah Liss, yfirmaður kattaskýlisins, við sjónvarpsstöðina WGN9. Á heimasíðu Tree House segir að kettirnir séu fluttir tveir og þrír sam- an hverju sinni í umhverfi íbúða eða fyrirtækja og sleppt þar til höfuðs rottunum. Ráðast þeir á vandann á „vistvænan hátt“. Eigendur íbúðar- húsa, bygginga eða fyrirtækja leggja þeim oft til matarbita, drykkjarvatn og skjól. Þykir þeim gott af köttunum að vita. Og sú mun raunin í mörgu tilfelli að vinnukettirnir geri sig heima- komna við vinnustað sinn og verði á endanum „hugumkærir“ liðsmenn heimilisins. Sumir hafa meira að segja náð það langt að eiga eigin síð- ur á samfélagsmiðlinum Instagram. „Þetta eru villikettir sem gætu ekki þrifist inni á heimili eða í kattaskjóli. Með því að setja þá til starfa í „vinnu- katta“-nýlendum sjáum við til þess að þeir njóta lífsins sem aldrei fyrr,“ segir á síðunni. agas@mbl.is Kettir ryðja götur Chicago - Rottufjöld er hvergi í Bandaríkjunum meiri en í Chicago AFP Borg Eitt þúsund villikettir hafa verið sendir út á götur Chicago til að vinna á miklum rottufjölda. Þess sáust engin merki á Gazasvæðinu og í Ísrael í gær að ofbeldisverkum þar væri að linna. Áfram var skotið flug- skeytum, gerðar voru árásir úr lofti og undir niðri kraum- aði borgaraleg ólga meðal skrílshópa gyðinga og ísraelskra araba. Manntjón hélt áfram og hafa a.m.k. 83 manns fallið á Gaza og sjö í Ísrael. Breska ríkissjónvarpið BBC sagði að átökin nú væru þau lengstu og hörðustu frá stríðinu árið 2014. Sögðu ísr- aelsk yfirvöld að 1.600 flugskeytum hefði verið skotið á Ísr- ael í átökunum nú. Hermt er að ísraelski herinn sé að und- irbúa hernaðaraðgerðir á jörðu niðri. Hefði liðsafli verið sendur að landamærum. Vladímír Pútín Rússlandsforseti og Antonio Guterres framkvæmdastjóri SÞ skoruðu í sameiginlegri yfirlýsingu á deiluaðila í gær að leggja niður vopn. „Í ljósi harðnandi deilna Palestínumanna og Ísraela er það frumatriði að stöðva ofbeldisaðgerðir beggja deiluaðila og tryggja ör- yggi borgaranna,“ sagði í tilkynningu Rússa eftir samtal Pútíns og Guterres. Lýstu báðir stuðningi við tveggja ríkja lausnina til að tryggja friðinn. Joe Biden Bandaríkjaforseti segist vona að átökum linni „fyrr en seinna“ en vopnahlé virtist ekki í spilunum í gær. Háttsettur fulltrúi hjá hryðjuverkasamtökunum Hamas sagði samtökin tilbúin til vopnahlés takist alþjóðasam- félaginu að stöðva hernaðaraðgerðir Ísraela í hinni um- deildu Al-Aqsa-mosku í Jerúsalem. Ísraelska lögreglan hefur handtekið á fimmta hundrað manns í ofbeldisaðgerðum síðustu daga, allt niður í 13 ára. Átökin síðustu daga hafa orðið til þess að fjöldi flug- félaga hefur stöðvað um skeið allt alþjóðaflug til og frá Ísr- ael. Meðal þeirra eru KLM, British Airways, Virgin Atl- antic, Lufthansa, Aeroflot, Iberia, United, Delta og American Airlines. agas@mbl.is Átökin harðna áfram - Vopnahlé virðist ekki vera í augsýn - Átökin þau lengstu og hörðustu frá 2014 AFP Eftirmálar á átaksvæði Reykjarbólstrar stíga upp frá Rafah á Gaza eftir loftárás Ísraela á svæðið í gær. