Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Blaðsíða 15
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa alltaf
verið mestu mátar. Báðir hafa þeir náð
langt í tónlistinni og eru vinsælir. Frægð-
in hefur aldrei stigið þeim til höfuðs.
23.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
„Það var kannski smá fyrst en hefur aldrei
flækst fyrir okkur og í dag er ekki vottur af því.
Við erum báðir keppnismenn og viljum ná ár-
angri í því sem við erum að gera,“ segir Friðrik
og segist tala við Jón oft í viku og hittir hann
einnig oft, annaðhvort vegna vinnu eða fjöl-
skyldufunda.
Við förum að slá botninn í samtalið
en blaðamaður er spenntur að heyra
hvort ekki leynist einhverjar krass-
andi sögur úr fortíð Jóns.
„Í rauninni eru engar slíkar sögur.
Á tónleikum lifir hann svolítið fyrir að
búa til óþægileg augnablik og fara svo
út úr þeim með húmor. Hann er mjög
góður í því. En varðandi eitthvað krassandi, þá
erum við bara ofboðslega leiðinlegir. Við höfum
aldrei dottið af sviði eða gert neinar gloríur,“
segir Friðrik og hlær.
Er hann mjög fyndinn?
„Já, hann er uppáhaldsgrínistinn minn, fynd-
inn og skemmtilegur. Maður hlær mjög mikið í
kringum hann. Hann er sá fyndni í fjölskyld-
unni.“
’
Hann er trúr og tryggur
sínu fólki og vill allt fyr-
ir alla gera. Það er alltaf
gleði í kringum hann og
hann er orkumikill. Svo er
hann jákvæður og drífandi.
N
æst á dagskrá blaðamanns var að banka upp
á hjá Jóni Jónssyni á fallegu heimili hans á
Seltjarnarnesi. Jón er úti í garði, sportlegur
í hlaupafötum. Hann segist vera að dytta að húsinu en
tekur sér hlé til að segja frá litla bróður sínum Frið-
riki Dór. Það fyrsta sem hann gerir er að bjóða upp á
kaffi og rýkur inn í eldhús.
„Ég er að æfa mig undir pressu; ég er fínn að gera
kaffi fyrir sjálfan mig en klúðra því oft fyrir aðra,“
segir hann, lætur kaffi renna í bolla og flóar mjólk.
Friðrik sagði mér að þú værir ekkert meistari í eld-
húsinu.
„Já, það er reyndar kórrétt. En ég er betri á sumrin
því þá opnar grillið og ég get látið að mér kveða!“
Fall er fararheill
Kaffið bragðaðist fullkomlega þannig að Jón kann að
minnsta kosti að búa til gott kaffi.
Við vindum okkur strax í umræðuefni dagsins.
„Ég man eiginlega ekkert eftir mér öðruvísi en að
eiga Frikka sem bróður. Fyrsta minning mín af hon-
um er hann í gipsi upp allan fótlegginn og hann með
fótinn uppi í loft á spítala. Hann var tveggja ára þegar
hann fótbrotnaði. Mér finnst ég muna eftir honum
detta en hann skvetti úr djúsglasi og datt í eldhúsinu.
Hann fótbrotnaði tvisvar á þessum árum. Hann var
ekki óvarkár, heldur var þetta frekar óheppni. En fall
er fararheill; það hefur gengið ágætlega síðan.“
Glamrað í bílskúrnum
Varstu ekkert afbrýðisamur þegar hann fæddist?
„Nei, í rauninni ekki. Ég er tvíburi á móti stelpu.
Ég þekkti ekkert annað en að hafa félaga. Það eru
bara ein slagsmál sem ég man eftir. Annars vorum við
alltaf góðir vinir,“ segir Jón og á þá við atvikið með
beltið sem Friðrik lýsir hér á
opnunni.
„Mamma setti svo límmiða yfir
gatið. Ég rétt náði að loka hurð-
inni; annars hefði ég fengið sylgj-
una á beltinu í hnakkann á mér.“
Jón segist ungur hafa farið að
hvetja Friðrik til dáða.
