Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021 B retar gengu til kosninga á fimmtudag. Þeir kölluðu þær Fimmtudaginn mikla (Super Thursday). Þingkosn- ingar fóru seinast fram í desember 2019, en þær hafði Boris Johnson óvænt náð að knýja fram. Þar vann flokkur hans stórsigur, sem einnig kom nokkuð á óvart. Og þar með varð ljóst að svikahröppum í Íhaldsflokknum, sem lofað höfðu að virða þjóðar- atkvæði um Brexit, en sviku það, tækist ekki lengur að setja fót fyrir útgöngu. Blessunarlega náði John- son svo í aðdraganda kosninganna að hreinsa svikulu deildina vælandi úr flokknum. Og þegar stór sigur lá svo að auki fyrir fyrir mátti augljóst vera að Evrópu- sambandinu yrði sent langt nef án söknuðar. Mikill fimmtudagur En af hverju voru kosningarnar í vikunni kallaðar „Fimmtudagurinn mikli“. Það var vegna þess að þá fóru fram kosningar í fjölmörgum sveitarstjórnum og þar á meðal kosningar sem hafði verið frestað vegna kórónuveiru (þ.á m. London), þingkosningar í heimastjórnum í Skotlandi og Wales og aukakosn- ingar í Hartlepool, þar sem þingmaður hafði orðið að segja af sér vegna ósæmilegrar framkomu. Þessi bær er í Norður-Englandi og í röð allmargra kjördæma sem lengi höfðu verið kölluð „Rauði virk- isveggurinn“ því þar hafði Verkamannaflokkurinn verið ósigrandi um árabil. Í kosningunum 2019 gerðust þau undur að Boris Johnson og flokkur hans náðu að leggja þingmenn Verkamannaflokksins í allmörgum af þessum traust- ustu vígjum. En Hartlepool stóð af sér atlögu „íhaldsins“ með meira en 3.000 atkvæða mun í kjör- dæminu. Eftir því hafði verið tekið að í þjóðaratkvæði um Brexit höfðu 70% þeirra sem kusu í Hartlepool viljað útgöngu úr ESB. En fræðingar af ýmsu tagi bentu á að nú væri Brexit að baki og áhrif þess færu minnk- andi þar sem horft væri til kosninga. En sir Keir Starmer formaður flokks verkamanna hafði sent kjördæminu frambjóðanda sem þekktur var sem heitur andstæðingur útgöngu Breta! Frambjóðandi Íhaldsflokksins, sem nú er komin á breska þingið, var bjartsýn á að nú gæti sigur unnist í Hartlepool þótt Íhaldsflokkurinn hefði ekki náð að sigra þar í hálfa öld! Keypti tilgátu frambjóðandans Flokkurinn hafði ekki ætlað sér að leggja afl sitt að fullu í þennan bardaga. En Johnson ákvað svo að veðja á sama hest og „bóndakonan“ í framboði. Hann gerði háttsettum ráðherrum sínum að sækja kjör- dæmið heim og taka þátt í baráttunni með frambjóð- andanum. Sjálfur fór hann þangað í tvígang og bank- aði á dyr með kynningarbæklinga víða hvar og spjallaði við fólk. Var til þess tekið að honum var bet- ur tekið en vænst var. Ákvað Íhaldsflokkurinn þá að setja enn meira afl í baráttuna. Aukin athygli tók að vakna á landsvísu á þessu eina þingsæti sem barist var um. Ýtti það undir kjörsókn sem talið er að hafi komið Íhaldsflokknum til góða. Verkamannaflokk- urinn hafði haft prýðilegan meirihluta á þessum stað í sínum „rauða virkisvegg“, í desember 2019, en fékk nú aðeins 8.589 atkvæði, en frambjóðandi Íhalds- flokksins fékk 15.529 atkvæði og sigraði glæsilega. Mikið áfall fyrir flokksformann Breskir fjölmiðlar gera mjög mikið úr þessum tíð- indum, sem gæti komið þeim á óvart sem þekkja lítt til. Á breska þinginu sitja 650 þingmenn og flokkur forsætisráðherrans hefur 80 sæta þingmeirihluta svo varla getur eitt þingsæti þar sætt slíkum tíðindum. En skýringarnar eru þær að í margvíslegum sögu- legum samanburði voru úrslitin algjörlega einstæð. Það kemur auðvitað iðulega fyrir að flokkur haldi velli þótt óhjákvæmilegt