Morgunblaðið - 14.05.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 2021
Ítalía
B-deild, umspil, 1. umferð:
Cittadella – Brescia................................. 1:0
- Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Brescia en Hólmbert Aron Friðjónsson er
frá vegna meiðsla.
_ Cittadella mætir Monza í undanúrslitum.
Venezia – Chievo ............................ (frl.) 3:2
- Bjarki Steinn Bjarkason var varamaður
hjá Venezia og kom ekki við sögu en Óttar
Magnús Karlsson er frá vegna meiðsla.
_ Venezia mætir Lecce í undanúrslitum.
50$99(/:+0$
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin.
Hásteinsvöllur: ÍBV – Fram .................... 18
Domusnovav.: Kórdrengir – Selfoss... 19.15
Extra-völlur: Fjölnir – Grótta............. 19.15
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Afturelding.... 19.15
2. deild karla:
Akraneshöll: Kári – KV ....................... 19.15
2. deild kvenna:
KR-völlur: KM – Fjölnir........................... 20
3. deild karla.
Kópavogsvöllur: Augnablik – Ægir......... 20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, fyrsti leikur:
Ásvellir: Haukar – Keflavík................. 18.15
Origo-höll: Valur – Fjölnir................... 20.15
Umspil karla, 8-liða úrslit, oddaleikir:
Ice Lagoon-höll: Sindri – Selfoss (1:1) 19.15
Álftanes: Álftanes – Skallagr. (1:1)..... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deild, lokaumferð:
Framhús: Fram U – HK...................... 19.30
Ísafjörður: Hörður – Víkingur ............ 19.30
Dalhús: Valur U – Fjölnir.................... 19.30
Hertz-höll: Kría – Vængir Júpíters .... 19.30
Ásvellir: Haukar U – Selfoss U........... 19.30
Í KVÖLD!
Umspil kvenna
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
ÍR – Tindastóll ...................................... 80:66
Ármann – Hamar/Þór .......................... 78:70
Njarðvík – Vestri.................................. 77:34
Grindavík – Stjarnan............................ 94:49
NBA-deildin
Atlanta – Washington ...................... 120:116
Brooklyn – San Antonio................... 128:116
Cleveland – Boston............................. 102:94
Dallas – New Orleans....................... 125:107
Utah – Portland .................................. 98:105
LA Lakers – Houston ...................... 124:122
4"5'*2)0-#
Olísdeild karla
Afturelding – KA.................................. 27:27
Staðan:
Haukar 19 16 1 2 562:456 33
FH 18 11 4 3 535:492 26
ÍBV 19 11 1 7 559:531 23
Valur 19 11 1 7 552:509 23
Selfoss 19 10 2 7 494:476 22
Stjarnan 19 9 3 7 545:524 21
Afturelding 19 9 2 8 504:514 20
KA 18 7 6 5 482:465 20
Fram 19 8 2 9 500:493 18
Grótta 19 4 4 11 486:515 12
Þór Ak. 19 4 0 15 425:528 8
ÍR 19 0 0 19 443:584 0
Olísdeild kvenna
Sex liða úrslit, fyrstu leikir:
ÍBV – Stjarnan ..................................... 21:17
Valur – Haukar..................................... 25:19
Þýskaland
Göppingen – Essen.............................. 35:27
- Gunnar Steinn Jónsson skoraði 2 mörk
fyrir Göppingen. Janus Daði Smárason er
frá vegna meiðsla.
Lemgo – Stuttgart............................... 35:29
- Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir
Lemgo.
- Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir
Stuttgart.
Minden – Melsungen ........................... 30:30
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt
mark fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson er þjálfari liðsins.
Ludwigshafen – Bergischer .............. 28:22
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer.
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, fyrri leikir:
Aalborg – Flensburg........................... 26:21
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
- Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Flensburg.
Nantes – Veszprém .............................. 32:28
Sviss
8-liða úrslit, annar leikur:
Bern – Kadetten .................................. 26:33
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
_ Staðan er 2:0 fyrir Kadetten.
