Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021 MENNTUN Í Versló er tómlegt um að litast, enda allir búnir í prófum og komnir út í sumarið. Þó er einn bekkur þar sem ekki fær kærkomið frí alveg strax, því hann fylgir dönsku skólakerfi. Nám í Norður- Atlantshafsbekknum er í boði fyrir ungmenni frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og Danmörku. Nem- endur mynda menntaskólabekk sem á þremur árum fær bæði faglegt og menningarlegt nám frá þessum fjór- um löndum. Bekkurinn, sem nú er staddur á Íslandi, var sá fyrsti sem myndaður var í þessu þróunarverk- efni en þau hófu nám fyrir tveimur árum í Danmörku og dvöldu þar í heilan vetur. Síðastliðið haust héldu þau til Færeyja þar sem dvalið var eina önn og í janúar kom hópurinn svo til Íslands. Blaðamaður hitti fjórar hressar stúlkur, eina frá hverju landi, og fékk þær til að segja frá hvernig það er að eyða menntaskólaárunum á flakki á milli landa. Ivaana, Caroline, Angela og Svava hafa kynnst vel og eru góðar vinkonur. Þær eru allar ánægðar að hafa valið þennan kost og hefðu alls ekki viljað missa af þessari reynslu. Ákvað að grípa tækifærið Hvernig fréttuð þið af þessu og af hverju völduð þið að taka mennta- skólann í Norður-Atlantshafs- bekknum? Ivaana Ég frétti af þessu þegar ég var sextán ára og þá skiptinemi á Ítalíu. Mamma sendi mér upplýs- ingar og sagði mér að skoða þennan möguleika. Ég varð strax mjög spennt. Ég sótti samt um til vara menntaskóla í Grænlandi en langaði samt mest í þennan bekk. Mér finnst svo skemmtilegt að ferðast. Ég sótti svo um og komst inn í bekkinn. Caroline Ég var líka skiptinemi, í Frakklandi, þegar ég heyrði af þess- um bekk, en foreldrar mínir lásu um hann í blöðunum. Ég gat ekki hætt að hugsa um þetta og vissi að ef ég myndi ekki sækja um, myndi ég sjá eftir því það sem eftir væri. Þannig að ég sló til og hér er ég. Norður- Atlantshafssvæðið hefur alltaf átt sér stað í mínu hjarta þar sem afi minn vann mikið á Grænlandi sem jarðfræðingur. Ég hafði farið þang- að einu sinni með honum. Ég hafði líka einu sinni farið til Færeyja með skólahljómsveitinni minni og líka farið í ferð til Íslands með foreldrum mínum. Angela Ég er frá Kollafirði, litlum þúsund manna bæ í Færeyjum. Einn kennari minn sagði mér frá þessum skóla en ég sagði strax nei; mér fannst þetta hljóma mjög stressandi. En svo fór ég að hugsa þetta betur og hugsaði að þetta yrði frábær reynsla. Nú sé ég ekki eftir því. Svava Ég sá auglýsingu á Face- book þar sem kynning á bekknum var auglýst. Ég mætti á kynninguna og eftir það var ég ekki alveg viss. En ég hugsaði mjög mikið um þetta og þrátt fyrir að vera í vafa ákvað ég að sækja um. Þetta var tækifæri sem ég varð að grípa og ég sé heldur ekki eftir því. Ólík skólakerfi Af rúmlega þrjátíu nemendum sem hófu nám við bekkinn fyrir tveimur árum eru 22 eftir. Svava Það duttur nokkrir út. Fyr- ir okkur Íslendingana var tungu- málið hindrun en allir hinir krakk- arnir tala reiprennandi dönsku. Námið var líka of erfitt fyrir suma en við fylgjum dönsku mennta- skólanámi. Caroline Okkur finnst að kenn- arnir hér hafi ekki gefið okkur nógu mikið af verkefnum, miðað við það sem við erum vön. Ivaana Það kemur í bylgjum, stundum er mikið að gera. Svava Kerfin eru svo ólík. Á Ís- landi eru stanslaus lítil próf allt árið en í Danmörku eru nánast engin próf, nema stór lokapróf. Við í bekknum fáum líka einkunnir fyrir að taka þátt í tímum og það er mik- ilvægt í danska kerfinu, en á Íslandi skiptir meira máli að ná árangri í skriflegum prófum. Djömmuðum hljóðlega Bekkurinn hóf sem fyrr segir nám í Danmörku og gengu krakkarnir þá í skóla í Helsinge, bæ norður af Kaup- mannahöfn. Þar bjuggu þau í sér- útbúnum gámum, nema Danirnir sem bjuggu hjá foreldrum sínum. Í gámunum var bað og lítil eldunar- aðstaða. Hvernig fannst ykkur að vera í ókunnugu landi og þurfa að sjá um ykkur sjálf? Angela Mér fannst það spenn- andi. Mér fannst ég tilbúin til að sjá um mig sjálf og tókst það vel. Það gat líka verið mjög þreytandi. En það var gaman meðan á því stóð. Svava Mér fannst gaman að prófa að standa á eigin fótum og það var auðvelt að aðlagast nýjum rútínum. En það erfiðasta fyrir mig var það að ég kunni ekki nóg í dönsku og skildi nánast ekkert sem kennarnir voru að segja. Það tók nokkra mán- uði að ná tökum á málinu og þá eign- aðist ég vini og allt varð miklu betra. Ivaana Við vorum fljót að eignast góða vini í bekknum og erum mjög náin. Við hittumst oft og lærðum saman og borðuðum saman. Caroline Við þekkjumst miklu betur en krakkar gera í venjulegum bekk. Ivaana Það var svolítið um partí- stand í byrjun í Danmörku en það lagaðist fljótt. Caroline Já, nágrannarnir kvört- uðu smá, en ég held ekki að krakk- arnir hafi haft mjög hátt. Svava Við máttum ekki spila tón- list eftir tíu. Fóru þið eftir öllum reglum? Caroline Opinbera svarið er; að sjálfsögðu. Svava Það var alls ekki bara verið að skemmta sér, við þurftum líka að læra. Ivaana Við djömmuðum mjög hljóðlega. Stelpurnar skella upp úr. Allir vinalegir í Færeyjum Næst lá leiðin til Færeyja og þar bjuggu flestir krakkarnir hjá fjöl- skyldum, nema Færeyingarnir sem bjuggu heima. Skólinn var stað- settur í smábæ í Kambsdal. Caroline Þetta var vindasamasti Elska stærðina á íslenskum ísum Ivaana, Svava, Caroline og Angela eru nemendur í Norður-Atlantshafsbekknum sem nú stundar nám í Versló. Morgunblaðið/Ásdís Ivaana Geisler frá Grænlandi, Caroline Termansen Villumsen frá Danmörku, Angela Djurhuus frá Færeyjum og hin íslenska Svava Þóra Árnadóttir til- heyra Norður-Atlants- hafsbekknum sem stundar menntaskóla- nám í fjórum löndum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.