Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 18
New York. AFP. | Listaverk eftir
bandaríska listamanninn Beeple
seldist á uppboði fyrir 69,3 milljónir
Bandaríkjadollara (8,6 milljarða
króna) á uppboði hjá Christie’s í
Bandaríkjunum í byrjun mars.
Verkið heitir „Hvunndagar: fyrstu
5.000 dagarnir“ („Everydays: the
First 5.000 Days“) og fór á þriðju
hæstu upphæð, sem fengist hefur á
uppboði fyrir verk eftir núlifandi
listamann.
Beeple er í fararbroddi lista-
manna á sýndarlistaverkamarkaði
þar sem safnarar fara hamförum
um þessar mundir. Beeple heitir
réttu nafni Michael Winkelman og
er frá Charleston í Suður-Karolínu
og fyrir sex mánuðum hafði hann
ekki selt eitt einasta verk. Nú er
hann kominn á bás með listamönn-
um á borð við Jeff Koons og David
Hockney.
„Hvunndagar“ er fyrsta listaverk-
ið í sölu hjá Christie’s sem er að öllu
leyti stafrænt. Það er sett saman úr
5.000 stafrænum myndum.
Verkið „Krossgötur“ („Cross-
roads“) eftir Beeple var endurselt á
vefsíðunni Nifty Gateway, sem sér-
hæfir sig í sölu sýndarverka, fyrir
6,6 milljónir dollara í lok febrúar.
Listamaðurinn fékk 10% hlut.
Myndskeið sem hann seldi sjálfur
í lok október í fyrra fyrir táknræna
upphæð eða einn dollara, var nýlega
keypt á 150.000 dollara.
„Hvunndagar“ voru langtíma-
verkefni, sem hófst 1. maí 2007, þeg-
ar listamaðurinn var enn vefhönn-
uður, sem leiddist í vinnunni, með
því að hann ákvað að búa til eitt
listaverk á dag. Hann einsetti sér að
missa ekki úr dag og tilgangurinn
var að taka framförum í teikningu
og grafískri hönnun.
Hann byrjaði á einfaldri mynd af
Jim, frænda sínum, og gerði að lok-
um nákvæma grafíska mynd af
Donald Trump, Bósa ljósári,
Michael Jackson og fleirum að veita
barni að teikna innblástur.
Mynd Beeples er unnin með staf-
rænum hætti. Bálkakeðjutæknin
notuð til að tryggja að verkið sé ein-
stakt og ófalsað og ber það skil-
greininguna NFT, sem stendur fyr-
ir Non-Fungible Token og á við um
fyrirbæri eða upplýsingar, sem skil-
greindar hafa verið með dulkóðun
og verður ekki skipt út fyrir neitt
annað. Áður var lítið mál að búa til
afrit á netinu, en með þessari tækni
er komið í veg fyrir það. Þar með
urðu til dæmis upprunaleg tíst verð-
mæt og fyrr á þessu ári seldist
nokkurra sekúndna myndskeið af
körfuboltastjörnunni LeBron James
að leika listir sínar á 208 þúsund
dollara á síðunni NBA Top Shot.
Beeple sagði að hann hefði verið
að búa til stafræna list í nokkurn
tíma, en ekki áttað sig á NFT. „Mér
leið eins og komið hefði þruma úr
heiðskíru lofti,“ sagði Beeple og
kvaðst hafa sagt við sjálfan sig:
„Hér er komin fullkomin leið til að
selja það sem þú hefur verið að gera
undanfarinn áratug.“
Noah Davis, sérfræðingur hjá
Christie’s, sagði að það hefði ekki
verið fyrr en Beeple fór að nota
NFT að hann gat komið inn á lista-
verkamarkaðinn og farið að selja
verk sín eins og aðrir listamenn
málverk og skúlptúra.
2
Næsthæsta upphæð, sem greidd hefur verið fyrir verk eftir núlifandi listamann, var 90,3 milljónir (11,3 milljarðar
króna). Það var fyrir „Portrett af listamanninum: laug með tveimur verum“ („Portrait of The Artist: Pool With
Two Figures“) eftir David Hockney sem seld var á uppboði í nóvember 2018. Myndin er frá 1972.
1
„Kanína“ eftir Jeff Koons er
dýrasta listaverk, sem slegið
hefur verið á uppboði eftir
núlifandi listamann. Hún fór á 91,1
milljón dollara (11,4 milljarða
króna) hjá Christie’s í maí 2019.
Koons er hér við hlið verksins, sem
er rúmur metri á hæð og gert úr
ryðfríu stáli. Dýrasta verk sögunnar
er hins vegar „Salvator Mundi“ eftir
Leonardo Da Vinci, sem fór á 450
milljónir dollara árið 2017.
Stórt stökk í hóp
hinna eftirsóttustu
Listamaðurinn Beeple hafði ekki selt eitt listaverk fyrir hálfu ári. Í mars
seldist verk eftir hann á uppboði hjá Christie’s fyrir þriðju hæstu upphæð,
sem greidd hefur verið fyrir verk eftir núlifandi listamann. Beeple segist
ætla að halda ótrauður áfram, ekki þurfi allt að vera meistaraverk.
4
Jeff Koons á líka verkið í fjórða sæti listans yfir dýrustu listaverk eftir nú-
lifandi listamenn. Það nefnist „Blöðruhundur (appelsínugulur)“ („Balloon
Dog: Orange“) og seldist árið 2013 á 58,4 milljónir dollara (7,3 milljarða
króna) sem þá var met. Verkið er einn af fimm skúlpturum Koons í mismun-
andi litum af hundum, sem virðast gerðir úr blöðrum.
Listamaðurinn Scott Winkelmann,
sem kallar sig Beeple.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.5. 2021
LISTIR