Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021 VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is F immtudagur: 12.25 Ég geng út úr Laugardalshöllinni með bros á vör. Búinn á árgangsmóti sem var betur skipulagt en brúðkaup hjá áhrifavaldi. Búinn að hitta fólk sem ég var með í skóla, hlusta á plötusnúð sem hélt uppi stuðinu og nú bólu- settur til hálfs. Heiður himinn, sólin leikur við mig og ég fæ þessa frábæru tilfinningu að það sé allt að koma. Landið virðist vera að fyllast af ferðamönn- um, goretex er orðið ráðandi efni í bænum. Aftur heyrist hið ómþýða hljóð í tösku á hjól- um eftir íslenskri gangstétt og allt er að keyra sig í gang. Það er annar tónn í fólki. Meira að segja veitingamenn eru bjartsýnir. Búið að stofna þetta fína flugfélag sem á svo mikinn pening að það þarf ekki að byrja að fljúga frekar en það vill. Hitt flugfélagið búið að sigrast á öllum hrakspám og til í slaginn. Túristarnir eru að raða sér upp úti í heimi til að sjá þetta stórkostlega, glæsilega en samt svo meðfærilega eldgos og það er búið að bóna rúturnar. Allir eru tilbúnir til að mæta aftur til leiks eins og ekkert hafi í skor- ist. Við erum með allt á hreinu núna. Sótt- varnir í þessu líka fína lagi. Þórólfur farinn að brosa og Kári óvenju (allt að því) blíður á svip. Bóluefnið streymir til landsins hraðar en okkur hefði dreymt um. Við erum í topp- málum. 14.55 Ég er kominn aftur í Laugardalinn og nú er eins og hún sé að springa. Bílar út um allt. Búið að loka afleggjaranum að Höllinni en öllum er slétt sama. Hér kemur fólk nánast hlaupandi til að fá óvænta bólusetningu. Allir eru glaðir og kátir. (Ég er reyndar kominn hingað til að sækja vin minn og vinnufélaga sem missti meðvit- und í bólusetningunni, rankaði við sér bull- sveittur og vissi hvorki í þennan heim né ann- an. Í búningi Sunderland. En það er önnur saga og lengri.) Föstudagur: 02.25 Ég er kominn með aukaverkanir. Hita og orðinn slappur. Get ekki sofið. Veit ekki alveg hvort ég er með beinverki því mér tókst að fljúga á hausinn í Vesturbæjarlauginni og er einn stór marblettur og með myndarlegan skurð á olnboganum. Golfsumarið í óvissu. Ég man að ég á eftir að skrifa pistil og allt í einu er ég ekki jafn bjartsýnn. Hvað ef það kemur upp enn eitt hópsmitið? Rétt þegar við höldum að við séum komin í öruggt skjól. Það hefur nú gerst áð- ur. Eða ný stökkbreyting? Hvað ef þetta eldgos hættir? Sveiflurnar í því eru eins og hjá unglingi á miðju gelgju- skeiðinu. Við getum séð gosið á vefmynda- vélum og það er eins og að vaka yfir ein- hverjum með kæfisvefn. Maður heldur að hann sé hættur að anda og svo rýkur hann upp með látum. 12.25 Hitinn er að lækka. Það var verið að til- kynna afléttingu á fjöldatakmörkunum. Það er föstudagur og helgi full af sól framundan. Þetta hlýtur að reddast. Það gerir það venju- lega. ’ Hvað ef þetta eldgos hættir? Sveiflurnar í því eru eins og hjá unglingi á miðju gelgjuskeiðinu. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Þetta er allt að koma E kki get ég sagt að ég hafi hrif- ist af bók sem áhugafólk um markaðshyggju færði mér og öðrum sem þá sátu Alþingi og nefnd- ist, Engin máltíð er ókeypis. Þetta gæti hafa verið bók Miltons Fried- mans, There is no such thing as a free lunch. Boðskapurinn var sá, ef ég man rétt, að allt í heimi hér kostaði. Á sérhvern hlut og sérhverja athöfn mætti setja verðmiða – og ætti að setja verðmiða. Þá fyrst værum við komin með rétta sýn á samfélag okk- ar og umhverfi. Þetta kom upp í hugann þegar ferðamálaráð- herrann sagði í fréttum fyrir fá- einum dögum að ríkisstjórnin væri að íhuga að bjóða okkur öll- um í mat að nýju. Endurtaka mataborðið frá í vor, svo vel heppnað hafi það verið. Ávísun sem við öll fengum þá til að hafa upp í matarreikning á veit- ingastað eða gistingu á hóteli hefði gert tvennt í senn, eflt innlenda ferðaþjónustu og stuðlað að því að við kynntumst betur landinu okkar. Sennilega er þetta rétt, ferðatékkinn örvaði án efa fólk til ferðalaga innan- lands og þar með kunna að hafa tek- ist betri kynni með þjóð og landi. Þetta á aftur síður við nú eftir að þessi góðu kynni hafa tekist. Hitt á þó enn við, að ferðatékki kemur matstöðum og hótelum til góða. En þá kemur aftur að boðskap hinnar óvelkomnu bókar um máltíð- ina sem kostar. Það er svo undarlegt hve sterk hóphyggjan í heiminum er. Einu sinni var ráðið við kreppu að eyða sem minnstu, skera niður og herða að. Þessi var raunin í síðustu kreppu þótt við sem sátum þá í ríkisstjórn reyndum að fara bil beggja í blöndu af niðurskurði og tekjuöflun. Nú bregður hins vegar svo við að stjórnvöldin virðast líta svo á að pen- ingar sem þau hafi til ráðstöfunar séu óþrjótandi. Ekkert sé svo dýrt að það megi ekki splæsa í það, þess vegna bjóða okkur öllum í mat. Og framlag stjórnarandstöðunnar er að bæta í, hafa það bara þríréttað. Þannig hefur gagnrýnin verið úr þeirri átt, að grípa til margföld- unartöflunnar. En bíðum nú við. Í auglýs- ingadálkum blaðanna er farið að glitta í kosningar. Þannig auglýsir tiltekinn stjórnmálaflokkur að hann vilji báknið burt. Og í samræmi við það er sett fram fjármálaáætlun ríkisstjórn- arinnar fyrir næstu fjögur ár. Og viti menn, það stendur til að minnka umsvif hins opinbera, „báknsins“, á komandi árum. Hvað þýðir það? Væntanlega minna til Landspítalans, sjúkrahúss- ins á Húsavík og ferjusiglinga til Eyja. Gæti hugsast að allt þetta félli inn í eina heildstæða mynd? Það skyldi þó aldrei vera að þegar allt komi til alls hafi markaðshyggjufólkið forð- um haft rétt fyrir sér, að engin mál- tíð sé ókeypis? Með öðrum orðum, þegar ríkis- stjórnin býður okkur í mat, þá kosti það sitt og því fyrirsjáanlegt að báknið þurfi að víkja. En þá þurfum við líka að vera við því búin að taka upp prívatbudduna til að borga reikninginn hjá prívat- klínikinni sem tæki við þeim rekstri sem Landspítalinn segði sig frá þeg- ar það bákn hefur verið skorið niður við trog. Þá væri aðeins eitt ósagt af hálfu veitandans: Verði ykkur að góðu! Morgunblaðið/Ómar Þegar ríkisstjórn býður þjóð í mat Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Nú bregður hins veg- ar svo við að stjórn- völdin virðast líta svo á að peningar sem þau hafi til ráðstöfunar séu óþrjót- andi. Ekkert sé svo dýrt að það megi ekki splæsa í það, þess vegna bjóða okkur öllum í mat. „Sennilega er þetta rétt, ferða- tékkinn örvaði án efa fólk til ferðalaga innanlands og þar með kunna að hafa tekist betri kynni með þjóð og landi. Þetta á aftur síður við nú eftir að þessi góðu kynni hafa tekist,“ skrifar Ögmundur. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.