Morgunblaðið - 26.05.2021, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021
50 ÁRA Gunnar er Reykvíkingur og býr
í Hlíðunum. „Ég ólst upp að hluta í Fells-
múla, en annars meira og minna í Þing-
holtunum og Vesturbænum svo ég var
101-maður fram yfir tvítugt. Núna er ég
orðinn 102-maður.“ Gunnar er leikari að
mennt frá Leiklistarskóla Íslands og vann
fyrstu 11-12 árin eftir útskrift í leikhús-
unum. Hann hefur einnig leikið í fjölda
sjónvarpsþátta og kvikmynda og kannski
þekktastur fyrir að leika hinn misheppn-
aða sjónvarpsmann Frímann Gunnarsson.
Frímann er samsköpun Gunnars og
Ragnars bróður hans sem hefur leikstýrt
öllum 6 þáttaröðunum um kauða. Þeir
gerðu síðast þættina Smáborgarasýn Frímanns þar sem hann hittir fólkið á
landsbyggðinni, en þeir voru sýndir á RÚV í fyrrasumar. Gunnar var einnig
aðalleikari, handritshöfundur og meðleikstjóri að kvikmyndinni Bakk sem
var frumsýnd í maí 2015.
Gunnar hefur verið útvarpsmaður í mörg ár á Ríkisútvarpinu, fyrst á Rás
2 en síðastliðin fjögur ár hefur hann verið umsjónarmaður Mannlega þátt-
arins ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur á Rás 1, en sá þáttur er á dagskrá alla
virka daga. „Ég er bara mjög sáttur í útvarpinu, en svo er ég alltaf með ein-
hver verkefni í burðarliðnum. Við Raggi bróðir erum alltaf að plana ein-
hverja vitleysu og nú er jafnvel eitt verkefni fram undan með hinum bróður
mínum, Árna Páli, sem er kvikmyndaframleiðandi. Síðan hef ég verið að ýta
á undan mér tveimur kvikmyndahandritum sem ég hef verið að burðast með
lengi og þarf að fara að koma frá mér. Ég veit ekki hvenær þessi fjögur kom-
ast á laggirnar, en það mun gerast. Svona verkefni hafa tilhneigingu til að
veltast um í huganum, jafnvel í langan tíma og svo allt í einu skjótast þau út
af miklum hraða, eins og var reyndin með t.d. Bakk.“
FJÖLSKYLDA Gunnar er trúlofaður Hiroko Ara, f. 1977, en hún er lærður
ljósmyndari og vinnur í Farmers Market. Börn Gunnars eru Snæfríður Sól,
f. 1993, Kormákur Jarl, f. 1995, og Emilía Álfsól, f. 2008. Dóttir Hiroko er
Jökla Himiko, f. 2004. Foreldrar Gunnars eru Anna Sigríður Pálsdóttir, f.
1947, fyrrverandi dómkirkjuprestur, og Hans Kristján Árnason, f. 1947, lífs-
kúnstner.
Gunnar Hansson
Ljósmynd/B.I.G.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það getur reynst erfitt að snúa
blaðinu við þegar deilur um viðkvæm mál-
efni fara úr böndunum. Reyndu að tak-
marka orðaflauminn.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú hefur mikla þörf fyrir að auka
skilning þinn á lífinu. Vertu reiðubúinn að
rétta öðrum hjálparhönd og þá geturðu
reitt þig á aðstoð annarra.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það getur kostað málamiðlanir að
leita til annarra um framkvæmd hluta.
