Morgunblaðið - 26.05.2021, Side 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mikill hugur er í forsvarsmönnum
Krikketsambands Íslands og leik-
mönnum íþróttarinnar hérlendis.
Fjögur lið eru nú í sambandinu og
er tveimur umferðum af sex lokið í
fyrsta móti sumarsins, Íslensku úr-
valsdeildinni, Icelandic Premier
League, sem var sett á laggirnar í
fyrra, en keppni ársins lýkur vænt-
anlega með æfingaferð landsliðsins
til Rómar þar sem meðal annars
verður keppt við lið Vatíkansins í
lok október. „Við viljum sjá íþrótt-
ina dafna á Íslandi og verða hluti af
alþjóðasambandinu,“ segir Bala
Kamallakharan, formaður Krikket-
sambandsins frá því í fyrra.
Íþróttin hefur byggst upp hægt
og sígandi hérlendis frá aldamót-
um. Lengi var aðeins eitt lið, þau
voru þrjú í fyrra og fjögur í ár;
Reykjavík (Víkingarnir, stofnað
sem Kylfan 2000), Kópavogur
(Lundarnir, stofnað 2015), Hafnar-
fjörður (Hamrarnir, stofnað 2018)
og Vesturbær (Eldfjallið, stofnað
2021). Auk þess hafa fimm lið æft
og leikið tímabundið, þ.e. Stykkis-
hólmur (2000-03), Trygginga-
miðstöðin (2001-02), Tata (2008),
Seltjarnarnes (2018) og Garðabær
(2018-20).
Um 10% flóttamenn
Leikmennirnir eiga flestir rætur
að rekja til þjóða innan breska
heimsveldisins, en þátttakendur af
íslenskum uppruna má telja á fingr-
um annarrar handar. „Við erum
með um 75 leikmenn og þar af eru
um 10% flóttamenn,“ segir Bala.
„Flóttamennirnir eru einangraðir
en krikket veitir þeim ákveðið frelsi
til að vera á meðal manna,“ heldur
hann áfram. „Við hvetjum þá sem
eru vanir íþróttinni, eins og til
dæmis í Srí Lanka, Pakistan og
Afganistan, til að vera með okkur,
því sem íþróttamenn tölum við allir
sama tungumál.“ Þetta hjálpi þeim
að aðlagast samfélaginu og styrki
þá og uppbyggingu íþróttarinnar
hérlendis.
Margir sérfræðingar frá löndum
þar sem krikket er vinsæl íþrótt
starfa á Íslandi um lengri eða
skemmri tíma og hafa sameinast í
greininni hérlendis. „Ég flutti til
dæmis til Íslands frá Indlandi 2006
en er orðinn íslenskur ríkisborgari
og á íslenska konu og tvö börn,“
segir Bala, sem er er stofnandi
Startup Iceland-ráðstefnunnar fyrir
frumkvöðla og frumkvöðla-
starfsemi. Þegar hann byrjaði að
spila krikket hérlendis var aðeins
eitt lið, sem æfði á Klambratúni og
lék við erlend fyrirtækjalið. Sam-
bandið var stofnað fyrir um áratug
og leikirnir hafa farið fram á Víði-
staðatúni í Hafnarfirði frá 2019.
Ihtisham-ul-Haq er landsliðsþjálf-
ari.
Krikket er ein vinsælasta íþrótt
heims hvað áhorfendur varðar. Bala
bendir á að íslensku leikjunum sé
streymt á Youtube og þeir séu því
aðgengilegir um víða veröld. „Um
2.000 manns horfa á leikina okkar á
netinu,“ segir hann. „Markmiðið er
að byggja upp innviðina, kynna
íþróttina í skólum, fá fulla aðild að
ÍSÍ og að Ísland verði viðurkennd
krikketþjóð innan 10 ára.“
Krikket sameinar hópa
- Bala Kamallakharan vill sjá Ísland í alþjóðasambandinu
Krikket Abdur Rehman, leikmaður Lundanna, Jegadeesh Subramaniyam,
samherji hans, og Lee Nelson úr Eldfjallinu í leik liðanna.
Lundar Bala Kamallakharan, David Abew-Baidoo og Nolan Williams.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202
hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennur frá GRÖVIK VERK í Noregi
Einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 146. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Leiknismenn komu verulega á óvart í gærkvöld þegar
þeir lögðu FH-inga að velli, 2:1, í Pepsi Max-deild karla í
fótbolta. HK náði líka óvæntu stigi gegn KR í Vestur-
bænum þar sem liðin skildu jöfn, 1:1, og Fylkismenn
jöfnuðu undir lokin gegn Víkingum og komu í veg fyrir
að þeir færu aftur upp fyrir Val og í efsta sæti deild-
arinnar. »23
Óvænt úrslit í þremur leikjum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Tónlistarmaðurinn Eyjólf-
ur Kristjánsson verður
gestur starfsbróður síns,
Jóns Ólafssonar, í spjall-
tónleikaröðinni Af fingr-
um fram annað kvöld í
Salnum í Kópavogi. Hefj-
ast tónleikarnir kl. 20.30.
Eyjólfur, jafnan kallaður
Eyfi, vakti fyrst athygli
með Hálft í hvoru og síðar
með Bítlavinafélaginu.
Hefur hann samið þjóð-
þekkt og sívinsæl lög á
borð við „Danska lagið“,
„Nínu“ og „Ég lifi í
draumi“ og segir á vef
Salarins að „frásagnargáfa í hæsta gæðaflokki, laga-
smíðar par excellance og kímnigáfa í ríkum mæli ætti
að tryggja afbragðskvöldstund“.
Af fingrum fram með Eyjólfi Krist-
jánssyni og Jóni Ólafssyni í Salnum