%$.62)0-#
Valur og ÍBV eru einum sigri frá
sæti í undanúrslitum Íslandsmóts
kvenna í handbolta eftir sigra í
fyrstu leikjum úrslitakeppninnar í
gær.
Valur vann 25:19-sigur á Haukum
á heimavelli, en sigurliðið í einvíginu
mætir Fram í undanúrslitum. Vals-
konur voru yfir allan leikinn og var
sigurinn verðskuldaður. Haukakon-
ur voru sjálfum sér verstar á loka-
kaflanum, þar sem liðið fékk fjöl-
mörg færi til að minnka muninn í tvö
mörk. Þess í stað stakk Valur af í blá-
lokin. Valskonur voru einfaldlega
sterkari þegar mest var undir. Thea
Imani Sturludóttir skoraði átta mörk
fyrir Val og Lovísa Thompson sjö.
Sara Odden gerði átta mörk fyrir
Hauka, en það dugði skammt.
Í Vestmannaeyjum fagnaði ÍBV
21:17-sigri á Stjörnunni. Eftir hæga
byrjun, þar sem staðan var 1:1 eftir
tæpar tíu mínútur, hrukku Eyjakon-
ur í gang og var staðan í hálfleik 10:6.
Rétt eins og á Hlíðarenda fékk
gestaliðið góð færi til að minnka
muninn í tvö mörk í seinni hálfleik,
en ÍBV var sterkara liðið í lokin.
Ásta Björt Júlíusdóttir og Hrafn-
hildur Hanna Þrastardóttir skoruðu
sex mörk hvor fyrir ÍBV og Helena
Rut Örvarsdóttir gerði slíkt hið sama
fyrir Stjörnuna. Sigurlið einvígisins
mætir deildarmeisturum KA/Þórs í
undanúrslitum.
Valur og ÍBV eru
skrefinu nær
- Heimasigrar í fyrstu leikjunum
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Færi Valskonur þurfa einn sigur í viðbót eftir sigur á Haukum í gær.
Afturelding og KA skildu jöfn,
27:27, í spennuleik í úrvalsdeild
karla í handknattleik, Olísdeildinni,
að Varmá í Mosfellsbæ í gær. Liðin
eru í harðri baráttu við Fram um
tvö sæti í úrslitakeppninni og eru
áfram í sjöunda og áttunda sæti.
Afturelding var yfir nær allan tím-
ann en KA skoraði þrjú mörk undir
lokin og jafnaði. Úlfar Páll Monsi
Þórðarson skoraði 7 mörk fyrir
Aftureldingu og Þorsteinn Leó
Gunnarsson 6 en Árni Bragi Eyj-
ólfsson skoraði 8 mörk fyrir KA og
Patrekur Stefánsson 7.
Spenna og stig-
um deilt á Varmá
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Átta Árni Bragi Eyjólfsson fer til
Aftureldingar frá KA í sumar.
Bakvörðurinn öflugi úr Njarðvík,
Elvar Már Friðriksson, hefur verið
valinn besti leikmaður tímabilsins í
litháísku úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik, þar sem hann leikur með
Siauliai. Elvar Már fór á kostum á
tímabilinu þegar Siauiai tryggði
sér sæti í úrslitakeppninni með því
að lenda í 7. sæti deildarinnar.
Njarðvíkingurinn var með 15,6 stig
og gaf 7,7 stoðsendingar að með-
altali í deildinni. Litháen er ein af
stærri þjóðum Evrópu í körfuknatt-
leik og árangur Elvars í vetur því
afar athyglisverður.
Elvar Már valinn
bestur í deildinni
Ljósmynd/Sveinn Helgason
Litháen Elvar Már Friðriksson hef-
ur átt frábært tímabil hjá Siauliai.
Diljá Ýr Zomers varð í gær sænskur bikarmeistari í
knattspyrnu þegar lið hennar Häcken sigraði Eskilstuna
United, 3:0, í úrslitaleik á Bravida-leikvanginum í
Gautaborg. Filippa Angeldahl, Stina Blackstenius og
Pauline Hammarlund skoruðu mörk Häcken í síðari
hálfleiknum. Diljá var varamaður hjá Häcken og kom
ekki við sögu í leiknum.
