Morgunblaðið - 26.05.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2021
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
„VIÐ MYNDUM ALDREI KVARTA
YFIR NOKKRUM BÚKONUHÁRUM Á
EFRIVÖRINNI Á ÞÉR.“
„HEYRÐU ROBBI, ÉG KEMST EKKI Í KEILU
Í KVÖLD.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að þakka þér fyrir
hamingjuna í lífinu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NÆST ER KVIKMYNDIN
„MÚMÍAN SNÝR AFTUR“ SKELL!
ELSKAN, ÉG ER
KOMINN HEIM!
HA? ER TIL
„FRÚMÍA“?
HEFUR ÞIG EINHVERN TÍMANN
DREYMT AÐ ÞÚ SÉRT AÐ HLAUPA
MJÖG, MJÖG HÆGT? JÁ!
ÉG HELD AÐ OKKUR SÉ
AÐ DREYMA NÚNA!
VARÚÐ!
KVIKSYNDI
settist að í Reykjavík. Fyrri maður
Steinunnar er Tryggvi Þórhallsson, f.
20.6. 1962, lögfræðingur.
Börn Steinunnar og Tryggva eru
1) Helga Tryggvadóttir, f. 21.1. 1982,
krabbameinslæknir í Lundi í Svíþjóð.
Maki: Jón Þór Pétursson þjóðfræð-
ingur. Dætur þeirra eru Rán og Saga
Jónsdætur, f. 9.8. 2015; 2) Anna
Tryggvadóttir, f. 24.11. 1984, lög-
fræðingur í Reykjavík. Synir hennar
eru Arnlaugur Guðmundsson, f. 17.1.
2009, og Hallgrímur Guðmundsson, f.
25.4. 2012; 3) Halla Tryggvadóttir, f.
6.2. 1988, svæfingahjúkrunarfræð-
ingur í Kaupmannahöfn. Sonur henn-
ar er Johann Fredriksson Anthoni-
sen, f. 6.10. 2015. Stjúpsonur Stein-
unnar er Ólafur Arnar Arthursson
Morthens, f. 26.2. 1974, tölvunar-
fræðingur í Reykjavík Maki: Hall-
dóra Sigtryggsdóttir leikskólakenn-
ari. Börn þeirra eru Petra Ósk
Morthens Hafsteinsdóttir, f. 27.1.
1999, nemi í Gautaborg, Haraldur
Ingi Ólafsson Morthens, f. 4.6. 2003
og Arna Sigríður Ólafsdóttir
Morthens, f. 20.1. 2006.
Foreldrar Steinunnar: Móðir
hennar er Helga Ólafsdóttir, f. 4.6.
1937 í Reykjavík og hefur búið þar
fyrir utan 12 ár í Kaupmannahöfn,
bókasafnsfræðingur og lengst af for-
stöðumaður Blindrabókasafns Ís-
lands. Maki hennar er Hilmar Skarp-
héðinsson verkfræðingur. Faðir
Steinunnar var Stefán Karlsson, f.
2.12. 1928 á Belgsá í Fnjóskadal, d.
2.5. 2006 í Kaupmannahöfn. Stefán
var handritafræðingur og endaði
starfsævina sem forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar.
Steinunn
Stefánsdóttir
Kristján Ingjaldsson
bóndi á Mýri og víðar
Kristjana Steinunn
Árnadóttir
húsfreyja á Mýri í
Bárðardal og víðar
Karl Kristjánsson
bóndi á Belgsá
Jónasína Soffía Sigurðardóttir
húsfreyja á Belgsá í Fnjóskadal,
seinna ráðskona á Akureyri
Stefán Karlsson
handritafræðingur
í Reykjavík
Sigurður Davíðsson
bóndi á Veturliðastöðum
Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja á Veturliða-
stöðum í Fnjóskadal
Páll Ólafsson
bóndi á Litlu-Heiði
Guðrún Brynjólfsdóttir
ljósmóðir og húsfreyja
á Litlu-Heiði í Mýrdal
Ólafur Pálsson
mælingafulltrúi í Reykjavík
Steinunn Ögmundsdóttir
hjúkrunarkona í Reykjavík
Ögmundur Gíslason
bóndi á Laugarási
Helga Einarsdóttir
húsfreyja á Laugarási í
Biskupstungum og í Reykjavík
Úr frændgarði Steinunnar Stefánsdóttur
Helga Ólafsdóttir
bókasafnsfræðingur
í Reykjavík
Á Boðnarmiði orti Friðrik Stein-grímsson vísu dagsins:·
Slyddudrulla úti er
ekta vetrarbragur,
heldur napur heilsar mér
hvítasunnudagur.
Á föstudaginn sagði Jón Giss-
urarson að þrátt fyrir kuldann væri
vorið á fullum skriði:
Tófan gýtur greni í,
gæsin verpir enn á ný.
Merin kastar, kindin ber,
kæpir selur út við sker.
Tófan kæra yrðling á
ungar koma gæsum hjá.
Sé ég folald, líka lamb,
lítinn kóp við sjávarkamb.
Ég tek undir þetta „þakk-
arávarp“ Guðmundar Arnfinns-
sonar:
Til Hollands gerðu góða ferð
Gagnamagnið og Daði.
Þau eru okkar sómi og sverð,
ég set þau efst á blaði.
Þetta yrkir Guðmundur um
„íþróttakappa“:
Fótfimi rómuð hans Refs er,
en raunar mér stórum til efs er,
að framar hann standi
Stuðlakots-Brandi,
sem stekkur oft upp á nef sér.
Helgi Ingólfsson yrkir um limru-
gerð og bætir við innan sviga:
[Mætur FB-vinur minn benti mér á í
gær að Isaac Asimov hefði samið
yfir 100 blautlegar limrur.]
Hér fyrr vildi lengi vel loða
við limrur, að þær mætti hnoða
úr blautlegum leir
um Bínu og Geir
og bæta við alls konar hroða.
Enn yrkir Helgi:
Hann Tobbi er allur á iði
og útfarinn á þessu sviði
Ei tryggð sína gefur,
en tangarhald hefur
því Tobbi er skæruliði.
Steinn G. Lundholm yrkir:
Valdi gat valið úr svönnum
sem vongóðar biðu í hrönnum
en áhugalaus
enga þó kaus
því hann er sko maður með mönnum.
Ljótt er ef satt er, – Helgi Ing-
ólfsson yrkir:
Rógur er rætinn og slunginn.
Ráðabruggs- mikill er –þunginn.
Hart er að lifa,
er leikbrúður skrifa
og lögmaður sparkar í punginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísa dagsins og
eitt og annað