Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.05.2021, Qupperneq 6
leyfðu mér að ráða för að miklu leyti. Þegar manni er treyst svona vel þá er samt mjög mikilvægt að vinna grunnvinnuna vel og greina þarfir eigendanna og hvaða væntingar og óskir þeir hafa. Eigendurnir lögðu upp með að skapa hlýlegt heimili sem væri þægilegt í umgengni. Það sem ég hef reyndar að leið- arljósi í öllum verkefnum mínum er að reyna að skapa tímalausa umgjörð með vönduðu efn- isvali,“ segir hún. Hægt að breyta öllu með því að mála Litapallettan í húsinu er mjúk. Hvers vegna fórstu þá leið? „Litirnir sem valdir voru leika mikilvægt hlutverk við skapa þessa hlýlegu stemningu sem við sóttumst eftir. Við notuðum jarðliti úr litapallettu minni, Roma, sem ég hafði nýlega sett saman fyrir Sérefni þegar þetta verk var unnið. Litirnir eru í rauðbrúnum og karrýgul- um og beige-tónum og þóttu frekar djarfir og dökkir þegar ég kom fyrst með þá. Núna þykir þetta minna mál og fleiri farnir að treysta sér í að mála með þeim. Með því að breyta um liti eftir 5-6 ár má síðan skipta algjörlega um „lúkk“.“ Undir ítölskum áhrifum Hvernig notaðir þú efnisvalið til að ná fram þessum hlýleika sem eigendurnir sóttust eftir? „Mér finnst mikilvægt að allt efnisval í hús- inu falli saman og myndi eina heild. Ég er ekki hrifin af því að einstakir hlutir eða veggir keppist um athyglina. Litir á veggjum, glugga- tjöld, áklæði, gólfefni og innréttingar tóna saman og mynda mjúka heild. Ég lærði á sín- um tíma á Ítalíu og ef það er eitthvað sem ég reyndi að taka með mér þaðan þá var það þetta næma auga sem Ítalir hafa fyrir efnissamsetn- ingum og litatónum. Húsgögnin sem við völd- um í stofuna eru til dæmis frá Minotti á Ítalíu sem eru í algjöru uppáhaldi hjá mér enda ein- staklega vönduð og gott dæma um tímalausa og fágaða ítalska hönnun. Við völdum fallegar gólfflísar í hlýjum gul- beige tónum á allt húsið. Þær eru ótrúlega praktískar og auðveldar í notkun. Með því að hafa flísaranar á öllu húsinu fær hlýr og vand- aður viðurinn í innréttingum og innihurðum alls staðar að njóta sín,“ segir Rut og bendir á að þegar parket sé á gólfum sé það stundum að keppa við viðinn í innréttingunum. Hún segir að það geti þó alveg unnið saman. „Lýsingin er síðan mikilvægur þáttur til sem skapar hlýleika, sérstaklega þegar not- aðir eru dökkir litir eins og í þessu tilfelli. Oft gleymist að hugsa um lýsinguna sem hluta af hönnuninni og hversu mikilvægt það að er að vinna með góðum lýsingarhönnuðum.“ Nú er hljóðvist oft vandamál í nýjum húsum, var eitthvað hugsað um það? „Það alltaf best að vinna með þetta atriði strax í grunnhönnuninni og ýmislegt hægt að gera til að hljóðvistin verði góð. Í þessu verk- efni settum við svartan hljóðdúk í loftin og mér finnst hann algjör snilld, bæði vegna betri hljóðvistar og hvernig hann auðveldar alla vinnu við raflagnir og staðsetningu ljósa. Þess- ir hljóðdúkar eru sérstaklega hannaðir með það í huga að þeir dempi hljóð í rýminu og komi í veg fyrir bergmál.“ Geggjaður gangur Gangurinn er mjög sérstakur með klæðn- ingu og lýsingu. Hver er hugsunin á bak við það? „Mér finnst alltaf gaman að vinna með auka- rýmin í húsum, það er að segja ganga, forstofu og önnur rými sem tengja sama aðalrýmin. Það er svo skemmtilegt að láta þessi rými koma svolítið á óvart þar sem enginn á von á neinu. Með því að hanna þessi rými til enda þá ertu líka búin að koma þeim í „öruggt skjól“ þannig að eigendurnir fari nú ekki að prjóna eitthvað sjálfir þar,“ segir Rut og hlær. Hillurnar í stofunni, er það eitthvað sem er að koma aftur inn? „Hugmyndin hér var fyrst og fremst að hafa Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson Gangurinn er sérstakur en á honum er vegg- klæðning sem býr til skemmtilega stemningu. Hér má sjá sérsmíðaðar hillur sem Rut teiknaði. Sófinn er úr Húsgagnahöllinni og pullan kemur úr Snúrunni. Það er skraut í hillunum, en þó ekki í þeim öllum heldur fær við- urinn að njóta sín og anda. Ég er ekki hrifin af því að einstakir hlutir eða veggir keppist um at- hyglina. Litir á veggj- um, gluggatjöld, áklæði, gólfefni og inn- réttingar tóna saman ogmyndamjúka heild. Í loftunum í húsinu er loft- dúkur frá Enso. Rut segir að hann skapi góða hljóð- vist. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar hjá Hegg. 5 SJÁ SÍÐU 8 6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.