Morgunblaðið - 26.05.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stefnt er að því að bjóða út smíði
nýrrar brúar yfir Skjálfandafljót
hjá Fosshóli á þessu ári. Sam-
kvæmt tillögu umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis um breyt-
ingar á samgönguáætlun er áætlað
að brúin verði byggð á næstu
tveimur árum og er reiknað með
milljarði í fjárveitingar til verksins
á árunum 2022 og 2023.
Einbreiðum brúm fækkar
Brúin á Skjálfandafljóti er ein-
breið og er ný brú liður í því að
fækka slíkum brúm á umferðar-
miklum vegum.
Gunnar H. Guðmundsson, svæð-
isstjóri Vegagerðarinnar á Norð-
urlandi, segir að brúin verði byggð
rétt norðan við núverandi aðalbrú.
Verður hún fjórða brúin á Skjálf-
andafljót við Fosshól. Þegar hún
verður byggð verða þrjár brýr yfir
ána á þessum stað því járngrind-
arbrúin frá 1930 þjónar enn sem
göngubrú fyrir ferðafólk sem er að
skoða Goðafoss og nágrenni. Raun-
ar sjást enn undirstöður fyrstu
brúarinnar, trébrúar sem byggð
var árið 1883. Gunnar reiknar þó
með að brúin frá 1972 verði rifin,
þegar sú nýja kemur, það sé að
bera í bakkafullan lækinn að hafa
þrjár brýr á þessum stað.
Ný brú á Köldukvíslargil
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir að tvíbreið brú verði byggð á
Köldukvíslargil á Tjörnesi á árun-
um 2023 og 2024. Núverandi brú er
eina einbreiða brúin á milli Húsa-
víkur og Ásbyrgis.
Gunnar segir að um tíma hafi
verið uppi áform um að steypa ána
í stokk en það hafi reynst of flókið
verk og væntanlega verði byggð
bogabrú á þessum stað.
Stærsta verkefni Vegagerðar-
innar á Norðurlandi um þessar
mundir er að undirbúa endurgerð
hluta af Skagastrandarvegi og
Þverárfjallsvegi. Þar er gamall
vegur og tilgangur framkvæmdar-
innar er að stuðla að umferðarör-
yggi. Auk þess er hann mikilvæg
tenging á milli Blönduóss, Skaga-
strandar og Sauðárkróks.
Útboð næstu daga
Leggja þarf um 15 kílómetra af
vegum þegar tengingar og hjáveg-
ir eru talin með og byggja þarf
nýja brú á Laxá. Verkið verður
boðið út alveg á næstunni, sam-
kvæmt upplýsingum Gunnars, en
fjárveitingar til verksins eru á
samgönguáætlun fyrir árin 2022 til
2024, samtals um tveir milljarðar
króna.
Ný brú á Skjálfandafljót boðin út í ár
- Fjórða brúin á Skjálfandafljót hjá Fosshóli - Brúin frá 1972 verður væntanlega rifin í kjölfarið
- Stærsta verkefnið á Norðurlandi er undirbúningur endurnýjunar Þverárfjalls- og Skagastrandarvega
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Brýr Gamla brúin frá 1930 þjónar nú sem göngubrú, við hlið aðalbrúar.
Nýjasti íbúi Húsdýragarðsins er
örn sem fannst í Stykkishólmi í
fyrradag og var færður í Hús-
dýragarðinn í gær. Um er að ræða
kvenkyns örn, svokallaða össu. Þor-
kell Heiðarsson, deildarstjóri hjá
Húsdýragarðinum, segir örninn
vera laskaðan á væng en frekari
upplýsinga sé að vænta frá Nátt-
úrufræðistofnun um hvað það sé
nákvæmlega sem amar að fugl-
inum. Þorkell bendir þó á að fugl-
inn sé ekki stórslasaður.
Þorkell segir að Húsdýragarð-
urinn eiga eftir að láta líta frekar á
fuglinn og þá sé hægt ákveða hvers
konar meðferð hann þurfi á að
halda.
Það er býsna algengt að sögn
Þorkels að ernir dvelji í Hús-
dýragarðinum, en síðusu árin hefur
að jafnaði einn slíkur komið í garð-
inn á hverju ári. Þó er algengara að
fálkar séu gestir í Húsdýragarð-
inum en ernir.
Aðspurður segir Þorkell það mis-
munandi hvers kyns meðferð fugl-
arnir fái við komuna í garðinn. Þeir
fái ýmist aðhlynningu eða fari í
endurhæfingu. gunnhildursif@mbl.is
Kvenkyns örn fannst á Snæfellsnesi í fyrradag og var færður í Húsdýragarðinn til frekari aðhlynningar
Assa í
Húsdýra-
garðinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðs-
dóttur, mennta- og menningarmála-
ráðherra, var samþykkt á Alþingi í
gær með 34 atkvæðum. Ellefu þing-
menn greiddu atkvæði gegn frum-
varpinu.
Frumvarpið snýst um að setja á
laggirnar tímabundið styrkjakerfi
fyrir einkarekna fjölmiðla til að
styrkja stöðu þeirra. Miðað er við
að hægt sé að sækja um stuðning
vegna allt að 25 prósenta rekstr-
arkostnaðar við ritstjórnarstörf
fjölmiðils. Þar undir fellur beinn
launakostnaður starfsfólks og verk-
takagreiðslur aðila sem vinna að
fréttum.
Sú breyting var gerð á frumvarp-
inu í annarri umræðu að styrkja-
kerfið verður tímabundið og gildir
einungis í ár og á næsta ári. Því er
ekki um að ræða grundvallarbreyt-
ingu á rekstrarumhverfi fjölmiðla
nema til skamms tíma.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
voru meðal þeirra sem greiddu at-
kvæði gegn frumvarpinu eða sátu
hjá. Sigríður Á. Andersen greiddi
atkvæði gegn því en Brynjar Níels-
son, Jón Gunnarsson og Óli Björn
Kárason greiddu ekki atkvæði. Þá
var Vilhjálmur Árnason fjarverandi.
Aðrir þingmenn flokksins greiddu
atkvæði með frumvarpinu. Þing-
flokkur Miðflokksins greiddi allur
atkvæði gegn frumvarpinu en eng-
inn þingmaður Viðreisnar greiddi
atkvæði.
Fjölmiðlafrumvarpið sam-
þykkt með 34 atkvæðum
- Tímabundið styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla
Morgunblaðið/Eggert
Styrkir Lilja Alfreðsdóttir mælti
fyrir fjölmiðlafrumvarpinu á þingi.