Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Blaðsíða 22
Bekkurinn fór norður í ferðalag. Hér eru þær Francisca Kleist, Ivaana Olsen
Rasmussen, Navarat Villadsen og Ivaana Geisler við Goðafoss.
staður í heimi held ég. Við bjuggum
við mismunandi aðstæður; ég bjó á
heimili hjá fjölskyldu.
Ivaana Við bjuggum nokkrar
saman og þurftum að elda sjálfar of-
an í okkur, en vorum með stuðnings-
fjölskyldu. Við elduðum mikið lax,
kartöflur, pasta og súpur. Ég var
mjög hrifin af Færeyjum.
Svava Það er svo fallegt þarna og
allir eru svo vinalegir!
Angela Takk!
Þær hlæja dátt.
Caroline Eina vesenið var að
komast á milli. Samgöngur voru lé-
legar. Sumir voru nálægt skólanum
en aðrir mjög langt í burtu. Við sem
vorum nálægt hvert öðru hittumst
oft fyrir utan skóla og héngum sam-
an og horfðum á bíómyndir. Strætó-
kerfið í Færeyjum er hræðilegt.
Angela Algjörlega.
Ivaana Við vorum svolítið límd
saman.
Caroline Við vorum náin eftir
Danmerkurdvölina en eftir Fær-
eyjar erum við svakalega náin.
Angela Ég bjó hjá foreldrum mín-
um og það var rosalega langt fyrir
mig að fara í skólann. Ég þurfti að
fara í strætó einn og hálfan tíma
hvora leið. Ég þurfti að vakna sex á
morgnana. En mér líkaði samt við
skólann, þótt ég væri stundum þreytt.
Svava Helmingur bekkjarins
þurfti einmitt að ferðast svona á
milli frá Þórshöfn til Kambsdals.
Risastórir ísar
Eftir jólafrí í heimalöndum sínum
var haldið til Íslands. Krakkarnir
voru mættir hér í byrjun janúar og
eftir sóttkví á hóteli héldu sumir
þeirra til fósturfjölskyldna en aðrir
búa nokkrir saman eða í herbergjum
á stúdentagörðum.
Svava Ég bý heima og tveir
bekkjarfélagar búa heima hjá mér,
stelpa frá Grænlandi og stelpa frá
Danmörku.
Angela Ég bý hjá fjölskyldu í
Vesturbæ þar sem ég bý í kjall-
aranum með fósturbróður mínum.
Við erum orðin góðir vinir.
Caroline Ég bý í Hafnarfirði.
Mér finnst ég stundum einangruð
því ég er svolítið langt í burtu frá
hinum, sem búa flest í Reykjavík.
Hvernig líkar ykkur á Íslandi?
Ivaana Mér finnst frábært hér.
Það er mjög ólíkt dvölinni í Fær-
eyjum. Við í bekknum erum mikið
saman en það er öðruvísi.
Caroline Hér er miklu meira
hægt að gera þar sem við erum í
borg. Í Færeyjum þurftum við að
vera duglegri að finna upp á ein-
hverju skemmtilegu.
Hvað hefur komið ykkur helst á
óvart á Íslandi?
Angela Stærðin á ísum!
Caroline Já! Stærðirnar hér eru
svolítið amerískar.
Ivaana Við erum sko ekki að
kvarta!
Caroline Það erfiðasta sem við
höfum lent í hér er hversu ólík skóla-
kerfin tvö eru. Við höfum aðeins ver-
ið að deila um það mál. Svo var líka
Covid. Við erum auðvitað fyrsti
bekkurinn þannig að það eru allir
enn að læra inn á þetta.
Eldgosið stendur upp úr
Í júní lýkur Íslandsdvölinni og halda
ungmennin til síns heima yfir sum-
arið. Í haust hittast þau svo aftur á
Grænlandi þar sem þau koma til
með að búa í heilt ár.
Verðið þið leiðar að yfirgefa Ís-
land?
Caroline Já, en líka spenntar fyr-
ir Grænlandi.
Ivaana Ég mun sakna skólans
hér. Mér líkar mjög vel við hann og
heita matinn sem við fengum hér
daglega í hádeginu.
Angela Við munum líka sakna
sundlauganna.
Ivaana Það eru mjög fáar sund-
laugar á Grænlandi.
Hvað stendur upp úr?
Þær svara allar einum rómi: Eld-
gosið!
Caroline Það var líka gaman um
síðustu helgi þegar við fórum norður
í nokkra daga.
Ivaana Við höfum ferðast tölu-
vert. Ég er næstum búin að fara
hringinn, bæði meðfram suður-
ströndinni og svo norður.
Lærir miklu meira
Hvað myndu þið segja við krakka
sem eru að íhuga að sækja um í
Norður-Atlantshafsbekknum?
Svava Þetta er einstakt tækifæri
sem ekki ætti að láta fram hjá sér
fara.
Caroline Já, og þótt þetta sé alveg
erfitt verður skólinn skemmtilegur
því við skemmtum okkur svo vel
saman. Svo lærir maður svo miklu
meira en í venjulegum menntaskóla.
Ein ástæða fyrir því að ég valdi þenn-
an skóla er sú að ég fæ að upplifa
menningu annarra þjóða og kynnast
ólíku fólki. Það er svo margt sem er
ólíkt á milli þessara landa, þótt við
búum öll hér á norðurhveli jarðar.
’
Ein ástæða fyrir því að
ég valdi þennan skóla
er sú að ég fæ að upplifa
menningu annarra þjóða
og kynnast ólíku fólki. Það
er svo margt sem er ólíkt á
milli þessara landa, þótt
við búum öll hér á norð-
urhveli jarðar.
Freydís, Ivaana G., Svava, Ivaana O. og Francisca njóta lífsins í Bláa lóninu.
Norður-Atlantshafsbekkurinn
fór saman að skoða og upplifa
eldgosið sem þær stöllur segja
hafa staðið upp úr þegar þær
horfa til baka yfir Íslandsdvölina.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021
MENNTUN
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Calia Pier
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
Stakir sófar:
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Tungusófi
með rafmagni í sæti
615.000 kr.