Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021
Fæst í apótekum og heilsuhillum stórmarkaða.
hugar að þinni heilsu!
E
ldgosið í Geldingadölum hélt
áfram að breytast og þróast
með stuttum hrinum og gos-
hléum, svo að í upphafi viku veltu
jarðeðlisfræðingar því fyrir sér
hvort senn liði að goslokum, en í
vikulok struku gráskeggir vangann
og töldu það geta enst árum saman
enn.
Margvísleg batamerki mátti sjá í
ferðaþjónustu, en gríðarleg aukning
varð í bókunum frá Bandaríkjunum
og raunar mátti víða sjá og heyra
fyrstu bandarísku vorboðana blaka
platínukortum sínum.
Skemmdarverk voru unnin á kopar-
lágmyndinni Brautryðjandanum eft-
ir Einar Jónsson á stalli líkneskis
Jóns Sigurðssonar á Austurvelli,
þegar eitthvert fífl málaði yfir hana
með gullspreyi.
126 konur gengu á Hvannadals-
hnúk til styrktar nýrri krabba-
meinsdeild á Landspítalanum.
Þrátt fyrir heimsfaraldurinn lagðist
ekki allt tónleikahald af. Um fjögur
þúsund miðar hafa þannig selst á
fimm streymistónleika á vegum
Senu. Miðasalan skilaði um 130
milljónum króna.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur
fjallað um 191 mál vegna óumbeð-
inna fjarskipta á tímabilinu 2017 til
2020, en enginn hefur þó verið sekt-
aður til þessa.
Efnahagslífið virðist taka nokkrum
breytingum þessa dagana, eins og
sést á því að sala á nýjum bílum
jókst um 110% í apríl frá sama tíma í
fyrra.
Seljendur fasteigna mala af ánægju
þessa dagana, en takmarkað fram-
boð og lágir vextir hita upp fast-
eignamarkaðinn. Sérfræðingur telur
að allt að 14% hækkunar á árs-
grundvelli sé að vænta á árinu.
. . .
Hraunslettur úr gosinu í Geldinga-
dölum stækkuðu talsvert, svo til
greina kom að stækka hættusvæðið
í kringum gosstöðvarnar.
Trú mannkyns á ástina dvínaði mjög
þegar hjónin Bill og Melinda Gates
tilkynntu að þau væru að skilja. Trú
manna á kaupmála jókst hins vegar
talsvert.
Seðlabanki Íslands dró úr við-
skiptum sínum á gjaldeyrismarkaði,
en dr. Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri sagði að ekki væri lengur
ástæða fyrir bankann að vera með
regluleg inngrip. Frá því í sept-
ember í fyrra hefur bankinn selt 453
milljónir evra.
Umhverfisráðherra upplýsti að
heildarkostnaður sveitarfélaga
vegna refaveiða næmi tæpum millj-
arði króna síðastliðin tíu ár. Árlega
eru veiddir 5-7 þúsund refir, en
stofninn helst mjög stöðugur í níu
þúsund rebbum.
Nova gagnrýndi nýtt frumvarp til
fjarskiptalaga, sem það telur að
stefni Huawei-græjum sínum í
voða. Áhyggjur hafa verið af því
að fjarskiptatæki frá hinu kín-
verska Huawei ógni upplýsinga-
öryggi.
Rafskútufaraldurinn breiðist út, en
þær má nú ekki aðeins finna á höfuð-
borgarsvæðinu, heldur hafa þær
m.a. skotið upp kollinum á Akureyri,
Vestmannaeyjum og Múlaþingi.
. . .
Atvinnuástandið er eins og það er,
en það virðist lítil áhrif hafa á enda-
lausa hækkun kaupgjaldsins. Jafn-
vel í Vinnuskóla Reykjavíkur mun
það hækka um allt að 40% í sumar,
enda Dagur borgarstjóri eins og
Mídas sjálfur.
Gert var ráð fyrir því að um 40 þús-
und manns yrðu bólusettir í vikunni,
enda ekki hörgull á bóluefni. Hins
vegar varð þess vart er á leið vikuna
að talsvert færri sinntu boðun í bólu-
setningu, enda ekki um jafn-
takmörkuð gæði að ræða og áður.
. . .
Ekki var nóg með að jarðeldar log-
uðu á Reykjanesi, heldur tóku
sinueldar að loga í Heiðmörk, svo
um 50 hektarar lands urðu eldi að
bráð, enda óvenjulangur þurrkur.
Þá kom hins vegar í ljós að þyrlu-
deild Landhelgisgæslunnar er
þrautþjálfuð í að berjast við skóg-
arelda og hefur leitað skóga úr lofti
í mörg ár.
Birgir Jónsson forstjóri flugfélags-
ins Play sagði áhuga fjárfesta á fé-
laginu mikinn, raunar miklu meiri
en nógan, félagið hefði vart undan
við að berja þá af sér með prikum.
Áætlað er að nokkur hundruð
manns vinni fyrir félagið eða verk-
taka þess í sumar.
