Morgunblaðið - 21.05.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.05.2021, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 39 H elga Mar- grét á þrjú börn með eig- inmanni sínum Kjartani Páli. Fjölskyldan hefur búið fallega um sig í Kópavogi þar sem húsmóðirin á heim- ilinu nýtur sín í eld- húsinu að prófa sig áfram með heilsu- rétti sína sem hafa slegið í gegn að und- anförnu. Helga Margrét æfir mik- ið og hefur fundið það af eigin raun hvað næring skiptir miklu máli fyrir æfingar og í lífinu öllu. Hún deil- ir með fólki á Instagram-síðunni sinni „helgamagga“ hugmyndum að hollri nær- ingu og hefur það að markmiði að hvetja fólkið í kringum sig áfram. Sáu mikil tækifæri í eigninni Hvað getur þú sagt mér um heimilið þitt? „Við keyptum þessa íbúð haustið 2019 og sáum mjög mikil tækifæri í eigninni og ákváðum strax að taka hana alla í gegn. Eldhúsið var í litlu herbergi í enda íbúðar- innar og þar við hliðina voru tvær samliggj- andi stórar stofur. Það lá því beinast við að færa eldhúsið yfir í aðra stofuna og opna á milli yfir í hina stofuna. Eldhúsið er núna al- gjörlega hjartað í íbúðinni og svo fengum við með þessu auka svefnherbergi sem veitir ekki af með þrjú börn á heimilinu. Baðherbergið var einnig góð áskorun en það var virkilega áhugavert í útliti svo ekki sé meira sagt. Það eru myndir af því eins og það var á Instagram-síðunni minni en þar voru þrjár mismunandi litasamsetningar af marmara samankomnar. Það tók um fjóra daga að brjóta baðherbergið allt niður áður en við gátum hafist handa við að byggja það upp aftur. Við vorum virkilega heppin að ná að krækja í þessa eign og líður okkur dásam- lega vel hér.“ Hönnuðu eldhúsið í sameiningu Hvað getur þú sagt mér um eldhúsið þitt? „Ég og maðurinn minn hönnuðum eldhús- ið í sameiningu. Við vorum með stórt rými og vildum hafa stóra eyju og mikið skápa- pláss. Við vorum bara bundin af því hvar vaskurinn gæti verið þar sem við vorum að færa lagnir yfir vegginn svo það var upp- hafspunkturinn. Restin var svo ákveðin út frá staðsetningunni á vaskinum og upp- þvottavélinni. Maðurinn minn teiknaði þetta allt upp en hann er einstaklega handlaginn og góður í öllu svona. Krakkarnir elska að sitja við eyjuna og svo finnst mér líka frá- bært að hafa eldhúsið stórt og opið og sjá vel yfir í stofuna. Það er einnig gaman að hafa eldhúsið opið ef við erum með gesti í mat.“ Kettirnir í hverfinu átu kalkúninn Hvaðan eru innréttingarnar í eldhúsinu? „Innréttingin er frá IKEA. Þegar við vor- um búin að fá helminginn afhentan fengum við þær upplýsingar að innréttingin væri hætt í framleiðslu og óvíst hvort við mynd- um fá restina af framhliðunum sem vantaði. Þetta var í miðri fyrstu bylgju kórónuveir- unnar og enginn vissi neitt þar sem var far- ið að hægja á öllum sendingum. Þetta leyst- ist þó sem betur fer allt á endanum en tók sennilega fimm sinnum lengri tíma að fá allt afhent en við höfðum gert ráð fyrir. Það er ekki svo langt síðan við fengum síðustu skápaframhliðarnar og eigum því enn eftir að láta sérsmíða fyrir okkur búrskáp sem mun loka af hornið þar sem hrærivélin og blandarinn eru núna. En góðir hlutir gerast hægt, var ekki einhver sem sagði það?“ Aðspurð um stílinn á heimilinu segir hún hún vilji hafa hlýlegt í kringum sig. „Heim- ilið þitt þarf að vera þannig að þér líði vel þar öllum stundum. Við fengum Erlu Heim- is í Lýsingu og hönnun til að aðstoða okkur við lýsinguna á heimilinu. Við tókum niður loftið í eldhúsinu. Erla teiknaði upp fyrir okkur lýsinguna þar og gaf ráðleggingar varðandi restina af heimilinu. Lýsing skiptir svo miklu máli sérstaklega hér á landi á veturna. Erla sagði okkur til dæmis að börn leika sér mun meira í herbergjunum sínum ef lýsingin er góð.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Pizza! Við fjölskyldan erum alltaf með heimabakaða pizzu á föstudögum. Nýlega erum við farin að baka súrdeigspizzur úr okkar eigin súr. Það er heilmikil stemning í kringum þetta hjá okkur og alltaf eitthvað nýtt álegg prófað vikulega á eina pizzu. Við sitjum vanalega við eyjuna og pizzurnar eru borðaðar um leið og þær koma úr ofninum.“ „Eldhúsið var í litlu herbergi“ Helga Margrét Gunnarsdóttir og Kjartan Páll Sæmundsson búa í fallegri íbúð í Kópavogi sem þau hönnuðu og gerðu upp saman. Þau ákváðu að láta eldhúsið verða miðpunkt heimilisins enda veit hún fátt skemmtilegra en að prófa sig áfram þegar kemur að hollustu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vegna kórónuveirunnar kom einvörðungu hluti af eldhúsinnréttingunni á réttum tíma. Það leit ekki vel út með eldhúsið um tíma því innréttingarnar komu ekki allar á sama tíma vegna kórónuveirunnar. Helga Margrét veit fátt skemmtilegra en að prófa sig áfram þegar kemur að holl- um mat og gæða fæði. Glæsilegar hönn- unarvörur eru hafðar með eldri antíkhúsgögnum. Speglaskápahurðir eru að verða sífellt vinsælli. Stílhreint heimili með náttúru- legum litum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.