Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Page 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021 Stundum höfum við talað um mikilvægiþess að sjá björtu hliðarnar á skell-unum sem við verðum fyrir í þessu ferðalagi sem við köllum líf. Það lyftir and- anum og færir okkur bjartsýni. Þannig höfum við til dæmis sagt okkur í þessum heimsfaraldri að það góða við hann sé að við höfum lært að sleppa óþarfa ferðum á fundi í útlöndum og ætlum að leysa þetta allt saman á Zoom. Innst inni vitum við samt að það er ekki að fara að gerast. En við getum huggað okkur við að einn hópur að minnsta kosti er að fara að gera það. Verkalýðshreyfingin er ekki að fara neitt. Ekki að hún væri ekki til í að skella sér á gott norrænt þing eða alþjóðlega ráð- stefnu á spennandi stað. Vandamálið er bara að hún kemst ekki úr landi. Ekki getur hún flogið með Icelandair sem nánast lagði bara niður heilt stétt- arfélag í samningaviðræðum. Þá kom nú aldeilis skýrt fram að ekki kæmi til greina að skipta við fyrirtæki sem haga sér með slíkum hætti og stór orð féllu. Jafnvel eftir að allt hafði gengið til baka og samningar tekist. Stærsta verkalýðsfélag landsins lagðist meira að segja gegn því að lífeyr- issjóður þess tæki þátt í útboði félagsins. Jafnvel þótt félagið ætti mikið undir því að tækist að fjármagna félagið og halda því gangandi og hefði sennilega hagnast veru- lega á viðskiptunum. Og nú er orðið ljóst að ASÍ ætlar að sniðganga nýja flugfélagið Play og skorar á alla 120 þúsund félagsmenn sína að gera slíkt hið sama. Forseti ASÍ segir að verið sé að greiða laun sem séu undir atvinnu- leysisbótum. Reyndar er eitthvað óljóst í þessu og samkvæmt forstjóra Play er fyrirtækið að borga laun sem séu vissulega lægri en Icelandair en klárlega yfir lág- markslaunum. Samkvæmt Viðskipta- blaðinu verða lægstu laun um 360 þúsund á mánuði. En góðu fréttirnar eru að starfsfólk ASÍ getur samt alltaf flogið með Wizz air. Það er ungverskt flugfélag sem flýgur frá Ís- landi og býður lág fargjöld. Í alþjóðlegum flugfréttum kom nýlega fram að félagið hefur einhliða ákveðið að lækka laun um 20 prósent. Þannig er flugfreyja sem flýgur 90 klukkutíma á mánuði (sem þætti full- mikið á íslenskum markaði) með undir 200 þúsund krónum á mánuði. Þegar allt er talið. Svo má náttúrulega ekki gleyma Easy Jet, Transavia og Vueling. Allt félög sem borga flugfreyjum sínum langt undir ís- lenskum lágmarkslaunum. Hjá sumum þeirra þykir bara býsna gott að ná 200 þúsund krónum á mánuði. Þau virðast líka öll eiga það sam- eiginlegt að borga ekki fyrir yfirvinnu. Nú gæti einhver sagt að það væri ekki hægt að bera saman laun á Íslandi og til dæmis í Ungverjalandi eða Bretlandi. Það er vissulega hægt að taka undir það. En vandamálið er helst það að í flugrekstri eru engin landamæri, eins undarlega og það hljómar. Þegar ég ákveð að kaupa mér flugmiða til útlanda þá bóka ég flug á net- inu. Ég get alveg flogið með flugfélagi sem borgar flugstjóra undir tveimur milljónum á mánuði. Ég læt mig bara hafa það. Ég vil bara ódýran flugmiða svo ég komist til út- landa. Ég er farinn að sakna þeirra. Nú veit ég ekkert hvað gerist í öllum þessum spennandi deilumálum. Ég geri ráð fyrir að það hafi verið farið yfir þetta á opnum fundi ASÍ um mikilvægi virkrar samkeppni sem haldinn var í vikunni. Mér þætti bara vænt um ef eitthvað af þessari samkeppni væri með íslenskum félögum og ég fengi að heyra þessi fallegu orð um að muna að festa upp sætisbakkann og hafa fótskemil í uppréttri stöðu. Á íslensku. ’ Ég vil bara ódýran flugmiða svo ég komist til útlanda. Ég er farinn að sakna þeirra. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is Samkeppni við útlönd Úr ólíkum áttum er yfirskriftþessara helgarpistla.Reyndar geng ég sennilega heldur lengra en að koma úr ólíkri átt að þessu sinni því hún er þveröfug við frásagnir flestra fjölmiðla af þeim Mike og Tony, tveimur Íslandsvinum, sem okkur hafa verið kynntir sem slíkir á undanförnum árum. Sá fyrri er Michael Richard Pom- peo, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna í forsetatíð Trumps, sá síðari Anthony Blinken, utanríkisráðherra í stjórn Bidens forseta. Michael Richard varð reyndar aldrei að Mike hér á landi þótt au- fúsugestur væri hann sagður vera, að vísu varla saman að jafna við eft- irmanninn Tony. „Þetta var árang- ursríkur fundur. Tony, þakka þér fyr- ir að koma til Íslands og eiga við okkur gott sam- tal,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utan- ríkisráðherra Ís- lands, á forsíðu Morgunblaðsins og því hnýtt við að gleðilegt væri að leiðtogaríki hins „frjálsa heims“ vilji aukna alþjóða- samvinnu. „Alþjóðasamningar væru ákaflega mikilvægir og ekki væri hægt að taka þeim sem sjálfsögðum hlut,“ var haft eftir íslenska utanrík- isráðherranum. Á þessu var hamrað í flestum fjöl- miðlum og svo að skilja af fréttum að Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Ís- lands, og Katrínu Jakobsdóttur for- sætisráðherra þætti að með nýjum mönnum í Washington fylgdu betri og bjartari tímar. En nú þarf að minna á að Joseph Biden, forseti Bandaríkjanna, og Anthony Blinken utanríkisráðherra hafa reynst vera í hópi hörðustu stríðshauka við mótun bandarískrar utanríkisstefnu á undanförnum ára- tugum, innstu koppar þar í búri, ná- tengdir hergagnaiðnaðinum, sér- staklega Blinken, studdu báðir innrás í Írak og Afganistan, hina hryllilegu árás á Líbýu, hernaðaraðstoð við Ísr- ael þegar árásirnar á Gaza stóðu sem hæst 2014, eindregnir stuðnings- menn hernaðarofbeldis Sádi-Araba í Jemen, valdaránið í Úkraínu studdu þeir og hernaðaríhlutun í Sýrlandi svo eitthvað sé nefnt. Donald Trump var aftur á móti ein- angrunarsinni, vildi draga úr fram- lagi til hernaðarbandalagsins NATÓ, til stofnana Sameinuðu þjóðanna að sama skapi, minnka hernaðarumsvif Bandaríkjanna erlendis og stöðva al- þjóðlega viðskiptasamninga. Trump þjösnaðist í mörgu og á mörgum, svarf að Venesúela með við- skiptaþvingunum, svo dæmi sé nefnt, vildi ráða hver væri forseti þess lands og leiddi þar „hinn frjálsa heim“, þar á meðal vini sína á Íslandi. Margt var þetta illt en ekki allt. Ég fagnaði því fyrir mitt leyti þegar Trump kvaðst vilja draga úr vægi NATÓ, að alþjóðviðskiptasamningar á forsendum alþjóðaauðvaldsins, studdir af Clinton, Obama og Biden, væru stöðvaðir og að Bandaríkin ætl- uðu sér ekki hlutverk heimslögreglu. Núverandi valdhafar eru hins veg- ar fylgjandi slíku hlutverki, vilja bandaríska heimslögreglu, tilbúnir að færa landamæri NATÓ nær Moskvu, herða enn að Venesúela og heimta þar nýja forsetann hans Trumps, óskabarn heimskapítalismans, sendi- ráð Bandaríkjanna vilja þeir að verði til frambúðar í Jerúsalem í trássi við alþjóðsamþykktir, og eindregnir stuðningsmenn eru þeir áframhald- andi hernaðar- uppbyggingar, meðal annars hér á landi. Eitthvað mun hafa verið rætt um Ísrael og Palestínu í Reykjavík. Blin- ken minnti á það í fjölmiðlum að Ísrael væri lýðræð- isríki gyðinga. Þetta síðara er rétt, Ísrael skilgreinir sig á grundvelli gyðingdóms, kynþáttar og trúar- bragða. Þar sem það mismunar þegn- um sínum á þessum grundvelli, er með öðrum orðum kynþáttaríki, þarf að fara varlega í sakirnar að kenna það við lýðræði. Samkvæmt málvit- und okkar flestra hangir fleira á spýt- unni en kosningar til þings þegar lýð- ræði er skilgreint og auk þess geta landtökubyggðirnar í Palestínu, árás- irnar á Gaza og ofbeldið í Jerúsalem varla talist í anda lýðræðis. Bandaríkin hafa í þessu blóði drifna ferli síðustu vikna ítrekað beitt neitunarvaldi til varnar Ísrael og þykja ganga langt þegar þau hvetja „deiluaðila“ til að leggja niður vopn. Einnig íslensk stjórnvöld beina orð- um til deiluaðila. Úr gagnstæðri átt er rétt að spyrja hvenær ofbeldi verði að deilu, hverjir hafi verið deiluaðilar í Ungverjalandi 1956 og í Suður-Afríku á tímum að- skilnaðarstefnunnar þar. Eða er það ekki svo, að sá var ábyrgur í Ungverjalandi, Jemen, Ví- etnam, Suður-Afríku og nú í Ísrael sem í raun ræður för með hernaðar- yfirburðum og valdi? Skyldi þessi nálgun hafa verið rædd við Tony? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mike og Tony Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Eða er það ekki svo, að sá var ábyrgur í Ungverjalandi, Jemen, Víetnam, Suður-Afríku og nú í Ísrael sem í raun ræður för með hernaðar- yfirburðum og valdi? Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin, Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.