Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Síða 19
Steven Sacks, eigandi listagall-
erísins Bitforms í New York, sagðist
hafa þráast við að sannfæra fólk um
að stafræn skrá gæti verið list í tutt-
ugu ár. Viðskiptavinirnir hefðu ver-
ið fáir og lokaður hópur, en skyndi-
lega hefðu milljónir manna fengið
trú á að þetta gengi.
Beeple segist vera fullur af hug-
myndum og þegar vera farinn að
hugsa fyrir sýningum í staðheimum
að faraldri loknum. Uppboðið marki
ekki endalok og nú verði hann að
halda áfram. Þó þurfi hvert verk
ekki að vera meistaraverk. Hann
þurfi að losa sig undan þrýstingnum
um að þurfa að skapa list og halda í
gamanið. Viðtalið var tekið áður en
listaverkið var slegið og ekki hefur
þrýstingurinn minnkað við það.
3
„Hvunndagar: fyrstu 5.000 dagarnir“ („Everydays: the First 5.000 Days“)
eftir Beeple er í þriðja sæti á listanum yfir dýrustu verk eftir núlifandi
listamenn. Verkið er stafrænt og seldist fyrir 69,3 milljónir dollara (8,6
milljarða króna) í mars. Fyrir hálfu ári hafði Beeple ekki selt eitt einasta verk.
AFP
5
„Að meiða orðið útvarp #2“ („Hurting the Word Radio #2“) eftir Ed Ruscha
er í fimmta sæti listans yfir dýrustu listaverk eftir núlifandi listamenn og seldist
á uppboði hjá Christie’s fyrir 52,4 milljónir dollara (6,6 milljarða króna) í
nóvember 2019. Verkið er frá 1964. Orðið radio er málað á það stórum gulum
stöfum á bláum grunni og tveir stafanna hafa verið afmyndaðir með þvingum.
9.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
E
f einhver íþrótt ætti að vera örugg fyrir loft-
hrædda er það sund, en lofthræðslan gæti þó
haldið einhverjum frá því að dýfa sér út í nýja
sundlaug, sem risin er í Battersea í suðvesturhluta
London. Þar liggur 25 metra löng laug með glærum
veggjum og botni í 35 metra hæð milli tveggja bygg-
inga.
Laugin er á milli íbúðarhúsa við hlið bandaríska
sendiráðsins skammt frá suðurbakka árinnar Thames
og mun útsýni úr henni vera þokkalegt.
Arkitektastofan Arup Associates hannaði laugina, sú
hin sama og hannaði óperuhúsið í Sydney í Ástralíu.
Laugin var smíðuð í Colorado í Bandaríkjunum og
flutt til London. Þar var henni lyft upp með krana og
þurfti að viðhafa mikla nákvæmni við verkið því að
ekki mátti skeika nema 30 sentimetrum þegar henni
var komið fyrir í stálumgjörð sitt á hvorum enda henn-
ar.
Laugin er þrír metrar á dýpt og þegar hún hefur
verið fyllt mun vatnið í henni vega 375 tonn. Í lauginni
er ljósabúnaður og verður hægt að lýsa hana upp á
fimm ólíka vegu. Laugin er úr akrýlefni.
Laugin verður opnuð formlega 19. maí og þá munu
íbúarnir geta synt á milli turna til að heimsækja ná-
granna sína. Á dögunum var hún hins vegar prófuð og
þá voru teknar myndir af fyrirsætum í háloftasundi.
Í frétt um laugina á vef CNN segir að ódýrustu
íbúðirnar í þessum húsum, sem kallast Embassy Gar-
dens, séu með tveimur svefnherbergjum og verðlagðar
á rúmlega 173 milljónir króna.
Gagnsæja sundlaugina
ber við himinn í 35
metra hæð frá jörðu.
AFP
Sundsprettur í
háloftunum
Fyrirsæta klædd rauðum kjól syndir í gagnsærri himna-
lauginni milli tveggja háhýsa í London.
AFP
AFP
Laugin er á 10. hæð, 25
m löng, 3 m djúp og lík-
lega einstök heiminum.