Morgunblaðið - 26.05.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 26.05.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021 Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni. Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Ragnar Árnason hagfræðipró-fessor emeritus fjallaði um nýlega skýrslu um landbúnað í grein hér í blaðinu og fór um hana fögrum orðum. Þar kveði við skyn- samlegri tón en landsmenn hafi átt að venjast í opin- berum gögnum um þessi mál og meðal annars horft til starfsskilyrða ís- lensks landbúnaðar í alþjóðlegu samhengi. - - - Í skýrslunni sé vakin athygli áað innan ESB sé landbúnaður „undanskilinn almennum reglum sambandsins um ríkisstuðning, markaðsleiðsögn og samkeppni“. - - - Ragnar bendir á að hér á landihafi framkvæmd samkeppn- islaga, en ekki lögin sjálf, „verið með þeim hætti að erfitt hefur verið fyrir íslensk fyrirtæki að ná þeirri stærðarhagkvæmni sem sjálfsögð þykir erlendis. Þetta hef- ur bitnað á landbúnaðinum ekki síður en öðrum atvinnugreinum.“ - - - Hann nefnir kjötvinnsluna ílandinu í þessu samhengi og segir hana í sömu stöðu og mjólk- urvinnsluna um síðustu aldamót. „Útreikningar sem gerðir hafa verið benda til að verði þessum stöðvum leyfð samvinna og sam- einingar muni taka við hliðstætt skeið framleiðniaukningar og orð- ið hefur í mjólkurvinnslunni. Vinnslukostnaður muni lækka stórlega sem getur bæði þýtt hærra afurðaverð til bænda og lægra verð til neytenda.“ - - - Þarna eru miklir hagsmunir íhúfi en fyrirstaðan er ríkis- stofnun á villigötum. Stjórnvöld hljóta að bregðast við þeirri stöðu. Ragnar Árnason Ríkisstofnun á villigötum STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn er hættustig almannavarna í gildi á höfuðborgarsvæðinu, á Vest- urlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Austur-Skaftafellssýslu vegna gróðurelda. Óvissustig er á Suðurnesjum, Árnessýslu og Rang- árvallasýslu. Sem kunnugt er hefur mikið verið um gróðurelda á Suðvesturlandi að undanförnu. Í tilkynningu frá al- mannavörnum segir að enn sé nokk- uð þurrt sums staðar á suðvestur- horninu þrátt fyrir hressilegar rigningar síðustu daga, eins og til dæmis í Heiðmörk, þar sem enn er næturfrost og hefur gróður því ekki tekið við sér. Jafnframt segir að bann sé í gildi við meðferð opins elds á þeim svæðum sem um ræðir. Spáð er áframhaldandi þurrki næstu daga ásamt talsverðum vindi eða allt að 15 metrum á sekúndu að- faranótt fimmtudags. „Hættustig almannavarna er sett á ef heilsu og öryggi manna, um- hverfis eða byggðar er ógnað af nátt- úru- eða mannavöldum, þó ekki svo alvarlegum að um neyðarástand sé að ræða. Að lýsa yfir hættustigi er hluti af verkferlum í skipulagi al- mannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings,“ segir í tilkynningu almannavarna. Telja enn vera hættu á gróðureldum - Hættustig almannavarna enn í gildi - Áfram verður þurrt og vindasamt Morgunblaðið/Árni Sæberg Slökkvistarf Ný slökkviskjóla er nú til taks til að berjast við gróðurelda. Liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar voru í gær sýknaðir í Héraðs- dómi Reykjavíkur af ákærum um stórfelld skattsvik. Jón Þór Birgis- son, söngvari hljómsveitarinnar, var einnig sýknaður af skattsvikaákæru í tengslum við félag hans Frakk. Þetta staðfesti Bjarnfreður Ólafs- son, lögmaður núverandi og fyrrver- andi liðsmanna Sigur Rósar. Sams konar ákæra var gefin út á hendur öllum fjórum liðsmönnum hljóm- sveitarinnar en Jón Þór var einnig ákærður vegna Frakks. Tímabær niðurstaða „Þetta er löngu tímabær niður- staða. Þetta er mjög vel rökstudd og afgerandi sýkna, bæði varðandi þessi atriði sem voru sameiginleg hjá öllum fjórum og síðan komu lög sem tóku gildi 1. maí sem banna hrein- lega tvöfalda refsingu í skattamálum með mjög afgerandi orðalagi,“ sagði Bjarnfreður við mbl.is. Hann telur ljóst að ekki hafi verið annað hægt en að sýkna í málinu af þessum sökum og segir að það kæmi sér mjög á óvart ef málinu yrði áfrýj- að til Landsréttar. Bjarnfreður segir sýknu Jóns Þórs vegna Frakks einnig vera mjög afgerandi. Farið sé yfir af hverju hann uppfylli ekki saknæmisskilyrð- in um stórfellt gáleysi og útskýrt að fleiri en ein ástæða sé fyrir sýknu hans. Máli Sigur Rósar var vísað frá héraðsdómi á sínum tíma vegna sjónarmiða um tvöfalda refsingu. Málið fór eftir það til Landsréttar sem taldi að héraðsdómur þyrfti að taka málið til efnislegrar meðferðar. Var meðal annars vísað til þess að í máli fjórmenninganna hefðu þeir ekki sætt álagi vegna stórs hluta þeirra tekna sem þeir voru ákærðir fyrir að hafa vantalið. freyr@mbl.is Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir - Áfrýjun ólíkleg segir lögmaður Morgunblaðið/Eggert Sýknaðir Liðsmenn Sigur Rósar í Héraðsdómi Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.