Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Side 15
Morgunblaðið/Ásdís Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa alltaf verið mestu mátar. Báðir hafa þeir náð langt í tónlistinni og eru vinsælir. Frægð- in hefur aldrei stigið þeim til höfuðs. 23.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 „Það var kannski smá fyrst en hefur aldrei flækst fyrir okkur og í dag er ekki vottur af því. Við erum báðir keppnismenn og viljum ná ár- angri í því sem við erum að gera,“ segir Friðrik og segist tala við Jón oft í viku og hittir hann einnig oft, annaðhvort vegna vinnu eða fjöl- skyldufunda. Við förum að slá botninn í samtalið en blaðamaður er spenntur að heyra hvort ekki leynist einhverjar krass- andi sögur úr fortíð Jóns. „Í rauninni eru engar slíkar sögur. Á tónleikum lifir hann svolítið fyrir að búa til óþægileg augnablik og fara svo út úr þeim með húmor. Hann er mjög góður í því. En varðandi eitthvað krassandi, þá erum við bara ofboðslega leiðinlegir. Við höfum aldrei dottið af sviði eða gert neinar gloríur,“ segir Friðrik og hlær. Er hann mjög fyndinn? „Já, hann er uppáhaldsgrínistinn minn, fynd- inn og skemmtilegur. Maður hlær mjög mikið í kringum hann. Hann er sá fyndni í fjölskyld- unni.“ ’ Hann er trúr og tryggur sínu fólki og vill allt fyr- ir alla gera. Það er alltaf gleði í kringum hann og hann er orkumikill. Svo er hann jákvæður og drífandi. N æst á dagskrá blaðamanns var að banka upp á hjá Jóni Jónssyni á fallegu heimili hans á Seltjarnarnesi. Jón er úti í garði, sportlegur í hlaupafötum. Hann segist vera að dytta að húsinu en tekur sér hlé til að segja frá litla bróður sínum Frið- riki Dór. Það fyrsta sem hann gerir er að bjóða upp á kaffi og rýkur inn í eldhús. „Ég er að æfa mig undir pressu; ég er fínn að gera kaffi fyrir sjálfan mig en klúðra því oft fyrir aðra,“ segir hann, lætur kaffi renna í bolla og flóar mjólk. Friðrik sagði mér að þú værir ekkert meistari í eld- húsinu. „Já, það er reyndar kórrétt. En ég er betri á sumrin því þá opnar grillið og ég get látið að mér kveða!“ Fall er fararheill Kaffið bragðaðist fullkomlega þannig að Jón kann að minnsta kosti að búa til gott kaffi. Við vindum okkur strax í umræðuefni dagsins. „Ég man eiginlega ekkert eftir mér öðruvísi en að eiga Frikka sem bróður. Fyrsta minning mín af hon- um er hann í gipsi upp allan fótlegginn og hann með fótinn uppi í loft á spítala. Hann var tveggja ára þegar hann fótbrotnaði. Mér finnst ég muna eftir honum detta en hann skvetti úr djúsglasi og datt í eldhúsinu. Hann fótbrotnaði tvisvar á þessum árum. Hann var ekki óvarkár, heldur var þetta frekar óheppni. En fall er fararheill; það hefur gengið ágætlega síðan.“ Glamrað í bílskúrnum Varstu ekkert afbrýðisamur þegar hann fæddist? „Nei, í rauninni ekki. Ég er tvíburi á móti stelpu. Ég þekkti ekkert annað en að hafa félaga. Það eru bara ein slagsmál sem ég man eftir. Annars vorum við alltaf góðir vinir,“ segir Jón og á þá við atvikið með beltið sem Friðrik lýsir hér á opnunni. „Mamma setti svo límmiða yfir gatið. Ég rétt náði að loka hurð- inni; annars hefði ég fengið sylgj- una á beltinu í hnakkann á mér.“ Jón segist ungur hafa farið að hvetja Friðrik til dáða. „Ég man eftir því þegar Frikki var að spila fótbolta í úr- slitakeppni á Laugarvatni, þá í sjötta flokki. Pabbi segir mér að fara að hvetja hann áfram; að ég ætti að standa með litla bróður. Það sat fast í mér. Síðan þá hef ég verið hans stuðnings- maður,“ segir Jón. „Á unglingsárunum vorum við rosalega mikið sam- an inni í bílskúr; með trommusettið og rafmagnsgít- arinn tveir saman að glamra. Ég kenndi honum þar á gítar upp úr Stóru söngbókinni,“ segir Jón og segir Frikrik hafa verið góðan litla bróður. „Hann leit upp til mín og vildi standa sig vel en var samt svo sjálfstæður. Hann hefur alltaf verið með miklu sterkari skoðanir en ég. Hann kynnir sér vel málin og tekur afstöðu. Á meðan ég var yfir mig hrif- inn af Pottþétt-plötum þá fór hann að grúska og hlusta á gömlu rokkböndin. Hann fór dýpra.“ Herra Setbergsskóli Hvernig krakki var Friðrik? „Hann hefur alltaf verið með stærri tilfinningar en ég; sneggri upp. Einhvern tímann vorum við að kenna honum að nota ekki orðið „hata“, því það væri svo sterkt orð. En hann var ljúfur sem lamb en með kannski stærri skapgerð,“ segir Jón og nefnir að talað sé um að „Færeyingurinn komi upp“ þegar rætt er um þá ættingja sem eru snöggir upp. „Við erum einn áttundi Færeyingar, en það er sterkara í Frikka, enda er hann þjóðhetja í Fær- eyjum,“ segir Jón. Var hann duglegur í skóla? „Frikki var duglegur í skóla en kannski svolítið yngsta barn hvað það varðar. Hann fékk oft háar ein- kunnir í skóla en var ekki endilega undir sama eftirliti og við eldri,“ segir Jón og segir Friðrik ekki hafa ver- ið með neina uppreisn á unglingsárunum. „Ég var rosalega seinþroska og hann ekki, þannig að á einhverju tímabili munaði ekki miklu á okkur. Hann var mjög vinsæll í skóla; þú getur rétt ímyndað þér með þessi augu. Hann var „augu ársins“ í áttunda bekk,“ segir hann og skellihlær. „Svo var hann herra Setbergsskóli, tvö ár í röð.