hefði verið að boða til auka- kosninga í tilteknu kjördæmi. Stjórnarflokkur sem á undir högg að sækja eftir langa stjórnartíð getur þannig haldið sinni stöðu í kjördæminu, hafi hann haft góða stöðu fyrir. En það er næsta óþekkt að stjórnarflokkur vinni þingmann í kjördæmi þar sem andstæðingurinn hafði traustan meirihluta og hefði reyndar verið talinn ósigrandi í hálfa öld eða meir. Fréttaskýrendur hafa leitað langt aftur í söguna til að fá dæmi um slíkt. En við þetta bættist nú að stjórnarflokkurinn hafði þingsætið af stjórnarand- stöðunni með miklum yfirburðum. Og þeir benda á að þetta verður enn ótrúlegra þegar horft er til þess að Verkamannaflokkurinn hefur verið í stjórnar- andstöðu í 11 ár og ekki unnið þingkosningar í 15 ár! Heppileg hneykslismál Sumir fjölmiðlar trúðu eigin áróðri um að Boris Johnson hefði lent í verulegri vörn síðustu vikur fyr- ir þessar kosningar. Þá komu upp mál sem þóttu hentug til að japla á. En merkileg voru þau ekki. Fyrst var uppnám vegna uppljóstrana um þrýsting Camerons, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins, við að bjarga burgeis nokkrum sem Cameron var orðinn launaður „ráðgjafi“ hjá. Var for- sætisráðherrann fyrrverandi sagður hafa beitt sér víða í stjórnkerfinu en einkum sóst eftir meðalgöngu flokksbræðra sinna og kunningja í ráðherrastól- unum. Eitthvað hefði verið kíkt á málið af þeirra hálfu, en ekki varð þó séð að fjárhagslegur atbeini eða önnur fyrirgreiðsla hafi fylgt í kjölfarið. Skjól- stæðingur Camerons er farinn á hausinn fyrir all- nokkru án þess að þar hafi flotið opinbert fé sem átti að gleðja gamlan vin. Þetta mál hefði ekki dugað til svo langrar umræðu nema í aðdraganda kosninga. Ekki náðist að vekja áhuga almennings á því. Ekki batnaði það Næst kom veggfóðursmálið mikla sem virtist erf- iðara þar sem núverandi forsætisráðherra kom við sögu. Þetta mál á rót í skrítnum reglum sem snúa að valdamönnum og snúast iðulega um smælki, sem tal- ið er að almenningur botni í. Forsætisráðherra Breta býr í Downingstræti 10. Það er a.m.k. ímyndin. Þar er íbúð á efstu hæð fyrir ráðherra og fjölskyldu. Fjármálaráðherrann hefur sambærilega íbúð efst í númer 11 og er innangengt á milli húsanna. Blair- fjölskyldan var með töluverða ómegð og ákvað að nýta búðina á 11. Sú íbúð er mun stærri og hagan- legri en íbúðin í húsi forsætisráðherranna. Næstu forsætisráðherrar fetuðu í fótspor Blairs í þessum efnum og það þótt ómegð væri þar engin. Konu Johnsons er sagt hafa þótt lítið koma til veggfóðurs og innréttinga sem Theresa May hafði ráðið og viljað breytingar. Slíkt er hverjum forsætis- ráðherra heimilt en kostnaðarmörk eru sett. Þar kemur að þessum undarlegu smælkjum. Forsætis- ráðherra Breta ræður meiru um það þar en aðrir hver verður endapunktur á ákvarðanaferli og þar með því hvort útgjöldin sem fylgja muni skipta millj- örðum eða tugum milljarða. En að sjálfsögðu má hann ekki ráða því hvort breytt verði um veggfóður og innréttingar til að róa spúsu sína nema hann haldi sig innan ramma sem búrókratar miða við íbúðina sína heima! Í Downingstræti eru miklir salir og stofur. For- sætisráðherrar hafa iðulega á sinni tíð látið gera þar miklar og kostnaðarsamar breytingar að þeirra smekk. Og það mega þeir og þar eru engin niður- negld mörk. Enda er þar ekki um „íbúð forsætisráð- herrans að ræða“ segja búrókratar, „heldur opinber salarkynni“. Corbyn rekinn og nú vilja þeir reka Starmer Reykjavíkurbréf07.07.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.