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Boeing-flugvélaverksmiðjurnar tilkynntu 24 flugrekstraraðilum með 737 MAX í þjónustu sinni í fyrradag um hvernig gert skuli við raf- kerfisvanda sem leiddi til þess að á annað hundrað MAX-flugvéla hafa verið kyrrsettar í rúman mánuð. Að sögn vefmiðilsins turisti.is var ein MAX-véla Icelandair þar á meðal. Að sögn Boeing hefur bandaríska loftferða- eftirlitið FAA samþykkt leiðbeiningarnar en það var sú stofnun sem kyrrsetti þoturnar í byrjun apríl. Viðgerðin er forsenda þess að komast fyrir framleiðslugalla sem að sögn Bloomberg-fréttastofunnar hefur pirrað flug- rekendur, seinkað afhendingu nýrra farþega- flugvéla og sett í uppnám áform Boeing um að koma flaggskipi verksmiðjanna hnökralaust aftur í umferð í framhaldi af tveimur mann- skæðum flugslysum. Ófullnægjandi raftengingar Bilunin náði hugsanlega til hundraða 737 MAX-flugvéla sem smíðaðar hafa verið frá í ársbyrjun 2019, þar á meðal 71 sem afhent hef- ur verið bandarískum flugrekendum. Boeing hefur engar MAX-vélar afhent frá því verk- smiðjurnar vöruðu flugfélög og leigusala við því að ýmis tækjabúnaður í stjórnklefa flugvél- anna væri ekki jarðtengdur með fullnægjandi hætti af völdum lítils háttar breytinga í fram- leiðsluferli þotanna. Málið snýst um ófullnægj- andi raftengingar á varaaflsgjafa, öryggja- bretti og aðalstjórntækjaskjá, að því er FAA sagði í byrjun apríl. „Hafandi fengið endanlegt samþykki FAA höfum við gefið út tvær þjónustutilkynningar í dag varðandi flugvélaflotann sem málið varð- ar,“ sagði talsmaður Boeing í tölvupósti til fréttastofunnar. Hinn 28. apríl sl. gaf FAA út fyrirmæli varð- andi lofthæfi Boeing 737 MAX-vélanna og sagðist vinna með Boeing að úrlausn og við- gerð. Kostnaður við hana er sagður lítill, við- gerðin ætti að taka frá níu og upp í 24 stundir og samanlagður kostnaður vegna þeirra véla sem kyrrsettar eru í Bandaríkjunum er sagður 155.000 dollarar. Hluti kostnaðarins rúmast innan ábyrgða og fellur á Boeing. Gallinn hefur verið rakinn til slakrar spennujöfnunar þar sem varabretti skiluðu leiðni út í grind þotunnar óskilvirkt með þeim afleiðingum að hluti stjórnbúnaðar var ónóg- samlega jarðtengdur. FAA sagði að þetta gæti mögulega raskað starfsemi vissra kerfa, þar á meðal afísingarbúnaðar þotunnar, og lamað lykilstarfsemi sem komið hefði getað í veg fyrir áframhaldandi öruggt flug og örugga lendingu. Steve Dickson forstjóri FAA tjáði þingnefnd í fyrradag að stofnunin væri að endurskoða hvernig Boeing fór að því að breyta fram- leiðsluferlinu sem leiddi til kyrrsetningar flug- vélanna og hvers vegna öryggismál þetta upp- götvaðist ekki fyrr en tveimur árum seinna. „Lagfæringarnar eru tiltölulega blátt áfram,“ sagði Dickson. Fara ofan í saumana á yfirsjónum Við Boeing blasir að farið verði í enn ræki- legar ofan í saumana á yfirsjónum í fram- leiðsluferlinu, en á sama tíma freistar félagið þess að sannfæra flugyfirvöld um heim allan um að Boeing 737 MAX sé örugg flugvél. Brot- lending á hafi undan ströndum Indónesíu í október 2018 og önnur í Eþíópíu innan við fimm mánuðum seinna kostuðu samtals 346 mannslíf. Í framhaldi af þessum slysum voru MAX- þoturnar kyrrsettar á heimsvísu var flugbanni ekki aflétt fyrr en 20 mánuðum seinna, eða í nóvember sl. Leigurekstrarfélagið Air Lease Corp. hafði háar væntingar til þotunnar, að sögn forstjórans Steven Udvar-Hazy. „Flug- vélin er mjög vinsæl komist hún í loftið á ný. Boeing þarf að taka sig saman í andlitinu og koma þessum flugvélum aftur í loftið og veita félögum hvata til að vera áfram á þeim.“ Nýr öryggisgalli kyrrsetti 737 MAX - Hluti stjórnbúnaðar MAX-þotunnar var ónógsamlega jarðtengdur - Bilunin náði til hundraða véla AFP Boeing-þotan Rafleiðni reyndist ekki með eðlilegum hætti í stjórnklefa 737 MAX-þotunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.