Þetta er fyrsti titill Häcken í kvennafótboltanum en
félagið leikur í fyrsta skipti í efstu deild eftir að hafa
fengið keppnisleyfi Svíþjóðarmeistaranna 2020, Kopp-
arbergs-Göteborg, í desember og stóran hluta leik-
mannahóps meistaraliðsins. Liðið er með sjö stig eftir
fyrstu fjóra leikina í sænsku úrvalsdeildinni og í er í efri hluta deild-
arinnar.
Diljá, sem er 19 ára gömul, kom til liðs við Häcken frá Val í vetur en hún
á að baki 50 úrvalsdeildarleiki með FH, Stjörnunni og Val. vs@mbl.is
Diljá sænskur bikarmeistari
Diljá Ýr
Zomers
Knattspyrnumaðurinn efnilegi
Sölvi Snær Guðbjargarson er kom-
inn í raðir Breiðabliks frá Stjörn-
unni og hefur skrifað undir fjög-
urra ára samning við
Kópavogsfélagið. Þetta var til-
kynnt rétt áður en lokað var fyrir
félagaskiptin á þessu vori um mið-
nættið í fyrrakvöld. Sölvi er 19 ára
kantmaður en hefur þó þegar leikið
44 leiki með Stjörnunni í efstu deild
og skorað í þeim átta mörk. Hann
kom við sögu í tveimur fyrstu leikj-
um Stjörnunnar í deildinni í vor.
Sölvi kominn
til Breiðabliks
Ljósmynd/Breiðablik
Breiðablik Sölvi Snær Guðbjarg-
arson er kominn í Kópavoginn.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Liverpool er komið aftur af alvöru í
slaginn um sæti í Meistaradeild
Evrópu eftir sætan sigur á erki-
fjendunum í Manchester United á
Old Trafford, 4:2, í gærkvöld.
Sigurinn fleytti Jürgen Klopp og
hans mönnum upp fyrir West Ham
og í fimmta sætið, og nú er Liver-
pool fjórum stigum á eftir Chelsea
og sex stigum á eftir Leicester. Liv-
erpool á hins vegar eftir þrjá leiki
en keppinautarnir aðeins tvo leiki
hvor.
Síðustu þrír leikir Liverpool eru
gegn WBA, Burnley og Crystal Pa-
lace, þremur liðum úr neðri hluta
deildarinnar sem hafa að engu að
keppa. Níu stig á lokasprettinum er
því afar raunhæft keppikefli fyrir
liðið.
Chelsea og Leicester eiga hins
vegar eftir að mætast, Leicester á
eftir leik við Tottenham og Chelsea
leik við Aston Villa.
Roberto Firmino braut ísinn eftir
markaþurrð og skoraði tvívegis
fyrir Liverpool en Diogo Jota og
Mohamed Salah gerðu sitt markið
hvor. Fyrsta mark leiksins var
sjálfsmark Liverpool-manna en
Marcus Rashford minnkaði muninn
í 3:2 um miðjan síðari hálfleik.
Sigur Liverpool er sá fyrsti sem
liðið vinnur á Old Trafford í sjö ár.
Tapið kemur ekki að mikilli sök
fyrir Manchester United sem situr
áfram á nokkuð öruggum stað í
öðru sæti deildarinnar og hefur
þegar tryggt sér Meistaradeild-
arsæti.
Liverpool er nú ósigrað í sjö
leikjum í deildinni frá 15. mars.
Tvö stig í súginn
Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu
67 mínúturnar með Everton sem
gerði markalaust jafntefli við Aston
Villa í Birmingham. Everton þurfti
á sigri að halda í baráttunni um
Evrópusæti en liðið er samt aðeins
tveimur stigum frá fimmta sætinu
og gæti náð því með góðum enda-
spretti. Everton á eftir heimaleiki
við Sheffield United og Wolves og
útileik við Manchester City.
Liverpool styrkti stöðuna verulega
AFP
Tvenna Roberto Firmino skallar boltann fram hjá Dean Henderson í mark
Manchester United í slag erkifjendanna á Old Trafford í gærkvöld.