„Ég man eftir því þegar Frikki
var að spila fótbolta í úr-
slitakeppni á Laugarvatni, þá í
sjötta flokki. Pabbi segir mér að fara að hvetja hann
áfram; að ég ætti að standa með litla bróður. Það sat
fast í mér. Síðan þá hef ég verið hans stuðnings-
maður,“ segir Jón.
„Á unglingsárunum vorum við rosalega mikið sam-
an inni í bílskúr; með trommusettið og rafmagnsgít-
arinn tveir saman að glamra. Ég kenndi honum þar á
gítar upp úr Stóru söngbókinni,“ segir Jón og segir
Frikrik hafa verið góðan litla bróður.
„Hann leit upp til mín og vildi standa sig vel en var
samt svo sjálfstæður. Hann hefur alltaf verið með
miklu sterkari skoðanir en ég. Hann kynnir sér vel
málin og tekur afstöðu. Á meðan ég var yfir mig hrif-
inn af Pottþétt-plötum þá fór hann að grúska og
hlusta á gömlu rokkböndin. Hann fór dýpra.“
Herra Setbergsskóli
Hvernig krakki var Friðrik?
„Hann hefur alltaf verið með stærri tilfinningar en
ég; sneggri upp. Einhvern tímann vorum við að kenna
honum að nota ekki orðið „hata“, því það væri svo
sterkt orð. En hann var ljúfur sem lamb en með
kannski stærri skapgerð,“ segir Jón og nefnir að talað
sé um að „Færeyingurinn komi upp“ þegar rætt er
um þá ættingja sem eru snöggir upp.
„Við erum einn áttundi Færeyingar, en það er
sterkara í Frikka, enda er hann þjóðhetja í Fær-
eyjum,“ segir Jón.
Var hann duglegur í skóla?
„Frikki var duglegur í skóla en kannski svolítið
yngsta barn hvað það varðar. Hann fékk oft háar ein-
kunnir í skóla en var ekki endilega undir sama eftirliti
og við eldri,“ segir Jón og segir Friðrik ekki hafa ver-
ið með neina uppreisn á unglingsárunum.
„Ég var rosalega seinþroska og hann ekki, þannig
að á einhverju tímabili munaði ekki miklu á okkur.
Hann var mjög vinsæll í skóla; þú getur rétt ímyndað
þér með þessi augu. Hann var „augu ársins“ í áttunda
bekk,“ segir hann og skellihlær.
„Svo var hann herra Setbergsskóli, tvö ár í röð.“
Varst þú aldrei herra Setbergsskóli?
„Nei, ég var það bara alls ekki! Hef örugglega verið
einn og fjörutíu eða eitthvað,“ segir hann og brosir.
„Ég er bróðir hans Frikka“
Er Friðrik jafn hress og glaður og þú?
„Hann er það iðulega. En verandi orkubolti fer ég
ekki fram á að allir séu á sömu línu,“ segir Jón.
„Það er ótrúlega gaman að hafa hann með sér í liði.
Það er fáránlegt að hugsa til þess að við séum báðir
tónlistarmenn og skemmtikraftar. Þótt það hljómi
eins og klisja eru það rosaleg forréttindi að geta
spjallað saman um allt, þar sem báðir þekkja leikinn
inn og út.“
Stefnduð þið báðir á að verða tónlistarmenn?
„Alls ekki meðvitað. Ég stend í þakkarskuld við
Frikka að ríða á vaðið og gefa út lag. Ég var kannski
ekki skúffuskáld, en var búinn að vera með efni inni á
gamla My Space, en þorði ekki að fara með það
lengra. En hann gaf út lagið Hlið við hlið haustið 2009.
