Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Qupperneq 17
Í umræðunni um veggfóður Borisar og frúar er
jafnan rætt um „einkaíbúð hans“. Það er svo sem
rétt að hann getur umgengist þennan íverustað
næstum eins og sína eign svo lengi sem hann heldur
titlinum. En hefði hann hrokkið úr starfi vegna vegg-
fóðursins (eins og einn úr liði íhaldsmanna vildi!) þá
hefði hann ekki fengið að hafa veggfóðrið með sér.
Svo þótti það auka „glæpinn“ að Boris hefði rætt við
embættismenn sína um það, hvort ekki mætti biðja
einhverja fjárhagslega stuðningsmenn „flokksins“ að
slá saman í veggfóðrið og sófa. Sömu menn, sem
telja að endilega verði að mergsjúga „ríka pakkið“,
gátu ekki hugsað sér að Boris fengi þaðan fé í vegg-
fóðrið!
Sams konar heygarðshorn
En þetta minnir á mál sem kom upp í tíð Íslands-
vinarins Bills Clintons.
Hann hafði verið einhvers staðar á fundi í sínu
stóra ríki og var kominn inn í flaggskip flugflotans
nr. 1 og var glæsivélin að undirbúa flugtak. Þá varð
forsetanum gengið fram hjá spegli og sá að fyrir
löngu var komið að klippingu. Hreyflarnir fóru þegar
í kyrrstöðu aftur því að forsetinn hafði beðið um að
strax yrði fundinn fyrsta flokks rakari og hann feng-
inn í forsetavélina. Þar sem stutt hafði þótt í flugtak
hafði öllum flugvélum sem hugðu á flugtak verið sagt
að bíða og aðkomuflugvélum var beint frá flugvell-
inum, eins og gert er þegar forsetavélin á í hlut. Þeg-
ar rakarinn lauk verkinu og forsetinn horfði ánægð-
ur í spegilinn var tilkynnt að undirbúningur flugtaks
gæti hafist og fylgdarvélar látnar vita. Ekki er vitað
hversu margir milljónatugir féllu til vegna rakarans.
Fjölmiðlar spurðu ekki um það. En nokkrir þeirra
spurðu hver hefði borgað reikning rakarans og hvort
þessi einkaþjónusta hefði hugsanlega fallið á ríkis-
sjóð Bandaríkjanna. Svar kom um hæl að rakaranum
hefðu verið greiddir 100 dollarar og forsetinn hefði
greitt þá upphæð úr eigin vasa. Var þá stétt rann-
sóknarblaðamanna ánægð með sitt verk enda aug-
ljóslega ekkert subbumál í gangi.
Reagan rukkaður
Í Bandaríkjunum býr forsetinn á annarri hæð Hvíta
hússins. Reagan forseti sagði frá því að einhverju
sinni hafði hann fengið reikning á diski þar sem hann
sat á skrifstofu sinni. Það virtist vera reikningur fyr-
ir tvo, egg, flesk og appelsínusafi, brauð og kaffi og
grænmeti. Þetta vafðist aðeins fyrir forsetanum en
hann vonaði að þetta væri óvænt dæmi um leynilega
kímnigáfu hússins. Nokkru síðar skoppaði minningin
upp aftur og hann spurði háttsettan skrifstofumann
hvort vænst væri viðbragða hans vegna þessa blaðs.
Sá hélt nú það. Þau hjónin borðuðu oftast morgun-
mat í hinni opinberu borðstofu sinni á fyrstu hæð, en
í þetta sinn höfðu þau fengið morgunmatinn inn í
„sína eigin íbúð“. Þá var sendur reikningur.
Á hinn bóginn og öfugt við Downingstræti þá
stofnar forsetinn, hver sem hann er, vinafélag Hvíta
hússins. Þar er hið fínasta lið á ferð og ekkert leyni-
félag enda þykir aðild heiður hinn mesti. Þetta félag
safnar fé t.d. í skreytingar í Hvíta húsið og í gjafir
sem gefnar eru og fleira í þeim dúr.
En þeir eru einnig góðir í smælkinu þar vestra,
sem stundum virkar eins og hver önnur sýndar-
mennska.
Bréfritari á í fórum sínum á annan tug myndar-
legra jólakorta sem hann fékk send úr Hvíta húsinu
á meðan hann var forsætisráðherra. Á hverju þeirra
stóð í smáu letri að kortið væri gert í 300.000 eintök-
um og (eftir því hver forsetinn var) að flokkur repú-
blikana eða demókrata hefði kostað útgáfuna! En
hvernig leystu menn úr slíku stórmáli hér heima? Í
tilviki og tíð fyrrnefnds þá var útbúið jólakort og
sent út af forsætisráðuneytinu í nafni ráðherrans.
Sjálfstæðisflokkurinn gaf svo jafnframt út kort í
nafni formannsins sem fór til þeirra sem það átti við.
Vel má vera að í einhverjum tilvikum hafi borist tvö
kort í sama hús, en kvörtun barst þó aldrei.
Og nú eru flestir hættir að senda jólakort. Nema
kannski flokkar repúblikana og demókrata.
Morgunblaðið/Eggert
’
Sumir fjölmiðlar trúðu eigin áróðri um að
Boris Johnson hefði lent í verulegri vörn
síðustu vikur fyrir þessar kosningar. Þá komu
upp mál sem þóttu hentug til að japla á. En
merkileg voru þau ekki.
9.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17