Hraunflæði í Geldingadölum jókst
og var hættusvæðið því stækkað. Má
segja að við gígana hafi verið linnu-
lítil flugeldasýning, sem sást greini-
lega af höfuðborgarsvæðinu.
Enn berast tölur um kostnað vegna
styttingar vinnuviku, en þannig er
talið að hún auki kostnað hjúkr-
unarheimila um 10-15%.
Þrátt fyrir að vel gengi að bólusetja
og sáralítið um smit voru sóttvarna-
reglur framlengdar um viku.
Nokkuð fór um mannskapinn þegar
sóttvarnalæknir upplýsti að hættan
væri ekki liðin hjá þótt kórónuveiran
dalaði. Þarna úti biði alls kyns óværa,
gubbupestir og fleira, svo sennilega
verðum við öll með grímu og tveggja
metra reglu það sem eftir er.
Kristján Þór Júlíusson landbún-
aðarráðherra kynnti nýtt umræðu-
skjal um landbúnaðarstefnu til
framtíðar, en þar var m.a. boðað
breytt fyrirkomulag opinbers stuðn-
ings við landbúnað. Í sama mund
kynnti ráðherrann að heimaslátrun
væri hér eftir heimil.
Opinber skýrsla leiddi í ljós að ekki
hafði minna en 2,1 milljarði króna
verið varið í girðingar á vegum hins
opinbera. Fram kom að ýmis tæki-
færi væru í þessari áður óþekktu at-
vinnugrein, sem ekki skal efað.
Haldin var vefráðstefna í tilefni þess
að 70 ár voru liðin frá undirritun
varnarsamningsins við Bandaríkin,
en þar talaði ótrúlegur fjöldi manna
um þetta athyglisverða efni. Einna
fróðlegast var þó að hlýða á Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra,
sem sagði að þrátt fyrir órjúfanlega
andstöðu flokks hennar við varnar-
samstarfið styddi hann það heils-
hugar. Eða eitthvað þannig.
. . .
Fram kom að alþjóðasamtök SOS
barnaþorpa hefðu lokað augunum
fyrir tilkynningu um barnaverndar-
brot innan vébanda sinna og að yfir-
stjórn þess hefði jafnvel bundið enda
á rannsókn á þeim. Landssamtökin
á Íslandi, Noregi og víðar léku lykil-
hlutverk við upplýsingu þessa.
Atvinnutilboðum fjölgar ákaflega og
hefur ört dregið úr atvinnuleysi.
Flest þessara starfa tengjast átak-
inu Hefjum störf og eru um sex
þúsund talsins.
Talsvert bar á fregnum um að bólu-
setning hefði farið misjafnlega í fólk
og einhverjir jafnvel lagst í bælið,
þótt yfirleitt tæki það nú skjótt af.
Sérfræðingar sögðu um viðbúin við-
brögð að ræða og sögðu bólusetn-
ingu mun hættuminni en veikindi af
völdum kórónuveirunnar.
Stóraukin umferð hefur verið á
hringveginum, sem m.a. er talið til
marks um að mannskepnan sé að
jafna sig eftir faraldurinn. Nú eða að
það sé farið að vora.
Norskt fyrirtæki keypti allt hlutafé í
sælgætisgerðinni Nóa-Siríusi og
óttast margir nammigrísir að við
það hverfi menningarauður eins og
uppskriftin að suðusúkkulaði úr
landi.
Mikil brögð hafa verið að því að ís-
lenskir ríkisborgarar í útlöndum
hafi flutt aftur til Íslands síðustu
misseri, sem flestir vilja rekja til
einhvers konar viðbragða við heims-
faraldrinum. Aðflutningurinn hefur
leitt til íbúafjölgunar í landinu.
Reykjavíkurborg kynnti fyrirætl-
anir um að koma fyrir leikskóla á
Hagatorgi. Þess verður vart langt
að bíða að sett verði upp hásæti fyrir
borgarstjóra á Tjarnarhólmanum.
. . .
Áfram var haldið að bólusetja í
Laugardalshöll og greip þar um sig
þjóðhátíðarstemning og múgsefjun
eftir að sjálfur Daddi diskó var
ræstur út og látinn þeyta skífum til
þess að skemmta liðinu meðan það
var sprautað.
Grímseyingar þurfa að fara til
Akureyrar í bólusetninhgu og leggja
það á sig þó að ferðin sé dýr þegar
allt er talið.
Forstjóri Vinnumálastofnunar tel-
ur að atvinnuþátttaka muni aukast
hratt í sumar og að þess megi vel
vænta að úrræði skapi ýmis varan-
leg störf. Þátttakan er nú með því
allra minnsta.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra tilkynnti að hún
myndi sækjast eftir 1. sæti í próf-
kjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík,
svo þar verður oddvitaslagur fyrstu
helgi í júní. Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra vill líka
hreppa þetta sæti.
Vinsældir nýja baðlónsins við Kárs-
nes voru svo miklar í veðurblíðunni
að allt varð uppselt.
Ringulreið á
hringtorgi
Rætist draumsýn borgarstjóra mun Hagatorg
umbreytast í leikskóla eins og fyrir töfra.
Morgunblaðið/RAX
2.5.-7.5.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is