Sama ár, um vorið, hafði ég útskrifast úr hagfræði frá
Boston University. Ég fór í reisu um Bandaríkin þetta
haust í tvo mánuði og þegar ég kem heim er Frikki
poppstjarna. Veðbankarnir hefðu veðjað á að ég
myndi gefa út lag á undan því ég hafði verið að semja
og spila á litlum stöðum, en Frikki bara henti þessu út
í loftið og fylgdi sínu innsæi. Þetta sló í gegn. Þetta
kveikti í mér og hjálpaði að ryðja brautina. Ég gat far-
ið á útvarpsstöðvarnar og sagt: „Ég er bróðir hans
Frikka.“ En ég byrjaði ekki með megahittara eins og
hann.“
Með mikla náðargáfu
Hvernig myndir þú lýsa hans persónuleika og mann-
kostum?
„Hann er samkvæmur sjálfum sér og rosalega
tryggur og trúr. Hann myndi alltaf taka slaginn fyrir
sitt fólk og er frábær eiginmaður og faðir. Hann pass-
ar upp á að stelpunum sínum, þar með talið Lísu kon-
unni hans, líði vel. Hann er vinur
vina sinna og á stóran vinahóp og
ég finn að ef eitthvað kemur upp á
er leitað til hans. Það er gaman að
vera vitni að því hvernig fólk talar
um hann,“ segir Jón.
„Mér finnst hann mjög fyndinn
og skemmtilegur þótt hann segi að
ég sé sá fyndni í fjölskyldunni,“
segir hann og hlær.
„Svo er hann heppinn með þessa
náðargáfu sem hann hefur; lagasmíðina. Hún er alltaf
einhvern veginn öðruvísi en það sem aðrir eru að
gera. Hann er meiri textahöfundur en ég; ég er meira
í melódíum. Hann er klár í að setja saman orð og
frumlegur og hann er frá náttúrunnar hendi miklu
meiri listamaður heldur en nokkurn tímann ég. Hann
er byrjaður að mála myndir úti í skúr,“ segir hann og
bendir á flott málverk á vegg í stofunni.
„Hann tók upp á þessu í Covid.“
En gallarnir?
„Ef hann fær eitthvað á heilann sem fer í taugarnar
á honum, þá vex það stundum of mikið. Annars er
hann yfirleitt alltaf í góðu skapi og hann er mjög
skynsamur,“ segir Jón og nefnir að báðir hafi þeir
stundum rokið upp á fótboltavellinum í gamla daga.
„Við erum smá hættulegir í FH-stúkunni. Ef það
gerist eitthvað sem okkur mislíkar þurfum við stund-
um að telja upp að tíu og stundum heppnast það ekki.“
Hvernig höndlar hann frægðina?
„Hann gæti ekki verið slakari. Hann hugsar ekki
um hvað aðrir hugsa um hann. Hann hefur smám
saman kennt mér það, að taka ekki inn á mig hvað
aðrir segja um mann.“
Nakinn á sviðinu
Eru engin prakkarastrik sem þú manst eftir sem
tengjast honum?
Jón hugsar sig vel um og man svo eftir einu.
„Hann var eitt sinn að kynna söngvakeppni í tíunda
bekk og fór nakinn upp á svið, með eitt blóm til að
hylja sig með.“
Í þeim töluðu orðum gengur Friðrik Dór inn um
dyrnar en hann hafði verið boðaður heim til Jóns í
myndatöku.
„Er það ekki, Frikki? Varstu ekki nakinn að kynna
söngvakeppnina?“
„Jú, vissulega,“ svarar Friðrik og brosir.
Við látum það vera lokarorðin og höldum út í garð
til að ná þeim saman á mynd. Blaðamaður virðir þá
fyrir sér og segir:
Þið eruð ekkert svo líkir.
Þeir svara nánast í kór.
„Nei, eins og svart og hvítt.“
Hann var „augu ársins“
’
Hann var mjög vin-
sæll í skóla; þú getur
rétt ímyndað þér með
þessi augu. Hann var
„augu ársins“ í áttunda
bekk. Svo var hann herra
Setbergsskóli, tvö ár í röð.