“ Varst þú aldrei herra Setbergsskóli? „Nei, ég var það bara alls ekki! Hef örugglega verið einn og fjörutíu eða eitthvað,“ segir hann og brosir. „Ég er bróðir hans Frikka“ Er Friðrik jafn hress og glaður og þú? „Hann er það iðulega. En verandi orkubolti fer ég ekki fram á að allir séu á sömu línu,“ segir Jón. „Það er ótrúlega gaman að hafa hann með sér í liði. Það er fáránlegt að hugsa til þess að við séum báðir tónlistarmenn og skemmtikraftar. Þótt það hljómi eins og klisja eru það rosaleg forréttindi að geta spjallað saman um allt, þar sem báðir þekkja leikinn inn og út.“ Stefnduð þið báðir á að verða tónlistarmenn? „Alls ekki meðvitað. Ég stend í þakkarskuld við Frikka að ríða á vaðið og gefa út lag. Ég var kannski ekki skúffuskáld, en var búinn að vera með efni inni á gamla My Space, en þorði ekki að fara með það lengra. En hann gaf út lagið Hlið við hlið haustið 2009. Sama ár, um vorið, hafði ég útskrifast úr hagfræði frá Boston University. Ég fór í reisu um Bandaríkin þetta haust í tvo mánuði og þegar ég kem heim er Frikki poppstjarna. Veðbankarnir hefðu veðjað á að ég myndi gefa út lag á undan því ég hafði verið að semja og spila á litlum stöðum, en Frikki bara henti þessu út í loftið og fylgdi sínu innsæi. Þetta sló í gegn. Þetta kveikti í mér og hjálpaði að ryðja brautina. Ég gat far- ið á útvarpsstöðvarnar og sagt: „Ég er bróðir hans Frikka.“ En ég byrjaði ekki með megahittara eins og hann.“ Með mikla náðargáfu Hvernig myndir þú lýsa hans persónuleika og mann- kostum? „Hann er samkvæmur sjálfum sér og rosalega tryggur og trúr. Hann myndi alltaf taka slaginn fyrir sitt fólk og er frábær eiginmaður og faðir. Hann pass- ar upp á að stelpunum sínum, þar með talið Lísu kon- unni hans, líði vel. Hann er vinur vina sinna og á stóran vinahóp og ég finn að ef eitthvað kemur upp á er leitað til hans. Það er gaman að vera vitni að því hvernig fólk talar um hann,“ segir Jón. „Mér finnst hann mjög fyndinn og skemmtilegur þótt hann segi að ég sé sá fyndni í fjölskyldunni,“ segir hann og hlær. „Svo er hann heppinn með þessa náðargáfu sem hann hefur; lagasmíðina. Hún er alltaf einhvern veginn öðruvísi en það sem aðrir eru að gera. Hann er meiri textahöfundur en ég; ég er meira í melódíum. Hann er klár í að setja saman orð og frumlegur og hann er frá náttúrunnar hendi miklu meiri listamaður heldur en nokkurn tímann ég. Hann er byrjaður að mála myndir úti í skúr,“ segir hann og bendir á flott málverk á vegg í stofunni. „Hann tók upp á þessu í Covid.“ En gallarnir? „Ef hann fær eitthvað á heilann sem fer í taugarnar á honum, þá vex það stundum of mikið. Annars er hann yfirleitt alltaf í góðu skapi og hann er mjög skynsamur,“ segir Jón og nefnir að báðir hafi þeir stundum rokið upp á fótboltavellinum í gamla daga. „Við erum smá hættulegir í FH-stúkunni. Ef það gerist eitthvað sem okkur mislíkar þurfum við stund- um að telja upp að tíu og stundum heppnast það ekki.“ Hvernig höndlar hann frægðina? „Hann gæti ekki verið slakari. Hann hugsar ekki um hvað aðrir hugsa um hann. Hann hefur smám saman kennt mér það, að taka ekki inn á mig hvað aðrir segja um mann.“ Nakinn á sviðinu Eru engin prakkarastrik sem þú manst eftir sem tengjast honum? Jón hugsar sig vel um og man svo eftir einu. „Hann var eitt sinn að kynna söngvakeppni í tíunda bekk og fór nakinn upp á svið, með eitt blóm til að hylja sig með.“ Í þeim töluðu orðum gengur Friðrik Dór inn um dyrnar en hann hafði verið boðaður heim til Jóns í myndatöku. „Er það ekki, Frikki? Varstu ekki nakinn að kynna söngvakeppnina?“ „Jú, vissulega,“ svarar Friðrik og brosir. Við látum það vera lokarorðin og höldum út í garð til að ná þeim saman á mynd. Blaðamaður virðir þá fyrir sér og segir: Þið eruð ekkert svo líkir. Þeir svara nánast í kór. „Nei, eins og svart og hvítt.“ Hann var „augu ársins“ ’ Hann var mjög vin- sæll í skóla; þú getur rétt ímyndað þér með þessi augu. Hann var „augu ársins“ í áttunda bekk. Svo var hann herra Setbergsskóli, tvö ár í röð.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.