Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.05.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Sýningar á heimildarmynd Jóns Bjarka Magnússonar, Hálfur Álfur, hófust loksins í Bíói Paradís á fimmtudaginn var en eins og fram hefur komið í Sunnudagsblaðinu hefur ítrekað þurft að fresta þeim vegna heimsfaraldursins. Nú síðast stóð til að frum- sýna myndina daginn eftir að seinustu fjöldatakmarkanir voru settar á vegna fjölgunar smita í lok mars. Eiginleg frumsýning fór raunar fram í höfuðstað álfa og huldufólks, í skrúðgarðinum Hellisgerði í Hafnarfirði, um liðna helgi. Nákvæmur fjöldi gesta úr álfheimum er eitthvað á reiki en fjórir menn voru vitni að atburðinum. Var myndinni varpað á stein í útjaðri Hellisgerðis og spiluð allt til enda við þónokkurn fögnuð álfa sem og manna, að sögn Jóns Bjarka. „Ég er nokkuð viss um að friður muni ríkja um sýningar hér eftir,“ segir hann. Í forgrunni í myndinni eru amma Jóns Bjarka og afi en þau létust bæði í hárri elli áður en hann náði að ljúka við hana. Friður mun ríkja hér eftir Biðin er loksins á enda. Jón Bjarki Magnússon kvik- myndagerðarmaður lauk við myndina fyrir um ári. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Heimildarmynd Jóns Bjarka Magnús- sonar, Hálfur Álfur, loksins frumsýnd. Hálfur Álfur frum- sýndur í skrúðgarðinum í Hellisgerði í Hafnar- firði um liðna helgi. Velvakandi fékk bréf frá hús- móður í maíbyrjun 1961 þar sem hún kvartaði yfir afgreiðslu í mjólkur- og brauðbúð einni í Austurbænum, nánar tiltekið við Laugaveg. Hún sendi dóttur sína eftir brauði. Þegar barnið kom með brauðið var það hart og gamalt. Faðir hennar tók þá til sinna ráða, fór með brauðið í búðina og sagðist ekki vera ánægður með kaup dótturinnar. „Hvaða vitleysa. Þetta er ágætt brauð, það er margt fólk, sem vill heldur fá svona brauð,“ sagði kvenmaðurinn sem af- greiddi í búðinni. „Þú skalt þá bara geyma þetta brauð fyrir það fólk,“ svaraði faðirinn um hæl. „Ég sé ekkert að þessu brauði. Það er ágætt. Yfir hverju eruð þér að kvarta,“ sagði kvenmað- urinn í búðinni, en á endanum fékk fjölskyldan nýtt brauð og það gamla var geymt fyrir þá, sem heldur vilja hörðu brauðin. Húsmóðirin sagðist hafa búið í Skandinavíu um alllangt skeið. Þar væri viðtekin regla í brauð- búðum, að verðið væri lækkað um helming á brauðmat, sem orðinn væri sólarhringsgamall eða meira. GAMLA FRÉTTIN Kom heim með hart brauð Ekki var sjálfgefið að fá mjúkt brauð í búðum í Reykjavík fyrir fimmtíu árum. Morgunblaðið/Ásdís ÞRÍFARAR VIKUNNAR Margrét Sigfúsdóttir skólastjóri Húsmæðraskólans Camilla Parker Bowles hertogaynja Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.