Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 6
leyfðu mér að ráða för að miklu leyti. Þegar
manni er treyst svona vel þá er samt mjög
mikilvægt að vinna grunnvinnuna vel og
greina þarfir eigendanna og hvaða væntingar
og óskir þeir hafa. Eigendurnir lögðu upp með
að skapa hlýlegt heimili sem væri þægilegt í
umgengni. Það sem ég hef reyndar að leið-
arljósi í öllum verkefnum mínum er að reyna
að skapa tímalausa umgjörð með vönduðu efn-
isvali,“ segir hún.
Hægt að breyta öllu með því að mála
Litapallettan í húsinu er mjúk. Hvers vegna
fórstu þá leið?
„Litirnir sem valdir voru leika mikilvægt
hlutverk við skapa þessa hlýlegu stemningu
sem við sóttumst eftir. Við notuðum jarðliti úr
litapallettu minni, Roma, sem ég hafði nýlega
sett saman fyrir Sérefni þegar þetta verk var
unnið. Litirnir eru í rauðbrúnum og karrýgul-
um og beige-tónum og þóttu frekar djarfir og
dökkir þegar ég kom fyrst með þá. Núna þykir
þetta minna mál og fleiri farnir að treysta sér í
að mála með þeim. Með því að breyta um liti
eftir 5-6 ár má síðan skipta algjörlega um
„lúkk“.“
Undir ítölskum áhrifum
Hvernig notaðir þú efnisvalið til að ná fram
þessum hlýleika sem eigendurnir sóttust eftir?
„Mér finnst mikilvægt að allt efnisval í hús-
inu falli saman og myndi eina heild. Ég er ekki
hrifin af því að einstakir hlutir eða veggir
keppist um athyglina. Litir á veggjum, glugga-
tjöld, áklæði, gólfefni og innréttingar tóna
saman og mynda mjúka heild. Ég lærði á sín-
um tíma á Ítalíu og ef það er eitthvað sem ég
reyndi að taka með mér þaðan þá var það þetta
næma auga sem Ítalir hafa fyrir efnissamsetn-
ingum og litatónum. Húsgögnin sem við völd-
um í stofuna eru til dæmis frá Minotti á Ítalíu
sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér enda ein-
staklega vönduð og gott dæma um tímalausa
og fágaða ítalska hönnun.
Við völdum fallegar gólfflísar í hlýjum gul-
beige tónum á allt húsið. Þær eru ótrúlega
praktískar og auðveldar í notkun. Með því að
hafa flísaranar á öllu húsinu fær hlýr og vand-
aður viðurinn í innréttingum og innihurðum
alls staðar að njóta sín,“ segir Rut og bendir á
að þegar parket sé á gólfum sé það stundum að
keppa við viðinn í innréttingunum. Hún segir
að það geti þó alveg unnið saman.
„Lýsingin er síðan mikilvægur þáttur til
sem skapar hlýleika, sérstaklega þegar not-
aðir eru dökkir litir eins og í þessu tilfelli. Oft
gleymist að hugsa um lýsinguna sem hluta af
hönnuninni og hversu mikilvægt það að er að
vinna með góðum lýsingarhönnuðum.“
Nú er hljóðvist oft vandamál í nýjum húsum,
var eitthvað hugsað um það?
„Það alltaf best að vinna með þetta atriði
strax í grunnhönnuninni og ýmislegt hægt að
gera til að hljóðvistin verði góð. Í þessu verk-
efni settum við svartan hljóðdúk í loftin og mér
finnst hann algjör snilld, bæði vegna betri
hljóðvistar og hvernig hann auðveldar alla
vinnu við raflagnir og staðsetningu ljósa. Þess-
ir hljóðdúkar eru sérstaklega hannaðir með
það í huga að þeir dempi hljóð í rýminu og
komi í veg fyrir bergmál.“
Geggjaður gangur
Gangurinn er mjög sérstakur með klæðn-
ingu og lýsingu. Hver er hugsunin á bak við
það?
„Mér finnst alltaf gaman að vinna með auka-
rýmin í húsum, það er að segja ganga, forstofu
og önnur rými sem tengja sama aðalrýmin.
Það er svo skemmtilegt að láta þessi rými
koma svolítið á óvart þar sem enginn á von á
neinu. Með því að hanna þessi rými til enda þá
ertu líka búin að koma þeim í „öruggt skjól“
þannig að eigendurnir fari nú ekki að prjóna
eitthvað sjálfir þar,“ segir Rut og hlær.
Hillurnar í stofunni, er það eitthvað sem er
að koma aftur inn?
„Hugmyndin hér var fyrst og fremst að hafa
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
Gangurinn er sérstakur en á honum er vegg-
klæðning sem býr til skemmtilega stemningu.
Hér má sjá sérsmíðaðar hillur
sem Rut teiknaði. Sófinn er úr
Húsgagnahöllinni og pullan
kemur úr Snúrunni. Það er
skraut í hillunum, en þó ekki í
þeim öllum heldur fær við-
urinn að njóta sín og anda.
Ég er ekki hrifin af því
að einstakir hlutir eða
veggir keppist um at-
hyglina. Litir á veggj-
um, gluggatjöld,
áklæði, gólfefni og inn-
réttingar tóna saman
ogmyndamjúka heild.
Í loftunum í húsinu er loft-
dúkur frá Enso. Rut segir
að hann skapi góða hljóð-
vist. Innréttingarnar eru
sérsmíðaðar hjá Hegg.
5 SJÁ SÍÐU 8
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021