Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021 hafa áhyggjur af öllum þessum svörtu hlut- um og húsgögnum sem flæddu inn á heimilið eftir flutningana, en plöntur og listaverk glæða heimilið litum í staðinn.“ Myndlist gefur persónuleika Hvaða máli skiptir að vera með fallega myndlist heima? „Svo að ég tali nú aðeins meira um gamla heimilið, þá vorum við þar með vinnustofu skúr sem þjónaði líka því hlutverki að vera gallerí. Núna er ég með vinnuaðstöðu hér inni í íbúðinni og íbúðin er smátt og smátt sýnist mér að breytast í gallerí með mínum eigin myndum! Það mun nú samt breytast fljótlega. Bæði vegna þess að ég er með myndir í Galleríinu við Skólavörðustíg 20 og nú fer ég að kaupa myndlist eftir aðra lista- menn sem hæfa þessu húsnæði. Myndlist skiptir mig gríðarlega miklu máli. Myndlist gefur heimilum persónuleika og sérstöðu, sérstaklega á heimilum eins og mínu þar sem húsgögnin eru meira og minna svört. Ég kem úr listrænni fjölskyldu þar sem allir virðast getað teiknað þó að ekki hafi all- ir lagt það fyrir sig. Ég er með myndir eftir afa minn, Einar Helgason, móðursystur mína, Hrönn Einarsdóttur, manninn minn, Heimi Frey Hlöðverson, og svo á ég verk eft- ir mömmu, ömmu og fleiri sem ekki eru kom- in með stað á vegg.“ Íris er mikið fyrir lifandi blóm. „Ég er náttúrulega blómasjúk! En vil helst engin lítil krúttblóm, heldur myndi ég vilja fylla íbúðina af trjám. En þessi íbúð býður ekki upp á frumskóg. Ég er búin að losa mig við einhverjar plöntur en ég er með ban- anatré og tveggja metra sítrónutré sem ég nýt þess að umpotta og tala við.“ Reynir að eiga sem minnst af húsgögnum Áttu þér uppáhaldshúsgagn? „Í raun tengist ég engum hlutum tilfinn- ingaböndum og reyni að eiga sem minnst af húsgögnum og hlutum en sófinn er sennilega mest notaða húsgagnið hér heima. Enda náum við öll fjögur að kúldrast í honum sam- an. Fallegasta húsgagnið á heimilinu er sennilega borðstofuborðið úr Tekk-Habitat sem situr í miðri íbúðinni eins og hjarta heimilisins.“ Hvað með skipulag á heimilinu, spáir þú mikið í það? „Ég var nú lengi vel með allar bækur í lita- og stærðarröð en reyni meðvitað að brjótast út úr þannig skringilegheitum. En ég er í grunninn mjög skipulögð og mik- ilvægt að allir hlutir eigi sér stað. Því hentar mér best að eiga sem minnst því þá er minna að ganga frá.“ Þegar kemur að draumahlutum sem Íris á eftir að kaupa fyrir íbúðina þá er spegill henni ofarlega í huga. „Mig dreymir um svartan spegil á ganginn sem mætti alveg vera svolítið íburðarmikill og dansa á línunni að vera í „baroque“-stíl. En það er mikið til af fallegum húsgögnum núna. Ég er hrifin af náttúrulegum viði, ratt- an-efni og Marokkó-mottur heilla mig.“ Minimalísk og vil sporna við offramleiðslu Hvað með fataskápinn – nú ertu menntað- ur hönnuður, spáir þú mikið í fatnað og fylgi- hluti? „Ég fór í gegnum síðasta ár án þess að kaupa mér föt. Það var áramótaheitið mitt að kaupa hvorki ný né notuð föt. Alls ekki af því ég hafi átt svo mikið af fötum fyrir, þvert á móti, heldur til reyna að leggja mitt af mörk- um í offramleiðslu heimsins á vefnaði. Ég nota ekki skart og varla töskur og á bara eitt par af skóm fyrir hvert tilefni. Eina íþróttaskó, eina hæla, eina dagsdaglega og eitt par af stígvélum. Ætli ég teljist ekki minimalísk í þeim efnum. Ég spái samt mjög mikið í fatnaði, skoða strauma og stefnur hverju sinni mér til ánægju. Eins fell ég oft fyrir undarlegum flíkum. Dúskum og doppum í bland við einföld snið.“ Hvað er draumastellið þitt? „Á Langholtsveginum er lítil perla sem heitir Mixmix með ótrúlega mikið af fallegum vörum fyrir heimilið. Ég kíki alltaf reglulega þar við þegar ég á leið hjá. Ég hef nú alveg keypt hluti þar sem myndu túlkast sem óþarfa hlutir en ég bara varð að taka þá með heim. Eins og páfagaukastyttu og gullfasana. En þar er mikið úrval af borðbúnaði og nokkur stell sem ég elska. Við maðurinn minn áttum heima í Madríd í fjögur ár og er- um alltaf að reyna að finna leið til að koma smá suðrænni stemningu inn á heimilið. Svona á meðan við eigum ekki íbúð á Spáni. Merkin Merci og Pascale Naessens í Mixmix eru svo dásamleg því að engir tveir hlutir eru alveg eins og leirinn fær að njóta sín.“ Falleg listaverk eru höfð inni í klassískum kristalsdómum heima hjá fjölskyldunni. Íbúðin er smátt og smátt að breytast í lista- gallerí að sögn Írisar Auðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinnuaðstaðan í eldhúsinu er góð. Innréttingin í eldhúsinu er úr Parka. Borðplatan er klassískur spónn. Mál- verkið af konunni er eftir Írisi Auði en við hlið hennar stendur málverk eftir list- málarann Einar Helgason. Í raun tengist ég engum hlut- um tilfinninga- böndum og reyni að eiga semminnst af húsgögnum og hlutum en sóf- inn er senni- lega mest not- aða húsgagnið hér heima. Myndlist eftir Írisi Auði er fáanleg í Galleríinu Skólavörðustíg 20. Skál úr línu Jamie Oliver. Gylltur fugl úr Mixmix. Málverk eftir Írisi Auði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.