Sýndu fólki væntumþykju og skilning og þá
gengur þér allt betur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Til þess að hægt sé að gera breyt-
ingar í vinnunni þarftu að geta sannfært
yfirmann þinn um að þær séu
framkvæmanlegar. Varastu bara að tefla of
djarft.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Láttu ekki fordóma hafa áhrif á hvern-
ig þú metur tilboð sem þér berast. Reikn-
aðu út tekjur þínar og útgjöld svo þú fáir
heildarmynd af stöðunni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Nú skiptir öllu að nýta tímann vel og
halda sér við efnið svo þú náir að standa við
gefin loforð. Leggðu spilin á borðið og láttu
fólk vita til hvers þú ætlast.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er freistandi að gefa loforð núna,
en reyndu að standast það og ekki segja
neitt sem gerir þig vandræðalegan seinna
meir.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt þú sjáir í gegn um tiltæki
fólks skaltu fara þér hægt í að afhjúpa það,
ef engin hætta er á ferðum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Margir vilja hitta þig að máli
svo þú átt erfitt með að skipuleggja tíma
þinn. Þér verður hrósað fyrir góða frammi-
stöðu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Tilfinningar þínar eru sterkari í
dag en venjulega. Snúðu þér frá fortíðinni
og haltu áfram að vera sú manneskja sem
þig hefur alltaf langað til að vera.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er komið nóg af þessu
gagnrýna fólki! Sannur vinur bendir þér á
hversu einstakur þú ert í raun.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú þarft að koma lagi á fjármálin og
þarft því að beita þig aga og sleppa öllu
sem kallar á óþarfa eyðslu.
hamfarir sem Skaftáreldar voru.
Ég hef þýtt fáeinar bækur og af
þeim er ég stoltust af bókinni Mannlíf
milli húsa eftir danska arkitektinn
Jan Gehl. Bókin fjallar um skipulags-
mál og kom fyrst út árið 1970 og boð-
aði þá algera framúrstefnu, sem sagt
að skipuleggja ætti byggð með það
fyrir augum að í henni þrifist mannlíf.
Nú 50 árum síðar hefur það sjónar-
mið sem betur fer meira vægi en þá.“
Þýðingin var gefin út af Úrbanistan
árið 2018.
Ég hef unnið á Vestursvæði Vatna-
jökulsþjóðgarðs sem er með nokkrar
starfsstöðvar bæði á fjöllum og í
byggð. Ég hef unnið á Vestursvæði
Vatnajökulsþjóðgarðs sem er með
nokkrar starfsstöðvar bæði á fjöllum
og í byggð. Ég hef unnið á öllum
þessum starfsstöðvum nema einni en
mest hef ég verið í Lakagígum. Ég
hef bundist þeim stað sterkum bönd-
um. Lakagígar eru magnaður staður,
ævintýraleg friðsæld á stað sem ber
merki um þessar gríðarlegu náttúru-
S
teinunn Stefánsdóttir
fæddist 26. maí 1961 í
Kaupmannahöfn þar sem
foreldrar hennar voru við
nám og störf. „Þar bjó ég
til níu ára aldurs, lengst af í Rødovre
sem er vestan við Kaupmannahöfn.
Fjölskyldan flutti svo í vesturbæ
Reykjavíkur þar sem leiðin lá í Mela-
skóla og Hagaskóla og svo í MH. Ég
er eina barn beggja foreldra minna
en þau skildu þegar ég var tæplega
tvítug.
Ég var búin að eignast eldri dætur
mínar tvær áður en ég hóf háskóla-
nám og þriðju dótturina eignaðist ég
meðan á náminu stóð. Ég og fyrri
eiginmaður minn, faðir stelpnanna,
skildum þegar þær voru á aldrinum
sex til tólf ára en þremur árum
seinna kom Arthur inn í líf okkar og
með honum Óli sonur hans sem var
kominn yfir tvítugt.“
Steinunn lauk BA-prófi í almenn-
um málvísindum með íslensku sem
aukagrein frá HÍ 1990, og útskrif-
aðist í uppeldis- og kennslufræði
1992. Hún var framhaldsskólakenn-
ari í Kvennaskólanum 1992-1994,
fræðslufulltrúi í Bankamannaskól-
anum 1994-1996, upplýsingafulltrúi á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur 1996-
2000, blaðamaður á DV 2000-2001 og
blaðamaður, ritstjórnarfulltrúi og að-
stoðarritstjóri á Fréttablaðinu 2001-
2013. „Ég hef ekki verið í föstu fullu
starfi síðan 2013 þegar ég hætti að
vinna á Fréttablaðinu. Þá fór ég í
nám og að vinna í lausamennsku. Ég
hef aðallega unnið við þýðingar en
einnig textagerð og prófarkalestur
og fleira og nú í vetur hef ég verið í
hlutastarfi við Háskólann á Bifröst
sem vefstjóri og upplýsingafulltrúi og
svo verður sumarið í sumar fjórða
sumarið mitt í landvörslu.
Einu sinni þegar stelpurnar mínar
voru litlar heimsóttum við fjöl-
skyldan vin okkar sem var land-
vörður í Ásbyrgi. Þá hugsaði ég með
mér að þetta væri eitthvað sem mig
langaði að gera. Þar sem ég stóð
þarna í Ásbyrgi með eitt barn við
hvora hönd og það þriðja í maganum
hugsaði ég með mér að ég yrði líklega
ekki landvörður alveg strax en svo
tók ég landvarðaréttindi árið 2018.
Steinunn skrifaði ásamt Auði Jóns-
dóttur og Báru Huld Beck bókina
Þjáningarfrelsið. Óreiða hugsjóna og
hagsmuna í heimi fjölmiðla, sem er
umræðubók um stöðu fjölmiðla.
„Uppistaðan í bókinni eru viðtöl við
fjölmiðlafólk og fræðinga þar sem
velt er upp mörgum hliðum á stöðu
fjölmiðla í samhengi við áratugina á
undan.“ Bókin kom út árið 2018, hún
hlaut Fjöruverðlaunin og var einnig
tilnefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna.
Félagsstörf Steinunnar hafa verið
á sviði kvenréttinda, enda má segja
að hún sé alin upp í Rauðsokkahreyf-
ingunni. „Mamma mín var meðal
stofnenda og fyrstu árin eftir stofnun
hreyfingarinnar var hún til húsa í
kjallaranum á heimili mínu í vest-
urbæ Reykjavíkur.“ Steinunn var í
stjórn Samtaka um kvennaathvarf á
árunum 2007-2012, þar af formaður
síðustu árin. Árið 2013 var hún kosin
formaður Kvenréttindafélags Íslands
og gegndi því embætti í tvö ár en sat
áfram í stjórn og varastjórn til ársins
2020.
„Helstu áhugamál myndu líklega
teljast útivist og bóklestur og svo er
ég forfallin prjónakona. Undanfarin
ár hef ég komið mér upp þeirri venju
að ef þess er nokkur kostur byrja ég
daginn á því að lesa í bók, helst að
minnsta kosti hálftíma. Þetta geri ég
áður en ég skoða fréttir eða sam-
félagsmiðla og er eiginlega hálf-
ómöguleg ef ég næ þessu ekki.“
Steinunn er í Stykkishólmi á af-
mælisdaginn með yngri dætrum sín-
um tveimur og sonum þeirra.
Fjölskylda
Eiginmaður Steinunnar var Arthur
Morthens, f. 27.1. 1948, d. 27.7. 2016,
sérkennari og ráðgjafi. „Við Arthur
fluttum snemma á búskaparferli okk-
ar á Seltjarnarnes þar sem við bjugg-
um ásamt dætrum mínum. Árið 2006
fluttum við aftur til Reykjavíkur og
settumst að í miðbænum þar sem ég á
enn heima.“ Foreldrar Arthurs voru
Guðbrandur Kristinn Morthens, f.
18.10. 1917, d. 4.12. 2002, listmálari í
Reykjavík og við Meðalfellsvatn, og
Grethe Skotte Pedersen, f. 18.3. 1928,
d. 30.1. 1982, fædd í Danmörku en
Steinunn Stefánsdóttir, blaðamaður og þýðandi – 60 ára
Fjölskyldan Stödd í Stadsparken í Lundi á tveggja ára afmælisdegi Ránar
og Sögu sumarið 2018. Á myndina vantar Önnu og Petru.
Landvarslan gamall draumur
Afmæli í Stykkishólmi Steinunn með yngri dætrum sínum tveimur og son-
um þeirra. F.v.: Anna, Steinunn, Arnlaugur, Hallgrímur, Halla og Johann.
Til hamingju með daginn